Þjóðviljinn - 22.10.1976, Side 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. október 1976
Föstudagur 22. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Samtök um náttúruvernd á Noröurlanditelja aðaldrei séhægt aöútiloka mengun frá álveri. Móöan yfir álverinu I Straumsvík er alkunn Náttúruverndarmenn á Noröurlandi telja aö vinnustaöur eins og álver muni hafa óæskileg áhrif á rótfest mannlif I Eyjafiröi.
og hefur haft sln áhrif á gróöurinn I kring, t.d. kringum „Kapellu”.
EKKI HÆGT AÐ ÚTILOKA MENGUN
Greinargerö SUNN um álveriö viö Eyjafjörö
Aðdragandi
A árunum 1965-70 uröu tölu-
veröar umræöur um stóriöju á
tslandi I tilefni af nýjum hug-
myndum um virkjun fallvatna og
stofnun álbræöslu i Straumsvik
við Hafnarfjörö. Mun jafnvel hafa
komið til greina, aö sú verk-
smiöja yröi byggö i Eyjafiröi, en
á þeim árum var oft mikill hafis
við norðurströndina og þótti þvi
ekki álitlegt aö setja stóriöju þar
niður.
t tilefni af þessum umræðum
samþykkti aðalfundur SUNN 1970
ályktun, þar sem bent er á ,,þá
mikiu hættu á mengun lofts og
lagar, sem stafa kann af álverk-
smiöju viö Eyjafjörð.”
Sföan hefur verið hljótt um
þetta mál, þótt ýmislegt bendi til
þess, að stöðugt hafi verið unnið
að framgangi þess á bak við
tjöldin. 1 ljós hefur komið, aö
könnunarviöræöur hafa átt sér
stað milli svonefndrar „Stóriöju-
nefndar” og norska iðnfyrir-
tækisins „Norsk Hydro”, sem
látiöhefur i ljós eindreginn áhuga
á þvi aö byggja'hér álverksmiöju.
Nýlega hafa svo þessir aðilar
farið þess á leit viö Veðurstofuna
og Rannsóknastofnun Land-
búnaöarins, aö þær hefji
umhverfisrannsóknir vegna
fyrirhugaðrar álbræöslu á
svæðinu Dagveröareyri / Gæsir
við Eyjafjörö, en staður sá er um
10 km utan (norðan) Akureyrar.
Allur aödragandi þessa máls er
mjög einkennilegur. Þannig hefur
enn ekkert samráð veriö haft viö
eigendur viökomandi jaröa, sem
aðeins hafa frétt um þessar fyrir-
• Undirbúning-
urinn næsta
furðulegur og
óviðeigandi
ætlanir á skotspónum. Engin
erindi hafa borist viðkomandi
sveitarstjórn eða sýslunefnd
Eyjafjaröar. Ekki er vitaö til aö
stjórnvöld hafi fjallað um málið,
a.m.k. hefur engin ályktun hvað
þá frumvarp þaraölútandi verið
borið fram á Alþingi. Ekki hefur
heldur veriö leitaö til Náttúru-
verndarráös eöa Heilbrigöiseftir-
lits Rikisins meö umsögn.
Ályktun Náttúruverndar-
þings 1975, um iðnrekstur
„Náttúruverndarþing 1975telur
rétt, að fram fari athugun á þvi
hvaða svæðum sé sérstök ástæöa
til að hlifa viö raski og ágangi
sem meiri háttar iðnrekstri
• Veðurfar og
gróður í Eyja-
firði hefur
sérstöðu
fylgir, og hvaöa staðir á landinu
henti til meiri háttar iðnrekstrar.
Þingið leggur áherslu á, aö teknir
veröi upp þeir starfshættir, aö
áöur en teknar eru ákvaröanir
um stofnun iöjuvers eöa iöju-
reksturs á ákveðnum staö, fari
fram allar þær rannsóknir, sem
rétt er að gera kröfu til, og verði
haft samráð við þá aöila og stofn-
anir, sem hlut eiga aö máli.”
Mengunarhætta
frá álverum
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem félagið hefur aflað sér,
sleppur alltaf nokkurt magn af
úrgangsefnum frá álverum út i
andrúmsloftið, þótt beitt sé
fullkomnustu hreinsunar-
aðferöum, sem nú þekkjast, Auk
flúors og flúorsambanda er þar
um að ræöa kolsýring, brenni-
steinssambönd, kolvetni og tjöru-
sambönd og jafnvel kolaryk.
Séu úrgangsefnin hreinsuö meö
vatni eöa sjó, eins og viöa er
tiökað, berst mikið magn þessara
sömu efna út i sjóinn, þar sem
a.m.k. sum þeirra geta reynst
álika hættuleg. Einnig er veruleg
hætta á mengun frá kerbrotum,
sem oft eru geymd i haugum i
grennd viö álbræðslurnar.
Þá veröur jafnan aö gera ráö
fyrir óhöppum, sem valda þvi aö
hreinsun mistekst um lengri eöa
skemmri tima. í slikum tilfellum
áskilja retetraraðilar sér jafnan
rétt til aö halda framleiöslunni
áfram i tiltekinn tima, þrátt fyrir
bilanir, enda mjög erfitt og kostn-
aðarsamt aö stööva bræöslu i
álverum.
1 þessu sambandi má vitna I
upplýsingar frá álverinu i Lista i
Suður-Noregi, en framleiöslugeta
þess er um 50 þúsund tonn á ári.
Aö mati hins norska umsjónar-
aöila (Statens Forurensnings-
tilsyn) er sú aöferð, sem þar er
viðhöfö við hreinsun, einhver sú
besta sem völ er á. Samt sem
áður fara þar um 50 tonn á ári af
flúorsamböndum út i loftið og um
450 tonn út i sjóinn. (Heildar-
hreinsiár^ngur er talinn vera
um 97.5% miðað viö flúor). A
siöari árum hefur athygli manna
beinst sérstaklega aö fjölhringa
kolvetnum, sem nokkuð er af i úr-
gangi frá álverum, en slik efni
hafa tilhneigingu til aö safnast
fyrir i lifverum. Samkvæmt
upplýsingum frá Heilbrigöiseftir-
liti rikisins, skiptir miklu máli
hvaða aöferö er notuö viö álfram-
leiðsluna, enda veröa hreinsunar-
aðferöir að miðast nokkuö viö
það. Þá er mengun frá álverum
að sjálfsögöu þvi meiri sem þaö
er stærra.
Eyjafjöröur er umluktur
fjöllum á alla vegu, og er meöal-
hæð þeirra um eöa yfir 1000
metrar. Likja má héraðinu viö
skurö, sem er lokaöur I annan
endann. Ekkert annaö héraö i
landinu er lukt svo háum og sam-
felldum fjallgarði.
Eyjafjöröur er á þvi svæöi
landsins, sem hefur mesta
meginlandsveðráttu, en auk þess
mótast veöurfariö þar mjög af
landslaginu. Vindur er þar yfir-
leitt hægur (meðalvindstyrkur á
Akureyri er um 2 stig á móti um
3,5stigum i Rvik) og varla er um
aö ræða nema tvær vindáttir, þ.e.
út eöa inn fjörðinn. Samkvæmt
veöurskýrslum er norölæg átt
rikjandi á sumrum og á hafgolan
þar efalaust mikinn hlut aö máli,
en hún er oftast rikjandi seinni
hluta dags þegar hægviöri eru. A
vetrum er sunnanátt langtiðust á
Akureyri, en þá gætir þar oft dal-
golu, sem er kalt loft á leiö út
fjöröínn.
Hægviðri eru tiö i Eyjafirði,
einkum i innhéraöinu og geta þau
varaö svo dögum eöa vikum
skiptir, þegar hæö er yfir landinu
eða fyrir norðan þaö. Viö slíkar
aöstæöur myndast oft svonefnd
hitahvörf (inversion) i ioftinu,
þannig að neðsta loftlagiö kólnar
meira en þau efri, og ekkert upp-
streymi á sér stað. Verkar þaö
likt og þak væri sett yfir neösta
loftlagið og reykur og önnur
mengunarefni safnast þar hæg-
SUNN um álverið
1. Sá undirbúnlngur, sem er á hægri dreifingu og
núerígangi, umaðkoma jafnvel á samsöfnun
á fót álveri í Eyjafirði er mengunarefna í lofti.
næsta furðulegur og óvíð- Svipað gildir og um
eigandi, þar sem ekki sjávarmengun í
hefur verið haft samráð Eyjafirði.
við þá aðilja sem slíkt 4. Jafnvel hin minnsta
iðjuver snertir mest. loftmengun gætí haft
2. Þótt beitt sé fullkomn- alvarlegar afleiðingar í
ustu hreinsiaðferðum Eyjafirði, vegna þess
sem nú þekkjast er ekki ríkulega gróðurs, sem
hægt að útiloka mengun þar vex, villtur eða rækt-
frá álverum. Árangurs- aður, og verulegur hluti
rikasta lofthreinsun þýðir af landbúnaðarf ram-
vanalega töluverða leiðslu íslendinga byggist
sjávarmengun, sem getur ó.
reynst álíka hættuleg. Við 5. Sú rótfesta sem
bilun í hreinsibúnaði einkennt hefur mann-
margfaldast mengunar- félagið við Eyjafjörð
hættan. hlýtur að vera í hættu ef
3. Veðurfar í Eyjafirði þar yrði byggt álver, og
mótast mjög af landslagi líða myndi langur tími
og staðháttum, en því er þar til jafnvægi kæmist á
þannig háttað, að hætta að nýju.
lega fyrir. (Mörk loftlaganna má
oft sjá frá Akureyri sem gráa
reyklinu neöanvert i Vaöla-
heiöinni). Slik veöurskilyröi eru
hér helst seinni hluta vetrar og á
vorin, en geta einnig hent aö
sumarlagi.
1 innanveröum Eyjafiröi er
úrkoma fremur litil (475 mm á
Akueyri, en um 8001 Rvik) og fáir
úrkomudagar(140 á Ak. á móti 212
iRvik). Sólfar er fremur mikiö og
fáir þokudagar.
Eyjafjöröur er meö gróður-
sælustu héruöum landsins, og
gróöur fer þar hærra til fjalía en
annarsstaðar á landinu. Einnig er
fjölbreyttni gróöurs þar óvenju
mikil og þar vaxa ýmsar mjög
fágætar tegundir. Ræktunarskil-
yrði eru óvenju góö i Eyjafiröi,
sem best má sjá i skrúðgöröum
og skógarreitum I héraðinu.
Sé litið til sjávarlifsins I
firðinum viröast þaö vera fremur
fjölbreytt. Þar eru mikilvægir
uppeldisstaðir ýmissa nytjafiska
og fjöröurinn hefur jafnan veriö
talinn fiskirikur, enda eru þar
töluvert stundaöar veiöar á litlum
bátum.
í Eyjafirði er rekinn þróttmikill
búskapur, enda má svo kalla, að
allt láglendiö sé samfellt ræktar-
land. Þar eru nú framleidd um
20% af allri mjólk og mjólkur-
vörum i landinu og allt aö 7%
kjötframleiöslunnar. Þaðan
kemur og verulegur hluti af þeim
kartöflum, sem ræktaöar eru i
landinu.
Félagsleg áhrif álbræðslu
Hiö félagslega umhverfi er einn
þeirra þátta, sem taka veröur til-
lit til við uppbyggingu stóriðju. I
Noregi er þetta vel þekkt vanda-
mál, enda hafa menn þar bitra
reynslu i þeim efnum.
I Eyjafiröi hefur atvinnu-
uppbygging verið tiltölulega
stööug og jöfn, og byggist aö
verulegu leyti á úrvinnslu inn-
lendra hráefna frá landbúnaöi og
sjávarútvegi. Einnig má nefna
skipasmiöar, sem eru vaxandi
iöngrein. Verslun er mikil og
ýmsar þjónustugreinar eru mikið
stundaöar,einkum á Akureyri.
Atvinnuleysi er óþekkt aö heita
má.
Meö tilkomu álbræðslu er hætt
viö, aö vinnuafl dragist frá hinum
heföbundnu atvinnugreinum,
einkum frá landbúnaði og útgerö,
sem gætu af þeim sökum átt I vök
að verjast. Einnig myndi fólk
laöast hingað frá þeim stööum i
nágrenninu, sem hafa veikast
atvinnulif og yröi þaö enn til aö
auka ójafnvægi i byggðinni, sem
þó virðist æriö fyrir.
Skyndileg fólksfjölgun, sem
leiða myndi af tilkomu álvers i
Eyjafiröi, hefur I för með sér
margvisleg vandamál, svo sem i
sambandi við húsnæði og ýmsa
opinbera þjónustu, þótt þau yrðu
vafalaust tilfinnanlegri á smærri
stöðum.
Hvort félagsleg röskun af hálfu
álvers yröi minni i Eyjafiröi en
annarsstaöar á Norðurlandi er
erfitt aö dæma um en benda má á,
að á ýmsum öörum stööum rikir
nokkurt ójafnvægi i atvinnu-
málum og timabundiö atvinnu-
leysi. Er þá álitamál hvort röskun
yrði meiri á þeim stööum en á
Akureyri, þar sem atvinnulif er
rótgróiö og i föstum skoröum.
Aö lokum skal bent á þann
möguleika að verksmiðjan hætti
störfum, sem getur hæglega gerst
m.a. vegna breytinga á
markaöinum, vegna nýrrar
framleiöslutækni o.sfrv. Skapast
þá ófyrirséö vandamál viö aö
útvega starfsmönnum iöjuversins
nýja vinnu. Af þvi getur leitt
fólksfækkun og samdrátt á
ýmsum sviðum. Reyndar höfum
viö þar talandi dæmi, sem eru
sildarverksmiöjurnar á Hjalteyri
og Dagverðareyri.
Samtök um náttúruvernd á Noröurlandi
„Ekki hægt aö hugsa
sér óhentugri staö”
Undirritaöir stjórnarmenn
SUNN og fulltrúar þess i Eyja-
firði, lýsa yfir eindreginni and-
stööu við fram komnar hug-
myndir um byggingu álbræöslu
viö Eyjafjörö, og láta I ljós furöu
sina á þeim undirbúningi, sem nú
viröist vera i gangi þaraölútandi,
án þess aö vikomandi aöilar hafi
fjallað um málið.
Frá sjónarhóli umhverfis-
verndar er vart hægt aö hugsa sér
óhentugri stað fyrir siikt iöjuver.
Landslagi og veöurfari f Eyjafirði
er þannig háttað, aö dreifing
úrgangsefna frá álveri yrði mjög
hæg, og mikil hætta á aö efnin
safnist fyrir i loftinu. Svipað
gildir einnig um mengunarefni,
sem skolaö yrði i sjóinn. Gróður-
sæld héraðsins og framúr-
skarandi ræktunarskilyröi gera
tjón af völdum mengunar til-
finnanlegra i Eyjafiröi en viöast
annarsstaðar.
í Eyjafiröi hefur oröiö stööug
og fjölþætt atvinnuþróun, grund-
völluö á þeim verðmætum, sem
landið og sjórinn gefa af sér. Með
tilkomu álvers er hætt við að
þessi heillavænlega þróun rofnaöi
en jafnvægisleysi kæmi i staðinn,
sem leitt gæti af sér ýmis félags-
leg vandamál.
Með áframhaldandi undir-
búningi að stofnun álvers i
Eyjafiröi eru likur til aö þaö
festisthér i sessi, svo yfirvöld eigi
ekki annars úrostar en sam-
þykkja byggingu þess. Þess-
vegna er þvi mótmælt, að fyrir-
hugaöar umhverfisrannsóknir
vegna álversins veröi einskorö-
aöar viö Eyjafjörö.
Akureyri, 12. okt. 1976.
Stjórn og varastjórn SUNN:
Arni Sigurösson, Blönduósi.
Bjarni E. Guöleifsson, Akureyri.
Helga ólafsdóttir, Höllustööum.
Helgi Hallgrimsson, Vikurbakka.
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn.
Jóhannes Sigvaldason, Akureyri.
Sigurður Jónsson, Yztafelli.
Siguröur Þórisson, Grænavatni.
Fulltrúar SUNN i Eyjaf.:
Angantýr H. Hjálmarsson,
Hrafnagili.
Kristján Rögnvaldsson
Akureyri.
Svanhildur Eggertsdóttir,
Holtsseli.
Samþykkt um álver í Eyjafiröi
Sambandsstjórn LtS ásamt tveimur fulltrúum starfsmannafélaga við eitt nýju orlofshúsanna, taliö frá
vinstri: Pálmi Gislason, Starfsmannafélagi Samvinnubankans, Þórir Þorvarðarson, Starfsmanna-
félagi Kaupfélags Borgfirðinga, Pétur Óli Pétursson, Starfsmannafélagi StS, Reynir Ingibjartsson,
starfsmaður LtS, Jóhann Sigurðsson, Starfsmannafélagi verksmiðja SIS, Akureyri, Agnar Hjartar,
Starfsmannafélagi StS og Sigurður Þórhallsson, formaður stjórnar LIS. Uppi á pallinum standa Marlus
Sigurjónsson, Starfsmannafélagi Kaupfélags Suðurnesja, og Siguröur Guðbrandsson, Starfsmanna-
félagi Kaupfélags Borgfiröinga. Aö undanteknum Agnari Hjartar og Siguröi Guðbrandssyni eiga þeir
allir sæti i sambandsstjórn LtS. (Ljósm. Kristján Petur.)
12 ný orlofshús sam-
vinnustarfsmanna
Um helgina 16.-17. þ.m. voru
kaupfélögum og starfsmanna-
félögum þeirra afhentir formlcga
12 nýir orlofsbústaðir I landi
Hreðavatns I Norðurárdal, I
námunda við Samvinnuskólann
að Bifröst. Oriofshús þessi voru
að visu tekin i notkun þegar I
sumar og eru þá alls 24 orlofshús
samvinnustarfsmanna I Hreða-
vatnslandi. A undan húsum
kaupfélaganna og starfsmanna-
félaga þeirra höfðu veriö byggð
þarna hús á vegum starfsmanna-
félaga StS og Samvinnu-
trygginga.
Nýju orlofshúsin eru i skógar-
jaðri við hrauniö norður af Bifröst
og f eigu eftirtaldra aöila: Félags
starfsmanna Samvinnutrygginga
og Andvöku, Starfsmannafélags
Kaupfélags Borgfirðinga, Starfs-
mannafélags KEA, Starfsmanna-
félags Kaupfélags Skagfiröinga,
Starfsmannafélags KRON,
Starfsmannafélags Samvinnu-
bankans, Starfsmannafélags
samvinnufélaganna i Austur-
Húnavatnssýslu, Starfsmanna-
félags Kaupfélags Rangæinga,
Starfsmannafélags verksmiðja
Sambandsins, Akureyri og eitt
hús er sameiginleg eign eftir-
taldra kaupfélaga á Vestfjörðum:
Kaupfélags ísfirðinga,
Kaupfélags önfiröinga,
Kaupfélags Patreksf jaröar,
Kaupfélags Króksfjarðar, Kaup-
félags Hrútfiröinga og Kaup-
félags Steingrimsfjarðar. —
Fyrir voru á þessu landi 2 orlofs-
hús Félags starfsmanna
Samvinnutrygginga og Andvöku,
9 hús I eigu Starfsmannafélags
Sambandsins og 1 hús i eigu
Starfsmannafélags verksmiðja
Sambandsins á Akureyri.
Hjónagarðar
fyrir Bifröst
Bygging orlofshúsa hefur frá
upphafi veriö eitt af helstu
baráttumálum Landssambands
islenskra samvinnustarfsmanna
(LIS), sem stofnað var 1. sept.
1973. Ekki er fyrirhugaö aö
byggja fleiri orlofshús i Hreöa-
vatnslandi, en hinsvegar stendur
til að byggja i Eyvindardal
austanlands nokkur orlofshús á
vegum Starfsmannafélags Kaup-
félags Héraösbúa og hugsanlega
fleiri aðila. Er undirbúningur aö
þeim framkvæmdum þegar
hafinn. Einnig eru uppi ráöa-
gerðir um byggingu orlofshúsa
Bygging
nokkurra
orlofshúsa á
Héraði
fyrirhuguð
hjónagarða fyrir Samvinnu-
skólann aö vetrarlagi, þannig búa
nú tveir nemendur i Samvinnu-
skólanum i húsunum með fjöl-
skyldum sinum. Þá hefur LIS
samþykkt aö beita sér fyrir þvi að
starfræktar verði i orlofs-
húsunum við Bifröst unglinga-
búðir á vori komanda. Er hug-
mundin sú að börn á aldrinum 10-
14 ára dveljist þar um 10 daga
skeið við störf og leik. Yfirhöfuð
er aö þvi stefnt af hálfu LIS að
orlofshúsin séu liöur i einingu,
sem hafi Bifröst sem miöstöö.
Byggingarnefnd orlofshúsa
samvinnustarfsmanna, talið frá
vinstri: Þórólfur Agústsson, Mar-
geir Daniclsson, Reynir Ingi-
bjartsson, Birgir lsleifsson og
Pétur Kristjónsson.
fyrir samvinnustarfsmenn á
Vestfjöröum, og hefur botn Dýra-
fjarðar helst veriö nefndur i þvi
sambandi, en þar á Kaupfélag
Dýrfirðinga land.
Mikill áhugi er fyrir þvi aö
orlofshúsin verði ekki eingöngu
starfrækt sem slik, heldur aö þau
séu mikilvægur samnefnari fyrir
félagsstarfsemi samvinnu-
manna, að þau þýöi tækifæri fyrir
fólk til aö koma samanogkynnast
sjónarmiöum hvers annars, eins
og Reynir Ingibjartsson, starfs-
maðurLIS, komstaö oröi. Þannig
er þegar byrjaö á þvi aö hrinda af
staö fyrirætlun um aö starfrækja
orlofshúsin að einhverju leytisem
Atvinnulýðræði
og fullorðinsfræðsla
Langflestir starfsmenn
sam v innufy r ir t æk ja og
kaupfélaga eru i LIS, eða um 3000
talsins. Auk beinna hagsmuna-
mála samvinnustarfsmanna, eins
ogkalla má að bygging orlofshús-
anna sé, lætur sambandið sig
mikið varða félags- og fræöslu-
mál. Þannig var atvinnulýðræði
mjög til umræðu á siðustu lands-
ráðstefnu sambandsins og
fullorðinsfræösla fyrir samvinnu-
starfsmenn er einnig meöal verk-
efna þess. LIS beitti sér frá
upphafi gegn hótelrekstri SIS á
Bifröst yfir sumartimann, og nú
hefur hótelreksturinn verið
lagðurniöur og er húsnæöið starf-
rækt sem orlofsheimili aö sumar-
lagi. Dvelur fólk þar viku i senn
og er öllum heimill aögangur á
sama veröi, einnig þótt þeir séu
ekki samvinnustarfsmenn. Hefur
Bifröst verið starfrækt á þennan
hátt i tvö sumur og hefur her-
bergjanýtingin á þeim tima verið
90-100%. Mun varla nokkur
veitinga- og gististaöur hérlendis
veita ódýrari þjónustu, að sögn
forráöamanna LÍS.
Orlofshúsin nýju eru norsk, frá
fyrirtækinu Trybo, í hverju þeirra
þrjú svefnherbergi með 6 rúmum
og auk þess rúmgóö setustofa,
eldhús meö isskáp og eldunar-
hellum og snyrting meö baöi.
Húsin eru rafmagnshituð og ein-
angruð með tilliti til notkunar aö
vetri til, og þvi rangt aö tala um
þau sem sumarhús eingöngu.
Umsjón með uppsetningu hús-
anna hafði Sigurgeir Ingi-
marsson, byggingameistari i
Borgarnesi, og uppsetninguna
önnuðust aðallega þeir
Guömundur Finnsson og Reynir
Amason, meö góöri aðstoö sjálf-
boöaliða. dþ