Þjóðviljinn - 26.11.1976, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 26.11.1976, Qupperneq 1
MOÐVIIJINN Föstudagur 26. nóvember 1976. —41. árg. —266. tbl. Gundelach og Geir I gær sátu þeir Einar Agústs- son og Matthias Bjarnason, ráð- herrar ásamt nokkrum emb- ættismönnum á fundum með sendinefnd Efnahagsbánda- lagsins og ræddu veiðar erlendra skipa i islenskri land- helgi. Engar fréttir hafa fengist af þessum fundum. 1 dag ræðir Gundelach, formaður sendi- nefndar Efnahagsbanda- lagsins við Geir Hallgrimsson, forsætisráðherra í stjórnar- ráðinu klukkan 9 fyrir hádegi og siðan klukkan ll'við Einar Agústsson og Matthias Bjarna- son. Ráðherrar fengu skriflegar ávítur i upphafi þingfundar i gær lýsti Asgeir Bjarnason þvi yfir að tveir af ráðherrunum sem ekki komu tii þing- fundar á þriðjudag hefðu haft iögleg forföil. Gunnar Thoroddsen var erlendis á fundi en ráðuneyti hans láðist að tilkynna hæst- virtu alþingi um fjarveruna. Þá hafði Halldór E. Sigurðs- son komið að máli við forseta skömmu fyrir hádegið og boðað forföli en forseta láðst að tilkynna þingheimi það. bess skal getið að Halldór E. Sigurðsson mun þennan dag hafa þegið veitingar i rúss- neska sendiráðinu. Enn er óupplýst hvað þeir höfðust að Geir Hallgrimsson, Einar Agústson, Vilhjálmur Hjálmarsson, Matthias A. Matthiesen og Matthias Bjarnason. Þá hefur blaðið einnig sannfrétt, að forseti Samein- aðs þings hafi sent öllum ráðherrunum, sem skrópuðu án þess að hafa fjarvistar- leyfi áminningu Háskólaráð: V instri menn hlut- skarpari I kosningum nemenda Háskóla íslends um tvo fulltrúa i Háskólaráð sigraði B-listi, listi vinstri manna. Efsti maður á B-lista, Gylfi Arnason var kjörinn til tveggja ára i ráðinu, með 736 atkvæðum, en efsti maður A- lista, lista Vöku, kjörinn til eins árs með 618 atkvæðum. Það var Berglind Asgeirs- dóttir. Kjörsókn var 53%. Meðalhraði strœtó 1 7 km. á klst. A skipulagssýningu Keykja- vikurborgar að Kjarvaisstöðum er margan skemmtilegan fróð- ieik að finna og eru hlutirnir þannig settir fram að næsta auðvelt er að átta sig á hvað verið cr að sýna. Myndin hér til hliðar sýnir t.d. niðurstöður athugunar á ýms- uin atriðum varðandi Strætis- vagna Keykjavikur. Má m.a. sjá að meðalhraði vagnanna er 17 kilómetrar á klukkustund, sem ekki þykir mikið nú til dags, en engu að siður fara þeir samtals 91 hring kringum jörð- ina á hverju ári! Nóvemberkvöld í Reykjavik Leyfi til síldveiða rann út í nótt AJlir bátar fylltu veiðikvótann sinn A miðnætti i nótt rann út leyfi til sildveiða hér við land og höfðu þá allir bátar á hringnóta veiðuin fyllt veiðikvóta sinn, utan einn, sem byrjaði veiðar mjög seint. Að sögn Jóns. B. Jónassonar i sjávarútvegsráðuneytinu veiddu 50 bátar i hringnót, um tæplega fjörutiu i reknet, en fyrir rekneta- bátana var enginn sérstakur veiðikvóti settur upp, heldur var veiði þeirra áætluð og siðan gefin alveg frjáls. Samtals máttú hringnótabátar STRÆTISVAGNAR REYKJAVÍKUR 1976 veiða tiu þúsund tonn af sild á þessu ári og fékk þvi hver bátur aðeins að taka inn 200 tonn. Voru dæmi þess að slikur afli fengist i einni ferð en verðmæti hans er um niu miljónir króna, sem þó er aðeins breytilegt eftir verðflokki sildarinnar. Jón sagði að sjómenn virtust hinir ánægðustu með ver- tiðina, af nægri sild var að taka og verðið hið ákjósanlegasta. Þótti mörgum hámarksveiðikvótinn þó ansi knappur. Samtals veiði hringnótar- og reknetabáta var áætluð 15 þúsund tonn, en var i fyrra samtals tiu þúsund tonn. Vonir standa til að hægt verði að hækka kvótann aft- ur næsta ár, en fiskifræðingar munu nú, að lokinni vertið, halda suður undir jökul og kanna ástandið á sildarmiðunum. Ef framburður sjómanna, sem segja að geysilega mikil sild sé ennþá á svæðinu, reynist réttur bendir það til þess að sildarstofninn sé á ný i sókn og aö hægt verði þá að auka kvótann til muna næsta ár. —gsp. Farþegafjöldi: 12.000 000 Akstursvegalengd: 3.650.000 km á éri, samsvarar 91 ferð umhverfis jörðina. Leiðakerfl: 220 km að vegalengd Meðalhraði ca. 17,0 km/ktsl. Flutningsgeta: ca. 5.000 farþegar ’J&t Vélarortsa til samans: 11980 hestöfi Thor og Vésteimi til Norðurlandaverðlauna Þær islenskar bækur sem tilncfndar eru til næstu bókmenntaverölauna Norður- landaráðs eru Fuglaskottis eftir Thór Vilhjálmsson og Eftirþank- ar Jóhönnu eftir Véstein l.úöviks- son. Bækur eftir þessa höfunda hafa til greina komiö áður. Frá Sviþjóð eru tilnefndar bæk- ur eftir Göran Sonnevi og P.C. Jersild, frá Finnlandi eftir Bo Carpeland og Ulla Lena Lund- berg, frá Noregi koma bækur eft- ir Sigurd Evensmo og Knut Faldbakken og frá Danmörku Jörgen Gustava Brandt og Svend Age Madsen. Verðlaununum verður úthlutað i sambandi við næsta þing Norðurlandsráðs i janúar næst- komandi. Þau hafa numið 50 þús- undum danskra króna en menntamálaráðherrar Norður- landa hafa lagt til að sú upphæð sé hækkuð i 75 þúsundir. Af Islands hálfu sitja i nefnd- inni sem til verðlauna velur þeir Hjörtur Pálsson og Njörður P. Njarðvik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.