Þjóðviljinn - 26.11.1976, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 26. nóvember 1976
r-------------- : i
þingsjá þjóðviljans
k_____________________A
Rannsóknarnefnd til
að kanna innkaupsverð
i framhaldi af uppljóstrunum
verðlagsstjóra um hátt innkaups-
verð islenskra heildsala á vörum i
London hafa fjórir þingmenn
Alþvðubandalagsins lagt fram
tiliögu til þingsályktunar um
skipun rannsóknarnefndar til að
rannsaka innkaupsverð á vörum
o.fl. og skuli hún skila skýrslu til
Alþingis eigi siðar en 2 mánuðum
eftir að ályktunin er gerð. Þing-
mennirnir eru Eðvarö Sigurös-
son. Garðar Sigurðsson, Svava
Jakobsdóttir og Lúðvik Jóseps-
son.
I tillögunni kemur fram að
verkefni nefndarinnar séu:
1. Að rannsaka hvort innkaup á
vörum til landsinsséumeð eðlileg
um hætti og. i samræmi við
þjóöarhagsmuni eða hvort brögð
séu að þvi að vörur séu keyptar til
landsins á óhagkvæmu verði sem
leiði til hærra vöruverðs i landinu
en ætti aö vera.
2. Að rannsaka sérstaklega
áhrif umboðslauna i i vöruverði,
gjaldeyrisskil á umboðslaunum
og hversu öruggt eftirlit sé nú
með gjaldeyrisnotkun til vöru-
kaupa.
Nefndin rannsaki aðra þætti
þeirra mála sem hér um ræðir
eftir þvi sem henni þyki ástæða
til.
t lok greinargerðar sem fylgir
tillögunni segir að vegna þeirra
umræðna sem orðið hafa um
þessi mál og mikillar tortryggni
varðandi gjaldeyrisskil og upp-
gefið innkaupsverð á vörum þyki
rétt að málið allt verði rannsakað
af nefnd þingmanna sem hafi fullt
vald til að taka skýrslur af opin-
berum aðilum og öðrum sem
máliö geta upplýst.
Hér er um mál að ræða sem al-
menningur i landinu krefst að
verði upplýst til fulls. Nægilega er
dýrtiðin i landinu mikil þó að ekki
bætist við verðhækkanir sem
stafa af óheiöarlegum viðskiptum
og of háu innkaupsverði á vörum
til landsins. —GFr.
Lúðvik Jósepsson flytur frumvarp um
Iðnþróunarstofn
im Austurlands
Lúðvik Jósepsson hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp til
laga um Iðnþróunarstofnun
Austurlands sem vinni að efl-
ingu iðnaðar á Austurlandi.
Verkefni Iðnþróunarstofn-
unar Austurlands skulu m.a.
vera þessi:
1. Að hafa forgöngu um að koma
á fót nýjum iðnfyrirtækjum á
Austurlandi og efla þau, sem
fyrir eru.
2. Að koma á sem hagkvæmustu
sölufyrirkomulagi á iðnaðar-
framleiöslu fjórðungsins.
3. Að veita fjárhagslegan stuðn-
ing og fyrirgreiðslu til stofn-
unar nýrra iðnfyrirtækja þar
sem sérstaklega verði leitast
við að koma upp samrekstri
nokkurra byggðarlaga um
iðnaðarframleiðslu.
Rikissjóður skal leggja Iðn-
þróunarstofnun Austurlands til
20 miljónir króna á ári i 3 ár,
1977—79, enda leggi sveitarfélög
á Austurlandi hálft framlag á
móti rikinu. Framlög þessi
skulu vera óafturkræf sem
stofnframlög.
I greinargerð með frumvarp-
inu segir ma. að vegna smæðar
hins islenska markaðar hafi
vöruframleiðsluiðnaður einkum
vaxið upp á höfuðborgarsvæð-
inu og á Akureyri en starfs-
möguleikar annars staðar séu
býsna fáskrúðugir. Þessi stofn-
un á að efla iðnað á Austurlandi.
Frá Grindavfk
Fjármagn
vantar
til vega
Allmiklar umræður urðu um
það i gær hvert beina ætti fjár-
magni i vegagerð. Tvær þings-
ályktunartillögur liggja fyrir
þinginu og gengur önnur út á
lagningu bundins slitlags á
þjóðvegi sem þegar eru upp-
byggðir en hin út á uppbyggingu
þjóðvega i snjóahéruðum. Þetta
voru þó mest deilur um keisarans
skegg þar sem vegasjóöur er
fjárvana og ekki hægt að gera
stórátak i einu né neinu hvort sem
er. Halldór E. Sigurðsson flutti
langa hugleiðingu um þessi mál
en gætti þess vandlega að taka
hvergi fast á.
Fiskimjölsverksmiðjan
i
Grindavík
Fjórir þingmenn úr jafn mörg-
um flokkum, þeir Jón Ármann
Héöinsson, Oddur Ólafsson, Jón
Skaftason og Geir Gunnarsson
flytja þingsályktunartillögu um
að reist verði fiskimjölsverk-
smiðja i Grindavik og verk-
smiðjan geti hafið vinnslu á
loðnuvertiðinni er vinni loðnu og
annan fisk ásamt fiskúrgangi.
Gert er ráð fyrir að verksmiðj-
an verði helst með um 1000 tonna
bræðsluafköst á sólarhring, verði
reist á árinu 1977 og hefji vinnslu
á loðnuvertið 1978.
Bent er á i greinargerö að
veiðar og vinnsia á loðnu sé orð-
inn snar þáttur i þjóðarbúskapn-
um og ekki fyrirsjánlegt annað en
að svo muni verða um óákveðinn
tima. Það sé þvi ekki viðunandi
að eiga það undir mati erlendra
aðila —<Nordglobal) hversu mik-
ill afli komist á land.
18 ára kosn-
ingaaldur
Þingmenn Alþýðuflokksins
hafa lagt fyrir Alþingi tillögu
um að lækka kosningaaldur
niður i 18 ára og fylgdi
Eyjólfur Sigurðsson tillög-
unni úr hlaði i gær. Lúðvik
Jósepsson lýsti yfir stuðningi
sinum við tillöguna en fleiri
tóku ekki til máls.
Vörugjald framlengt
KikisstjórhíiT heTur ’fTútt
frumvarp til laga um að vöru-
gjald verði framlengt til 31. des.
1977.
Sérstakt timabundið vöru-
gjald var upphaflega lagt á með
bráðabirgðalögum nr. 65 16. júli
1975.
Var það 12% frá 17. júli
1975 til 31. desember 1975, 10%
frá 1. janúar 1976 til 4. mai 1976
en hefur verið 18% frá þeim
tima. Samkvæmt 1. gr. 1. nr
20/1976 skal vörugjaldið
innheimt til 31. desember 1976.
Meö frumvarpi þessu er lagt til
að gjaldið veroi framlengt til 31.
desember 1977 eins og gert er
ráð fyrir i tekjuáætlun fjárlaga-
frumvarps fyrir árið 1977.
33. þing
Alþýðusambands
r
Islands
verður sett i Háskólabiói mánudaginn29. nóvember kl. 14.00.
Þingfulltrúar eru beðnir að vitja aðgöngumiða sinna á skrifstofu Al-
þýðusambandsins, Laugavegi 18, á laugardag og sunnudagen skrif-
stofan verður opinfrá kl. 2-5 e.h. báða dagana.
Allir velunnarar Alþýðusambandsins eru velkomnir á setningarfund-
inn i Háskólabiói kl. 15 á mánudaginn, meðan húsrúm ieyfirog þurfa
þeir ekki sérstaka aðgöngumiða.
Orðsending frá
r
Islenskum
heimilisiðnaði
Við eigum 25 ára afmæli um þessar mund-
ir og opnum i dag viðbótar húsnæði i Hafn-
arstræti 3
Aldrei glæsilegra úrval af handunnum is-
lenskum ullarvörum.
SJÖL — HYRNUR — PEYSUR — HUFUR
— VETTLINGAR — VÆRÐARVOÐIR
Norræna deildin er nú á jarðhæð og við fá-
um daglega nýjar finnskar og sænskar
vorur.
ÍSLENSKT KERAMIK I óvenju miklu úr
vali.
Og nýja línan frá JENS er:
SKARTGRIPIR I GULLI
Betri þjónusta — meira vöruval
Lítið i gluggana um heigina
ÍSLENSKUR HEIMILISIÐNAÐUR