Þjóðviljinn - 04.03.1977, Page 4

Þjóðviljinn - 04.03.1977, Page 4
4 — SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. mars 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýdshreyfingar og þjóðfrelsis. Ctgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Útbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjörleifsson. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Auglýsingastjóri: úlfar Þormóösson Ritstjórar:Kjartan ólafsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Svavar Gestsson Síöumúla 6. Simi 81333 Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Prentun: Blaöaprent hf. úmsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Morgunblaðið rœðst á kröfuna um 100 þúsund í lágmarkskaup Krafan um 100 þúsund króna lágmarks- laun var samþykkt einum rómi á þingi Al- þýðusambands íslands fyrir þremur mán- uðum. — Engin rödd kom fram i þá veru að þessi krafa væri á einhvern hátt ósann- gjörn. A kjaramálaráðstefnu Alþýðusam- bandsins i siðustu viku var þessi einfalda krafa áréttuð og ákveðið að beita afli verkalýðssamtakanna til að bera hana fram til sigurs. Samþykkt kjaramálaráðstefnunnar um bessi efni var einnig gerð einróma. Eng- inn sem þar sat taldi vafamál, hvort islenskt atvinnulif, islenskt þjóðfélag, hefði efni á svo „rausnarlegum” launa- greiðslum. 1 verkalýðshreyfingunni á Islandi er sem kunnugt er fólk úr öllum stjórnmála- flokkum. Oft er gumað af þvi i Morgun- blaðinu hvað Sjálfstæðisflokkurinn eigi mikil itök i verkalýðshreyfingunni, og reyndar er þvi ekki að neita, að bæði á Al- þýðusambandsþinginu og á kjaramála- ráðstefnunni á dögunum voru ýmsir, sem telja Sjálfstæðisflokkinn brjóstvörn verkalýðsins og reyndar allra annarra stétta um leið! A þingi Alþýðusambands- ins og á kjaramálaráðstefnunni var þó nokkur hópur manna, sem þeir Geir Hallgrimsson og Gunnar Thoroddsen telja góðu börnin sin i verkalýðshreyfingunni. En skyldu þá Sjálfstæðismenn i verka- 'lýðshreyfingunni og Sjálfstæðismenn á Al- þingi (stundum er um sömu einstaklinga að ræða) og Sjálfstæðismenn við Morgun- blaðið ekki vera sammála um svo sjálf- sagt mál? Morgunblaðið sagði fátt um 100 þúsund króna kröfuna dagana sem Alþýðusam- bandsþing var haldið, en nú er það að vakna til lifsins, samanber forystugrein i fyrradag. Og styður þá Morgunblaðið kröfu verka- lýðssamtakanna um 100 þús. kr. lág- markslaun á mánuði og verðtryggingu? — Nei, það er á móti henni. í forystugrein Morgunblaðsins segir orðrétt: „Það kann að hljóma vel að setja fram kröfu um 100 þús. kr. lágmarkslaun, en þegar menn fara að skoða málin ofan i kjölinn koma ýmsir vankantar i ljós.” Þetta voru orð Morgunblaðsins. Góðu börnin Sjálfstæðisflokksins i verkalýðshreyfingunni höfðu sem sagt „ekki skoðað málin ofan i kjölinn”, þegar þau létu „niðurrifsöflin” plata sig til þess á Alþýðusambandsþingi að heimta lág- markslaunin upp i 100 þúsund. — Það eru vankantar, segir Morgunblaðið. Og hvaða vankantar? — „Hættan er t.d. sú að hún (þessi krafa) dragi úr möguleikum ungs fólks, sem hefur enga starfsreysnlu, til þess að fá atvinnu”, segir i forystugrein Morgunblaðsins. Já, hvaðer þessi æskulýður eiginlega að rifa kjaft, — ef hann ætlar að heimta 100 þúsund i kaup á mánuði, þá verður hann bara sendur heim, og fær enga vinnu! Enn segir i sömu Morgunblaðsgrein: ,, Afgreiðslustúlka i verslun kann að vera á lágu kaupi (!), en laun hennar eru aðeins hluti af heildartekjum fjölskyldu hennar og það lifskjarastig sem við höfum tamið okkur er i raun miðað við tvær fyrirvinn- ur”! Þarna er sem sagtkomin ný kenning. Af þvi tveir frá hver ju heimili verða nú víð- ast hvar að afla teknanna i stað eins áður, þá er sem sagt allt i lagi þótt kaupmáttur launa hvors hjóna um sig haldi áfram að hrapa. — Farið bara fleiri i vinnuna, segir Morgunblaðið, þvi ekki líka gamalmennin og börnin, og unnið ykkur ekki hvildar frá yfirvinnunni, — þá getið þið verið lukkuleg með þessi 70 þúsund fyrir dagvinnuna, og sætt ykkur við helmingi lægra kaup fyrir hverja vinnustund en almennt gerist í ná- grannalöndunum!! Það er að visu tekið fram i þessari kostulegu forystugrein Morgunblaðsins að 100 þúsund kr. á mánuði „nægi engan veg- inn til þess að standa undir framfærslu- kostnaði meðalfjölskyldu”. En síðan er bætt við orðrétt: „Talið er að unnt sé að tryggja um 4% hækkun rauntekna á þessu ári” (4% ekki 40%). Dagvinnutekjur verkafólks eiga sem sagt samkvæmt kenningu Morgunblaðsins áfram að vera milli 70 og 80 þús. á mánuði allt þetta ár, þótt blaðið sjálft viðurkenni hins vegar að kr. 100 þús. „nægi engan veginn til að standa undir framfærslu- kostnaði meðalfjölskyldu”. Telur Morgunbla.ðið island það hörmungarinnar land að svona verði þetta að vera, þótt flestar helstu útflutningsvör- ur okkar seljist á hæsta pris? Eða vill Morgunblaðið viðurkenna, að eitthvað mjög alvarlegt sé bogið við stjórnarfarið i landinu og þá skiptingu arðsins af þjóðar- búinu, sem þetta stjórnarfar tryggir? — k. thaldið yfir og allt um kring A hverjum degi má finna dæmi um þaö, jafnvel i dagblööum, hvernig Sjálfstæöisflokkurinn notar aöstööu sina i hinu opinbera kerfi. Má enda heita aö allur meginhluti embættismanna- kerfisins sé undirlagöur af ihalds- mönnum; gildir þaö jafnt um rik- iö, borgarstjórnina i Reykjavik, bankakerfiö. Hvarvetna má meö litilli fyrirhöfn finna menn sem telja sér skyldast aö ganga erinda Sjálfstæöisflokksins eöa menn sem I athöfnum sinum einkennast fyrst og fremst af þægö viö Ihald- iö, kerfiö og peningaöflin, oft reyndar ómeövitaö, þvi aö ihalds- sjónarmiöin eru runnin þessu fólki I merg og bein. Þessar staöreyndir eru augljós- ar hverjum manni og viöur- kenndar af ihaldinu sjálfu; hins vegar eru þær kannskí of algeng- ar til þess aö fólk taki eftir þeim daglega. En einmitt þess vegna er nauösynlegt aö benda á þær og vara viö þvi aö menn liti á þaö aö sem sjálfsagöan hlut trúnaöarmenn Ihaldsins sitji yfir hvers manns hlut i rikiskerfinu. borgarstofnunum eöa annars staöar. Þetta eru staöreyndir sem fólk veröur aö hafa I huga, ekki sist vegna þess aö auk þessara trúnaöarmanna hefur ihaldiö yf- irburöa aöstööu I hugmyndamót- un almennings I gegnum þrjú i- haldsblöö og forræöi i veigamikl- um þáttum menntakerfisins. Vegna þess siöastnefnda ber aö gjalda varhug viö upphlaupum i- haldsaflanna og foröast aö taka undir málflutning þeirra, þó aö hann viröist trúveröugur á yfir- boröinu er jafnan undir niöri hug- myndagrundvöllur Ihaldsins. Látið ekki happ úr hendi sleppa Þessi hugleiöing er sett fram aö marggefnu tilefni. Eitt slikra berst inn á borö til klipparans i dag: Fundartilkynning frá félagi ungra Ihaldsmanna i Breiöholti. Þar er skýrt frá fundi sem hald- inn var fyrir nokkru þar I hverf- inu um byggingamál ungs fólks. Máttarstólpar fundarins voru þrir: Fyrstan skal telja Þorvald Mawby formann BYGGUNG sem er byggingafélag ungra Ihalds- manna. Aöild aö þvi félagi er bundin þvi skilyröi aö viökomandi sé I Heimdalli eöa öörum félögum ihaldsins. Þetta félag hefur þrátt fyrir þessa takmörkun fengiö for- gangsrétt til dýrustu lóöa I bæn- um og hefur þaö veriö tekiö fram yfir félög almennings sem hafa byggt fyrir lágt verö, eins og Byggingasamvinnufélag atvinnu- bifreiöastjóra, sem nú heitir Aöalból. Hér er aö sjálfsögöu um augljósa misnotkun aö ræöa af hálfu ihaldsins; i gegnum allt borgarkerfiö fær þaö aöstöðu til þess aö hygla flokksfélögum sin- um umfram alla aöra menn. Reykjavikurihaldiö litur á borg- ina sem sina einkaeign og úthlut- ar lóöum tam. eftir þvi hvort fyr- irtæki leggur miljón i húsbygg- ingasjóö Sjálfstæöisflokksins eöa ekki eöa beint og blygöunarlaust til félags sem er undirdeild I Heimdalli. Væri aöeins stigsmun- ur á þvi en ekki eölis- þó aö ihald- iö tæki einn góöan veöurdag á- kvöröun um þaö aö öll lóöaúthlut- un i Reykjavik skyldi fara fram á vegum Sjálfstæöisflokksins beint og aö Sjálfstæöisflokkurinn einn heföi heimild til þess aö reisa hús i Reykjavik. Annar máttarstólpi umrædds fundar var Magnús L. Sveinsson, borgarfulltrúi, sem kynnti „lóða- úthlutanir og afstööu borgaryfir- valda til þeirra.” Semsé sami grautur i sömu skál: Borgarkerf- iö I þágu Sjálfstæöisflokksins. Þriöju máttarstólpinn var Skúli Sigurösson, skrifstofustjóri hjá Húsnæðismálastjórn, sem geröi „grein fyrir lánum stofnunarinn- ar bæöi til nýbygginga og kaupa á eldra húsnæöi.” Skúli er fyrrver- andi formaöur Heimdallar. Ekki eru þaö min orö aö hann misnoti vald sitt og aöstööu hjá Húsnæöis- málastofnun rikisins; hitt fer ekki á milli mála, aö þessir þrir menn sem hér hafa verið nefndir geta ákaflega vel samanlagt haft býsna afgerandi afstööu I hús- næöismálakerfinu. aö ekki sé meira sagt. Enda var fundaraug- lýsingin botnuö meö þessum orö- , um: „Ungt fólk I Breiöholti! Hús- næöismál ungs fólks eru eitt brýnasta úrlausnarefni liöandi stundar. Nú gefst ungu fólki i hús- næöisleit tækifæri til aö kynna sér þessi mál og gerast félagar i BYGGUNG. Látiö ekki happ úr hendi sleppa”. —s.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.