Þjóðviljinn - 04.03.1977, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 04.03.1977, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Föstudagur 4. mars 1977 Eitt prósent álag á gjaldstofn útsvara Efri deild Alþingis leggur til aö 3. grein frumvarps til laga um breytingu á almannatryggingar- lögunum frá 1975 oröist svo: Á árinu 1976 skal álagningar- aðili útsvars leggja á og ínn- heimta 1% álag á gjaldstofn út- svara og skulu sveitarfélög standa sjúkrasamlögum skil á fyrirframgreiöslu eöa hlutfalls- legri innheimtu þess mánaöar- lega. Eigi skal leggja gjald þetta á þá, sem ekki er gert aö greiöa útsvar, né heldur þá sem vistaöir eru á elli- eöa hjúkrunarheimilum, né langlegusjúklinga á öörum sjúkrastofnunum eöa I heirnahús- um. Hjá þeim öörum, sem náö hafa Sigurður Magnússon leggur til: Frádráttur hjóna við heimilisstofnun nemi kr. 250 þúsund Siguröur Magnússon flytur eftirfarandi breytingartillögu viö frumvarp þaö um tekju-.og eigna- skatt, sem nú er til meðferðar á Alþingi: Viö 30. gr. bætist nýr töluliöur, töluliöur 15., er hljóöi svo: Kostnað hjóna við stofnun heimilis á þvi ári, sem þau ganga I hjúskap, og skal sá frádráttur nema 250.000 kr. Telji hjón fram til skatts sitt I hvoru lagi.skiptist frádrátturinn jafnt milli þeirra. Sama rétt hefur sambýlisfólk, er sannanlega hefur búiö saman I tvö ár, þótt þaö hafi ekki stofnað til hjúskapar. Jafnréttisráð Skattlagning án tengsla við hjú- skaparstöðu Jafnréttisráð hefur flutt skrif- stofu sfna aö Skólavöröustíg 12, og er slminn 27420. Viðtalstlmi er alla virka daga kl. 10-12.Fram- kvæmdastjóri jafnréttisráös er Bergþóra Sigmundsdóttir og hef- ur hún verið ráöin I fullt starf frá 1. janúar. Jafnréttisráö hefur sent fjöl- miölum ýtarlega greinargerö um frumvarp til laga um tekju- og eignaskatt og segir þar m.a. aö skattalöggjöf eigi aö vera hlut- laus gagnvart jafnrétti kynjanna, þ.e. ekki letjandi fyrir ákveöinn hóp manna i þjóðfélaginu svo sem giftar konur. Þvi skuli skatta- kerfiö þannig uppbyggt aö þaö taki tillit til fjárhagslegs sjálf- stæöishjóna. 1 samræmi viö þetta sjónarmiö telur jafnréttisráö aö taka beri upp sérsköttun á sér- aflafé. Eins og áöur segir er greinar- gerö ráösins mjög ýtarleg og þvl er ekki unnt sökum rúmleysis I blaöinu aö gera þvl nánari skil aö þessu sinni en þaö veröur gert siöar. —hs Hlutavelta Skag- firðingafélagsins Skagfiröingafélagiö I Reykja- vik minntist nýlega 40 ára af- mælis söis meö veglegri árs- hátiö aö Hótel Sögu. Félagiö er nú aö koma sér upp sérstöku heimili aö Slöumúla 35. Og þó aö haft sé á oröi aö „allt sé fertug- um fært”, þá er sllk heimilis- stofnun æriö erfiöur róöur nú á tlmum, jafnvel fyrir fjölmennt og Ilfmikiö átthagafélag. Félagiö leggur þó allt kapp á aö geta komið húsinu I þaö horf, aö unnt veröi aö taka þaö i fulla notkun á þessu ári og fært þannig sjálfu sér þá afmælis- gjöf, sem svo lengi hefur veriö beöiö eftir. Skagfiröingafélagiö efnir nú til hlutaveltu og flóamarkaðar I slnu ófullbúna félagsheimili aö Siðumúla 35, n.k. sunnudag þann 6. mars kl. 2. Allur ágóöi rennur til aö fullgera félags- heimilið. Heitir félagiö á skilning velunnara sinna og annara aö þeir komi I Slöumúla 35 n.k. sunnudag, freisti gæfunnar og styrki þaö um leiö I starfi. Æskulýðsdagur Þ j óðkirk j unnar Æskulýösdagur Þjóðkirkjunnar er næsta sunnudag 6. mars. Aö þessu sinni veröur umræöa dags- ins tileinkuö sumarbúöastarfi Þjóökirkjunnarfyrir börn og ung- linga og til aö vekja athygli á þeim æskulýösstarfs innan kirkj- unnar hafa viökomandi aöilar gefiö út blaðiö Immanúel, sem dreift veröur um allt land, en i blaöinu er fjallaö ýtarlega um sumarbúðastarfiö. Jafnframt veröur söfnun á veg- um Æskulýösstarfs þjóökirkjunn- ,ar til ágóða fyrir sumarbúöa- starfsemina, merkjasala veröur vlöa og austfiröingar hafa gefið út sérstaka veifu, sem þeir selja til ágóöa fyrir kirkjumiöstöö sem er aö risa viö Eiöavatn. Um allt land veröa almennar guösþjónustur helgaðar þessari starfsemi og út- varpaö veröur frá messu á Egils- stööum. Þá mun Æskulýösstarf þjóð- kirkjunnar gangast fyrir kvöld- samkomu i Bústaðakirkju I Reykjavik á sunnudagskvöldiö. 67 ára aldri á skattárinu eöa áttu rétt á örorkulífeyri á skattárinu skv. lögum nr. 67/1971, úm al- mannatryggingar, meö áorönum breytingum.skal lækka álag skv. 1 mg. sem hér segir: a. Hjá einstaklingum meö tekjur til útsvars á bilinu kr. 320.100 til 640.000 skal álag þetta lækka um 1% af þeirri fjárhæö sem á vantar 640.000 króna tekju- mark. b. Hjá hjónum meö tekjur til út- svars á bilinu kr. 570.000 til kr. 1.140.000 skal álag þetta lækkaö um 1% af þeirri fjárhæö, sem á vantar 1.140.000 króna tekju- mark. c. Eftirstöövar álags þessa, sem lækkaö hefur veriö skv. ákvæöum a- og b-liöa, skulu aö lokinni lækkun standa á heilum hundruöum króna, þannig aö lægri fjárhæö en kr. 100 skal sleppt. Gjald þetta er háö sömu reglum og útsvar varöandi innheimtu og viöurlög. Viö ákvöröun Tryggingastofn- unar rlkisins um framlag rlkis- sjóös til sjúkrasamlaga sam- kvæmt 49. gr. skal taka tillit til þessa framlags til hlutfallslegrar lækkunar á framlagi rlkissjóös. Marinó Þorsteinsson I hlutverki sölumannsins og Þóröur Rist. Myndin er tekin á æfingu fyrir skömmu. Leikfél. Akureyrar: „Sölumaður deyr” frum- sýnt í kvöld Sölumaður deyr, leikrit Arthurs Miller, veröur frumsýnt hjá Leik- félagi Akureyrar i dag, föstudag- inn 4. mars. Leikstjóri er Herdis Þorvaldsdóttir. Þýðingin er Skúla • Skúlasonar meö nokkrum leiöréttingum Gísla Jónssonar og leikstjórans. Leikmynd er, eftir Hallmund Kristinsson. Aöstoöar- maöur leikstjóra er Saga Jóns- dóttir. Arthur Mil’er er einn þekktasti og virtasti leikritahöfundur þess- arar aldar. Sölumaöur deyr er þaö verka Millers sem hvað mestrar frægöar nýtur. Al- menningsvinsældir leiksins eiga rótslnaaörekja ekki hvaö sist til þess aö hann f jallar um efni sem flestir samtimamenn kannast vib af eigin raun, — miöstéttarmann- inn sem alla ævi hefur veriö talin trú um, og sjálfur ástundað þá sjálfsblekkingu aö sigurvon auður og frægð biði hans á næsta leiti en vaknar slðan upp viö þaö allt i einu aö æviárin eru oröin sextiu og afrek ævinnar harla smá. Marinó Þorsteinsson sem nú ræöst i þaö stórvirki aö fara meö hlutverk Willie Lomans sölu- manns hefur lengi komiö viö sögu L.A. og biða örugglega margir spenntir eftir að sjá hvernig hon- um og leikflokknum öllum farn- ast i gllmunni viö þetta fræga verk. ÁSKORENDA- EINVÍGIN 1977 Askell Fannberg og GIsli Sigurþórsson, vinna hér aö uppsetningu sjónvarpstækjanna. Aöstaöa fyrir áhorféndur er til mikillar fyrir- myndar á Loftleiöahótelinu, þótt e.t.v. sé nokkuö þröngt i ráöstefnu- salnum á köflum. Mynd: — Gel Sjón varpstœknin í þágu áhorfenda — sem eru hreint ótrúlega glöggir á stöður sem stórmeistararnir ráða sjálfir lítið við! Áhorfendur á einvigis- skákum Spasskýs og Horts njóta góðs af sjón- varpstækninni og geta þeir fylgst víðar með keppendunum heldur en eingöngu úr sjálfum Tónleikar í Luzerne, og . . . Biðskákinni var frestað Kröfuharöir mótshaldarar og áhorfendur á tslandi heföu varla sætt sig viö þaö aö biöskák Spasskys og Horts yröi frestað um einn dag vegna tónleika- halds, en slikt geröist einmitt i Luzerne i Sviss I gær. Þá áttu þeir aö mætast yfir biöskák sinni, Mecking og Poluga- jewsky. Viöureign þeirra dag- inn áöur haföi verið ansi snörp, Mecking glopraöi niður vinn- ingsstööu og I biöstööunni virö- ist sovétmaöurinn meö vinn- ingslikur. Hér á tslandi sem og annars staöar biöu menn þvi óþreyju- fuilir eftir aö leikir tækju aö berast i gær, en einungis kom stutt skeyti um aö skákinni heföi veriö frestaö vegna tónleika- halds i salnum sem teflt er i! Biðskákin veröur væntanlega tefld I dag. keppnissalnum. Radíó- stofan við Þórsgötu sá um að setja upp fullkom- ið sjónvarpsdreifingar- kerfi frá keppnissalnum út i ráðstefnusalinn þar sem skákskýringar fara fram, og einnig var sjónvarpsskermum kom- ið fyrir frammi á gangi> þar sem bæði má sjá keppendur og stöðu þeirra á skákborðinu. Og áhorfendur kunna greini- lega vel aö meta hinn ágæta að- búnaö sem þeim er boöið upp á, þvi f jölmenni er á hverri umferð og ráöstefnusalurinn ævinlega fullur út úr dyrum. Færri staldra hins vegar lengi við i keppnissalnum. Þar er ævin- lega grafarþögn og mikil spenna I loftinu. Menn hafa hærra I ráðstefnu- salnum. Þar sjá bæði pétrar og pálar á augabragöi bestu leik- ina hverju sinni og á meðan annar hvor stórmeistarinn drekkir sér ofan I erfiöa stööu eru öll hans vandamál leyst á augabragöi af kappsfullum áhorfendum, sem sjá jafntefli fleiri en tvo og fleiri en þrjá möguleika til öruggs vinnings. En þaö er skemmtilegt andrúmsloftið á Loftleiðahótel- inu og alveg sérstaklega þegar áhorfendur eru sjálfir virkir I rannsóknarhlutverkinu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.