Þjóðviljinn - 04.03.1977, Side 9
8 — SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. mars 1977
Föstudagur 4. mars 1977 ÞJ6ÐVILJINN — SIÐA 9,
verkamenn, stuöningsmenn Allendes, I stjórnartlö hans. Þeir voru aöeins vopnaöir öxum og lurkum, og þvl varö fátt um
instristjórnarinnar, þegar herinn hófst handa gegn henni, enda þótt hún heföi nærrihelming landsmanna sin megin.
40% atvinniileysi
Chile er þaö land i Suöur.Ame-
riku sem mest hefur veriö getiö I
heimspressunni á þessum áratug,
eöa allt frá því aö Alþýöufylking-
in vann I þingkosningunum 1970.
örlög þeirrar stjórnar sem þá
settist I ráöherrastól eru flestum
kunn; henni var steypt af inn-
lendu og erlendu afturhaldi i
september 1973, og þar sem birst
hafa I hérlendum blööumog tima-
ritum greinar um valdarániö og
aödraganda þess, mun ég ekki
dveija viö aö rekja þá sorgarsögu
heldur fremur rekja þaö ástand
sem nú rikir og þau áhrif er ég
varö fyrir þar sl. haust.
Sá er heimsækir Santiago de
Chile, höfuöborg landsins, veröur
fljótt var viö þá eymd, þaö at-
vinnuleysi sem stór hluti þjóöar-
innar býr nú viö, þremur árum
eftir aö herforingjar „björguöu
þjóöinni frá óstjórn marxiskra
afla” eins og þaö heitir i þeirri
söguskoöun sem nú er opinber I
Chile. Óviöa sást eins mikiö af
betlurum og þeirri sölumennsku
sem er aöeins huliö form á betli.
Tam. viö pósthúsiö i Santiago var
biöröö af ungum atvinnuleysingj-
um sem höföu þann starfa aö
reyna aö selja umslög, póstkort
og bréfsefni. Þaö sem var ólikt
með þeim sem þarna reyndu aö
selja og þeim sem ástunda
svipaða iöju i öörum löndum
Suöur-Ameriku er aö viðast eru
þaö ung börn og eldri konur, en I
Chile eru þaö karlmenn frá tvi-
tugu til fertugs. Þaö segir sitt um
atvinnuástandiö. Við heyröum
nefndar tölur frá 30% upp i 40-50%
um atvinnuleysi. Þeir sem geta
fara til Argentinu, Bólivlu, og
Brasiliu i atvinnuleit, þar sem þó
er alls staöar atvinnuleysi, en
vonin er meiri þar. Einnig hafa
margir fariö tíl Astraliu og
Kanada. Heima fyrir er þaö aö-
eins götusala á rakvélarblööum
tyggjói eöa bréfsefnum sem biöur
at vinnuley sing janna.
Minnkandi verð-
bólga —
Vaxandi neyð
Þjóöarframleiðslan er minni nú
en i lok sjötta áratugsins, og kjör
almennings fara æ versnandi og
eru þó hörmuleg fyrir. Enda þótt
á yfirboröinu sé allt rólegt og
allt mun deyföarlegra en i ná-
grannalöndunun, aukast þjáning-
ar og vonleysi hins snauöa meiri-
hluta meö hverjum degi. Eitt af
markmiöum þeirra, sem aö
valdaráninu stóöu, var aö efla
innlendan kapitalisma og draga
úr afskiptum rikisins eins og
mögulegt væri. Hann haföi veriö
mjög veikburöa siöustu áratugi
a.m.k. þar sem erlendir auö-
hringar höföu mjög þrengt at-
hafnasvið hans,og nú hafa iðnrek-
endur krafist þess aö rikiö komi
til hjálpar þar sem einkafram-
takiö á I miklum erfiöleikum. í
höfuöborginni er óvenjulega litiö
um mengun og loft fremur tært.
Vilja menn rekja þaö til þess, aö
iönaöarstarfsemi hafi dregist svo
saman og aö fáir hafi nú efni á
aö eiga bifreiöir. Neysluvisital*
an hækkaöi um 135,5% fyrstu níu
mánuöi ársins, en á sama tima i
fyrra um 250%. S.l. september
var hækkunin 7.9%. Verðbólgan
var 195,8% frá september 1975 til
sama mánaöar 1976, miöaö viö
387,4% á sama timabili áriö áöur
og 611,5% frá sept. 1973 þar til i
sama mánuöi 1974. Þetta eru
opinberar tölur, og voru efnahags-
sérfræöingar stjórnarinnar aö
vonum bjartsýnir og segja verö-
bólguna veröa viöráöanlega eftir
nokkur ár ef svo heldur áfram
sem horfir. Þá er aftur á móti
spurningin hvort stór hluti ibú-
anna veröi ekki dáinn úr hungri.
Staöa pesosins er aö vonum ekki
sterk,og getur ekki aumari gjald-
miöil i Rómönsku Ameriku, jafn-
vel ekki i Argentinu. Chile var
eina landiö þar sem viö sáum
skipulagöa gengisfellingu dag frá
degi. Þannig fékkst fyrir einn
dollar 14,83 pesos þann 4. október
og sáum við auglýsta áætlaöa
gengisfellingu til 4. nóvember.
Féll pesóinn um þrjú centavos
dag hvern og átti samkvæmt
áætluninni aö standa I 15,76 þann
fjórða nóv. 1 Chile jaínt og I ná-
grannalöndunum er þaö þó alltaf
ein stofnun, sem jafnan er vel
fóöruö og hefur nógu úr aö spila
hvernig sem ástandið er, þaö er
herinn. Er ógnarlegt aö sjá aö
auk þess sem þetta skrimsli er
stærsti liöurinn á fjárlögum
flestra landa á meöan stór hluti
þjóöanna sveltur, þá er hernum
beitt til þess aö brjóta á bak aftur
sérhverja þá hreyfingu sem auka
vill jöfnuö og raunverulegar
framfarir. Hljóta þaö aö vera
blindir menn sem ferðast geta um
Rómönsku Ameriku án þess aö fá
ævilangt hatur á þessu fyrirbæri
og þvi afturhaldshyski sem her-
inn þjónar. Gátum viö varla leynt
undrun okkar i viöræöum okkar
viö nokkrar ungar konur af milli-
stétt er höföu boöiö okkur heim til
sin i Vina del Mar, nálægt
Valparaiso, er ein þeirra sagöi
okkur aö stjórn herforingja væri
eina úrræöiö I þessum löndum,
þvi annars væru alltaf einhver
uppþot og læti og aldrei friður. Til
útskýringar má geta þess aö
konurnar voru frá Santiago en
áttu ibúö i Vina viö sjóinn,og sú er
þetta sagði haföi þrjár vinnukon-
ur I þjónustu sinni.
Lægsta kaup mun vera 600-800
pesos á mánuöi eöa 7-10 þúsund
islenskar krónur. Verölag er aö
sjálfsögöu mjög ólikt þvl is-
lenska: þannig mátti t.a.m. fá
máltiö á ódýrum veitingastööum
fyrir 15-20 pesos, en þaö breytir
ekki hinu, aö ærnir erfiöleikar
hljóta þaö aö vera fyrir fjöl-
skyldur að lifa af þessum launum,
svo ekki sé minnst á þann mikla
fjölda sem ekki einu sinni hefur
atvinnu. En þaö búa ekki allir viö
þessi sultarkjör Þannig haföi ein
vinkona okkar, sem starfaöi aö
utanrikisverslun, eina 12 þúsund
pesos á mánuöi. Aöspurö hvort
henni þætti ekki launamismunur-
inn hár, svaraði hún þvi til, aö
hann væri ekki svo ósanngjarn,
hún ynni t.d. stundum allt til sjö
eöa átta á kvöldin!
Kostakjör fyrir
erlenda auðhringa
I lok október sl. varö ljóst aö
Chile myndi draga sig út úr n.k.
efnahagsbandalagi Suður-Ame-
riku, sem samanstendur af Perú,
Ecuador, Kólumbiu, Venezuela
og Bóliviu. Þetta bandalag sem
venjulegast er nefnt Pacto
Andino eöa Andessamningurinn
var stofnaö fyrir rúmum sjö ár-
um I Cartagena i Kólumbiu og er
til þess ætlað aö efla iönaö
meölimarikjanna og almenna
þróun. Þetta átti m a> aö gera
meö þvi aö skapa stórain, suöur-
ameriskan markaö og meö þvi aö
styrkja innlendan iönað viökom-
andi rikja gegn fjölþjóölegum
auöhringum. Þannig voru settar
ákveönar reglugeröir um vernd-
un iönaðar rikjanna og einnig sett
ákveðiö hámark á þá upphæö sem
erlendir auöhringir gætu flutt úr
landi. En slöastliðin tvö ár hefur
Chile I raun ekki tekiö þátt i starfi
þessa efnahagsbandalags og stóöt
yfir miklar samningaviöræöur I
haust um aöild Chile aö banda-
laginu. Chile setti fyrir sig reglu-
geröirnar um verndun innlends
iönaöar sem þvi þótti vera of mik-
il og svo vildi þaö hækka mikiö þá
upphæö sem erlendir auöhringir
gætu flutt úr landi. Ástæöurnar
fyrir þessari afstööu Chile eru aö
ráöamenn þar hafa gert þaö sem
þeir hafa getaö tii aö laöa aö er-
lent fjármagn, og þar sem aöild
þeirra aö Andessamningnum tak-
markaöi þá möguleika drógu þeir
sig út úr i októberlok. Þó aö þetta
tákni minnkun markaöar banda-
lagsins þá töldu talsmenn þess
eftir aö úrsögn Chile var oröin
ljós, aö hún myndi styrkja banda-
lagið þar sem samningastappiö
sem hin rikin stóöu I viö Chile hafi
dregiö mjög úr starfsemi banda-
lagsins,en nú geti þau lönd sem
eftir eru einbeitt sér betur aö þvi
aö ná markmiöum þess.
„Alþjóðleg nið-
urrifsöfl”
Eins og kunnugt er hefur her-
foringjaklikan i Chile veriö mjög
gagnrýnd vegna ógnarstjórnar
sinnar. 1 sameiginlegri yfir-
lýsingu sem var gefin út I tilefni
heimsóknar Jorge Videla Argen-
tinuforseta til Chile um miðjan
nóvembermánuö, var talaö um
,,þá rógsherferö sem alþjóöleg
niöurrifsöfl” ástunduðu gagnvart
þessum rikjum,og sögöust Videla
og Pinochet ekki láta hana i neinu
veröa til þess aö þeir breyttu nú-
verandi stefnu sinni. Þeir lýstu
yfir sameiginlegri baráttu gegn
„niöurrifsöflunum” i eigin lönd-
um og hvöttu til aukinnar sam-
vinnu á öllum sviöum. Pinochet
hengdi svo æösta skrautmerki
Chile á brjóstiö á Videla, væntan-
lega sem viöurkenningu fyrir þaö
hversu vel hann hefur staöiö sig i
ofsóknunum á hendur öllum
verkalýðssamtökum og vinstri-
öflum i Argentinu.
I fyrrihluta október setti stjórn-
in ný stjórnarskrárákvæöi um
vinnuvernd. Aö sögn höfunda eru
þau miklu ýtarlegri en þau fyrri,
Tómas Einarsson
skrifar frá Chile
sem eru nokkurra áratuga gömul.
I þeim fyrri sagði aöeins aö allir
heföu rétt til vinnu, en nú bættist
viö aö öll mismunun væri bönnuö
gagnvart vinnu sem ekki byggöist
á hæfileikum og menntun. Hin
nýju ákvæði kveöa og á um rétt
hvers launþega á réttlátum laun-
um sem tryggi fjölskyldu hans
velferö I samræmi viö mannlega
viröingu. Ekki er skylda aö til-
heyra verkalýösfélagi, en þau fá
samt aö starfa, þó aðeins á nýjum
grundvelli. Þau veröa aö vera
hrein af flokksáhrifum, sem áöur
ollu þvi aö verkalýösfélögin gátu
ekki gegnt hlutverki sinu aö sögn.
Áöur var verkfallsrétturinn helg-
ur i lögum, en samkvæmt hinum
nýju ákvæöum koma nú til stofn-
anir sem finna eiga réttláta og
friösamlega lausn á öllum vinnu-
deilum. Þaö veröur aö segjast aö
þessi lög eru timabær þegar fleiri
en þriðji hver maöur er atvinnu-
laus og menn leita erlendis i stór-
um stil i atvinnuleit.
Pinochet:
„Víst höfum við
lýðræði”
Þessi nýju lög staöfesta lika
þaö ástand sem rikt hefur frá
valdaráninu: algjöra undirokun
verkalýösstéttarinnar. A ráö-
herrafundi I Bogotá I Kólumbiu
lýsti vinnumálaráöherrann þvi
yfir.aö aö sjálfsögöu væri lýöræöi
i Chile, en þaö væri frábrugöiö
lýöræöinu I ýmsum öörum lönd-
um, vegna þess aö I venjulegu
lýöræöi gætu marxistar komist til
valda, en I þessari nýju gerö lýö-
ræöis gætu þeir þaö ekki. Pinó-
sjettarnir bregöast ekki reiöari
viö, en þegar þeir eru nefndir
fasistar. Þannig las ég þaö i ræöu
eftir Pinochet að hann og félagar
höfnuöu öfgum til hægri og
vinstri, væru alls ekki fasistar og
þeir myndu frábiöja sér stuöning
þvilikra afla! Eins og ég hef
drepið á er viöa aö finna hægri-
sinnuö dagblöö i Rómönsku Ame-
riku, en ekkert sá ég sem sló út
hiö chilenska „EL MERCURIO”.
Þaö er helsta málgagn aftur-
haldsaflanna I Chile og var
þannig leiöandi I herferöinni gegn
stjórn Ailende. Var margt skop-
legt I málflutningi blaösins og til
skemmtunar (eöa hryllings) ætla
ég aðbirta smákafla úr grein sem
áhyggjufullur blaöamaöur reit
um hina óttalegu lýöræöisþróun á
Spáni: „Klám hefur aukist mjög.
En þaö er lævis tilraun til aö grafi
undan rikjandi siöferöi. Þvl ber
aö hafa gætur á. Búast má viö aö
sjónvarpiö fari nú aö uppgötva
Brecht og austantjaldskvik-
myndir þar sem sovésk kvik-
mynd hlaut fyrstu verölaun á
kvikmyndahátiö i San Sebastián.
Sum blöö lýsa þvi yfir, aö viss
leikkona (Gina Lollobrigida,
aths. TE) hafi sagt Fidel Castro
meö afbrigðum kyntöfrandi —
Viö þekkjum aöferöirnar og viö
höfum orðið aö þola afleiöingarn-
ar. Þannig, sakleysislega, byrjar
þaö.” Þaö er margt er ergir hina
æruverðugu skriffinna blaðsins.
Þegar Orlando Letelier var myrt-
ur i Washington I haust, uröu
◄
Chile — lega þess og
náttúruauöævi.
Böölar afturhaldsstjórnarinnar aö verki.
ýmsir til að ásaka chilensku
leyniþjónustuna fyrir
verknaöinn. Málpipur her-
foringjaklikunnar áttu ekki til
nógu sterk orö til aö lýsa fárán-
leika þeirrar ásökunar, og töldu
aöra liklegri til verknaöarins, s.s.
vinstrisamtökin MIR sem aö sögn
höföu horn i siöu þessa fyrrver-
andi ráöherra i stjórn Allendes,
eöa þá rússana, en þeir eru hvaö
hataðastir erlendra þjóöa af
valdamönnum Chile.
Þrátt fyrir fremur rólegt yfir-
borö eymdar og atvinnuleysis, er
andstaöan sföur en svo dauö; hún
hefur smám saman veriö að efl-
ast og byggja sig upp eftir aö
tugir þúsunda liðsmanna vinstri
aflanna voru myrtir eftir valda-
rániö. Þannig var viöa i landinu
tilkynnt um sprengjur þann dag
snemma I október er tvö ár voru
liðin frá moröi Miguels Enriquez,
leiötoga MIR. Og tilgangurinn
misskildist ekki, þvl aö i fleiru en
einu dagblaöi var minnst á aö
þessar sprengjuhótanir væru i
minningu Enriquez. Eftir valda-
rániö var 5 af 11 dagblööum lokaö
sem og allri útgáfustarfsemi
vinstrimanna og allir grunaöir
um stuðning viö vinstrimenn
reknir úr vinnu,settir I fangabúðir
eöa myrtir. En neöanjaröarút-
gáfan hefur eflst smám saman.
Fyrsta blaöiö sem kom út eftir
valdarániö var „Uppreisn”, mál-
gagn MIR, Byltingarsinnuöu
vinstrihreyfingarinnar. Þaö kom
út I ágúst 1974 I fyrsta sinn eftir
valdarániö. Siöan hefur þaö kom-
iö út 20 sinnum og er útgáfan
regluleg, sem sýnir styrkleika
samtakanna. Blaöiö er unnið I
aöalstöövum samtakanna, siöan
dreift til félaga sem slöan fram-
leiöa fleiri eintök til dreifingar
meöal andspyrnunefnda sem
starfa I verksmiöjum, skólum
opinberum stofnunum og jafnvel I
herbúöum. Starfsemin spannar
allt landiö. Af annarri útgáfu-
starfsemi má nefna Blysiö og
Sameiningu andfasista, blöö gefin
út af Kommúnistafl. Chile, Neista,
sem gefinn er út af Sósialista-
flokknum, Viö munum sigra, frá
MAPU, og Lýöræöislega and-
spyrnuhreyfingu, frá MAPUOC.
Oll þessi blöö hvetja fólk til bar-
áttu og eru mikilvæg til aö verjast
uppgjafarhugarfari, endurlifga
fólkið. Þróun andspyrnuhreyfing-
arinnar hefur breyst frá kroti á
veggi og þ.h. i þaö aö nota sima,
póstkort, dreifibréfaútgáfu
o.s.frv. Þannig hafa andspyrnu-
ráöin öölast reynslu og þjálfast
smám saman.
Herforingjarnir hafa nú reist
sér minnismerki i miöborginni, á
hæö Heilagrar Lúsiu, Cerro de
Santa Lucia. Þaö er ekki ósvipað
stórum kassa i laginu, og á þvi
loga sifellt eldur. Samkvæmt
skrift þarna á þessi eldur aö loga
um aldir I minningu valdaránsins
og er hlutur Pinochets þar sér-
staklega lofaöur. En vonandi
veröur ekki langt þangaö til þetta
tákn til dýröar mestu hryöju-
verkamönnum sem Chile hefur
aliö, veröur afmáö. Reyndar sá-
um viö forsetann Pinochet rétt i
svip, er viö vorum á gangi rétt
fyrir utan Valparoiso, sem er
helsta hafnarborg landsins. Ok
lest fimm bila á óskaplegri ferö
fram hjá okkur, hann fór vist að
hengja einhver karamellubréf á
sjóliösforingja en bækistöövai
sjóhersins eru i Valparaiso og
nágrenni.
„Bara” komm-
únistar skotnir
Útgöngubann hefur ekki enn
veriö afnumiö og stendur frá 1 til
5 á nóttinni. Þegar ég sakleysis-
legur spuröi eina vinkonu okkar
hvernig stæöi á þessu banni kvaö
hún vera það mikið af kommún-
istum, sem hún kallaöi locos eöa
brjálæöinga, og sætu þeir um aö
fremja hermdarverk. Væri
banniö til aö hindra glæpastarf-
semi þeirra, þvi aö enda þótt
mikið af þeim væri nú undir lás og
slá lékju margir enn lausumhala.
Er ég spuröi hvort allir væru
skotnir sem hættu sér út milli eitt
og fimm, kvað nú nei viö þvi þaö
væru bara kommúnistarnir sem
skotnirværu! Hún sagöi þinghús-
iö i Santiago hafa stórskemmst i
sprengjuárásum kommúnista og
stæöu viðgeröir yfir ennþá. Eitt
sinn á gangi sáum viö nokkra
rússajeppa og stækkuöu augu vor
heldur betur; hlýnaöi oss um
hjartarætur viö aö sjá þessa
gömlu vini. Er viö spuröum
hvernig stæði á þessum bilum
þarna, sagöi hin andkommúniska
vinkona okkar aö þetta drasl
heföi Allende flutt inn og þeir
heföu ekki viljaö henda þeim,
heldur reyna aö nota þá eitthvaö,
en þetta voru rikisbilar. Eins og
nærri má geta lamaöist næturlifiö
mjög viö útgöngubanniö og er
núna eiginlega bara kvöldlif. Og
eins og i öörum hafnarborgum er
þaö nokkuö fjörugt i Valparaiso,
margir barir og knæpur. Þegar
viö vorum eitt sinn á gangi þar
sáum við standa stórum stöfum á
einni knæpunni, Bar
ESCANDINAVO — Skandinaviu-
barinn. Hugðumst viö I fyrstu
kanna hvort þar væri nokkra
norðurlandamenn að finna, en er
viö nálguöumst staöinn kom út i
glugga fjöldi málaöra kvenna og
veifuöu þær ákaft. Veifuðum viö á
móti, en flýttum okkur á brott.
Drógum við þær ályktanir aö allir
staöir kenndir viö Noröurlönd
væru vinnustaöir gleöikvenna, en
auk þessa bars i Valparaiso haföi
ein vændiskompan i Rio de
Janeiro boriö sama nafn.