Þjóðviljinn - 10.03.1977, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. mars 1977.
Ráðstefna um erlenda
auðhringi og
sjálfstæði fslands
Miönefnd Samtaka herstöövaandstæöinga boöar til ráöstefnu í
Tjarnarbúö, Reykjavlk, laugardaginn 12. mars kl. 13.00.
Eftirfarandi erindi veröa flutt:
1. Ólafur Ragnar Grlmsson prófessor:
Eöli fjölþjóöafyrirtækja og upphaf stóriöjustefnu á Islandi.
2. Kjartan ólafsson ritstjóri:
Islenskt sjálfstæöi og ásókn fjölþjóölegra auöhringa.
3. Jónas Jónsson ritstjóri:
Nýting Islenskra náttúruauölinda til lands og sjávar.
4. Jón Kjartansson formaöur Verkalýösfélags Vestmannaeyja:
Verkalýöshreyfingin og stóriöjan.
Frjálsar umræöur veröa um hvert erindi.
Skráning á ráöstefnuna fer fram á skrifstofu samtakanna I síma
17966 milli kl. 16 og 19 og viö innganginn.
Þátttökugjald er 500 kr. Mætiö stundvislega.
Miönefnd.
Námsvist í félagsráðgjöf
Fyrirhugaö er aö sex Islendingum veröi gefinn kostur á
námi I félagsráögjöf I Noregi skólaáriö 1977-78, þ.e. aö
hver eftirtalinna skóla veiti inngöngu einum nemanda:
Norges kommunal- og sosialskole, Osló
Sosialskolen, Bygdöy, ósló
Sosialskolen, Stafangri
Sosialskolen, Þrándheimi
Det Norske Diakonhjem, Sosialskolen, Osló, og Bodö.
Til inngöngu I framangreinda skóla er krafist siúdents-
prófs eöa sambærilegrar menntunar. Islenskir umsækj-
endur, sem ekki heföu lokiö stúdentsprófi, mundu.ef þeir
aö öðru leyti kæmu til greina.þurfa aö þreyta sérstakt inn-
tökupróf, hliöstætt stúdentsprófi stæröfræöideildar I skrif-
legri Islensku, ensku og mannkynssögu. Lögö er áhersla á
aö umsækjendur hafi nægilega þekkingu á norsku eöa
ööru Noröurlandamáli til aö geta hagnýtt sér kennsluna.
Lágmarksaldur til inngöngu er 19 ár.og ætlast er til þess
aö umsækjendur hafi hlotiö nokkra starfsreynslu.
Þeir sem hafa hug á aö sækja um námsvist samkvæmt
framansögöu skulu senda umsókn til menntamálaráöu-
neytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavlk, fyrir 25. mars. n.k. á
sérstöku eyöublaöi sem fæst I ráöuneytinu. Reynist
nauösynlegt aö einhverjir umsækjendur þreyti sérstök
prófi i þeim greinum sem aö framan greinir, munu þau
próf fara fram hérlendis I vor.
Menntamálaráöuneytiö
8. mars 1977.
Félagsfundur
Iðja, félag verksmiðjufólks, heldur al-
mennan félagsfund laugardaginn 12. mars
n.k. kl. 2 e.h. i Lindarbæ.
Dagskrá:
Kjaramálin
Uppsögn samninga.
Sýnið skirteini við innganginn.
Stjórnin
Blikkiðjan Garöahreppi
önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verðtilboð.
~ SÍMI 53468
vor
l
Umsjón: Magnús H. Gíslason.
Útflutningur
æðardúns
fer vaxandi
Blaöinu hefur borist útdráttur
úr fundargerö aöalfundar
Æðarræktarfélags fslands s.l.
ár.
T skýrslu formanns félagsins,
Ólafs E. ólafssonar um starf-
semifélagsins áárinu kom m.a.
fram, aö mikiö heföi veriö um
þaö f jallað, hvernig reisa mætti
rönd við ásókn flugvargs á
varplönd. Birtar voru leiöbein-
ingar um eflingu æöarvarps og
vakin i fjölmiölum eftirtekt á
rétti varpeigenda varöandi
skot og netalagnir i nágrenni
friölýstra varplanda, en grá-
sleppunet eru viöa skeinuhætt
æöarfuglinum. Unniö var aö
fækkun flugvargs meö skotum,
einkum vestanlands, og árangur
talinn góöur.
Arni G. Pétursson, leiöbein-
andi um æöarrækt, heimsótti
varpeigendur i Borgarfiröi,
Strandasýslu og á Noröurlandi.
A austanveröu Noröurlandi fór
varp minnkandi og er um kennt
hröfnum, máfum og mink.Á sex
stööum var leiöbeint um
uppbyggingu nýrra varpstööva.
Söluhorfur á dún eru nú góöar
erlendis. Veröiö á handtindum
dún er kr. 39 þús. kg. en sölu-
verö hér innanlands er kr.
40.800,- kg. meö söluskatti. 1
nóv. sl. haföi helmingi meiri
dúnn veriö fluttur út en á sama
tima áriö áöur. Gæöi vörunnar
fara vaxandi og viöskiptavinum
fjölgandi. Dúnframleiðsla
ársins 1976 mun nema um 70
milj. kr. I gjaldeyrisöflun
þjóöarbúsins. i
Fundurinn kjöri Gisla Kristj-
ánsson, ritstjóra og fyrsta for-
mann félagsins, heiöursfélaga
þess.
Stjórn Æöarræktarfélagsins
skipa þeir ólafur E. Ólafsson
formaöur, GIsli Vagnsson og
Jón Benediktsson. —mhg
Færi á vegum gott
Færi á vegum má heita gott
um meiri hluta landsins, en hef-
ur þó heldur þyngst sumsstaðar
noröanlands og vestan i nótt. 1
gær haföí blaðið tal af Sverri
Kristjánssyni hjá Vegageröinni
og fékk hann meö sér I hringferö
um landiö. Fer feröasagan hér á
eftir:
— Ef viö byrjum hér á Suður-
landinu, sagöi Sverrir, — þá er
ágæt færö allt til Hornafjaröar
og aö Lónsheiöi en þá fer nú
helduraöþyngjast.Að visu hafa
vatnavextir, sem úrfelliö hefur
haft i för meö sér leitt til þess,
aö Suöurlandsvegur hjá brú viö
Kálfá I Skaftártungu lokaöist I
morgun, vegna úrrennslis. Það
er nú aö komast I lag á ný.
Krisuvlkurvegur, milli Vatns-
skarös og Krisuvikur, er einnig
ófær vegna vatnavaxta. Fært er
um Borgarfjörð og Snæfellsnes
en þungfært hefur veriö i morg-
un um Bröttubrekku og Holta-
vöröuheiöi, aöeins fært jeppum
og stærri bilum. Dálitiö hefur
snjóaö i Baröastrandarsýslu,
einkum vestanverðri, en þar er
veriö aö moka, frá Patreksfiröi
ogi Tálknafjörö og svo Hálfdán.
Kleifaheiöi er fær stórum bllum
og jeppum. 1 Austur-Baröa
strandarsýslu er ófært og búiö
að vera lengi. Þar var aö vísú
opnað um daginn en lokaöist
fljótlega aftur. Þar er þó ekki
mikill snjóren vegirnir eru bara
þannig, aö þeir þola engan snjó.
Hrafnseyrarheiöi, Botnsheiöi og
Breiöadalsheiöi eru ófærar, en
fært er milli Þingeyrar og Flat-
eyrar, þar var mokaö i dag.
Mikið af snjóflóöum féll á
Óshliöarveg, eiginlega úr
hverju gili, aö þvl er verkstjór-
inn sagði. Snjómagniö var þó
ekki meira en svo, aö þeir töldu
sig geta rutt slóö i gegn fyrir há-
degi en veröa aö sjálfsögöu I all-
an dag aö hreinsa veginn.
Svo hefur færöin þyngst inn i
Djúp en mokaö hefur verið til
Súöavikur. Ófært er i Bjarnar-
fjörö á Ströndum og aöeins
stærri bilum og jeppum fært úr
Hrútafiröinum til Hólmavikur.
Agætis færi erum Húnavatns-
svslurog Skagafjörö,nema hvaö
siglfiröingar eru innilokaðir, en
þangað veröur opnaö á morgun.
Oxnadalsheiöi er ófær, en þar
hefur annars litiö þurft aö moka
1 vetur.
Svo er ágætt frá Akureyri og
austur aöTjörnesi. Þaö er mok-
aö I dag. Veriö er aö moka Mý-
vatnsheiöi, Klsilveginn og i
kringum Mývatn. í Noröur-
Þingeyjarsýslu er færi frekar
þungt, aöeins stærri bilar og
jeppar komast til Raufarhafnar
ogófært er þaöan til Þórshafnar
og Vopnafjaröar. Þungfært er
og I Vopnafirði. Fært er um
Fagradal, og á Reyöarf jörö og
Eskifjörö en ófært til Borgar-
fjaröar eystri, Seyöisfjaröar og
Noröfjaröar. Og um Héraöiö er
slæm færö. Siöan er sæmilegt
suður meö fjöröunum, þó aö
snjóflóö félli aö visu hjá Vattar-
nesi I morgun. Og þá erum viö
aftur komnir aö Lónsheiöi, sem
aöeins er fær jeppum og stærri
bllum.
Viö spuröum Guömund Haf-
steinssoná Veöurstofunni aö þvi
hvort út liti fyrir þesskonar veö-
ur. aö færi á vegum héldi áfram
aö þyngjast, og sagöist hann
ekki eiga von á aukinni snjó-
komu i bráð. Snjókoma á Vest-
fjöröum og annesjum norðan-
lands færi minnkandi og væri
raunar þegar stytt upp nema á
noröanverðum Vestfjöröum þar
sem enn væri nokkur snjókoma
og mjög hvasst, t.d. 10 vind-
stig i Æöey. Hlýnað hefur I
veöri, eri ef aö bleytir I fönninni
eykst hætta á snjóflóöum þar
sem mikið hefur snjóaö, sagöi
Guömundur Hafsteinsson.
Frá Búnaðarþingi
Vinnuaðstoð í sveitum
Meöal þeirra mála, sem yfir-
standandi Búnaðarþing hefur til
umfjöllunar eru tvö, sem þvi eru
send frá Alþingi: Athugun á sölu
graskögglaverksmiöjunnar I
Flatey á Mýrum og um lausa-
skuldir bænda.
Eftirtalin mál hafa hlotiö af-
greiöslu:
öryggisráðstafanir við
notkun dráttarvéla
Erindi Snæþórs Sigurbjörns-
sonar um öryggisráöstafanir viö
notkun dráttarvéla og annara bú-
véla var afgreitt meö svohljóö-
andi ályktun:
Búnaöarþing telur, aö meö si-
aukinni vélvæöingu á sviöi land-
búnaöar beribrýna nauösyn til aö
auka eftirlit meö öryggisbúnaöi
véla og tækja, sem notuð e-ru viö
bústörf.
Þingið telur eölilegt, aö þetta
verkefni falli undir öryggiseftir-
lit rikisins og lög um öryggisráö-
stafanir á vinnustööum, (nr. 23
1952), veröibreyttþannig, aö þau
taki til almenns búreksturs.
Jafnframt felur þingiö stjórn
Búnaöarfélags Íslands aö hlutast
til um framgang þessa máls.
Vinnuaðstoð i
sveitum
Frumvarp milliþinganefndar
Búnaöarþings um vinnuaöstoö i
sveitum var afgreitt meö smá-
vægilegum breytingum frá bú-
fjárræktarnefnd. Gerterráö fyrir
i frumvarpinu, aö búnaöarsam-
böndum sé heimiltaö setja á stofn
vinnuaöstoö hvert á slnu sam-
bandssvæöi. Tilgangur vinnuaö-
stoöar er, aö bændur geti fengiö
aöstoöarfólk, þegar veikindi, slys
eöa önnur forföll ber aö höndum.
Kostnaöur af störfum aöstoöar-
manna greiöist aö 2/3 úr rikis-
sjóöi og 1/3 úr sveitarsjóöum.
Aætlaö er aö einn aöstoöarmaöur
sé ráðinnfyrirhverja 150bændur.
1 aiyktun búfjárræktarnefndar
var minnt á samþykkt Alþingis
frá 1973, þar sem rikisstjórninni
var faliö aö kanna á hvern hátt
megi veita öllum konum i landinu
fæöingarorlof og tryggja tekju-
stofna i þvi skyni.
Skyldutryggingar á úti-
húsum
Þá var einnig afgreitt erindi
stjórnar Stofnlánadeildar land-
búnaöarins meö eftirfarandi á-
lyktun:
Búnaöarþing telur nauösyn aö
teknar séu upp skyldutryggingar
á útihúsum i sveitum.
Þvi leggur þingiö til, aö lögum
nr. 59 12. apr. 1954 um bruna-
Framhald á 14. siðu