Þjóðviljinn - 10.03.1977, Blaðsíða 14
14 — SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. marz 1977
Umræðufundir Alpýðubandalagsins
Auðvald og verkalýðsbar-
átta.
3. hluti: Starf og stefna Al-
þýðubandalagsins.
Fimmtudagskvöldiö 10. mars
veröur fjallaö um utanrikisviö-
skipti og erlent fjármagn. Frum-
mælendur eru Ragnar Arnalds og
Þórunn Klemensdóttir. Aö lokn-
um framsögum veröa umræöur.
Mánudagskvöldiö 14. mars verður fjallaö um menntamál. Frummæl-
endur eru Loftur Guttormsson og Höröur Bergmann. — Alþýöubanda-
lagiö i Reykjavik.
Neskaupstaður — fræðsluerindi
Asmundur Stefánsson, hagfræöingur, flytur
fræösluerindi um efniö: „Verkalýöshreyfingin
og atvinnulýöræöi” I Egilsbúö sunnudaginn 13.
mars kl. 16. AUir velkomnir. — Stjórn Alþýöu-
bandalagsins i Neskaupstaö.
Sorphaugar —
Gæsla — Vélavinna
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða i gæslu og
vélavinnu á sorphaugum við Hamranes
austan Krisuvikurvegar. Otboðsgögn
verða afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6. Tilboð verða
opnuð á sama stað kl. 14:00,fimmtudaginn
17. mars 1977.
Bæjarverkfræðingur
Aðalfundur
Iðnaðarbanka
íslands h.f.
verður haldinn i Súlnasal Hótel Sögu i
Reykjavik, laugardaginn 19. mars n.k. kl.
2 e.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Breytingar á samþykktum félagsins.
3. önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhent-
ir hluthöfum og umboðsmönnum þeirra i
aðalbankanum, Lækjargötu 12, dagana 16.
mars til 18. mars, að báðum dögum með- {
töldum.
Reykjavik, 9. mars 1977 j
Gunnar J. Friðriksson
form. bankaráðs.
BLAÐBERABfÓ
ÞJÓÐVILJANS
Blaðberamyndin nk. laugardag kl. 11
verður Hnupiararnir (The Reevers), aðal-
hlutverk Steve McQueen. Létt grínmynd
um bilahnupl.
Kvenfélag sósíalista
heldur aðalfund sinn i kvöld 10. mars kl.
8.30 i Félagsheimili prentara.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
— Erindi um störf Clöru Zetkin. — Kaffi-
veitingar. — Konur fjölmennið og takið
með gesti.
Stjórnin.
Hreinsitæki
Framhald af bls. 6.
laust aö óttast mengun frá álver-
.inu i Straumsvik og þaö var
ábyrgöarlaus greiöasemi viö auö-
hringinn aö spara honum þann
kostnaö aö koma þegar i upphafi
upp fullkomnustu hreinsitækjum.
þeir viðurkenna mistök sin
Þeim, sem stóöu aö samninga-
geröinni viö Alusuisse um álver-
iö I Straumsvik, er hollast aö
viöurkenna mistök sin og bregö-
ast viö vandanum á þann eina
hátt, sem sæmandi er, og knýja á
tafarlausa uppsetningu fullkomn-
ustu hreinsitækja i verksmiöj-
unni, jafnframt þvi sem komiö
veröi þar á reglubundnu heil-
brigöiseftirliti og mengunarrann-
sóknum. Allar nauösynlegar
heimildir eru til i lögum og reglu-
geröum til aö krefja auöhringinn
i um slikan hreinsitækjabúnaö og
aörar heilbrigöisvarnir. Þaö eina,
sem á skortir, eru fyrirmæli og
einurö stjórnvalda. Lengur verö-
ur ekki unaö viö aö forráöamenn
álversins séu einungis viöræöu-
góöir i þessum efnum, sem er þaö
orö er eftirlitsaöilar öryggis- og
heilbrigöismála hafa gefiö þeim.
Ráöa veröur þegar bót á hinum
alvarlegu mengunarmálum, bæði
innan dyra og utan.
Þingsályktunartillaga þessi er
flutt til aö stjórnvöld megi finna
vilja Alþingis i þessu máli, en
hún gerir ráö fyrir, ef samþykkt
veröur, annars vegar uppsetn-
ingu fullkomnustú hreinsitækja,
að viölagöri rekstrarstöðvun ella,
og svo hins vegar almennum
reglum til aö tryggja sem best
heilsugæslu meöal starfsfólks og
rannsóknir og eftirlit meö meng-
un og áhrifum hennar.
Miöstjórn
Framhald af bls. 3.
undanþiggja skatti meö öllu, og
skattleggja ber hjón sem tvo
einstaklinga i samræmi viö
tekjur hvors um sig, svo sem Al-
þýöubandalagiö hefir eitt flokka
áöur flutt tillögur um á Alþingi.
Jafnframt þarf aö tryggja aö at-
vinnurekstur komist ekki undan
eölilegri skattlagningu. Fyrn-
ingar atvinnutækja veröur aö
miöa viö eölilegan endingar-
tima þeirra.
Ekkert þessara markmiöa
mun nást með skattalagafrum-
varpi rikisstjórnarinnar, en á
hinn bóginn felur þaö i sér aukn-
ingu skatta sjómanna og ein-
stæöra foreldra samtimis þvi aö
gert er ráö fyrir þvi nýmæli, aö
aröur af hlutafé, allt að 300 þús.
á ári kr. hjá hjónum og 150 þús
kr. hjá hverju barni þeirra veröi
skattfrjáls.
Miöstjórnarfundurinn vekur
athygii á þvi, aö núverandi
stjórnarflokkar hafa hækkað
neysluskatta gifurlega, en af-
leiöing þess er hiö stórhækkaöa
vöruverö, sem skert hefir kaup-
•mátt launa svo sem raun ber
vitni. Gjöld af innflutningi,
framleiöslu og af seldri vöru og
þjónustu eru i ár áætluö 50 þús.
milj. kr. hærri en I fjárlögum
ársins 1974.
Alþýöubandalagið telur þaö
brýnast viöfangsefna I skatta-
málum, aö úr þessum stórfelldu
neyslusköttum veröi dregiö t.d.
meö lækkun söluskatts og niður-
fellingu hans á brýnustu nauö-
synjum, bæöi til aö bæta nú þeg-
ar kjör almennings og draga úr
verðbólgu. Þetta er unnt aö gera
meö sparnaöi á rekstrarútgjöld-
um rlkisins, meö þvi aö tryggja
eðlilega álagningu tekjuskatts á
þann fjölda fyrirtækja og ein-
staklinga, sem hafa rekstur
meö höndum, en greiða Iltinn
: sem engan tekjuskatt, svo og
með meira eftirliti i innheimtu
söluskatts. Á þaö má benda aö
10% aukning á skilum sölu-
skatts i framhaldi af bættu eftir-
liti yki tekjur rlkissjóös um 3,4
miljaröa króna á ári, en sú upp-
hæö er nær 40% alls áætlaös
nettótekjuskatts einstaklinga á
þessu ári.
Miöstjórnarfundurinn leggur
áherslu á aö viö endurskoöun
skattalaga veröi að hafa fylistu
samráö viö samtök launafólks.”
Múlbundid
Framhald af bls. 9.
fullrannsakaða, þar eö enn heföi
ekki verið gerð á henni dælupróf-
un. Framkvæmdastjórinn taldi
heldur ekki vera neina hættu á þvi
aö salt affallsvatn bærist I vatns-
ból grindvikinga, og stangast sú
skoöun hans algjörlega á við
skoöanir ýmissa jarðfræöinga,
sem blaöamaöur hefur rætt við.
„Múlbinding” rád-
gjafaraðila
Þess ber aö geta aö lokum, aö
olaöamaöur reyndi aö afla upp-
lýsinga hjá tveimur ráögjafaaöil-
um Hitaveitunnar, Orkustofnun
og Fjarhitun hf, og fékk þau svör
að þeim væri ekki heimilt aö gefa
neinar upplýsingar vegna áður-
nefnds „múlbindingarplaggs”.
Nú er Hitaveita Suöurnesja
opinbert fyrirtæki, sem ætti aö
sjá sér hag I þvl að gefa fjölmiðl-
um sem gleggstar og sannastar
upplýsingar á hverjum tima. Það
veröur ekki séö aö sá skollaleikur,
sem framkvæmdastjórinn hefur
kosiö aö leika, þjóni I neinu hags-
munum stjórnar Hitaveitunnar
eöa þeirra aöila, sem hún á að
þjóna.
ráa
Pólýfón
Framhald af bls. 16
mennasta, þar sem flytjendur
veröa 180 eins og fyrr segir. Þessi
ferö mun kosta Pólýfónkórinn
rúmar 20 miljónir króna. Italir
hafa lofað fyrirgreiöslu sem
nemur 7 milj. kr. en hér á landi
fær kórinn aöeins 300 þús. kr.
styrk og dugar hann ekki einu
sinni fyrir nótnakaupum til þessa
hljdmleikahalds. Mismuninn-
veröa kórfélagar aö útvega sjálfir
og fer óhemju mikið verk hjá kór-
félögum f aö afla fjár til starfsemi
kórsins, ekki bara fyrir þessa
ferö, heldur til starfseminnar
yfirleitt, en allt starf körfélaga,
og stjórnanda, æfingar, jafnt sem
annaö er unniö ólaunaö.
Þaö var samdóma álit for-
svarsmanna kórsins á blaöa-
mannafundi i gær, þeirra Ingólfs
Guöbrandssonar stjórnanda
kórsins, Guömundar Guöbrands-
sonar gjaldkera og Friöriks
Eirrikssonar formanns hans, að
starfsemi kórsins heföi mætt
algeru áhugaleysi hjá yfirvöldum
hér á landi og aö fyrirgreiösla
opinb. aöila heföi veriö nánast
engin, þau 20 ár sem kórinn heföi
starfað. Þeir bentu á sem dæmi,
aö Italir heföu veriö tilbunir til aö
leggja af mörkum 7 milj. kr. en
islensk yfirvöld 300 þús. til
þessarar hljómleikaferöar.
—S.dór
C LEIKFELAG
^REYKIAVlKUR
SAUMASTOFAN
i kvöld uppselt
laugardag kl. 20,30.
MAKBEÐ
föstudag uppselt.
SKJALDHAMRAR
sunnudag kl. 20,30.
STRAUMROF
eftir Halldór Laxness.
leikstjórn: Brynja Benedikts-
dóttir frumsýn. miövikudag,
uppselt.
Miðasala i Iönó kl. 14t20.30.
Austurbæjarbíó:
KJARNORKA OG KVEN-
HYLLI
laugardag kl. 23.30.
Miöasala i Austurbæjarbiói kl.
16-21. Simi 11384.
ÞJÓDLEIKHÚSID
GULLNA HLIÐIÐ
30. sýning I kvöld kl. 20.
sunnudag kl. 20,30. uppselt
SÖLARFERÐ
föstudag kl. 20.
DÝRIN 1 HALSASKÓGI
laugardag kl. 16,
sunnudag kl. 14,
sunnudag kl. 17.
NÓTT ASTMEYJANNA
aukasýning laugardag kl. 20.
Siðasta sinn.
LÉR KONUNGUR
eftir William Shakespeare
Þýöandi: Helgi Hálfdanarson
Leikmynd: Ralph Koltai.
Leikstjóri: Hovhannes I.
Pilikian.
Frumsýning þriöjudag kl. 20.
2. sýning .miövikudag kl. 20.
Miðasala 13,15-20.
simi 1-1200
Vinnuaöstoö
Framhald af 12 siöu
tryggingar utan Reykjavikur
veröi breytt og 2. gr. laganna orö-
ist svo:
„Skylt er aö tryggja gegn elds-
voöa hjá þeim, sem brunatrygg-
ingar annast samkv. 1. gr. allar
húseignir utan Reykjavikur, þar
með talin öll gripahús, hlööur,
verkfærahús, verkstæöi,
geymsluhús og aörar þær bygg-
ingar, sem til eru. Einnig skal
tryggja hús I smiöum i samræmi
viö áfallinn byggingarkostnaö”.
Þá felur þingiö stjórn Búnaöar-
fél. Islands að athuga á hvern
hátt megi ná sem hagkvæmustum
samningum viö tryggingarfélögin
varöandi þessar tryggingar.
—mhg
Herstöðvaa ndstæði nga r
Skrifstofa Tryggvagötu 10. Opiö 5-7. Laugard. i*-6. Simi: 17966.
Sendiö framlög til baráttu herstöövaandstæöinga á gironúmer:
30309-7.
Hverfahópur herstöövaandstæðinga í Laugarnes-
Voga- og Heimahverfi
heldur fund að Tryggvagötu 10 fimmtudaginn 10.
mars kl. 20.30.
.Fundarefni: Rætt um starfið fram undan.
Áríðandi að félagar f starfshópnum mæti allir.
Starfshópur herstöðvaandstæöinga í Vesturbæ
heldur fund að Tryggvagötu 10/ mánudaginn 14.
mars kl. 20.30. Fundarefni: Starfið framundan.
Allir velkomnir.
Skrifstofan er lokuð laugardaginn 12. mars vegna
ráðstefnu um stóriðjumál, sem haldin er í Tjarnar-
búð.
Þökkum innilega samúö og vinarhug vegna andláts og
jarðarfarar
Arnþórs Einarssonar
Viö þökkum bæjarhjúkrunarkonum Kópavogs fyrir frá-
bæra aðstoð I veikindum hans, einnig hjúkrunarfólki á
deild 1-B Landakotsspltala.
Fyrir hönd barna, tengdadóttur og systur hins látna.
Sólveig Kristjánsdóttir.