Þjóðviljinn - 12.03.1977, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. mars 1®77
I
Þarna er verift aft setja saman einhvern rokkinn.
Skrúfudagur
Þaft er ekkert rýmra um kennara en nemendur. 1 þessu plássi verfta
sex kennarar aft athafna sig.
/ Vélskólanum í dag —
Dyr skólans opnaðar almenningi
V_____________________________________J
i dag halda nemendur Vél-
skóla islands upp á sinn árlega
Skrúfudag en þann dag er öllum
boftift aft lita inn i skólann þeirra
og kynnast þvi hvaft piltarnir
eru aft fást vift i sinu daglega
amstri.
t Vélskóla ísiands i Reykjavik
eru nú um 400 nemendur. Þaö
segir sig sjálft aft fyrir sllkan
fjölda fólks sem er aft læra á
vélar þarf rúmgott húsnæfti og
margvlsleg kennslutæki. Ekki
er þvi þó aft heilsa. 16 kennslu-
stofur eru i skólanum og eiga
þær aft nægja 18 bekkjardeild-
um sem allar eru i fullu
heilsdagsnámi. Verftur oft aö
gripa til þess neyöarúrræftis aft
hafa tvo bekki efta fleiri — og
jafnmarga kennara — I sömu
stofunni.
Hvaö vélkostinn varftar og aft-
stööu fyrir verklega kennslu þá
er hún sæmileg á sumum sviö-
um, td. i stýri- og kælitækni, en
afleit á öftrum. Nemendur sem
eru á fyrsta stigi og eiga þvi aft
ráöa vift 500 hestafla vélar i vor
veröa aft láta sér nægja þrjár
litlar vélar, þar af einn jeppa-
mótor. Stærsta vélin sem til er i
eigu skólans er 300 hestöfl en
þegar nemendur hafa lokiö öll-
um bekkjum skólans eiga þeir
aö geta mefthöndlaft stærstu vél-
ar sem framleiddar eru.
öllu þessu og miklu meiru
getur almenningur kynnst i dag
ef hann leggur leift sina upp i
Sjómannaskóla þar sem Vél-
skólinn er til húsa.
—ÞH
Tækjakostur er aft miklu leyti
úreltur orftinn. Til dæmis er
glóftarhausinn i þessari bátsvél
frá árinu 1912. (Myndir gel)
Þrlr vélskólanemar aft ráfta fram
úr leyndardómum rafmagns-
fræftinnar.
Fleiri urðu frá að hverfa
....en inn komust
Asta Sigurftardóttir var ekki afteins frábær rithöfundur heldur Hka góftur myndlistamaður. Hún bæði
málafti og teiknafti og fékkst vift graflklist. Hún var langt komin með aft teikna spilin, þegar hún lést
langt fyrir aldur fram. Ekki þarf þó nema smávegis frágang til að hægt sé aft gefa þau dt en Asta hafði
mikinn hug á þvi. Hér er sýnishorn af spilateikningunum en þær verfta allar á sýningunni f Norræna
húsinu á morgun.
r r
Utsala - Utsala
Seljum næstu daga eldri gerðir af borðum,
borðplötum, stólum
og kollum, sumt litilsháttar gailað.
Rauðsokkar
endurtaka
kynningu á
list Astu Sig-
urðardóttur
Kynningu Rauftsokkahreyfing-
arinnar á listamanninum Astu
Siguröardóttur var fádæma vel
tekiö þegar hún var haldin i Nor-
ræna húsinu fyrir hálfum mánufti.
Fleiri urftu þvi frá aft hverfa en
inn komust og vegna fjölda áskor-
ana hafa Rauösokkar ákveftift aö
endurtaka dagskrána i Norræna
húsinu á morgun, sunnudaginn
13. mars og hefst hún kl. 15.
Oddný Sigurftardóttir systir
Astu flytur inngangsorö, Bergljót
Kristjánsdóttir ræftir um ritverk
Astu, Briet Héöinsdóttir les smá-
söguna Kona Simonar frá Kyr-
ene, en sú saga hefur ekki birst á
prenti. Gunnar Reynir Sveinsson
og kvintett hans flytja ásamt
söngkonunni Astu Thorstensen
tónlist viö Alfarimu eftir Astu,
Silja Aftalsteinsdóttir les smásög-
una Frá sunnudagskvöldi til
mánudagsmorguns og Kristin
Anna Þórarinsdóttir les ljóö, sem
sum hver hafa ekki verift prentuft.
Myndlist I tengslum vift dag-
skrána verftur sett upp I bóka-
safni Norræna hússins, en hún
verftur tekin niftur samdægurs.
Tilvalið i kaffistofur og sumarbústaði.
Opið föstudag til kl. 22,00
og laugardag kl. 10—16.
Menningarnefnd Neskaup-
staftar bauft Rauftsokkum austur
meö dagskrána og var hún flutt I
Egilsbúö fyrir viku vift mjög
góöar undirtektir.
—hs.
stálhúsgagnagerð
STEINARS HF.
Skeifan 8, Rvík S. 33590-35110
Munið alþjóðlegt
hjálparstarf
Rauða krossins.
RAUOI KROSS ISLANDS
F ernir
tónleik-
ar
Tónlistarllf hér i höfuft-
borginni virftist ætla aft
verfta fjörugt um þessa
helgi. 1 dag veröa haldnir
þrir tónleikar aft þvi er vift
best vitum og einir verfta á
morgun.
Hljómsveit
Tónlistarskólans
1 dag kl. 14.30 efnir Tónlist-
arskólinn I Reykjavlk til tón-
leika I Háskólabiói og verftur
þar hljómsveit skólans aö
verki undir stjórn Marteins
Hunger Friftrikssonar. A
efnisskránni eru verk eftir
Boccherini, Mendelssohn og
Schubert. Einleikarar meft
hljómsveitinni verfta þær
Lovisa Fjeldsted og Guftný
Asgeirsdóttir.
Áskell Másson
í Norræna húsi
Hálftima siftar, eöa kl. 15,
hefjast tónleikar i Norræna
húsinu á vegum félagsins
Jazzvakning. Þar verfta flutt
þrjú ný verk eftir Askel Más-
son slagverkamann sem
hann samdi sérstaklega fyrir
Jazzvakningu. 1 einu verkinu
nýtur Askell aftstoöar Reynis
Sigurössonar slagverka-
manns, i ööru Guömundar
Steingrimssonar einnig slag-
verkamanns en I þvi þriftja
leika þeir allir þrir saman.
Pina Carmirelli
og Árni Kristjánsson
Klukkan 17 I dag hefjast
sjöttu tónleikar Tónlistarfé-
lagsins I Austurbæjarbiói.
Þar munu þau Pina
Carmirelli fiftluleikari og
Arni Kristjánsson pianóleik-
ari flytja þrjú verk eftir
Mozart, Schubert og Beet-
hoven.
Blásarar í
Félagsstofnun
A morgun kl. 17 verfta svo
sjöttu háskólatónleikar vetr-
arins. Þar mun blásara-
kvintett Sigurftar I. Snorra-
sonar flytja verk eftir Anton
Reicha, Jón Ásgeirsson og
Jean Francaix. Kvintettinn
skipa auk Siguröar sem leik-
ur á klarinett, þau Manuela
Wiesler, flauta, Kristján Þ.
Stephensen, óbó, Stefán Þ.
Stephensen, horn, og Haf-
steinn Guftmundsson, fagott.
Tónleikarnir fara fram I Fé-
lagsheimili stúdenta viö
Hringbraut og eru opnir öll-
um þeim sem reifta fram 400
kr. vift innganginn. —ÞH
Söfnunar-
dagur
Ekkna-
sjóðs
A morgun, sunnudag, er
árlegur söfnunardagur
Ekknasjófts Islands. Verftur
merki sjóftsins þá selt auk
þess sem gjöfum er vita-
skuld veitt viötaka.
Ekknasjóöur íslands var
stofnaöur á striösárunum af
sjómannshjónum sem lögftu
til rausnarlegt stofnframlag.
Er hlutverk hans aft hlaupa
undir bagga meft ekkjum
sem eru I nauftum staddar
fjárhagslega. Þrátt fyrir all-
ar tryggingar eru ekkjur
ekki öfundsverftar af hlut-
skipti slnu og getur fjár-
styrkur bætt úr brýnni þörf.
A siftastliönu ári veitti
sjófturinn 3 ekkjum úrlausn,
samtáls 700 þúsund krónur.