Þjóðviljinn - 22.03.1977, Blaðsíða 17
Þriöjudagur 22. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN — StDA 1 "
Stöbugt þyngist klafinn á þeim sem eiga bll, — bensfn, varahlutir —
og senn tryggingagjöld, hækka og hækka. En landinn er þrár,og blá-
snauðir menn þráast viö og láta blikkbeljuna mjólka sig, fremur en
stiga uppistrætisvagn.en farþegum SVR fer heldur fækkandi.
„Hver er réttur þinn?”
Tryggingamál
i tilefni þess að nú mun
hækkun tryggingargjalda
á bifreiðum mjög á döf-
inni munu þeir Eiríkur
Tómasson og Jón Steinar
Gunnlaugsson, lögfræð-
ingar, fjalla um þessa
grein trygginga í þætti
sínum „Hver er réttur
þinn," í kvöld kl. 19.35.
Fjallað verður um hvað fólgið
er i hinni almennu skyldutrygg
ingu og i „kaskó” tryggingu, en
þessi mál varða eigendur bif-
reiða miklu, þar sem stöðugt
eykst kostnaður viö viðhald og
rekstur bils og ástæða til að ætla
að um þessar mundir velti
margur þvi fyrir sér hvort hægt
sé að veita sér slikan „lúxus”
lengur, — aö gera út bil. Stööugt
er verið að benda mönnum á að
útvarp |
notast heldur við strætisvagn-
ana sem sýnist hagkvæmari
máti til að komast á milli, bæöi
þjóöhagslega og fyrir fjárhag
manna, — en það sýnist koma
fyrir ekki — farþegum strætis-
vagnanna fækkar heldur og
yfirvöld ætla einkabilnum mik-
inn hlut við skipulagningu nýrra
borgarsvæða i bjargfastri trú á
að engin sinnaskipti séu í vænd-
um meö þjóðinni i þessum efn-
um.
I þættinum veröur að þessu
sinni svarað fjórum bréfum
hlustenda og fjallar eitt um
sóknar- eða kirkjugjöld annað
um ábyrgö á útvarpsefni, þriðja
um ábyrgð seljenda vöru, vegna
hugsanlegra galla sem fram
kæmu og loks um rétt skulda-
bréfseigenda veröi vanskil á
greiðslu.
Eirikur Tómasson sagöi aö
þótt þeir félagar vildu gera
þeim sem besta úrlausn, sem til
þáttarins skrifuðu væri þó engin
leið að sinna öllum tilskrifum,
þvi gjarna væri um að ræða
mjög einstaklingsbundin efni og
yrðu þeir þvi óumflyjanlega aö
halda sig við bréf, þar sem
viöfangsefnið væri af þeim toga
að ætla mætti að þáð snerti
nokkuð viðan hóp og nvatti hann
þá til sem þættinum skrifuöu að
hafa spurningar sem stystar og
gagnorðastar.
Tímabœr spurning:
Hvernig verdur gufan höndluð?
Gufuöflun fyrir Kröfluvirkj-
un, — nefnist viðtal, sem Helgi
H. Jónsson fréttamaður út-
varps, hefur viö Karl Ragnars,
deildarverkfræðing, og verður
flutt i útvarpinu kl. 14.30. Þar
verður rætt hvernig helst megi
afla og hemja gufu úr nafntog-
uðu háhitasvæði viö Kröflu, en
þegar hefur ýmissa bragða ver-
ið neytt án eftirtekju, ýmist
brýtur gufan af sér öll bönd eða
i henni leynast aukagufur, sem
tæra leiðslur og éta sundur
einangrunina. Verður spenn-
andi að heyra hvaða vopn eru
nýjust i þessari viðureign.
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Gyða Ragnarsdóttir
helduráframaðlesa söguna
„Siggu Viggu og börnin i
bænum” eftir Betty
McDonald (5) Tilkynningar
kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög milli atriða. Hin
gömlu kynni kl. 10.25: Val-
borg Bentsdóttir sér um
timann. Morguntónleikar
kl. 11.00: Kammersveitin i
Helsinki leikur „Raka-
stava”, hljómsveitarverk
op. 14 fyrir strengjasveit
og ásláttarhljóöfæri eftir
Jean Sibelius: Leif Seger-
stam stj. / Sinfóniuhljóm-
sveit ungverska útvarpsins
leikur „Kossuth”, sinfóniskt
ljóð eftir Béla Bartók:
György Lehel stj. / St.
Martin-in-the-Fields hljóm-
sveitin leikur Konsertfanta-
siu eftir Michael Tippet um
stef eftir Corelli: Neville
Marriner stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Gufuöflun fyrir Kröflu-
virkjun Helgi H. Jónsson
fréttamaður ræðir viö Karl
Ragnars deildarverk-
fræðing.
15.00 Miödegistónleikar
Vladimir Ashkenazý og Sin-
fóniuhljómsveit Lundúna
leika Pianókonsert nr. 2 i f-
moll op. 21 eftir Frédéric
Chopin: David Zinman stj.
Kammersveitin i Prag leik-
ur Sinfóniu I D-dúr eftir Jan
Hugo Vorisek.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfrengir).
16.20 Popp
17.30 Litli barnatiminn Guð-
rún Guölaugadóttir stjórnar
timanum.
17.50 A hvitum reitum og
svörtum. Jón Þ. Þór flytur
skákþátt.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Hvcr er réttur þinn?
Þáttur i umsjá lögfræðing-
anna Eiriks Tómassonar og
Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar.
20.00 Lög unga fólksins Sverr-
ir Sverrisson kynnir.
20.40 Frá ýmsum hliðum
Hjálmar Arnason og Guö-
mundur Arni Stefánsson sjá
um þáttinn.
21.30 Dansar eftir Brahms og
Dvorák Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leikur: Willi
Boskowski stjórnar.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passíusálma (38)
22.25 Kvöldsagan: „Sögukafl-
ar af sjálfum mér” eftir
Matthias Jochumsson Gils
Guðmundsson les úr sjálfs-
ævisögu hans og bréfum
(10)
22.45 Harmonikulög Reynir
Jónasson og félagar hans
leika
23.00 A hljóöbergi Heimsókn
til afa. Höfundurinn Dylan
Thomas les.
23.30 Fréttir. Einvigi Horts og
Spasskis: Jón Þ. Þór rekur
11. skák. Dagskrárlok um
kl. 23.55.
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Skákeinvigið
20.45 Reykingar Leyfileg
manndráp önnur myndin af
þremur um ógnvekjandi af-
leiðingar sígarettureyk-
inga. Meðal annars er spurt,
hvort banna eigi slgarettu-
auglýsingar, og sýnd er að-
gerð á krabbameinssýktu
lunga. Þýðandi Gréta Hall-
grims. Þulur Jón O. Ed-
wald. Þessi eina mynd úr
myndaflokknum hefur veriö
sýnd áður I sjónvarpinu.
21.10 Colditz Bresk-banda-
riskur framhaldsmynda-
flokkur Frelsisandinn Þýð-
andi Jón Thor Haraldsson.
22.00 Utan úr heimiÞáttur um
erlend málefni. Umsjónar-
maður Jón Hákon Magnús-
son.
22.30 Dagskrárlok
Kaupf élagsst j óri
Starf kaupfélagsstjóra við Pöntunarfélag
Eskfirðinga er laust til umsóknar. Skrif-
legar umsóknir ásamt upplýsingum um
fjölskyldustærð, menntun, fyrri störf og
meðmæli, ef fyrir hendi eru, sendist Bald-
vini Einarssyni, starfsmannastjóra Sam-
bandsins, sem gefur nánari upplýsingar,
fyrir 31. þ.mán.
Pöntunarfélag Eskfirðinga
Skrifstofustjóri
Starf skrifstofustjóra hjá Sölu varnarliðs-
eigna er laust til umsóknar. Enskukunn-
átta og reynsla i bókhaldi er nauðsynleg.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf send-
ist Sölu varnarliðseigna Klapparstig 26
fyrir 22. april n.k.
Auglýsing
Að gefnu tilefni vill ráðuneytið vekja at-
hygli skipstjórnarmanna á, að samkvæmt
reglugerð nr. 357/1974 og leyfisbréfum til
grásleppuveiða, er skylt að merkja þorsk-
fisknet og grásleppunet á eftirgreindan
hátt.
Þorskfisknet
1. Netadrekar skulu merktir einkennis-
stöfum þess skips, sem notar þá. Merki
þessi skulu höggvin i eða soðin á netadrek-
ana.
2. Allar netabaujur skulu merktar með
flaggi efst á baujustönginni, þar sem á eru
skráðir einkennisstafir skipsins. Undir
áðurgreindu flaggi skal vera annað flagg
þar sem á er málað númer hverrar neta-
trossu þannig, að netatrossur skipsins séu
tölusettar frá einum og til þess fjölda, ,er
skipinu er heimilt að nota sbr. grein 2 um
leyfilegan hámarksfjölda neta. Auk þess
skulu allir belgir greinilega merktir með
einkennisstöfum þess skips, er notar þá.
3. Skipstjóri skal auðkenna vestari enda
hverrar netatrossu, með netahring á
miðju baujustangar, er hér miðað við rétt-
visandi norður-suðurlinu.
Leggi skip net sin , þar sem togveiðar
eru heimilar er skipstjóra skylt að auð-
kenna vestari enda netatrossu með hvitu
blikkljósi.
Grásleppunet
Samkvæmt leyfisbréfum til grásleppu-
veiða, er leyfishafa skylt að merkja ból-
færi neta sinna þannig, að glöggt megi
greina hver eigandi netanna er.
Sjávarútvegsráðuneytið, 21. mars 1977.
lsti vélstjóri
Fyrsta vélstjóra vantar nú þegar á skut-
togarann Skinney SF 20.
Upplýsingar i simum 97-8207 og 97-8228 og
hjá Vélstjórafélagi Islands i sima 12630.