Þjóðviljinn - 15.06.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 15.06.1977, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 15. jdni 1977 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3 r A.S.I. svarar Davíð Scheving: Um 60 þúsund miljónir Alþýðusamband tslands hefur sent fjölmiðlum orðsendingu á þessa leið: t viðtali við dagblaðið Visi 13. júnl kastar formaður Félags islenskra iðnrekenda, Davið Scheving Thorsteinsson, fram miklu talnaflóði til útleggingar á þeirri tillögu Alþýðusambandsins sem lögð var fram 11. júni, til lausnar yfirstandandi kjaradeilu. Þar sem hér er augljóslega veriö að leika sér að háum tölum til þess eins að skapa ugg meðal almennings, sér Alþýðu- sambandið ástæðu til aö gera nokkrar athugasemdir við þennan málflutning. t upphafi viðtalsins segir Davíö Sch. fullum fetum, að þessi kaup- tillaga þýöi „40 þúsund milljóna útgjaldaaukningu á ársgrund- velli”. Þessiútreikningur formannsins er miöaður við að öll hækkunin sem um er talað komi strax til framkvæmda. Ekkert slikt er hins vegar tekið framisamnings- tilboði ASI. Þar er hækkunin ódagsett, enda skoðuð sem samningsatriöi milli aðila. Hér er þvi um beiná rangtúlkun að ræöa á samningstilboðinu. Siöar I viötalinu miöar for- maður Félags Isl. iðnrekenda við þá sjálfgefnu forsendu, aö opin- berir starfsmenn og aðrir hópar sem standa utan við ASI fái þessa hækkun alla þegar I stað. Ot úr þvi dæmi fær hann 60 þúsund milljónir króna. Siðan ber hann þessa tölu saman við fjárlög rikisins, 80 þúsund milljónir, og hfópar upp yfir sig af skelfingu. Eins og formaður iðnrekenda veit harla vel, voru fjárlög rikis- ins afgreidd I desembermánuði siðastliðnum, miðað viö þær verðforsendur sem þá voru kunnar. Nú er aö hefjast slðari helmingur ársins 1977 og verðlagsþróunin á árinu hefur öll verið upp á við, eins og hvert mannsbarn veit. Forsendur fjár- laga eru þvl fjarri þvl að vera sambærilegar við forsendur til- boðs ASI, og öll viðmiðun viö þau út I hött. Að endingu má benda á þá stað- reynd, að munurinn á umræðu- grundvelli sáttanefndar og tilboöi ASI er i krónutölu 14 þúsund krónur. Þar við bætist aö I umræðugrundvellinum var Framhald á bls. 14. Aðalfundur Rafafls SamvínnufóHd tll skammar Aðalfundur Rafafls, vinnu- félags rafiönaðarmanna, haldinn dagana 10. og 11. júnl 1977 að Freyjugötu 27, Reykjavlk, lýsir yfir stuöningi viö kröfur verkalýðshreyfingar- innar 1 yfirstandandi kjara- samningum. Fundurinn leggur áherslu á nauðsyn þess, að lægstu laun verði a.m.k. 100 þúsund krónur miöað viö verðlag I nóv. 1976 verðtryggð að fullu. I þessu sambandi er vert að minna á þann einhug, sem rlkti á siðasta Alþýðusam- bandsþingi, þar sem fram kom, að þær kröfur, sem verkafólk ber fram nú, hafa veriö ræki- lega kynntar I öllum félögum þannig að I þeim felst einlægur vilji þjóðarinnar. Fundurinn fordæmir hinar dræmu undirtektir Vinnu- veitendasambandsins svo og lltinn áhuga þeirra að leysa hinn mikla vanda, sem nú blasir viö. Þetta er sérstaklega alvarlegt, þegar þess er gætt, að lsland er orðiö láglaunasvæði. I því yfir- vinnubannij sem nú stendur yfir verður allt verkafólk I landinu áþreifanlega vart við, að sú lág- launastefna, sem rlkt hefur ásamt óstjórnlegri yfirvinnu verkafólks.er smánarblettur á islensku þjóðinni. Krafa verka- lýöshreyfingarinnar um llf- vænleg laun fyrir dagvinnu er þvl sjálfsögð réttlætiskrafa. Fundurinn skorar á Vinnumála- samband Samvinnufélaganna að ganga að kröfum verkalýös- hreyfingarinnar nú og standi þannig viö slnar fyrri yfir- lýsinar. Þaö er andstætt hug- sjón samvinnustefnunnar að sýna ekki verkafólki fullan stuðning I baráttunni fyrir bættum kjörum almennings og hlýtur þvl allur undansláttur Vinnumálasambandsins og undirlægjuháttur þess við forystu Vinnuveitenda- sambandsins að vera sam- vinnufólki um allt land til skammar. Spassky Polugajevski Kortsnoj Mecking r Askorandaeinvigið i skák: Hefst 1. júli Spassky - Portisch í Frakklandi - Kortsnoj - Polugajevski i Sviss i i Undanúrslitin i áskorandaein- viginu i skák hefjast 1. júli nk. og hefur nú verið ákveðið hvar þau fara fram. Spassky, sem sigraði Hort hér á landi i vetur eins og öllum er I fersku minni mætir tékkanum Portisch, sem sigraði danann Bengt Larsen I vetur og munu þeir tefla i Frakklandi. Kortsnoj, sem sigraði Petrosjan á Italiu i vetur mætir Polugajevski, sem sigraði brasiliumanninn Mecking og munu þeir tefla i Genf I Sviss. Þarna er um 16 skáka einvigi að ræða og munu sigurvegararnir úr þessum tveimur einvigjum siðan mætast og tefla um það hvor öðl- ast réttinn til að skora á heims- meistarann Karpov. —S.dór Harðord mótmæli Kína við japansstjórn HONGKONG 13/6 Reuter — Kina hefur borið fram við japönsku stjórnina harðorð mótmæli gegn samkomulagi Japans og Suður- Kóreu um vinnslu á oliu og jarð- gasi I landgrunninu út af austur- strönd Kina. Telur kinverska stjórnin að með þessu samkomu- lagi sem samþykkt hefur verið i japanska þinginu, hafi Japan brotið gróflega gegn sjálfstæði Kina. 1 mótmælaorðsendingunni segir, að kinverjar telji sig hafa fullan yfirráðarétt á austurkin- verska landgrunninu. Samkvæmt samkomulagi japana og suður- kóreumanna hefur rúmum fjórðungi oliu þeirrar og jarð- gass, sem fundist hefur á norður- hluta umrædds svæðis, verið skipt jafnt milli rikjanna tveggja. Kina telur að skipting svæðisins sé ógild, þar eð öll hlutaðeigandi riki hafi ekki átt aðild að henni. Nýtt fónaöarblaö er komið út Meðal efnis: • Nútima launakerfi i stað upp- mætingar • Margþætt verkefni Rann- sóknarstofnunar byggingar- iðnaðarins • Grein um Landssamband iðn- aðarmanna, cn þar er unnið að skipulagningu iðngreina, fræðslu og upplýsingastarfi fyrir meðlimi sambandsins. • Ný og breyttprenttækni kallar á stöðuga endurmenntun á sviði prentverksins. • Vistgæði vinnustaðar — Nýtt svið rannsókna og ný fræði- grein, þar sem fjailað er um starfsumhverfi vinnustaða. • Hampiðjan hf. — Fyrirtæki, sem staðið hefur af sér allar sveiflur og hefur hafið nýja framleiðslu á plaströrum. • Arðsemi stálbrasðslu getur verið umtalsverð. Sagt frá rekstrar- möguleikum Stálfélagsins. • Vöruþróun, einn af hornsteinum öflugrar framleiðslu þjóðfélags- ins. Sagt frá nýjum islenskum framleiðsluvörum, sem komið hafa á markaðinn, og fram- kvæmd vöruþróunar. • Fagleg grein um • EINANGRUNARGLER, sem allir ættu að icsa, er starfa i byggingariðnaði. • Iðnaðarblaðið birtir sérkafla um byggingariðnaðinn og segir frá einstökum iðngreinum, þróun og rannsóknum, verk- og tæknimenntun, félagsmálum, nýjungum ásamt öðru fjöl- breyttu efni. • Iðnaðarbiaðið er nýtiskulegt blað. Eignist Iðnaðarblaðið frá upphafi, meðan það er hægt, og með þvi eignist þér verömæti, sem eykst með hverju ári. • Iðnaðarblaðið er eingöngu selt i áskrift. Askrift kr. 2.970,- • Um leið og þér veljið Iðnaðar- blaðið eignist þér verðmæti, sem cykst mcð hverju ári. • Iðnaðarblaðið birtir faglcgar auglýsingar, sem ná til þeirra, er þurfa á þeim að halda, og hafa langtimagildi. Til Iðnaðarblaðsins, Armúla 18. — Pósthólf 1193, Rvk. Nafn: 193, Rvk. X Heimilisfang: Simi: lIÐNAÐARBLAÐIÐi

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.