Þjóðviljinn - 15.06.1977, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 15. júni 1977 WÓÐVILJINN — StÐA 5
Glæsilegt
barnaheimili
við Klepp
Nýtt og fullkomið barnaheimili
hefur nú verið opnað við Klepps-
spitalann og með eldra húsnæðinu
er barnaheimilið nú alls i 580 fer-
metra húsnæði. Barnaheimili
þetta er á ýmsan hátt frábrugðið
flestum islenskum barnaheimil-
um, en þar er t.d. i kjallari sem er
hannaður fyrir ýmsa grófa leiki,
t.d. með vatn og sand og einnig
eru þar iþróttatæki.
Þórunn Pálsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri spitalans, sagði i viðtali
við blaðið að hún gerði sér vonir
um að hið nýja barnaheimili
myndi bæta nokkuð úr hjúkrunar-
kvennaskorti við spitalann, en til
skamms tima annaði barnaheim-
ilið ekki eftirspurninni eftir dag-
vistunarplássum. Eiga nú allir
starfshópar við spitalann kost á
dagvistunarplássum fyrir börn
sin.
A barnaheimilinu er pláss fyrir
40 börn i nýja húsinu og 20 i hinu
eldra og er börnunum ekki skipt i
fastar deildir, heldur systkina-
hópa. Eru börnin allt frá 3ja mán-
aða gömul og upp i skólaaldur, en
skóladagheimili og visir að
vöggustofu hefur verið við spital-
ann frá árinu 1973. Fyrsti visir að
barnaheimili við spitalann var i
12 fm herbergi, og var það opnað
árið 1958. 4 fóstrur, 1 fósturnemi
og 4 starfsstúlkur vinna nú við
heimilið.
þs
2,2 milj. i
hluteftir
veiðar við
tsland
19. mai s.l. kom norski linuveið-
arinn Per Senior heim til Noregs
af djúpmiðum Islands með einn
allra verðmætasta farm sem
linuveiðari af þessari stærð hefur
komið með að landi. Aflaverð-
mæti er sagt rúmlega n.kr.
1.200,000 og háseta hlutur úr afl-
anum á milli 50,000 og 60,000 n.kr.
1 islenskum kr. nemur aflaverð-
mætið yfir 43,620,000 og hlútur há-
seta á milli 2 milj. 181 þús. og 2
milj. 617 þús. Þessi veiðiferð stóð
yfir i 7 vikur.
Samsetning þessa verðmæta
afla var þessi:
Af löngu og keilu 65 tonn sem
ýmist var heilfryst eða isvarið, 20
tonn af heilfrosinni stórlúðu, 20
tonn af isvarinni stórlúðu og 18
tonn af saltfiski. Þá kom annar
linuveiðari Bergholm frá sama
útgerðarfyrirtæki um svipað leyti
heim af íslandsdjúpmiðum en
eftir mikið styttri veiðiferð og var
aflaverðmæti þessa skips n.kr.
400,000, eða i islenskum kr.
14,540,000. Þessi afli samanstóð
eingöngu af keilu og löngu. Það
var haft eftir skipverjum á Per
Senior að ennþá sé hægt að sækja
verðmætan afla á djúpmið
Islands fyrir þá sem þekki þau
mið. Þetta hafa þeir lika fært
sönnur á i hinni velheppnuðu sjó-
ferð.
Pípulagnir
Nýlagnir, breytingar
hitaveitutengingar.
Sími 36929 (milli kl. 12 og
1 og eftir kl. 7 á kvöldin)
Ert þú félagi 1 Rauða krossinum?
Deildir félagsins g
eru um land allt. 'llf
RAUÐI KROSS ISLANDS
Guðmundur Kr. Guðmundsson arkitekt hefur hannað barnaheimiliö,
sem er að ýmsu leyti frábrugðið flestum öðrum barnaheimilum.
Ekki er ennþá búið að ganga frá útileiksvæðinu, en Reynir Vilhjálms-
son mun hanna það.
17. JUNI 1977
Þjóðhátíð í Reykjavík
DAGSKRÁ
Kl. 09.55
Kl. 10.00
Kl. 11.15
III.
Kl. 10.00
Kl. 10.45
IV.
Kl. 14.30
VI.
Kl. 16.15
VII
Kl. 17.00
Dagskráin hefst:
Samhljómur kirkjuklukkna i Reykjavik.
Olafur B. Thors, forseti borgarstjórnar leggur blómsveig frá
Reykvikingum á leiði Jóns Sigurðssonar i kirkjugarðinum
v/Suðurgötu. Lúðrasveitin Svanur leikur: Sjá roðann á
hnjúkunum háu. Stjórnandi Sæbjörn Jónsson.
Við Austurvöll:
Lúðrasveitin Svanur leikur ættjaröarlög á Austurvelli.
Hátiöin sett: Margrét S. Einarsdóttir, formaður Þjóðhátiðar-
nefndar.
Karlakór Reykjavikur syngur: Yfir voru ættarlandi. Söng-
stjóri Páll Pampichler Pálsson.
Forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, leggur'blómsveig frá
islensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar á
Austurvelli.
Karlakór Reykjavikur syngur þjóösönginn.
Avarp forsætisráðherra, Geirs Hallgrimssonar.
Karlakór Reykjavikur syngur: Island ögrum skorið
Avarp Fjallkonunnar.
Lúðrasveitin Svanur leikur: Ég vil elska mitt land.
Kynnir: Arni Gunnarsson.
Guðsþjónusta i Dómkirkjunni. Prestur séra Ólafur Skúlason.
Dómkórinn syngur, Ragnar Björnsson leikur á orgel.
Einsöngvari Sigurður Björnsson.
Leikur lúðrasveita:
Við Hrafnistu.
Við Elliheimilið Grund.
Barna- og unglingalúðrasveit Reykjavikur leikur. Stjórn-
andi: ólafur L. Kristjánsson.
Skrúðgöngur:
Safnast saman á Hlemmtorgi, Miklatorgi og við Sundlaug
Vesturbæjar.
Frá Hlemmi verður gengið um Laugaveg og Bankastræti á
Lækjartorg. Lúðrasveit verkalýösins leikur undir stjórn
Ólafs L. Kristjánssonar.
Frá Miklatorgi verður gengiö um Hringbraut, Sóleyjargötu,
Frikirkjuveg og Lækjargötu á Lækjartorg. Lúðrasveit
Reykjavikur leikur undir stjórn Björns R. Einarssonar.
Frá Sundlaug Vesturbæjar verður gengið um Hofsvallagötu,
Túngötu, Garðastræti, Vesturgötu og Hafnarstræti á Lækjar-
torg. Lúðrasveitin Svanur leikur undir stjórn Sæbjörns Jóns-
sonar.
Skátar ganga undir fánum fyrir skrúðgöngunum og stjórna
þeim.
Barnaskemmtun á Lækjartorgi:
Lúðrasveit Reykjavikur leikur.
Samfelld dagskrá:
Stjórnandi: Klemens Jónsson.
Kynnir: Bessi Bjarnason.
Leikþáttur: Lilli, Lúlla og Labbakútur.
Flytjendur: Randver Þorláksson, Helga Þ. Stephensen, Lilja
Þórisdóttir og Arni Elvar.
Barnavisur, flytjendur: Svanhildur og Ólafur Gaukur.
Gamanmál, flytjendur: Arni Blandon og Gisli Rúnar Jóns-
son.
Tóti trúður skemmtir, (Ketill Larsen).
Dýrin i Afriku, flytjendur: Bessi Bjarnason og fleiri.
Leikþáttur: Steinbitsstrið, flytjendur: Jón Hjartarson, Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir og Magnús Pétursson.
Bifreiðaakstur:
Akstur gamalla bifreiða.
Félagar úr Fornbilaklúbbi Islands aka á bifreiðum sinum
umhverfis Tjörnina.
Síðdegisskemmtun á Lækjartorgi:
Kynnir: Gunnar Eyjólfsson.
Avarp frá Vestur-Islendingum i Winnipeg, (vinabæ Reykja-
vikur i Kanada).
VIII.
Kl. 15.00
IX.
Kl. 15.00
X.
Kl. 21.00
XI.
Kl. 13.15
Kl. 13.45
Kl. 21.00
XII.
Kl. 13.00
Kl. 13.45
Einsöngur: ólafur Þ. Jónsson syngur, undirleikari, Ólafur
Vignir Albertsson.
Karlakórinn Fóstbræður syngur. Stjórnandi: Jónas Ingi-
mundarson.
Söngflokkurinn Randver skemmtir.
Hljómsveitin Póker og söngkonan Shedy Owens skemmta.
Laugarda Issund laug:
Sundmót.
Laugardalsvöllur:
17. júnimótið i frjálsum iþróttum.
Kvöldskemmtanir:
Dansað verður á sex stöðum i borginni: við Austurbæjar-
skóla, Breiðholtsskóla, Langholtsskóla, Melaskóla, Arbæjar-
skóla og Fellaskóla.
Hátíðahöld i Arbæjarhverfi:
Skrúðganga leggur af stað frá Arbæjarsafni, eftir Rofabæ að
Arbæjarskóla. Barna- og unglingalúðrasveit Reykjavikur
leikur undir stjórn ólafs L. Kristjánssonar. Fyrir göngunni
fara skátar og iþróttafólk.
Samfelld dagskrá:
Kynnir: Aðalsteinn Hallgrimsson.
Hátiðin sett: Halldóra Steinsdóttir, formaður Kvenfélags Ar-
bæjarsóknar.
Hátiðarávarp: Séra Guðmundur Þorsteinsson.
Gamanmál, flytjendur: Arni Blandon og Gisli Rúnar Jóns-
son.
Leikþáttur á vegum skátafélagsins Arbúa.
Leikþáttur, Steinbitsstrið, flytjendur: Jón Hjartarson, Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir og Magnús Pétursson.
Gamanþáttur frá skátafélaginu Arbúum.
A vegum iþróttafélagsins: Tunnuboðhlaup, naglaboöhlaup og
eggjaboðhlaup.
Dansað við Arbæjarskóla. Skemmtuninni lýkur kl. 24.00.
Hátiðahöld í Breiðholtshverfum:
Skrúðgöngur:
Safnast saman við iþróttavöllinn i Breiöholti I, gengiö um
Leirubakka, Stöng, Breiðholtsbraut og Noröurfell að Fella-
skóla.
Lúðrasveitin Svanur leikur fyrir göngunni undir stjórn Sæ-
björns Jónssonar.
Safnast saman við Hólahring, gengið um Suðurfell, Austur-
berg og Norðurfell að Fellaskóla.
Lúörasveit Reykjavikur leikur fyrir göngunni undir stjórn
Björns R. Einarssonar.
Skátar og iþróttafólk fara fyrir göngunni.
Samfelld dagskrá við Fellaskóla til ki. 19.00.
Kynnir: Ragnar Bjarnason og Ómar Valdimarsson.
Hátiöin sett: Sigurjón Fjeldsted, skólastjóri.
Hátiðarávarp: Séra Lárus Halldórsson, sóknarprestur.
Eftirhermur og búktal: Agúst ísfjörð.
Visnasöngur o.fl.: Bessi Bjarnason.
Danssýning: Nemendur frá Dansskóla Heiðars Astvaldsson-
ar sýna táningadansa.
Leikþáttur: Lilli, Lúlla og Labbakútur.
Flytjendur: Randver Þorláksson, Helga Þ. Stephensen, Lilja
Þórisdóttir og Arni Elvar.
Danssýning: Nemendur frá Dansskóla Sigvalda sýna Rock’n
Roll o.fl.
Barnavisur, flytjendur: Svanhildur og ólafur Gaukur.
Upplestur: Ævar R. Kvaran, leikari.
Eftirhermur: Þorsteinn Eggertsson.
Diskótek, plötusnúður: Skúli Björnsson.
Við íþróttahús Fellaskóla:
Skátativoli.
iþróttavöllur i Breiðholti III:
Frjálsiþróttamót i umsjá iþróttafélaganna Leiknis og I.R.
Kvöldskemmtanir:
Dansaö við Breiðholts- og Fellaskóla. Skemmtuninni lýkur kl.
24.00.