Þjóðviljinn - 23.06.1977, Síða 11
Fimmtudagur 23. júni 1977 þjóÐVILJINN - StÐA 11
Dali Lama frammi fyrir styttu af guftnum Avalokiteshvara, en hann
er holdtekja þess guðs á jörðu hér.
„Mér virðist
kommúnismi
réttlátari
en lýðræðið”
Stern: Yðar heilagleiki, nú
eru 18 ár sfðan þér flýöuð Tibet
undan kinversku hernámsyfir-
völdunum. Sjáið þér einhverja
möguleika á þvi að snúa aftur til
Tibet?
Dalai Lama: Já. Við trúum
þvi statt og stöðugt.
Stern: Það þýðir að þér eruð
ekki viss um það.
Dalai Lama: Við vitum, að
mikill meirihluti tibeta i Tibet
er andvigur kinversku
hernámsyfirvöldunum, fleiri nú
en nokkru sinni áður. Þeim liður
illa og þeir þjást. Þeir búa við
sult.
Stern: Kemur það eitthvað
við möguleikum yðar á að snúa
aftur til Tibet?
Dalaí Lama: Þjáningar
þjóöarinnar leiða af sér að hún
verður hernámsveldinu frá-
hverfari og skapa beiskju. Með-
an þessi viðhorf eru fyrir hendi,
þá hljóta að verða breytingar,
kinverjar meðhöndla tibeta
ennþá eins og óæðri mannteg-
und.
Stern: Getið þér nefnt okkur
dæmi um þessa illu meðferð?
Dalaí Lama: 1 fyrsta lagi
kemur hún fram i þvl, hvað
þjóðin fær að borða. Tibetar
mega ekki kaupa meiri mat en
svo I einu, að það dugi þeim I
þrjár vikur. Kjöt og smjör fá
þeir yfirleitt ekki nema tvisvar
eða þrisvar á ári. Umfram-
framleiðslan á matvælum fer til
kinversku hermannanna 1 land-
inu, sem eru um 300.000 talsins,
og óbreyttra kinverskra borg-
ara þar, sem eru um 100.000.
Kinverjar skira upp þorp og
staöi og gefa þeim kinversk
nöfn. Tibetar mega þvi aðeins
ferðast frá einu þorpi til annars
aö þeir fái til þess skriflegt leyfi.
Stern:Getið þér hugsað yöur,
yðar heilagleiki, aö þér muniö
einhverntima beita ofbeldi til
þess aö ná takmarki yðar? Her-
valdi?
Dalai Lama: Við búddasinnar
prédikum gegn beitingu ofbeld-
is. Undir vissum kringumstæð-
um eiga menn samt sem áður
einskis annars kost en að beita
ofbeldi.
Stern: Hvenær rennur þá
stund valdbeitingarinnar upp,
frá yðar sjónarmiði?
Dalai Lama: Eins og sakir
standa er valdbeiting sennilega
óhentug. Þar er I fyrsta lagi éin-
faldlega um að ræða mun á
höfðatölu: sex miljónir tibeta,
sex hundruð miljónir kln-
verja.. .
Stern: Evrópskur málsháttur
hljóðar svo: „óvinir óvina
minnaeruminir vinir”. Væri þá
ekki rökrétt að þér reynduð að
nálgast sovétmenn, sem eru
innilegir óvinir kinverja?
Dalaí Lama: Það myndi
gleðja mig mjög, ef ég ein-
hverntíma gæti heimsótt Sovét-
rikin.
Stern: Haldið þér aö rússar
myndu fagna komu yðar?
Dalai Lama: Þvi ekki það? Að
vlsu héldu rússar þvi fram allt
til byrjunar þessa áratugs, að
barátta tibeta gegn kinverjum
væribarátta afturhalds. En sið-
ustu sjö árin hafa rússar endur-
skoðað þessa afstöðu sina.
Stern: Hafiö þér komið yður i
samband við sovétmenn?
Dalai Lama: Já, en þar er um
einkasambönd að ræða, milli
einstaklinga.
Stern: Hvert er vald yðar?
Ekkert riki i heimi viðurkennir
útlagastjórn yðar. Þér lifiö I
gullnu búri. Finnst yður ekki oft
að þér séuð að slást við skugga?
Dalai Lama: Réttlætið og
heiðurinn eru okkar megin. Ég
hefi ekkert á móti kommúnism-
anum. Hann hefur margar
góðar hliöar. Ef kinverjar aö-
eins færu vel með tíbeta, væri
allt frábært. En til þessa höfum
við tíbetar ekki séð að við höfum
neitt gott út úr hernámi kin-
verja. Þessvegna heyjum við
baráttu okkar.
Stern: Mynduð þér draga
yöur I hlé, ef meirihluti tíbetsku
þjóðarinnar vildi ekki lengur
viðurkenna yður?
Dalai Lama: Já. Þegar I stað.
Stern: Mynduð þér þá einnig
hætta aö verða andlegur leiötogi
allra tibeta, Dalai Lama?
Dalai Laraa: Vissulega. Ég
hef gefið yfirlýsingar I þá átt, að
ég myndi ekki hafa neina opin-
bera stöðu á hendi I Tibet, ef það
yröi sjálfstætt. Ég vildi þar á
meðal ekki vera rikisleiðtogi
áfram. Vald hefur spillingu i för
með sér. Ég vildi frekar vera
einskonar „gamall stjórnmála-
maður”, einskonar gamall og
vis maður meö pólitíska
reynslu, sem gæti gefið ráð á
bak við tjöldin.
Stern: Yðar heilagleiki, hatið
þér kinverja?
Dalai Lama: Nei. Við erum
búddasinnar. Við megum ekki
hata.
Stern: Hið gamla Tibet, sem
hélt út fram að flótta yðar 1959,
var i senn prestaveldi og léns-
veldi. Það var ófélagslegt og
ómannúðlegt riki, og landsfólk-
inu var skipt niður i mismun-
andi stéttir....
Dalai Lama : Það kerfi var að
flestu leyti áreiðanlega órétt-
látt. Það var mikil óhamingja.
Okkur þykir ennþá mjög leitt til
þess að hugsa.
Stern: Hverskonar þjóð-
félagsform mynduð þér velja
fyrir Tíbet, ef þér gætuð ákveðið
stefnu þess I stjórnmálum i
dag?
Dalai Lama: Ég myndi taka
eitthvað frá öllum þjóðfélags-
formum. Hið frjálsa þjóðfélags-
form, lýðræðið, hefur margar
góðar hliöar, engu síður en
kommúnisminn.Þó virðist mér
kommúnisminn margfalt rétt-
látari en lýðræöið, þvi aö I lýð-
ræðisriki missir maöur vald sitt
jafnskjótt og hann missir auð-
inn. Kommúnisminn sér greini-
lega betur fyrir þeim þegnum
samfélagsins, sem minna mega
sin.
Stern: Einnig I Tibet?
Dalai Laraa: Ekki hjá okkur.
Þvi miður.
Stern: En nú hafa ýmsir
blaðamenn farið hrósyrðum um
ástandið I hinu nýja Tlbet.
Dalai Lama: Blaðamennirnir
fengu aðeins að sjá það, sem
klnverjar töldu sér gagnlegt aö
þeir sæu. 1 samræmi við það
höfðu þeir haft um hönd undir
búning fyrir komu blaðamann-
anna. Þegar Birendra Bir
Bikram, konungur I Nepal,
fékk að heimsækja Tlbet siðast-
liðið ár, var öllum tibetum I
Lasa skipað að klæðast tibetsk-
um búningum. Rétt áður en
konungurinn kom, ruddust kín-
verskir lögreglumenn inn I
verslanirnar og fylltu þær af
matvörum. Tíbetarnir I Lasa
fengu lika frá hæstu stöðum
fyrirskipun um að bera stórar
innkaupatöskur, þegar þeir
voru úti á götum, svo að þaö liti
út eins og þeir væru nýbúnir að
gera stór innkaup. En ég er
hræddur um að konunginum
hefði brugðið I brún, hefði hann
fengið aö sjá I töskurnar. I þess-
konar undirbúningi eru kinverj-
ar stórsnjallir.
Stern: Yðar heilagleiki, þér
hafið sagt við tibeta: ,,Ég verð
sennilega ekki miklu lengur á
meðal yðar.” Hversvegna?
Dalai Lama: Ég hygg að ég
verði hinn siðasti Dalal Lama.
Stern: Hvernig sannfærðust
þér um þetta?
Dalal Lama: Trúarbrögð okk-
ar eiga þar hlut að máli, einnig
það, sem vesturlándamenn
gjarnan nefna dulrænu. Likt og I
kristninni eru -á meðal okkar
menn, sem öðlast uppljómun,
sjá sýnir, skynja eitthvað innra
með sér á yfirskilvitlegan hátt.
Viö verðum aðallega fyrir þess-
konar reynslu i draumum okk-
ar.
Stern: En Dalai Lama endur-
fæöist alltaf eftir dauða sinn?
Dalai Lama: Vissulega.
Stern: Hvar endurfæðist þér
þá?
Dalai Lama: Um það er
mjög erfitt að segja. Dalai
Lama endurfæðist vissulega
héreftir sem hingað til, en næst
endurfæöist hann líklega I ann-
arri mynd en áður. Nafniö Dalai
Lama fylgir honum þá ekki
lengur. Hann getur endurfæöst
sem steinn, dalur, tré eða
blóm.
Dalaí Lama í fréttaviðtali við
vesturþýska blaðið Stern:
nýja ferðaskrifstofu
★
Önnumst alla mögulega
fyrirgreiðslu.
*
Reynið viðskiptin.
*
Vinsamlegast skrifið hjá yður
símanúmer okkar
2 92 11
Ferðaskrifstofa
Kjartans Helgasonar h/f
Skólavörðu
stíg 13a —
Reykjavík
Sími
29211
Laus staða
Dóscntsstaða I llffærameinafræði við læknadeild Háskóla
isiands er laus til umsóknar. Staða þessi er hlutastaða og
fer um veitingu hcnnar og tilhögun samkvæmt ákvæðum
2. gr. laga nr. 67/1972, um breyting á lögum nr. 84/1970,
uni Háskóla islands, m.a. að'þvi er varðar tengsl við sér-
fræðistörf utan háskólans. Gert er ráð fyrir, aö væntan-
legur kennari hafi jafnframt starfsaðstöðu á sjúkrahúsi I
Reykjavik.
Umsóknarfrestur er til 20. júll n.k.
Laun samkv. gildandi reglum um launakjör dósenta I
hlutastöðum I læknadeild I samræmi við kennslumagn.
Umsækjendur um dósentsstöðu þessa skulu láta fylgja
umsókn sinni rækilega skýrslu um vlsindastörf þau, er
þeirhafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og námsferil
sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið,
21i, júni 1977
KópaTOgskaupstaðnr Kl)
Kennarastöður
i Kópavogi
Nokkrar kennarastöður eru lausar við
grunnskóla Kópavogs næsta skólaár, m.a.
i talkennslu. Einnig i tungumálum, smið-
um, teiknun og vélritun á unglingastigi.
Umsóknarfrestur til 30. júni.
Skólafulltrúinn.
Sími AAA
Þjóðviljans er Q j_