Þjóðviljinn - 23.06.1977, Page 13
Fimmtudagur 23. jani 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Fimmtudagsleikritiö:
Kynvillu logiö
á kennarana
Leikritiö sem flutt veröur I út-
varpinu i kvöld nefnist ,,Róg-
burður”. Þaö er eftir banda-
riska höfundinn Lillian Hell-
man. Þýöinguna geröi Þórunn
Siguröardóttir og leikstjóri er
Stefán Baldursson. Aöalhlut-
verkin leika Guörún Asmunds-
dóttir og Arnar Jónsson.
Leikritið er um tvær klst. i
flutningi.
Tvær ungar konur, Karen
Wright og Martha Dobie, starf-
rækja heimavistarskóla. Allt
leikur i lyndi þar til einn
nemenda þeirra, Mary, kemur
þeirri sögu á kreik, að kennslu-
konurnar séu kynvilltar. Þetta
gerir hún til að sleppa við skól-
ann, en hana grunar ekki þær
hörmulegu afleiðingar, sem
athæfi hennar hefur.
Leikrit þetta þótt mjög
„djarft” þegar það kom fyrst
fram árið 1934. Þá var kynvilla
litin mun alvarlegri augum en
nú og vafasamt er að áhrifin
hefðu orðið eins geigvænleg,
hefði þetta gerst i dag. En eins
og reyndin er um flest góð
skáldverk er það sem i leikrit-
inu felst ekki bundið við
ákveðinn stað eða tlma. Segja
má i fáum orðum að boðskapur
þess sé, að þvi stærri og biræfn-
ari sem lygin er, þvi fremur
trúi menn henni.
Höfundurinn, Lillian
Hellman, fæddist i New Orleans
árið 1905. Hún stundaði nám við
New York háskóla og kennd þar
siðar leikritun. Eitt frægasta
leikrit hennar er „The Little
Foxes” (Refirnir), 1939, en af
öðrum má nefna: „Watch on the
Rhine”, 1941, „The Autumn
Garden” , 1950, og „Toys in the
Attic”, 1960. Þá hefur hún einnig
samið söngleik upp úr hinni
frægu skáldsögu Voltairés,
„Birtingi”, við tónTíst eftír
Leonard Bernstein.
Aður hefur verið flutt eitt leik-
rit eftir Hellman i útvarpinu,
„Refirnir” árið 1967.
„Fjölliit
okkar”
í kvöld:
Af því
Einar Haukur
Kristjánsson skrifstofu-
stjóri talar um Heklu í
þættinum,/ F jöllin okkar"
i útvarpinu i kvöld að
loknum veðurfregnum kl.
22.15. Af því tilefni eru
hér birtar glefsur úr
upphafi bókar Sigurðar
Þórarinssonar jarð-
fræðings,um Heklu, sem
út kom árið 1970. Þar seg-
ir m.a.:
Ekkert eldfjall islenskt hefur
hlotið erlendis slika frægð að
endemum sem Hekla. Eftir að
hún vaknaöi af aldasvefni árið
1104 og gaus I fyrsta sinn aö
mönnum ásjáandi, leiö ekki á
löngu þar til feiknlegar sögur
Fimmtudagur
23. júni
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.). 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Sigriöur Eyþórsdóttir
les sögur úr bókinni
„Dýrunum i dalnum” eftir
Lilju Kristjánsdóttur (6).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Viö sjóinn
kl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson ræöir við Sigur-
jón Stefánsson skipstjóra;
— fyrri þáttur. Tónleikar kl.
10.40. Morguntónleikar kl.
11.00: Janus Starker og
Györgi Sebök leika Sónötu i
D-dúr fyrir selló og pianó op.
58 eftir Mendelssohn/
félagar i Vinaroktettinum
leika Sextett i Es-dúr fyrir
tvö horn og strengjasveit
op. 81b eftir Beethoven /
Alfred Sous og félagar i
Endres kvartettinum leika
Kartett fyrir óbó og strengi i
F-dúr (K404) eftir Mozart.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. A frivaktinni.
útvarp
Hekla aö noröaustanveröu. Myndin er tekin i aprfl 1968.
fræga fjalli Heklu
tóku að berast af henni út um
allan hinn kaþólska heim, og
varð það brátt almannarómur,
að þar væri að finna aðalinn-
gang Helvitis, eða jafnvel
Helviti sjálft. Benda likur til
þess, að Cisterciensamunkar
hafi af ásettu ráði breitt þessa
skoðun út, til þess að hræða
syndaseli af villunnar vegi meö
áþreifanlegri sönnun fyrir hin-
um vörmu vistarverum. t elstu
skráðu heimildinni um Heklu-
gos, Bók undranna, frá þvi um
1180, sem samin var af Herbert
kapeláni i klaustrinu i Clair-
vaux, segir svo um Heklu:
„Hinn nafnfrægi eldketill i Sikil-
ey, sem er kallaður strompur
Vitis, — hann er, að þvi er menn
fullyrað, eins og smáofn i sam-
anburði við þetta gifurlega
Viti.” Þaö er sigurhreimur i
orðum hins fróma munks er
hann heldur áfram: „hver er nú
svo þverbrotinn og vantrúaður,
að hann vilji ekki trúa þvi, aö til
sé eilifur eldur, sem þjáir sál-
irnar, þegar hann sér með eigin
augum þann eld, sem nú hefur
verið um rætt?”
Nær fjórum öldum eftir að
Herbert skrifaði bók sina skrif-
ar tengdasonur Melanchtons,
læknirinn Capar Peucer: „Upp
úr botnlausri hyldýpisgjá
Heklufells, eða öllu heldur
neðan úr Helviti sjálfu, berast
ömurleg óp og háværir hvein-
stafir, svo að heyra má þann
harmagrát i margra milna fjar-
lægð. Kolsvartir hrafnar og
gammar eru á sveimi kringum
þetta fjall og eiga þar hreiður
sin. Þar er að finna port Helvit-
is, þvi það er fólki kunnugt af
langri reynslu, að þegar fólk-
orrustur eru háðar, eða stofnað
til blóðbaðs einhvers staðar á
jarðarkringlunni, heyrast það-
an skelfileg org, grátur og
gnistran tanna.”
Flestu má venjast, e.t.v. einn-
ig hitanum i Heklu, en myrkra-
höfðinginn hefur slegið var-
nagla við þvi. 1 ferðabók frakk-
ans De la Martiniere, prentaðri
1675, eru lesendur fræddir um
það, að djöfullinn dragi ^sálir
fordæmdra af og til út úr eldum
Heklu og kæli þær á halisbreið-
unum undan ströndum tslands.
Allt fram á 19.öld eimdi viða
erlendis af hjátrú varðandi
Heklu, og fram á okkar daga
hefur mátt heyra svia segja
manni aö fara til fjandans með
orðunum: Dra át Hacklefjáll.
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miöde giss a gan :
„Elenóra drottning” eftir
Noru Lofts. Kolbrún
Friðþjófsdóttir les þýöingu
sina (7).
15.00 Miödegistónleikar
Hljómsveit franska út-
varpsins leikur, .Hjaröljóð á
sumri” eftir Arthur
Honegger; Jean Martinon
stjórnar. Sinfóniuhljóm-
sveitin i Boston leikur Kon-
serttilbrigði eftir Alberto
Ginastera; Erich Leinsdorf
stjórnar. Aimée van de
Wiele og hljómsveit
Tónlistarháskólans i Paris
leika „Concert Champétre”
eftir Francis Poulenc ; —
Georges Prétre stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagiö mitt. Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Einsöngur I útvarpssal:
Sigrlður Ella Magnúsdóttir
syngurlagaflokkinn ,,Konu-
ljóð” eftir Robert Schu-
mann. Textaþýöing eftir
Daniel Á. Danielsson.
Ólafur V. Albertsson leikur
20.05 Leikrit: „Rógburöur”
eftir Lillian Hellman.
Þýöandi: Þórunn Sigurðar-
dóttir. Leikstjóri: Stefán
Baldursson. Persónur og
leikendur: Karen Wright ...
Guörún Asmundsdóttir;
Martha Dobie ... Kristbjörg
Kjeld; Mary Tilford ... Val-
i gerður Dan; Frú Amalia
Tilford ... Anna
Guðmundsdóttir; Lily
Morter ... Þóra Friöriks-
dóttir,- Peggy Rogers ... Sól-
veig Hauksdóttir; Joseph
Cardin ... Amar Jónsson;
Rosalie ... Svanhildur
Jóhannesdóttir; Evelyn
Munn ... Helga Þ. Step-
hensen; Agata ... Bryndis
Pétursdóttir. Aðrir
leikendur: Sólveig Hall-
dórsdóttir, Elisabet Þóris-
dóttir og Viðar Eggertsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Fjöllin
okkar. Einar Haukur
Kristjánsson skrifstofu-
stjóri talar um Heklu.
22.45 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Jeppabifreiðir óskast
Orkustofnun óskar að taka á leigu nokkrar
jeppabifreiðir. Upplýsingar i sima 28828
frá kl. 9-10 fyrir hádegið næstu daga.
mORKUSTOFNUN
Útboð
Tilboð i eftirtalin verk f yrir Hitaveitu Suð-
urnesja verða opnuð á skrifstofu hitaveit-
unnar Vesturbraut 10A Keflavik föstudag-
inn 1. júli 1977:
1. Stofnæð Njarðvik—Keflavik, 3. áfangi,
kl. 14.00.
2. Dreifikerfi Keflavik, 3. áfangi, kl. 15.00.
17. júní
hátíðahöld
hafnar-
íslendinga
Frá Stefáni Asgrimssyni, frétta-
ritara Þjóöviljans i Kaupmanna-
höfn, 21/6: 17. júni var haldinn
hátiðlegur meðal islendinga I
Höfn. Islendingafélagið bauö
gestum upp á nýbakaðar rjóma-
pönnukökur i Jónshúsi milli
klukkan 4 og sjö, en um kvöldið
var svo skemmtun og dansleikur,
sem var mjög vel sótt.
Hús Jóns Sigurðssonar er
opið 1 sumar alla daga milli kl.
14-22, og fást þar léttar veitingar
auk þess sem kostur gefst á að
skoða minningarherbergi Jóns
Sigurðssonar. Islendingum á leið
til Hafnar er bent á aö heimsækja
húsiö, en þar liggja frammi blöð
aðheiman og ýmsar nytsamlegar
upplýsingar.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir mai-mánuð
1977, hafi hann ekki verið greiddur i
siðasta lagi 27. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byr jaðan virkan dag ef t-
ir eindaga uns þau eru orðin 10%, en siðan
eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með
16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið,
.20. júni 1977.