Þjóðviljinn - 26.08.1977, Page 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 26. ágúst 1977
PERÚ
Indlánskir bændur I Perú — þeir eru ósammála herforingjastjórninni um ágæti landbúnaAarumbótanna
Vafasöm bylting og
merkar fornminjar
blöðum var svo sagt að þarna
hefðu verið rauðliðar að verki. 1
lok október héldu svo mörg
hundruð ungmenni fund á aðal-
torginu i Lima, þar sem lýst var
yfir stuðningi við sjómennina.
Eins og vanalega lét lögreglan
greipar sópa og fyllti fanga-
geymslur. Þetta skeði sama dag-
inn og ég las i La Prensa þá til-
vitnun um pólitiskt frelsi sem birt
er i upphafi kaflans!
,,Á þeim tima sem liðinn
er frá upphafi perúönsku
byItingarinnar til þessa
dags, hefur það sýnt sig að
hún styöst við þrjú grund-
vallaratriði: frelsi,
fórnarlund og samábyrgð.
Þessi þrjú atriði eru
grundvöllur hins bylt-
ingarsinnaða ríkisvalds
og koma fram i athöfn-
um, það er pólitísku
frelsi, efnahagslegu
jafnrétti og þátttöku
fjöldans" (la Prensa
27. okt. 1976).
„Perúanska byltinginer ...
sösíalískt andsvar. En það
er sósíalismi með þátttöku
allra, sem sigrast á and-
stæðunum með því að
koma á jafnvægi milli
stétta, sem allar eru nauð-
synlegar í þjóðlífinu. Hinn
marxiski sósíalismi bygg-
ist aftur á móti á árekstr-
um: við reynum að
uppræta það sem veldur
efnahagslegri og pólitiskri
kúgun til að geta komið á
sáit og samlyndi.
Perúanska byltingin væri á
villigötum ef hún leitaði að
fyrirmyndum sinum hjá
Marx eða Lenin. Hún finn-
ur þær frekar hjá Saint-
liftir Tómas
Kiinarsson
Simon, Spencer, Kropotkin
eða Durkheim" (La
Prensa 29. okt. 1976).
Þessar tilvitnanir eru úr grein-
um, sem túlka hugmyndafræði
perúönsku byltingarinnar, þ.e.
þess stjórnmálaferils sem hófst
méð valdatöku „vinstrisinnaðra”
en andmarxiskra herforingja i
október 1968. Þegar menn ræða
um byltingu hérlendis sjá flestir
fyrir sér skuggalegan hóp
kommúniskra samsærismanna,
en I Rómönsku-Ameriku eru allir
byltingarsinnaðir: jafnvel hægri-
samtök hafa orðið revolucionario
einhvers staðar i nafni sinu og
fjöldinn allur af valdaránum her-
foringja kallast byltingar. En
hvað hafa hinir perúönsku bylt-
ingarmenn framkvæmt á þessum
átta árum, fyrst undir forsæti
Juan Velasco Alvarado og siðar
Francisco Morales Bermúdez,
sem báðir eru hershöfðingjar?
Orð og efndir hafa löngum haft
■þá tilhneigingu að fylgjast ekki að
og þá ekki sist i athöfnum suður-
ameriskra hershöfðingja. En lit-
um á þau þrjú grundvallaratriði
sem fram koma i fyrri tilvitnun-
inni. Þólitiskt frelsi: flokkar hafa
ekki fengið að starfa opinberlega
en hafa þó ekki verið ofsóttir
grimmtá suður-amerískan mæli-
kvarða. Þó hafa aögerðir gegn
vinstrisamtökum aukist töluvert
að undanförnu, i kjölfar vaxandi
deilna milli alþýðusamtakanna
(sér ilagisjómanna og bænda) og
herf oring jastjórnarinnar.
Útgáfustarfsemi er að mestu i
höndum stjórnarinnar, beint eða
óbeint, og útgáfa marxiskra
timarita var stöðvuð s.l. sumar.
Engu að siður er mikið um sölu á
róttæku lesefni á götum, og þar
ægir öllu saman: ritum Marx,
Lenins, Trotskis, Maós og fleiri
þvilikra, ritum Che Guevara,
Peking Review, timaritum sem
segja frá högum sovéskra
kvenna, og svo mætti áfram telja.
Þar fást og plaköt af helstu bylt-
ingarhetjum s.s. Tupac Amaru,
Che og svo frelsaranum.
JesUbarnið og Che Guevara eru
annars lang vinsælastir ef dæma
má af myndaupphengingum, og á
það við um öll þau lönd þar sem
það er leyft. Þannig sáum við
mynd af Ché i fullri stærð á
fátæklegum matsölustað i
perúönsku fjallaþorpi, sauma-
stofu nefnda eftir honum i
Ecuador og loks voru myndir af
honum mjög vinsælar til áliming-
ar á skellinöðrur i KólombiU, svo
nokkuð sé nefnt. Mikið er um
veggjakrot i Perú, þar sem kraf-
ist ersósialisma, einnig er banda-
rikjamönnum þar bölvaö heiftar-
lega, á það reyndar við um alla
álfuna.
— Og er þá pólitiskt frelsi i
Perú? Ég hygg að perúanskir
stUdentar, sem við kynntumst i
Lima, hafi farið hvað næst þvi er
þeir sögðu að hver gæti laumast
heim til sin og lesið Lenin i friði,
en aftur á móti þegar menn vildu
fara að boða öðrum sannfæringu
sina og jafnvel stofna til aðgerða,
þá væri frelsinu lokið og táragas-
ið og gUmmikúlurnar tækju við.
Þannig voru miklar mótmælaað-
gerðir af hálfu stúdenta i júli s.l.
vegna mikillar dýrtiðar, og var
þeim mættaf fullrihörku, margir
fangelsaðir og háskólum lokað.
Var og sett útgöngubann i Lima. 1
október s.l. voru miklar aögerðir
af hálfu óánægðra sjómanna i
mörgum hafnarbæjum landsins,
sérstaklega i Chimbote, sem er
einna stærstur þeirra. Af hálfu
sjómanna fóru þær friösamlega
fram en lögreglan réðst á fundar-
fólk, þeytti táragasi, skaut i loft
upp og ástundaði handtökur. Út-
göngubann var sett á, milli átta á
kvöldin og fimm á morgnana. 1
Þennan lista um takmarkanir
hins pólitiska frelsis mætti lengja
mikið.sérstaklega að þvier varð-
ar deilur milli fátækra bænda og
varðhunda herforingjastjómar-
innar. En hvað dvelur það efna-
hagslega jafnrétti sem hug-
myndafræöingar „byltingarinn-
ar” hafa rætt um? Eins og að lik-
um læturer það hvergi til nema á
pappirnum. Enn i dag tyggja
indiánarnir i fjöllum Perú blöð
coca-jurtarinnar (sem kókain er
unnið Ur) til þess að sefa hungur
sitt, enn vantar 40% á að fæða
þeirra hafi það næringargildi sem
nauðsynlegt er talið og sést það
greinilega þegar f arið er um fjöll-
in i Perú, sérstaklega á börnun-
um. Nær 99% af þeim sem búa i
sveitum og 60% af borgarbúum
hafa ekki rennandi vatn i „hús-
um” sinum, sem tiðast eru leir-
kofar með stráþaki Aftur á móti
vantar fá skilyröi fyrir þægilegan
lifnað þegar komið er út i auð-
mannahverfin Miraflores og San
Isidro i Lima. Og sé tekið dæmi af
möguleikum til náms, þá er i
fyrstalagi 40% ólæsiilandinu auk
þesssem börn alþýðufólks geta af
kostnaðarástæðum ekki stundað
nám. — Og hvað með þátttöku
fjöldans i „byltingunni”? Eitt
aðalslagorð herforingjanna er
„diálogcon el pueblo” — gagn-
kvæm skoðanaskipti milli hersins
og fólksins. En samræðurnar eru
þvi miður oftast i þvi formi að
fólkið spyr með friðsamlegum að-
gerðum en herinn svarar með
kylfum og stundum skotvopnum.
Þannig fer nefnilega þegar
misvitrir herskúnkar reyna að
koma fram sem frelsandi englar,
og ætla að „hjálpa” alþýðunni.
En oftar en ekki kemur það i ljós
að alþýðan hefur aörar hug-
myndir um „frelsunina” en her-
foringjarnir og þá verða þeir sárir
og reiðir og beita valdi til að
„kenna” fólkinu hvað sé rétt og
rangt. „Föðurimynd” perúönsku
herforingjanna er nú sem óðast að
hrynja og hin fúlu herforingjafés
birtast þegar grimunni kleppir.
Þetta hefur komið skýrast i ljós i
sambandi við þær landbúnaðar-
umbætur (reforma agraria),
uppskiptingu stórjaröeigna og
stofnun samvinnubúa, sem farið
hafa fram s.l. átta ár. Þessar
landbúnaðarumbætur felast í þvi
að átta milljónir hektara hafa
skipt um eigendur, samtök stór-
jarðeigenda verið leyst upp og
stofnuð samvinnubú. En herinn
treysti ekki bændunum til að hafa
hönd i bagga með þessum fram-
kvæmdum, allt varö aö koma að
ofan og oftast var frumkvæði
bændanna sjálfra stöðvað: skrif-
finnarnir i Lima urðu að hafa alla
stjórn. Þetta leiddi m.a. til þess
að stórjarðeigendur gátu tæmt
búin af öllum vélum, og búpen-
ingi. Þau samvinnubú sem stofn-
uð voru, voru ekki undir stjórn
bændanna sem viö þau unnu, þau
voru sett undir skrifræðið i Lima.
Stærstu samtök perúanskra
BLAÐBERAR óskast í eftirtalin hverfi: Lambastaðahverfi Seltjarnarnesi, Kvisthaga og nágrenni, Kópavog, vesturbæ (einnig Tíminn).
ÞJÓÐVILJINN Vinsamlegast hafið samband við af- greiðsluna Siðumúla 6 — simi 81333 mánud — föstud.
bænda CCP, perúönsku bænda-
samtökin, voru ætið i forustu fyrir
aðgerðum bænda og eru illa þokk-
uð af herforingjastjórninni, sem
myndaði samtök undir sinni eigin
stjórn. CCP eru róttæk samtök og
stefna að sameiginlegri baráttu
með verkalýð bæjanna og sam-
tökum þeirra, faglegum og póli-
tiskum. Þau hafa þvi verið tölu-
vert ofsótt. I viðtali við perúanska
timaritið Marca s.l. sumar, sagði
formaður CCP að þeir litu á deil-
ur milli herforingjanna og stór-
jarðeigenda sem baráttu á milli
tveggja borgaralegra aðila,
bændurnir sjálfir hefðu engin
völd og stofnun samvinnubúa i
kapitalisku samfélagi leysti alls
ekki vandann, þar yrði sósialisk
bylting bænda og verkalýðs að
koma til. Þá væri ekki framleitt
til að ná hámarksgróða eins og nú
er gert, heldur til að fullnægja
þörfum samfélagsins. Sagði for-
maðurinn að i grundvallaratrið-
um hefði litið breyst, skriffinn-
arnir hafa komið i stað stórjarð-
eigenda, en þó væri ekkert eins og
áður þvi á s.l. 8 árum hefðu bænd-
ur vaknað mjög til meðvitundar
um kjör sin og rétt. 1 júni s.l. lýstu
herforingjarnir þvi yfir að land-
búnaðarumbótunum væri lokið,
en einmitt i þeim sama mánuði
voru átta bændur handteknir fyr-
ir að „taka jörð” eins og það er
nefnt.
Það sem vakti aðallega forvitni
okkar i Perú voru tvö atriði, hin
svonefnda perúanska bylting
annars vegar og svo hinar fornu
rústir frá timum Inkaveldisins.
Um bióðfélag þeirra, sem var eitt
af hinum best skipulögðu sem
heimurinn hefur þekkt, mætti rita
langt mál, en hér ætla ég þó
aðeins að drepa á nokkur atriði.
Vil ég benda þeim, sem áhuga
hafa á að kynna sér samfélag
Inka, á bók sem kom út á siðasta
ári og nefnist Þættir úr sögu
Rómönsku Ameriku, eftir Sigurð
Hjartarson. Kom bókin út i kilju-
flokki Máls og menningar.
Hin forna höfuðborg Inka var
Cuzco, sem er staðsett i fjöllum
Perú og útleggst nafli á
islenzku.Þessi borg, sem i dag er
litlu fjölmennari en á timum
Inkaveldisins, hefur nú um 120
þúsund ibúa, er eins og lifandi
sögusafn, þrátt fyrir allt það sem
spánverjar eyðilögðu, en m.a.
reistu þeir kirkjur á þeim stöðum
þar sem hof Inkanna stóðu áður.
Þar eru snilldarlega hlaðnir
veggir frá dögum Inka ásamt
óteljandi minjum, jafnt i borginni
sem i næsta nágrenni. Það sem þó
er stórfenglegast er hin forna
borg Macchu Picchu, sem
stendur hátt uppi á fjalli, á annað
hundrað kilómetra frá Cuzco.
Þessi borg var „uppgötvuð” af
bandariskum fjallgöngumanni
1911 og var mjög lítið skemmd,
þar sem spánverjar fundu hana
aldrei.Hún hefur verið rannsökuð
af fornleifafræðingum og eitt af
þvi, sem i ljós kom, er að af þeim
beinagrindum sem fundist hafa
er mikill meirihluti af konum eða
i hlutföllunum 10 á móti 1. Ein af
tilgátunum sem komið hafa fram
til skýringar á þessu, er að þá er
spánverjar rændu Cuzco, hafi
svonefndar Sólarmeyjar, konur
sem höfðu eftirlit með n.k.
klaustrum Inkahöfðingjanna,
flúið til Macchu Picchu. Einnig
velta menn þvi fyrir áér hvort
borgin hafi verið hernaðarleg eða
trúarleg miðstöð. Borgin er mjög
vel staðsett hernaðarlega en
þarna eru lika minjar um sólar-
dýrkun. Eru fáir staðir i
Rómönsku-Ameriku áhrifameiri
en þessi yfirgefna borg.
Er
sjonvarpið
bilað?^
□
Skjárinn
Sjónvarpsverbsfoði
Bergstaáasírfflti 38
simi
2-1940