Þjóðviljinn - 26.08.1977, Side 7
Föstudagur 26. ágiist 1977 ÞJóÐVlLJINN — SIÐA 7
Eins og að venju verður mikið
um að vera i Laugardalshöllinni
á þessari sýningu og bryddað
upp á ýmsum nýjungum. Þarna
verða daglega tiskusýningar,
tvær á virkum dögum og þrjár
um helgar, en þær verða á nýj-
um palli uppi á áhorfendapöll-
unum, og geta gestir setið og
fylgst með sýningarfólkinu. Þar
verða einnig skemmtiatriði,
m.a. Rió Trió og fleiri.
Nú verða sýningarfreyjur
(nýtt nafn ófundið) i fyrsta sinn
af báðum kynjum, en þótt aug-
lýst hafi verið eftir nýyrði sem
hentar báðum kynjum, hefur
enn ekki tekist að finna nægi-
lega gott orð. Alls starfa um 20
manns á sýningunni á vegum
sýningarstjórnar, en á annað
hundrað manns á vegum verk-
taka,sem hafa afskipti af undir-
búningi. A vegum sýningaraðila
starfa um eitt þúsund manns, og
má ætla að á annað þúsund
mannshafi tekið þátt i uppsetn-
ingu sýningarinnar á einhvern
hátt.
ólafur Jóhannesson, við-
skiptaráðherra er verndari
sýningarinnar, og opnar hann
hana með ávarpi.en einnig flyt-
ur Ólafur B. Thors forseti
borgarstjórnar ávarp. Sýningin
verður opnuð fyrir almenna
gesti kl. 18 föstudag og opin dag-
lega kl. 15-22 (virka daga) og
um helgar 13-22, en svæðinu er
lokað kl. 23. Veitingar verða i
veitingasal, en aðgöngumiða-
verð er kr. 650 kr. fyrir full-
orðna og 200 fyrir börn yfir 5
ára.
Þarna verður ýmislegt á döf-
inni sem börn hafa gaman at,
t.d. leiktæki, bátar á tjörn og
fleira. Á útisvæði skátanna
verður hægt að skoða fræðslu-
myndir, kennsla fer fram i
skyndihjálp og fræðsla verður
um viðbrögð við hugsanlegum
jarðskjólfta á suðurlandi.
Turnar verða til að spranga i,
tjörn og rennibrautir, og einnig
munu hjálparsveitarmenn sýna
bjargsig á veggjum Laugar-
dalshallarinnar. A hinu úti-
svæðinu verða m.a. 2 sumarbú-
staðir, veiðihús, 13 bílar, hjól-
hýsi, bátar og leiktæki.
Gestahappdrætti fylgir hverj-
um aðgöngumiða, en dregið
verður daglega um SHARP-lit-
sjónvarpstæki frá Karnabæ. 1
sýningarlok verður dregið um
fjölskylduferð fyrir 4 til Flórida
með ferð til Disneylands og
fleira innifalið. Hér er um að
ræða glæsilegasta gestahapp-
drætti sem um getur og verð-
mæti vinninga er yfir 5 miljónir
króna.
Strax uppúr áramótum var
búið að leigja allt rýmið innan
Laugardalshallarinnar fyrir
ákveðna sýnendur, og eru
margir á sama stað og þeir voru
á siðustu sýningu. Hver sýnandi
þarf að greiða ákveðna grunn-
leigu 9750 krónur eða 8815 eftir
þvi hvar básinn er. Velta
sýningarinnar er alls um 50-60
miljónir króna. Komust mun
færri að en vildu á sýningar-
svæðið innan hallarinnar. Þetta
er 10. sýningin sem þarna er
Svona leit sýningarsvæðið i Laugardalshöllinni út fyrir nokkrum dögum.
HEHUD77
Sýningin Heimilið 77 opnar i dag, föstudag, en
þar sýna um 130 aðilar framleiðslu sina á 6000 fm
svæði i Laugardalshöllinni. Hér er um að ræða
bæði innlenda og erlenda framleiðslu,og vöruteg-
undirnar eru óteljandi. Grunnflötur sýningar-
svæðisins i Laulardalshöll er 3000 fm.og að auki
verða tvö útisvæði, 1000 fm vestan hallarinnar og
2000 fm austan megin, en þar mun Landsamband
Hjálparsveita Skáta kynna sina starfsemi.
Hér er verið að flytja vörur inn i höllina skömmu áður en sýning in opnaöi.
haldin og 5. sýningin eftir að
fyrirtækinu „Kaupstefnan” var
breytt. Eru nú 7 hluthafar að
þvi, en sýningarstjórn skipa
Gisli B. Björnsson, Haukur
Björnsson, Ragnar Kjartansson
og Bjarni Ólafsson, sem er
lramkvæmdastjóri. Blaðafull-
trúi er Halldór Guðmundsson,
en y firsýningarfreyja Alda
Magnúsdóttir. Fulltrúi
sýningarstjórnar er Haukur
ólafsson.
Af nýjungum á sýningunni má
nefna sérstakt tæki i eldhús
sem þarna veröur kynnt i bás
Vörumarkaðarins, en stúlka
kemur frá fyrirtækinu sem
framleiðir tækið i Sviss og sýnir
fólki notkun þess, sem mun vera
margvisleg (hakkar, þeytir,
hrærir o.fl.). Þá sýna Br. Orms
son tölvustýrð eldhústæki,
Karnabær sýnir tölvu sem
gengur fyrir ljósi, Heimilistæki
sýna gegnsætt sjónvarp og Pét-
ur Snæland sýnir kringlótt
hjónarúm. Þarna verður einnig
„karikatúr’-teiknari, Haraldur
Einarsson, og teiknar hann
myndir af þeim sem þess óska.
Haraldur teiknaði eitt sinn hér i
gamla Tfvolí og hefur einnig
teiknað i Tivoli i Kaupmanna-
höfn.
Ekki má gleyma stærsta stól i
heimi, sem smiðaður hefur ver-
ið fyrir þessa sýningu, en Þor-
kell Guðmundsson, húsgagna-
arkitekt teiknaði stólinn. Hann
verður 7,50 m á hæð og 6 m á
breidd. Eru allar likur á að
þessi stóll komist i heimsmeta-
bók Guinness, en frá þeim hefur
borist bréf þess efnis að stærsti
tóll til þessa sé 6,27 m. Ekki er
enn vitað um kostnað við bygg-
ingu þessa stóls, en talið var aö
hann gæti verið á milli 1-2 mil-
jóna.
ÞS.
I norðvesturhorni
í aðalsalnum er Þjóðviljinn.
Ur anddyrinu gangið þið til hægri inn
í aðalsalinn. Þar fremst er...
Þióðviljmn
í sýningardeild 71