Þjóðviljinn - 27.08.1977, Side 16

Þjóðviljinn - 27.08.1977, Side 16
pjODvnnNN Laugardagur 27. ágúst 1977 A&alsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-2ománudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tlma er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. :U81333 Einnig skal bent á heiiha- slma starfsmanna undir nafni Þjóöviljans i sima- skrá. SOdln þokast suður með Austfiörðum — Jú, það sýnist vera al- vara hjá síldinni að halda hér suður með Austfjörð- BSRB Fjallad um launa- stiga á mánudag Hié veröurá fundum hjá BSRB og fulltrúum rfkisins um helgina, en á mánudag er gert ráö fyrir fundi hjá Sáttasemjara, þar sem aftur veröur tekiö til viö launa- stigann. A fundi f gær og i fyrra- dag, var rætt um ýmiss atriöi i kröfugeröinni, vaktavinnu I fyrradag og aöstööu á vlnnustaö, fæöiskostnaö og fleira i gær. Baldur Kristjánsson á skrif- stofu BSRB sagöi aö þegar ákv. var aö fresta samningunum i vor, heföi veriö gengiö svo frá aö þeg- ar samningarnir yrðu geröir, mynduþeirgilda frá 1. júlí. Hefur fólk í BSRB þvi ekki fengiö neinar hækkanir i sumar, umfram þær sem tilheyröu fyrri kjara- samningum og voru umsamdar þá. Sagöi Baidur aö vissulega bæri mikiö f milli i. þessum samningum, en væntanlega yröu kauphækkanirnarog launastiginn tekin fyrir strax eftir helgi og þá gæti veriö aö linurnar tækju eitt- hvaö aö skýrast. Sídasta sýningar- yikan Siöustu sýningar á Light Nights, kvöldvökuskemmtunum fyrir enskumælandi feröamenn veröa n.k. mánudags-, þriöju- dags-, miövikudags- og fimmtu- dagskvöld kl. 21.00 I ráöstefnusal Loftleiðahótels. Þessar sýningar Feröaleikhússins njóta vinsælda erlendra feröamanna og hefur aösókn verið góö I sumar, en sýningar veröa alls 27 aö þessu sinni. Nýtt námsefni 1 samráöi viö Menntamála- ráöuneytiö hefur Umferöarráö hafiö útgáfu á nýjum umferöar- verkefnum fyrir yngstu nem- endur grunnskóla, þ.e. fyrir 7-9 ára nemendur. Hér er um aö ræöa fjögur verkefni af tólf sem fyrir- huguö eru i þessum flokki. Sam- vinna var höfö viö Rikisútgáfu námsbóka um dreifingu verkefn- anna á kjörbókalista sem þýöir aö nemendur fá verkefnin ókeypis eins og flest annaö fræösluefni á grunnskólastiginu. um og menn eru eitthvað farnir að búa sig undir söltunhérá fjörðunum. En við erum bara vanbúnir þessari heimsókn því síldin hef ur nú ekki ónáðað okkur mikið að undanförnu. Von- andi er hún nú að sjá sig um hönd. — Svo mælti Guömundur Bjarnason, fréttaritari Þjóövilj- ans á Norðfirði I viötali viö blaöiö i gær. — Litiö er annars um aö sild hafi ennþá borist hingaö til Norð- fjarðar, hélt Guömundur áfram. 1 nótt kom bátur inn meö 40 tonn og var sildin fryst. Hún er ennþá ekki söltunarhæf vegna meguröar þó að úr þvi muni sjálfsagt rakna. Engir Norðfjaröarbátar munu fara á sildveiðar og eru þaö aöal- lega Hornfjaröarbátar sem hér eru farnir aö huga aö sfldinni. Hér á Noröfirði hefur verið yfirdrifin atvinna, sagði Guö- mundur Bjarnason, svo aö þess- vegna höfum viö lltiö meö sildina aö gera. Mér sýnist ekki likur á þvi, aö viö höfum neinn mann- skap til þess aö sinna söltun. Smábátarnir hér hafa fiskaö mjög vel bæöi á færi og linu og svo muneinnig vera viöar hér eystra. Yfirleitt virðist mikill fiskur vera fyrir Austurlandi. — Viö eigum nú bráölega von á þriöja togaranum. Ekki er annaö sjáanlegt en aö hér veröi skortur á vinnuafli þegar skólarnir taka til starfa og unglingarnir hverfa frá fiskvinnu aö námi. Búiö er aö bræöa hér 2 þús. lest- ir af loönu og 3 þús. lestir af kol- munna, sem Börkur bar aö landi. gb/mhg Þeir semvllja ^lgjasí me« komast ekki hja aðlesa hvortsemþcireni sammala honum eÓa ekkl Cr sýningarbás Þjóöviljans. Sýningarbás Þjóðviljans Sýningin Heimiliö 77 var opnuö i gær aö viöstöddum miklum fjölda gesta og veröur nánar sagt frá opnun sýningarinnar og fleiru henni tengdu i blaöinu á morgun. í sýningarbás Þjóðviljans veröa til sölu plaköt, tekið veröur á móti áskriftum og auglýsingum og þar veröur svaraö öllum spurningum sem sýningargestir hafa áhuga á aö leggja fyrir fulltrúa Þjóöviljans á sýningunni. Norrænt verkamanna- samband þingar hér á landi Nordisk Fabriksarbetare- federationen, sem er samband 13 landssambanda verkafólks i Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og islandi, héldu aöal- fund sinn á Húsavik I vikunni. Félagsmenn innan þessa nor- ræna sambands eru 397.794 tals- ins. Aöalfundirnir eru haldnir til skiptis i aöildarlöndunum, og er þetta i annað skipti sem aöal- fundur sambandsins er haldinn á Islandi. Fundinn sitja alls 35 fulltrúar, þar af 10 frá Danmörku, 9 frá Finnlandi, 6 frá Noregi, 6 frá Sviþjóö og 3 frá tslandi. Aöalfundafulltrúarnir munu ásamt mökum sinum, feröast til Mývatns I dag og til Akureyrar á morgun, en heim halda þeir á mánudaginn. Kjaradeila verkfræðinga: Áskorun frá BHM Vegna kjaradeilu Stéttarfélags verkfræöinga og Reykjavíkur- borgar vill Bandalag háskóla- manna hér meö beina þeim til- mælum til félagsmanna sinna, aö þeir gangi ekki inn i störf þeirra verkfræöinga hjá Reykjavikur- borg, sem nú eru i verkfalli. Jafnframt lýsir Bandaiag há- skólamanna yfirfullum stuöningi viö Stéttarfélag verkfræöinga I baráttu þeirra fyrir bættum kjör- um. NÚ FÁUM VIÐ LÚÐU, LAX OG SILUNG Góðfiski getum við kallað allan ís- lenzkan fisk, sé hann veiddur á réttum tíma, vel verkaður og fersk- ur, eða rétt geymdur. Vissar fisktegundir þykja þó flest- um öðrum betri. Með þeim viljum við smjör, því þegar reynir á bragð- gæðin, er það smjörið sem gildir. \ Draumurinn um soðinn lax með bræddu smjöri ögrar pyngju okkar á hverju sumri, því hvað er annað eins lostæti og nýr lax með íslenzku smjöri? Matgleðin nýtur sín einnig þegar soðinn eða steiktur silungur er á borðum. Og enn er það smjörið sem gildir. Til að steikja silung dugar heldur ekkert nema islenzkt smjör og séu silungur eða rauð- spretta grilluð, er fiskurinn fyrst smurður vel með íslenzku smjöri og síðan grillaður heill í örfáar mínútur á hvora hlið. Soðin lúða er herramannsmatur. Sjálfsagt er að sjóða fiskinn í eins litlu vatni og hægt er, ef ekki er löguð súpa. íslenzkt smjör má ekki gleyma að bera með, það væri synd. Gott er líka að steikja þykkan lúðubita í ofni. Við smyrjum bitann vel með smjöri og pökkum inn í álpappír, en setjum ekkert vatn við. fyrsta flokfo ísktrxþ smjör Æ\ foo grömn Nú er lúðu-, lax- og silungstíminn. Notfærum okkur gæði lands og sjávar. Annar eins herramannsmat- ur og þessi býðst ekki víða annars staðar í heiminum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.