Þjóðviljinn - 10.09.1977, Side 12

Þjóðviljinn - 10.09.1977, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. september 1977 Norðurlandamótið í nútímafimleikum — en hún er fyrsti íslendingurinn sem tekur þátt í Norðurlandamóti í fimleikum Berglind Pétursdóttir úr Gerplu tók þátt í nútíma fimleikum á Noröur- landamótinu/ fyrst Islend- inga. Berglind hefur í sum- ar vakiö mikla athygli fyrir mjög góða frammi- stöðu á móti sem haldið var fyrir fimleikastigann í Noregi. Fyrirfram var búist við að hér yrði við ramman reip að draga enda keppendur á þessu móti geysilega vel þjálfað- ir. Er samanburður við erlendar þjóðir því mjög óhagstæður fyrir okkur Dana Jónsson, þjálfari Berglind- ar. islendinga. Stjórn Fim- leikasambandsins hefur á undanförnum árum unnið mjög ötult og gott starf og rifið fimleikaíþróttina upp úr þeirri ládeyðu sem hún var í fjöldamörg ár. För Berglindar til Noregs í sumar er fyrst og fremst afraksturaf því starfi sem Fimleikasambandið hefur unnið. En snúum okkur þá að keppninni sjálfri. Berglind fór út síðastliðinn föstudag ásamt þjálfara sínum Dönu Jónsson en hún hefur þjálfað Berglindi svo að segja frá því að hún hóf að Berglind-gengur I salinn, fyrst islenskra þátttakenda á Noröurlanda- móti i fimleikum leggja stund á nútimafim- leika. I flokki Berglindar voru keppendur 13 og urðu úrslit i þremur efstu sæt- unum þessi: 1. Anna Jansson Svíþjóð 2. Lena Smith Sviþjóð 3. Leila JááskelSinön Finnlandi Frá setningu mótsins I Kaupmannahöfn Berglind hafnaði í 10. til 12. sæti. Fyrirfram var búist við betri árangri en hafa verð- ur i huga mjög ungan aldur og reynsluleysi í svo erfið- um stórmótum. Þá voru nokkrar tæknilegar trufl- anir á mótinu, einkum í sambandi við hljómlist sem leikin var undir hjá Berglindi, en á segul- bandsspólunni var að miklu leyti gölluð upptaka. Þetta er að sjálfsögðu mjög trufiandi. Það var samdóma álit allra dómara að Berglind væri mikið efni sem vel yrði að hlúa að. Að sögn Dönu Jónsson aðal- þjálfara Berglindar, þarf að gera mikið átak til að Islendingar geti i framtiðinni sett sig á háan hest. bannig er fjármálahliðin mjög mikilvægur þáttur en starfsem- inni hafa alltaf verið sett nokkuð skýr mörk hennar vegna. Þá er allt skólastarf mjög mikilvægt. Taka þarf fólk mjög ungt i þjálfun svo að nauðsynleg reynsla fáist áöur en út er lagt i stórmótin. Dana mun byrja námskeiö i fimleikum i lok september og er það öllum opið. Þetta er á vegum fimleikasambandsins og mun Dana æfa fyrst og fremst skyldu- æfingar. Vonast hún eftir góðri þátttöku enda er hún mjög fær fimleikaþjálfari sem kennt hefur viða nú siðast i Japan. Nú hefur Fimieikasambandið i bigerð að taka upp sænskt kerfi sem gefur mjög góða raun þar i landi. Mikilvæg reynsla fékkst með þátt- töku Berglindar Englendingar úr leik í HM? England varð aö láta sér Iynda markalaust jafntefli gegn Sviss á Wembley-ieik- vanginum i London á miöviku- dagskvöldiö. Þessi úrslit eru geysilegt reiöarslag fyrir enska landsliöiö, þvl nú eru litlar sem engar likur á aö liö- inu takist aö komast i úrslita- keppnina sem fram fer i Argentínu á næsta ári. Yröi það I annaö sinn i röö sem Englendingum tækist ekki aö vinna sér þátttökuréttinn, en i undankeppninni fyrir úrslitin i Þýskalandi slógu Pólverjar þá út. Raunar voru Englendingar stálheppnir aö ná jafntefli i leiknum þvi lengst af sóttu Svissiendingar stift en án árangurs. Til þess aö komast áfram i keppninni þurfa Eng- lendingar aö vinna tvo siöustu leiki sina gegn ítaliu og Lux- emborg meö talsveröum markamun. Námskeið í jazzleikfimi og leikrænni tjáningu íþróttaskóli Sigurðar R. Guðmundssonar og Fimleikasamband islands gengust sameiginlega fyrir nám- skeiði i djassleikfimi og leikrænni tjáningu dag- ana 21.-26. ágúst s.l. Námskeiðið fór fram að Leirárskóla (Heiða- skóla) i Borgarfirði. Það var fullskipað með 45 þátttakendum. Kennarar voru tvær sænskar konur, Monica Beckman og Dagny Kronlund. Monica Beck- man var hér á landi I fimmta skipti. Djassleikfimi er hennar sérgrein og óhætt að fullyrða að hún sé löngu orðin heimsþekkt fyrir kennslustörf sin. Dagny Kronlund kenndi leikræna tjáningu með miklum ágætum. Þessar tvær konur starfrækja saman barna- og unglingaleikhús i Sviþjóð og vinna út frá hreyf- ingum og hugmyndum sameigin- lega. Þátttakendur námskeiðsins voru mjög ánægðir með kennsl- una og er óhættað telja aö þessir dagar hafi verið lærdómsrikir og ánægjulegir i senn. Auk fastra kennslustunda, sem voru 5 dag hvern, voru kvöldvökur með skemmtiatriöum namskeiðs- fólksins. Þá gafst þátttakendum kostur á aö hagnýta sér sundlaug og gufubaðstofu staðarins og var það óspart notað. Golfmót í Grafarholti Um helgina veröur haldiö i Grafarholtinu flokkakeppni i golfi. Þetta er siöasta golf- keppni Golfklúbbs Reykjavikur og jafnframt siöasta stórmót sumarsins sem er aö liöa. Keppt veröur I Mfl., 1. fl., 2. fl, og 3. fl. karla og einum flokki kvenna. Leiknar veröa 36 holur og hefst keppni kl. 9 á laugardagsmorguninn.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.