Þjóðviljinn - 04.11.1977, Page 1
ÞJOÐVIUINN
Föstudagur 4. nóvember 1977 — 42. árg.246 tbl.
Borgarstjóri veitir af rausn
Eiturbyrl-
arinn í
Svíþjóð
Sjá opnu
Strákarnir
í úrslitin
Baráttuglatt
unglingalandsliðið
vann Wales 1:0
Sjá siðu 11
Fyrirhuguó nýbygging aö Hafnarstræti 20-22, séð frá Lækjartorgi, (suðurhlið).
Gils Gudmundsson í útvarpsumrædum á Alþingi í gær:
Nýbygging að Hafnarstræti 20-22, séö frá Arnarhóli (austurhlið)
þar sem verið væri að gefa hús-
byggjanda miljónatugi af al-
mannafé. Töldu þeir ástæðulaust
að borgin sýndi slika rausn á
þessum timum.
—AI.
Landinu má ekki
gegn alþýðuhag
stj ór na
Gils Guðmundsson
rikisstjórnar við nær allt launa-
fólk i landinu hafi komið ýmsum
til að hugleiða rækilegar en áður
samhengið milli kjarabarátt-
unnar og stjórnmálaátakanna.
Margur maðurinn i röðum opin-
berra starfsmanna hafi kynnst
nýlega i fyrsta sinn stéttabaráttu
af eigin raun og væri vis til aö
draga af þeirri reynslu gagnlegar
ályktanir.
Ræða Gils Guðmundssonar er
birt i heild i blaðinu i dag, en ræða
Svövu verður birt á morgun.
Sjónvarp
á fiski-
miðin
Þrir þingmenn hafa lagt
fram i neðri deild Alþingis
frumvarp til laga um sjón-
varpssendingar á fiskimiöin
við landið. Flutningsmenn
eru þeir Karve) Pálmason,
Lúðvik Jósepsson.og Garðar
Sigurðsson.
í frumvarpinu segir aö
rikisstjórnin skuli þegar láta
gera áætlun um dreifingu
sjónvarps fyrir fiskimiðin
við landið og skuli það miðaö
við að sæmileg sjónvarps-
skilyrði náist á sem flestum
miðum viö landið á næstu 4
árum. Framkvæmdir sam-
kvæmt áætluninni skuli
hefjast á árinu 1978. Jafn-
framt er i frumvarpinu gert
ráð fyrir heimild til handa
rikisstjórninni að taka lán til
þessara framkvæmda.
1 greinargerð með frum-
varpinu benda flutnings-
Framhald á 14. siðu
Lúðvík spyr
um íslenska
aðalverktaka
Lúðvik Jósepsson hefur
lagt fram fyrirspurn til utan-
ríkisráðherra i sameinuðu
þingi um Islenska aðalverk-
taka. Er þess óskað að utan-
rikisráðherra svari eftir-
farandi spurningum:
1. Hverjir eru eignaraðilar
íslenskra aðalverktaka?
2. Hver varð heildarvelta
tslenskra aðalverktaka
s.l. tvö ár, hvort árið um
sig?
3. Hver hafa verið aðalverk-
efni íslenskra aðalverk-
taka s.l. tvö ár?
4. Hversu margir eru starfs-
menn fyrirtækisins?
5. Hversu háum upphæöum
hafa launagreiðslur fyrir-
tækisins numið síðustu tvö
árin?
6. Hver varö hagnaöur
Islenskra aðalverktaka
árin 1975 og 1976?
7. Hafa Islenskir aöalverk-
takarsamiðs.l. þrjúár um
verk á Keflavikurflugvelli
I erlendum gjaldeyri? Sé
svo, hvað hefur félagið
hagnast á gengisbreyt-
ingum?
8. Njóta Islenskir aðalverk-
takar hlunninda I sam-
bandi við innflutningsgjöld
af vinnuvélum?
t gærkveldi var fundur I sam-
einuðu Alþingi þar sem útvarpað
var stefnuræðu forsætisráðherra
og umræöum um hana. Af hálfu
Alþýðubandalagsins tóku GILS
GUÐMUNDSSON og SVAVA
JAKOBSDÓTTIR þátt í þessum
umræöum, og talaði Gils I fyrri
umferð en Svava i þeirri siðari.
1 upphafi ræðu sinnar benti Gils
á að frá þvi að núverandi rikis-
stjórn tók við 1974 hefðu fjárlög
fjórfaldast. Núverandi fjármála-
ráðherra hefði i tið vinstri-
stjórnarinnar siöustu talið
auðvelt að lækka fjárlögin um
nokkra miljarða. Sami maöur
hefði hins vegar staðið að 100
miljaröa hækkun fjárlaga siðan
hann tók við ráðherraembætti.
En þetta væri ekki eina dæmið
um dáðleysi rikisstjórnarinnar,
viö stæðum frammi fyrir geig-
vænlegri skuldasöfnun erlendis,
stóraukinni skattheimtu og 30-
50% árlegri verðbólgu.
Stefna rikisstjórnarinnar hefði
fyrst og fremst miöast við það að
tryggja hagsmuni atvinnurek-
enda og stórfyrirtækja, buröarás-
anna i valdakerfi stjórnarflokk-
anna. í stað þess að draga úr
veröbólgunni hafi rikisstjórnin
beinlinis rekið verðþenslustefnu,
framkvæmt markvissa verð-
hækkana- og skattahækkana
pólitik, til að rýra rauntekjur
launafólks, til þess að flytja milj-
arðatugi i þjóðfélaginu frá hinum
vinnandi manni til handhafa auö-
magns og fyrirtækja. Samfara
þessu hafi ríkisstjórnin verið
býsna skelegg I látlausri styrjöld
sinni við hagsmunasamtök launa-
fólks.
Styrkleiki launþegasamtak-
anna hefði hins vegar komið i veg
fyrir sigur rikisstjórnarinnar i
siöustu átökum við launafólk,
bæði i vor og nú i haust. Fjölda-
samtök launþega séu orðin það
sterk að þaö sé ekki hægt, né eigi
aö vera hægt, að stjórna landinu I
fullri andstöðu og jafnvel fjand-
skap viö fólkið sem þjóöarauðinn
skapar.
Látlaus styrjöld núverandi
Hafnaáætlun
tíl 4ra ára
Lögð hefur veriö fyrir
Alþingi þingsályktunartil-
laga um hafnaáætlun fyrir
árin 1977-80. Aætlun sú er
liggur þingsáiyktunartillögu
þessari til grundvallar er
unnin af Hafnamálastofnun
rikisins, og er hér um að
ræða rit upp á nær 200 siöur.
Aætlunin er byggð á óskum
hafnarstjórna um fram-
kvæmdir og mati Hafnar-
málastofnunarinnar á fram-
kvæmdaþörf á hverjum staö.
1 f járlagafrumvarpinu
fyrir 1978 er rikishluti al-
mennra hafnarframkvæmda
áætlaður 1170 milljónir kr.,
en hefði til að ná þvi fram-
kvæmdastigi sem gert er ráð
fyrir I áætluninni, þurft að
vera um 1400 milljónir.
Áætlun þessi nær aöeins til
svokallaðra almennra hafna,
sem yfirleitt njóta 75% rikis-
framlags. Hún nær hins
vegar ekki til verka viö
landshafnir og ferjuhafnir,
sem greiddar eru að fullu af
rikissjóði, og heldur ekki til
Reyk javikurhafnar, sem
greiðir sjálf allar sfnar
framkvæmdir. Þá nær álykt-
unin ekki heldur til fram-
kvæmda við höfn á Grundar-
tanga.
Gefur miljónatugí
Húsbyggjandi í midbænum viðtakandi
Borgarstjórn staðfesti í
gærkvöldi makaskrifta-
samning um lóðina
Hafnarstræti 20 til 22, sem
borgarráð samþykkti fyrr
um daginn gegn atkvæði
Sigurjóns Péturssonar.
Samkvæmt honum afhend-
ir húsbyggjandinn,
Fristján Knútsson, borgar-
sjóði, 102.8 fermetra, rými
á I. hæð hússins þar með
talinn inngangur í veit-
ingastofu og salerni, 14
ferm., sem er bæði fyrir
veitingastofuna og strætis-
vagnafarþegar. Gengið er
inn í veitingastofuna um
rými SVR.
A fasteignamatsverði er þetta
húsnæði, sem SVR fær, 20 miljón
króna virði. A móti afsalar
borgarsjóður húsbyggjanda 223
fermetra af' eignjlóð sinni. Þar
eru 155 fermetracgangstétt undir
skyggni annarar hæðar hússins.
I. hæðin er inndregin. Fasteigna-
mat þessara 223 fermetra er tæp-
ar 40 miljónir króna.
Gert er ráð fyrir 25% hækkun á
fasteignamati um næstu áramót
og mun þá verðgildi þeirrar lóðar
sem borginni afsalaði sér i gær
fyrir 102 ferm. nálgast 50 miljón-
ir króna.
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins létu bóka með mótatkvæði
sinu að samkomulag þetta væri
dýrt og óhagkvæmt fyrir borgina,