Þjóðviljinn - 04.11.1977, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.11.1977, Blaðsíða 2
2 SÍDA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. nóvember 1977 Rækja, byggingar og hafnarbætur Yfirdrifin — Sauöfjárslátrun mun Ijúka hjá okkur nú i vikunni og veröur slátraö alls um 15 þús. fjár, sagöi Már Karlsson, fréttaritari Þjóöviljans á Djúpavogi, er Landpóstur átti tal viö hann s.l. miövikudag. Síldarsöltun Síldarsöltun er i fullum gangi og er búið að salta i 4000 tunnur. Atvinna er hér mjög mikil og er það ekki hvað sist sildinni að þakka, en svo hefur sláturhús- vinnan verið til viðbótar. Sildin hefur verið að smáfærast vestar og er núna komin vestur fyrir Ingólfshöfða. En i haust hafa sjómenn orðið varir við tölu- verða sild i Lónsbugt. atvinna Frystihúsbyggingin Verið er að vinna af fulium krafti viö frystihúsbygginguna. Múrverki ætti að verða lokið um næstu mánaðamót, þannig að vonir standa til þess, að hægt verði að taka i notkun hluta af húsinu nú á vetrarvertfðinni. Þessi bygging gjörbreytir hér allri aðstöðu til útgerðar. Við höfum t.d. ekki getaö fryst nema 40 tonn hér i haust þvi kjötiö hefur tekið það mikið rúm i frystihúsinu á meðan slátrun stendur yfir. Við biðum þess- vegna með óþreyju eftir þvi að hið nýja hús verði fullbúið og sem betur fer styttist óðum i það. — Rækjuveiðin hefur gengið vel hér það sem af er, sagði Ingimar Júliusson fréttaritari Þjóðviljans á Bildudal i viðtali við Landpóst nú fyrir skemmstu. — Veiðarnar eru nú búnar að standa rúmar þrjár vikur. Atta bátar stunduðu þær i byrjun en einn hefur helst úr lestinni og eru þeir nú sjö. Rækjan var ágæt framanaf en hefur verið heldurlakari nú upp á siðkastið. Við rækjuna er töluverð vinna og má það raunar heita aðal- vinnan hér. Hafnarbætur Svo er verið aö vinna vrð höfn- ina og er það fólgið i þvi, að stækka þar viðleguplassið fyrir bátana. Rekið hefur verið niður 30 m langt stálþil. Er búið að ramma það niður og fylla að þvi að miklu leyti. Vinna við höfn- ina mun halda áfram eftir þvi, sem tiðarfar leyfir. Hafnarskil- yrði batna hér mjög við þessa framkvæmd. Áður var höfnin of litil. Við erum með tvo nokkuð stóra báta, á annað hundrað tonn,og þeir liggja hér inni og eru búnir að gera það I mánuð. Þeir taka að sjálfsögðu mikið pláss i þessari litlu höfn,og svo þegar rækjubátarnir koma til viöbótar þá erum viö komnir upp i fjöru. Þessi framkvæmd bætir þvi mikið úr skák.enda er- um við lengi búnir að biða eftir J henni. Byggingar Dálitiö er svo um vinnu við I byggingar. Veriö er til dæmis að ! byggja yfir Landsbankaútibúið, “ þvi alltaf geta blessaðir bank- | arnir byggt. Nú, svo eru leigui- ■ búðir hér i byggingu. Ekki I eru nær nú komnar i nothæft m ástand ennþá, en hluti af ■ þeim er orðinn fokheldur og ' veriö er að steypa upp ann- j an áfanga. Unnið er að þvi I að koma upp fleiri húsum, ■ undanfarið, en á engum nýjum | húsum hefur verið byrjaö I sum- ■ ar. Atvinna er hér engan veginn J nægileg fyrir landverkafólk i a.m.k. Það er rækjan, vinna við 1 byggingarnar og svo hafnar- j gerðin,ogerþásáhængurþará, | að við hana vinna aðallega að- ■ komumenn, sagði Ingimar I Júliusson að endingu. ■ ij/mhg | mk/mhg Tala búfjár á Vesturlandi 1974-1976 Yfirlit yfir tölu búfjár á Vesturlandi á árunum 1974,1975 og 1976 sýnir að þar hefur nautgripum fækkað á timabilinu, sauðfé einnig en óverulega þó,en hrossum fjölgað. Nánari sundurliðun litur þannig út: Nautgripir Sauðfé Hross 1974 1975 1976 1974 1975 1976 1974 1975 1976 Borgar'fjarðarsýsla.........................371« 3468 3334 32184 31816 31632 2230 2352 2411 Mýrasýsla ................................. 2439 2388 2317 36087 35917 35448 2074 2204 2080 Snæfellsnessýsla.. ........................ 1940 1879 1838 33842 34103 33130 1030 1021 1154 Dalasýsla................................ 1292 1164 1059 35600 36512 37345 1372 1448 1472 Akranes.................................... 48 41 0 677 710 681 208 205 257 Nautgripum á svæðinuhefur fækkaðum 88, sauðfé fækkaðum 154,en hrossum fjölgaðum 460. -mhg Umsjón: Magnús H. Gíslason Frá Djúpavogi: Frá Bfldudal Frá Bíldudal: Alþýðusamband Vestfjarða50 ára Fyrr á þessu ári varð Alþýðu- samband Vestfjarða 50 ára. í til- efni afmælisins hefur stjórn Al- þýðusambands Vestfjarða sent fjölmiðlum til birtingar stutt yfir- lit, sem hér fylgir og er á þessa leið: Alþýðusamband Vestfjarða var stofnað 20. marz 1927, og hét fyrstu starfsárin Verkalýössam- band Vestfjarða. Sambandssvæði A.S.V. er Vest- fjarðakjördæmi og eru aðildar- félög sambandsins nú 15. Aðal áhrifa af starfi sambands- ins hefur fyrst og fremst gætt á vettvangi kaupgjalds og kjara- baráttunnar og hefur sambandiö á margan hátt gegnt merkilegu og mikilvægu forustuhlutverki á liðnum áratugum. Frá árinu 1949 að sambandinu tókst að koma á heildarsamning- um um kaup og kjör landverka- fólks, hefur einn heildarsamning- ur gilt milli verkalýðssamtak- anna og atvinnurekenda á Vest- fjörðum. Samningar þessir hafa ýmist verið gerðir i tengslum viö samninga heildarsamtaka um landið allt, og stöku sinnum að eigin frumkvæði verkalýösfélag- anna á Vestfjörðum á vegum A.S.V. í árslok 1952 var gerður heildarsamningur um kaup og kjör háseta, matsveina og vél- stjóra á skipum sem veiðar stunda með linu, netum, botn- vörpu, dragnót og handfærum, viö Útvegsmannafélag Vest- fjaröa. Siðan hefur einnig gilt einn samningur milli aöila um kjör sjómanna. Heildarsamningur við smá- bátaeigendafélögin á Vestfjörð- um, um kaup og kjör sjómanna á bátum undir 30 rúml. hefur gilt hér siðan 1969. I samningum um kaup og kjör sjómanna hafa vestfirskii sjó- menn gegnt mikilvægu forustu- hlutverki fyrir sjómannastéttina I heild og veriö öðrum til fyrir- myndar. Avinningur af heildarsamning- um er mikill og ótviræöur, og þetta nána samstarf sam- bandsfélaganna I samningum er sérstaklega þýðingarmikið fyrir smærri og veikari félögin. Það sem einkum hefur einkennt allt starf A.S.V. er sú trausta samstaða, sem skapast hefur milli hinna einstöku sambands- félaga á þessu dreiföa félags- svæði, þar sem ógreitt er um samgöngur megin hluta ársins. Batnandi samgöngur siöari ár, hafa gert samstarfið nánara og framlag félaganna varöandi samninga og viöræður við at- vinnurekendamunmeira en áður var unnt. Fulltrúafundur sam- bandsfélaganna hefur ávallt ver- ið kallaður saman þegar ákvarðanir i kaupgjaldsmálum eru teknar. Fundir þessir haldnir milli þinga sambandsins hafa gefist mjög vel, þeir hafa aukið kynni forystumanna aðildarfélaganna og aukið skilning og þekkingu á hinum ýmsu félagslegu vanda- málum byggöarlaganna og ein- stakra félaga, ekki siður en vandamál kaupgjaldsbaráttunn- ar. Samninganefndir A.S.V. eru uppbyggðar þannig, að auk sam- bandsstjórnarinnar tilnefna sam- bandsfélögin, sem aðild eiga að viðkomandi samningi, fulltrúa I nefndina svo tryggt sé, að sér- staða hinna ýmsu byggðarlaga sé virt til fulls. A.S.V. hefur ásamt verkalýðs- félögunum á tsafirði rekið um nokkurt skeið skrifstofu á Isafirði og annast hún i vaxandi mæli margvislegar fyrirgreiöslur og upplýsingastarfsemi fyrir félög- in á sambandssvæðinu. Við stofnun lifeyrissjóöa verka- lýösfélaganna beitti A.S.V. sér fyrir samstöðu Vestfjaröafélag- anna u.: stofnun sameiginlegs lifeyrissjóðs kjördæmisins. Þetta frumkvæði sambandsins varð til þess að 12 aðildarfélög A.S.V. ásamt nokkrum öðrum stéttar- félögum stofnuðu til „Lifeyris- sjóðs Vestfiröinga”. A vegum sambandsins og i samstarfi viö félög og landssam- bönd eru nú I byggingu 11 orlofs- hús I friðlýstu leigulandi A.S.V. i Vatnsfirði á Barðaströnd. t sumar hefur farandsýning málverka frá Ásgrimssafni og Listasafni alþýðu verið á sam- bandssvæðinu. Þetta og margt annað i samskiptum félaganna hefur sannað að verkalýðsfélögin á Vestfjörðum eiga samleið á fleiri sviðum en aðeins I kaup- gjalds- og kjaramálum þó það eigi og verði jafnan aö sitja I fyrirrúmi. Forsetar A.S.V. hafa veriö Ingólfur Jónsson 1927-1931 Finnur Jónsson 1931-1935 Hannibal Valdimarsson 1935-1954 BjörgvinSighvatsson 1954-1970 PéturSigurössonfrá 1970. Núverandi stjórn sambandsins skipa Pétur Sigurðsson forseti. Karvel Pálmason v. forseti. Guðmundur Friðgeir Magnússon ritari. Bjarni L. Gestsson gjaldkeri. HörðurSnorrason meöstjórnandi. 23. þing Alþýðusambands Vest- fjarða fer fram dagana 11. til 13. nóv. n.k. I Alþýöuhúsinu á tsafirði og verður sett kl. 14 föstudaginn 11. nóvember. Rétt til setu á þinginu eiga um 35 fulltrúar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.