Þjóðviljinn - 10.11.1977, Síða 4

Þjóðviljinn - 10.11.1977, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. nóvember 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Auglýsingastjori: Úlfar Þormóðsson Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Svavar Síðumúla 6. Simi 81933. Gestsson. Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Árni Bergmann. Prentun: Biaðaprent hf. Aðhaldið” í rikisbúskapnum Siðsumars greindi Þjóðviljinn fyrstur blaða frá þvi að rikisstjórnin og meirihluti fjárveitinganefndar hefðu ákveðið að kaupa hús nokkurt hér i bæ sem að með- töldum viðgerðarkostnaði kostar um 700 miljónir króna. Þjóðviljinn birti siðan ásamt fleiri blöðum skýrslur sérfræðinga um Viðishúsið. í skýrslunum kemur fram að Viðishúsið er verra en fokhelt hús myndi nokkru sinni vera; það er horn- skakkt, það er lekt, það er með ónýta glugga, ónýt gólf o.s.frv. Kom i ljós að aðeins eitt atriði var i lagi: Ljósastæði efstu hæðarinnar eru vatnsheld! 1 fyrstu reyndu ihaldsblöðin hvaða nafni sem þau nefnast að þegja þetta hneyksli i hel, en það gekk ekki lengi, og að siðustu varð óánægja almennings svo mikil að blöð þessi urðu að taka málið upp. Þar voru þessi húsakaup gagnrýnd mjög harðlega. Þá birtust i blöðum viðtöl við nokkra þing- menn stjórnarflokkanna þar sem þeir lýstu sig andviga þessum húsakaupum, og einn ráðherranna kvaðst andvigur þeim. Nú hefur um hrið verið hljótt um mál þetta, þangað til forsætisráðherra, Geir Hallgrimsson, lýsti þvi yfir að hann væri hlynntur húsakaupunum. Þessi yfirlýsing forsætisráðherrans vakti verulega athygli; en skýringar á þessari afstöðu hans eru margar. Hin fyrsta er að sjálf- sögðu sú, að hann er formaður Sjálf- stæðisflokksins og sem slikur veit hann ákaflega vel hvaðan flokki þessum koma peningar. Einn þeirra máttarstólpa Sjálf- stæðisflokksins sem hafa lagt flokknum fé á undanförnum árum og áratugum er einmitt eigandi Viðishússins. Geir vill launa honum greiðasemina við flokks- sjóðina og þess vegna beitir forsætis- ráðherra valdi sinu til þess að rikið leysi eiganda Viðishússins úr hundraðamiljóna króna skuldafeni — á kostnað rikisins. Einhverjum kann að koma það á óvart að Geir Hallgrimsson skuli misnota vald sitt með þessum hætti. En það er byggt á mis- skilningi. Það er höfuðskylda forustu- manna Sjálfstæðisflokksins að sjá svo um, að stjórnarráðið sé eins konar þjónustu- stofnun við vildarmenn Sjálfstæðisflokks- ins. Sjálfstæðisflokkurinn telur sér skylt að hamla gegn samneyslu, gegn félags- legri þjónustu i hvaða mynd sem er. Það sýnir reynsla þessa rikisstjórnar timabils. En um leið er það skylda flokks- ins að sjá um sina, máttarstólpana á framfæri rikisins, og gera allt sem hægt er til þess að tryggja þeim aðstoð úr sam- eiginlegum sjóðum landsmanna — jafnvel til þess að selja „hundakofa” eins og eitt stjórnarblaðanna nefndi Viðishúsið. Fróðlegt verður að sjá hver verður meðferð Viðismálsins á alþingi; hvaða þingmenn stjórnarflokkanna kjósa að knýja þetta hneyksli fram á alþingi. Með þvi verður fylgst. En þvi er á þetta mál minnst hér að þessa dagana er einmitt verið að f jalla um fjárlög ársins 1978 á alþingi. Þá kveður jafnan við þann tón af þingmönnum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins að nauðsynlegt sé að veita aðhald i rikisbúskapnum, að koma þurfi i veg fyrir allskonar félagslega þjónustu og framkvæmdir i þágu almennings á þeim forsendum að veita þurfi „aðhald”. En falsið, fláttskapurinn og óheilindin birtast i hriplekum húskofa við Laugaveg i Reykjavik: Þegar kemur að máttar- stólpum Sjálfstæðisflokksins er ekki hugsaðum „aðhald”, þá er ekki talað um nauðsyn þess að draga úr rikisumsvifum, þá er hugsað um það að kosningasjóður Sjálfstæðisflokksins fái sinn skammt eins og bent var á i einu dagblaðanna nú á haustdögum. Þegar kemur að þci að veita fjármagn til skólabygginga, sjúkrahúsa, samgöngumála, menntamála almennt og heilbrigðismála — þá er sparsemin hafin til vegs i orði. Skitt með það þó að allur almenningur verði að gjalda fyrir i verki — kosningasjóður Sjálfstæðisflokksins verður að fá fé sitt. — s. Hætta á ferðum Prófkjör Alþýöuflokksins 1 Reykjavík fer fram um næstu helgi og er mikill glimuskjálfti i herbúöum þeirra sem um efstu sætin á þinglistanum bitast. Herbragö stuöningsmanna Benedikts Gröndals er þaö helst aö formaöurinn setji pólitiska framtiö sina aö veöi i prófkjör- inu og muni segja af sér ef hann nái ekki efsta sætinu. Þeir láta ekki þar viö sitja, heldur boöa þaö iáróöri sinum aö fleiri muni fylgja formanninum í pólitiska gröf, ef illa fer um helgina. Meöal þeirra sem hyggjast segja af sér embættum á Al- þýöuflokknum ef formaöurinn fellur eru Arni Gunnarsson, rit- stjóri Alþýöublaösins, Eyjólfur Sigurðsson, fallisti úr borgar- stjórnarprófkjörinu, Bjarni Magnússon, starfsmaöur Al- þýöuflokksins, Orlygur Geirs- son, stjórnarráöskrati, og fleiri góöir drengir. Andstæðingar Benedikts benda hinsvegar á aö það séu dæmi um þaö úr öörum stjórn- málaflokkum aö menn hætti viö aö hætta, og þvi sé engin hætta á ferðum. f 50% ávöxtun fés! Bankarnir vilja stuöla að inn- lendum sparnaöi meö þvi aö hækka vexti. Sparifjáreigendur kokgleypa ekki þaö agniö meö- an veröbólgan geisar og gengiö sigur stööugt. Þó eru til aöilar i þjóöfélaginu, aörir en bankarn- ir, sem geta boöið upp á ávöxtun sparifjár I samræmi viö verö- rýrnun peninganna og vel þaö. Og þaö á algjörlega löglegan hátt ef marka má auglýsingu i Morgunblaöinu. Hvaö hlýtur þá ekki aö vera hægt aö gera meö þvi aö fara i' kringum lögin? I auglýsingunni er að visu talaö um ávöxtun sparifjárs, og er þaö sjálfsagt eignarfallsending I samræmi viö einhverja staf- setningartillöguna, sem liggur fyrir Alþingi. Þar eru menn aldrei sammála um neitt, og heyrst hefur um ráöherra sem beygja villsvona: fé, fé, fé, fés. ávöxtun sparifjárs! Vilt þú auka sparifé þitt um helmrng á einu ári, á algjörlega löglegan hátt? Stærri og minni upphæðir -t 'íengri og styttri tima. Hafir þú áhuga, sendu þá nafn og simanúmer til Mbl. merkt: ,,X — 4226 '. Fín frú það Það þarf greinilega lagasetn- ingu til þess aö skera úr um hvort rita skal I eignarfalli fjár, fjárs, eða fés. Oss er fjár-vant. Henni er hinsvegar ekki fjár vant konunni sem pelsinn var stolinn frá i bandarlska sendi- ráöinu sl. föstudag. Aö þvi er Dagblaöið segir frá i gær er pelsinn 6 miljón króna viröi: ,,Er þá miöaö viö verö jagú- arbila. Er pelsinn var keyptur kostaöi hann um 2 millj. eins og jagúarbill þá. Slikirbiiar kosta I dag um 6 miljónir. Frúin fékk i ■ upphafi aö velja milli jagúarbils og pelsins og vaidi pelsinn. Pelsinn er geröur úr skinnum af villiminkum. Er þetta siö kápa, hönnuö og saumuö I frægu tiskuhúsi I Paris. Þaö eitt út af fyrir sig gerir hann dýran á bandariskum markaöi. Þaö er fslenzk kona gift Islenskum manni, sem pelsinn á. Hafa þau hjón lengi búiö vestan hafs.” Þjóöviljinn hefur fengiö skömm I hattinn frá ýmsum baráttuglööum jafnréttiskonum fyrir aö hafa notaö oröin „finar frúr” yfir öldungana I Hamra- hliö. Allar konur standa I jafn- réttisbaráttu hvar i stétt sem þær annars standa er sagt. Má þaö réttvera.en vonandi veröur klippari þessa þáttar ekki skammaður þótt hann hafi tii- hneigingu til þess að kalla pels- eigandann fina frú. Þegar vandamál fólks eru farin aö snúast um val milli Jagúars eöa jafngildi hans i pels ætti aö vera óhætt aö fara aö nota þessi voöalegu orö. Aronskan of sein á sér! Dagblaðið byrjar á þvi aö birta grein Ur bandarisku blaöi þar sem hermálasérfræöingur skammastyfir þvi aö öll tæki og vigvélar séu svo úr sér gengin á Keflavikurflugvelli aö ein sovésk herþota geti lagt þar allt I rúst án þess aö svo mikiö sem ein bandarisk þota komist á loft, eða hleypt hafi veriö af einu skoti. Þessi „hrörnun” her- stöövarinnar, ef rétt er frá greint, viröist ekki benda til ýkja mikils áhuga Bandarikja- stjórnar á viögangi herstöövar hér norður i Dumbshafi. Að sama brunni ber sú tregöa sem Bandarikjastjórn sýnir i þvi efni aö taka á sig meiri skuldbind- ingar varöandi aöskilnaö hern- aöarumsvifa og farþegaflugs á Keflavikurflugvelli en ráö var fyrir gert i Washingtonsam- komulaginu 1974. A sama tima tromma Arons- menn upp meö það að Banda- rikjastjórn eigi aö byggja veg- ina okkar og borga okkur offjár I leigu fyrir herstööina. Banda- rikjamenn munu ekki leggja krónu til Islenskra þarfa nema þeir telji sig fá eitthvaö I staö- inn. Séu þeir i raun aö missa áhugann á Islandi sem herbæki- stöö i þágu bandarfskra varna gæti svo farið aö Aronskan yröi herstöðvaandstæðingum hinn nýtasti liösmaður. Heimtu- frekja Islendinga I slikri stööu og ágangur i bandariska sjóöi gæti haft þær afleiðingar aö Bandarikjastjórn sæi sitt óvænna og hypjaöi sig með sitt hafur- og hernaðartask frá ís- landi. — ekh.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.