Þjóðviljinn - 10.11.1977, Qupperneq 7
Fimmtudagur 10. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Hvers vegna eru árnar ekki leigðar íslendingum?
Er ástæðan fremur tilfinningaleg en viðskiptaleg?
Sigmar Ingason/
verkstjóri
Keppnin um veiðiárnar
Vatnsdalsá
Mikið getur áhugi á tóm-
stundagamni hertekið hugann.
Þetta sannast meðal annars á
stangaveiðimönnum, islenskum
sem erlendum. Hvar sem tveir
eða fleiri slíkir hittast eru þeir
innan skamms farnir að ræða
þetta sameiginlega áhugamál.
Meira að segja á haustdögum,
þegar minningin um veiðiævin-
týri sumarsins er ennþá fersk i
huganum,. eru menn farnir að
ræða þaö hvar þeir ætli að fá
veiöileyfi næsta sumar.
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum sem með þessum
málum fylgist að islenskir
stangaveiðimenn hafa þóst
nokkuð afskiptir á veiðileyfa-
markaðnum undanfarin ár.
Margar helstu veiðiár landsins
hafa verið leigðar útlendingum
besta hluta veiðitimans, annað
hvort beint eða fyrir milligöngu
islenskra aðila. Þessir milli-
göngumenn reka þá gjarnan
allumfangsmikla starfsemi i
þessu sambandi. Taka á móti
hinum erlendu veiðimönnum á
flugvellinum, sjá þeim fyrir fari
að veiðiánni og skaffa þeim þar
leiðsögn, bfl og annan aðbúnað
sem þurfa þykir, auk þess sem
þeir eru að sjálfsögðu vel
haldnir i mat og drykk. Ýmsir
fjársterkir aðilar innlendir hafa
sótt allfast inn á þennan markað
og má af þvi ráða að þar sé góð
hagnaðarvon.
Að sjálfsögöu þrengist hlutur
islenskra stangaveiðimanna að
sama skapi og áðurgreind starf-
semi vex, enda hefur það verið
hald manna að eigendur ánna,
bændurnir, högnuðust svo vel á
þessum viðskiptum, aö is-
lenskum veiðimönnum þýddi
ekki að keppa við þá fjársterku
aðila, innlenda og erlenda sem
þarna eiga hlut að máli.
Að visu hefur ekki alltaf á það
reynt hver vill borga best þvi oft
hafa árnar verið leigðar án
útboðs.
Að öllu þessu athuguðu er
ekki að undra þótt uppi yrði
fótur og fit meðal stangaveiði-
manna þegar ein ágæt og vinsæl
veiðiá, sem leigð hefur verið út-
lendingi um árabil, var auglýst
föl til leigu i september siöast-
liðnum. Hér var um að ræða
Veiðiréttur til lax- og
silungsveiði i Vatns-
dalsá i Austur-Húna-
vatnssýslu er til leigu
næstu ár.
Tilboð, sem gera má i vatna-
svæðið i heild, eða einstaka
Vatnsdalsá I Húnaþingi.
Auglýsingar birtust i blöðum og
stangaveiðifélögum og fleiri
aðilum voru send bréf þar sem
vakin var athygli á útboði
þessu.
Nú upphófust miklar eftir-
grennslanir og umþenkingar,
simtöl, bréfaskriftir og
skoðunarferðir norður I Vatns-
dal. Forsvarsmenn þeirra
Vatnsdæla tóku komumönnum
vel og leystu greiðlega úr öllum
spurningum. Þeir létu i ljós
áhuga á þvi að fá sameiginlegt
tilboð i allt veiðisvæðið og upp-
lýstu meðal annars að það væri
nærri þvi fullvist að hæsta til-
hluta þess, eitt eða fleiri
timabil, berist stjórn Veiöi-
félags Vatnsdalsár fyrir 20.
sept. n.k. Formaður þess,
Gisli Pálsson, Hofi, veitir
frekari upplýsingar.
Réttur áskilinn til að taka
hvaða tilboði sem er, eða
hafna öllum.
boði yrði tekið þar sem slæm
reynsla væri af þvi að ganga
fram hjá hæsta boði eða leyfa
einhverjum að hækka tilboð sin
eftir á. Veiðihús og allur aðbún-
aður fyrir veiðimenn var með
miklum myndarbrag. Hér bar
sem sagt allt að sama brunni:
Vatnsdalsá var þess virði að
borga vel fyrir hana.
Nú rennur upp sá stóri dagur
þegar tilboð skyldu opnuð að
viöstöddum fulltrúum frá til-
boðsgerendum. Jú,vist komu
ýmsar háar tölur úr
umslögunum en ein þó miklu
hæst 15,7 miljónir. Það tilboð
var frá þrem stangaveiði-
félögum sameiginlega. Félög
þessi voru i Keflavik, Hafnar-
firði og Akranesi og var tilboö
þeirra miðað við veiöisvæðið i
heild.
Onnur tilboð voru ölí miðuð
við hluta úr umræddu veiði-
svæði og hvernig sem þeim var
hrært saman var alls ekki hægt
að fá út úr þeim hærri tilboðs-
upphæð, miöað viö allt svæðið,
en 14,5 milljónir.
Nú taka Vathsdælir sér góðan
tima til að glugga í pappira og
ræða við þá er tilboð höfðu gert
og að vandlega ihuguðu máli
barst úrskurður þeirra.
Hæsta tilboði var ekki tekið
heldur samið við aðila sem gert
hafði 11 milljóna tilboð i aðal-
laxveiðisvæöið og ekki i aðra
hluta árinnar. Auk þess var svo
tekið tveggja milljóna tilboði
sem fyrir lá i annan hluta af
ánni.
Það fylgdi svo meö svari
þeirra Vantsdæla (sem ennþá er
aöeins simtal þar eð póstur
hefur ekki borist um sinn) að
með ýmis konar samningum,
utan þess sem getið var um i til-
-boðum, myndi útkoman verða
,,allt aðþvisú sama” og tilboðið
frá stangaveiðifélögunum
þremur.
Og svo kemur það sem trú-
lega skiptir mestu máli i þessu
sambandi: Sá sem hnossiö
hreppti er þekktur aðili I veiði-
leyfasölu til útlendinga og hefur
um árabil rekið blómlega starf-
semi á þeim vettvangi.
Að sjálfsögðu var um þaö
spurt i fyrrnefndu simtali hver
ástæðan væri fyrir þvi að hæsta
tilboði var ekki tekið. Svarið var
á þá leið að bændur hefðu óttast
það ,,að áin yröi ofveidd ef þar
kæmu kappsamir islenskir
veiðimenn sem að jafnaði væru
tveir um stöng.”
Vissulega má slá fram svona
hugdettum en sem betur fer
hafa islenskir stangaveiðimenn
sýnt þaö og sannað að þeim er
trúandi til að umgangast veiði-
ár. Þeir hafa meira að segja
stundum haft frumkvæði um
friðunaraögerðir og veiðitak-
markanir i þeim ám, sem þeir
hafa haft á leigu, ef þeir hafa
talið ástæðu til. Og hafi þetta
verið hin raunverulega ástæða
hefði það ekki verið nema
almenn kurteisi, við þá sem
hæsta tilboð áttu, að spyrja þá
hvort þeir gætu fallist á ákveðin
veiðitakmörk en svo var ekki
gert.
Það skal tekið fram áður en
lengra er haldið að sá sem þetta
ritar er ekki að véfengja laga-
legan rétt þeirra Vatnsdæla eða
annarra bænda til að leigja
veiðisvæöi sin, þeim aðilum
sem þeir sjálfir kjósa og á þvi
veröi, sem þeir vilja.
Þessar linur eru til þess skrif-
aðar að leggja fram ljóst dæmi
um það aö islenskir stanga-
veiðimenn eru reiðubúnir til að
greiða bændum fyrir veiðiár
þeirra jafngóða leigu og
kannske betri en þeir aðilar sem
taka árnar á leigu með
útlendingaviðskipti að mark-
miði.
Þá kemur að spurningunni
stóru, hvers vegna eru Islend-
ingum þá ekki leigðar árnar?
Sé framangreint dæmi
athugað, hlýtur manni að detta i
hug að ástæðurnar séu frekar
tilf inningalegs eðlis en
viðskiptalegs.
Já þvi ekki það. 1 hópi þeirra
veiðimanna erlendra sem
hingað hafa sótt til veiða eru
ýmsir þekktir menn, sem prýtt
hafa sjónvarpsskjái nágranna-
landanna á liðnum árum og
sjálfsagt getur það verið nota-
leg tilfinning að láta endur-
skinið af frægðarsól þeirra
verma landareign sina nokkra
daga á rigningarsumri.
Vel má það lika vera að það sé
dálitið niðurlægjandi tilfinning
að vera staddur I hópi veiði-
réttareigenda og heyra bænd-
urna I grannsýslunum bera
saman bækur sinar um heim-
sóknir þeirra Mack Clouds og
prinsins af Wales — eða hvað
þeir nú allir heita — og geta
sjálfir ekki teflt neinu fram til
mótvægis nema frystihúsa-
körlum af skipaskaga og
skreiðarverkendum sunnan
með sjó.
En hvað sem öllum hug-
leiðingum af þessu tagi liður,
skulum við, bæði bændur og
stangaveiðimenn hafa það hug-
fast að það er hlutskipti okkar
að búa saman i þessu landi og
virða hver annars rétt.
Stangaveiðifélögin, a.m.k.
þau sem hér koma við sögu og
flest önnur, eru ekki félög fárra
útvaldra efnamanna heldur eru
þau opin almenningi og I þeim
er fólk úr öllum stéttum og
starfsgreinum og þau eru fjöl-
menn.
Þessum stóra hópi fólks
sárnar það að vonum að vera
hornrekur i sinu eigin landi.
Veiðifélag Vatnsdalsár.
Þessi auglýsing birtist i Timanum þann 28. águst s.l. -1 hana vantar
bara eina setningu: Hæsta tilboði því aðeins tekið að tryggt sé að ís-
lendingar veiði ekki í ánni.
Veiðihúsið góða í Vatnsdal, þar eru „kappsamir islenskir veiði-
menn” ekki aufúsugestir.
Nýir
sjúkralidar
útskrifaðir
Þessir sjúkraliðar útskrifuðust
frá Sjúkraliðaskóla íslands 16.
september sl.
Efsta röð frá vinstri: Bertha S.
Jónsdóttir, Guðrún Valdimars-
'dóttir, Áse Marit Einarsson, Alda
G. Jörundsdóttir, Elinborg W.
Halldórsdóttir, Petrina Jónsdótt-
ir, Maria B. Finnbogadóttir,
Móéiður Sigvaldadóttir,
Guðbjörg Guðjónsdóttir, Sig.
Benny Björnsdóttir, Lára Björns-
dóttir. Miðröð frá vinstri:
Stefania S. ölafsdóttir, Jóhanna
Björnsdóttir, Svana H. Kristins-
dóttir, Brynhildur Baldursdóttir,
B. Sólveig Gunnarsdóttir, Sigur-
björg K. Jónsdóttir, bórdis J.
Rúnarsdóttir, Kristin Eyjólfs-
dóttir, Björg Pálsdóttir, Katrin ó.
Þorgeirsdóttir, Drifa Hrólfsdótt-
ir. Fremsta röð frá vinstri: H.
Elsa Harðardóttir, Halldóra Sig-
urðardóttir, Halldóra R. Hansen,
Maria Ragnarsdóttir, Kristbjörg
Þórðardóttir, Margrét Kristins-
dóttir, Sóley G. Höskúldsdóttir,
Kristin J. Ágústsdóttir.
Ljósm. Mats
Ósammála
um
fiskveidar
OSLO 8/11 Reuter,— Noregi og
Efnahagsbandalagi Evrópu mis-
tókst i dag að ná samkomulagi
um gagnkvæmar fiskveiðar á
auðlindalögsögusvæðum þessara
aðila næsta ár. Segir Knut Vart-
dal, fiskimálastjóri Noregs, aö
umræður um þetta yrðu hafnar að
nýju i Bríissel 24. þ.m.
Vartdal sagði að aðilum bæri
enn mikið á milli um veiðikvóta á
þorski, sild, ýsu og fleiri fiskteg-
undum. Þessir fiskistofnar eru á
sveimi milli auðlindalögsögu-
svæðanna tveggja. Vill EBE aö
meirihluti þess, sem leyft sé aö
veiða af umræddum fiskistofnum,
verði veitt i auðlindalögsögu
Efnahagsbandalagsins, en Norð-
menn krefjast þess að álika mikið
verði veitt á lögsögusvæðunum
báðum