Þjóðviljinn - 20.11.1977, Side 14

Þjóðviljinn - 20.11.1977, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. nóvember 1977 LITIÐ INN HJÁ CIRKUS Fyrir nokkrum dögum hóf ein besta og vandaöasta islenska danshljómsveitin, Girkus, störf á ný eftir rúmiega hálfs árs hlé. Af þvi tilefni var Þjv. boöiö aö hlýöa á þverskurö af væntan- legri dansleikjadagskrá hljóm- sveitarinnar, en hún veröur væntanlega tilbúin aö koma fram eftir u.þ.b. hálfan mánuö. Cirkus hefur alla tiö verið með betri dansleikjadagskrá en gengur og gerist og eru þeir ein- mitt núna aö vinna að betri dag- skrá en þeir hafa nokkurn tima áður haft. Þeir sem koma til með að sækja dansleiki hljóm- sveitarinnar i framtiðinni fá að njóta m.a. frumsamis efnis eftir örn Hjálmarsson gitar- leikara og Helga Magnússon pianóleikara, og aðdáendur Doobie Brothers og Steeleye Dan fávænanskammtaflögum fyrir sig. Athyglisvert er aö nú eru ekki lengur nein „discolög” á dagskránni, en þeirra i stað er kominn álitlegur stafli af „funkyjazzlögum”. SÖgðust þeir félagar mikið frekar vilja leika svona dagskrá kauplaust, eða svo gott sem, heldur en að leika léttari og ein- faldari tónlist, sem þeim leidd- ist, fyrir peninga. Sterklega kemur til greina að leika frumsamda efnið inn á hljóm- plötu eftir áramót, þrátt fyrir þá vissu að hljómplötur með vöndiíðu og e.t.v. heilsiðulagi á annarri plötuhliðinni séu ekki til að græða á, langt frá þvi. „Is- lensk plötuútgáfa er á mjög lágu plani”, sögðu þeir og „einu Islensku plöturnar sem eitthvað er gaman af eru plötur Spil- verksins, Þokkabótar og Meg- asar, auk þess sem Eikin hefur gert marga góða hluti bæði á plötum og dansleikjum”. Aðspurðir að þvi hvernig starfsgrundvöllur væri núna „F.t.H. veröur aldrei nógsamlega þakkaö fyrir þaö góöa og mikla starf sem þaö hefur unniö I þágu popptóniistarinnar”, segja meölimir hljómsveitarinnar Cirkus. WINWOOD SPJARAR SIG STEVE WINWOOD island / FALKINN h.f. Stjörnugjöf (af fimm mögulegum):^ ★ ★ ★ ★ Sex ára gamall byrjaði eng- lendingurinn STEVE WINWOOD að læra hljóm- borðsleik. Þremur árum seinna var hann farinn að leika djass með bróðir sinum, MUFF, og föður sinum i Birmingham. 15 ára gamall stofnaði hann með bróður sinum hljómsveitina MUFF WOODY JAZZ BAND ásamt trommuleikaranum PETE YORK, en breyttu nafn- inu svo sama ár i THE SPENCER DAVIS GROUP þeg- ar SPENCER DAVIS gekk til liðs við þá, og eftir það lék hljómsveitin næstum eingöngu Rhythma & Blues tónlist og náði mjög miklum vinsældum með mörgum ágætum R&B lögum, sem mörg hver standa ennþá fyrir sinu þó að þau hafi verið á vinsældarlistunum fyrir 12 og 13 árum. Það sem einkum setti svip á lögin var svört soulrödd STEVE WINWOOD og hans leikandi orgel- og gitarleikur. 1967 hætti hann i THE SPENCER DAVIS GROUP og hefur leikið i mörgum hljóm- sveitum siðan, m.a. BLIND FAITH, POWERHOUSE, GINGER BAKER’S AIR- FORCE og TRAFFIC. 1 þessum hljómsveitum hitti hann og lék með mörgum ágætum blúskempum t.d. JIM CAPALDI, DAVE MASON, CHRIS ' WOOD, ERIC CLAPTON, JACK BRUCE, RICK GRECH o.m.fl. Yfir æv- ina erSTEVE WINWOOD búinn að leika með hljómsveitum sln- um inn á fjöldann allan af hljómplötum, t.d. hefur hann leikið með TRAFFIC inn á meira en 10 L.P. plötur, auk þess sem hann hefur verið gest- ur á nokkrum plötum. Fyrsta sólóplata STEVE WINWOOD átti að koma út i byrjun ársins 1970 og var hann langt kominn með að vinna hana þegar ákveðið var að breyta henni i TRAFFICplötu, sem var og gert og er það platan „JOHN BARLEYCORN MUST DIE”, en þó að hún sé skrifuð á TRAFFIC þá er hún engu að siður STEVE WINWOODplata frekar en nokkurs annars þvi að raunverulega hefði TRAFFIC aldrei orðið neitt án WINWOOD. Reyndar kom út fyrir nokkr- um árum plata sem bar nafn WINWOOD eingöngu, var hér að ræða útgáfu á rúmlega tuttugu lögum meöhinum ýmsu hljómsveitum sem WINWOOD hefur spilað með. Þessi nýja WINWOOD-plata inniheldur hins vegar eingongu ný og fersk lög og má því segja þetta vera fyrstu alvöru sóló- plötuna hans, þó aö hún sé i alla staði mjög svipuö TRAFFIC- plötunum, sem er langt frá þvl að vera nokkuð verra. I þessari plotu fer hann að venju á kost- um, bæði hvað varðar hljób- færaleik, söng, útsetningar og lagasmiði, og njóta hans skemmtilegu soul- og djass-ein- kenni sin allsstaðar hið besta. Öll lögin eru samin af honum og JIM CAPALDI saman að undanskildu einu og jafnframt skemmtilegasta lagi plötunnar, „MIDLAND MANIAC”, sem er eftir WINWOOD einan. Sjálfur sér WINWOOD um allan hljómborðsleik, gitarleik og söng, að undanskildum gitar- leik hins frábæra blúsgitarleik- ara JULIAN (JUNIOR) MARVIN (sólógitarleikara BOB MARLEY & THE WAILERS) i laginu „VACANT CHAIR”. Aðrir sem aðstoða WINWOOD i þessu lagi eru m.a. bassaleikarinn ALAN SPENNER og trommuleikarinn JOHN SUSSWELL, en eins og alþjóð veit þá eru þeir einna frægastir fyrir það að hafa feng- iðað aðstoða JAKOB MAGNOS- SON á sólóplötu hans sem út kom ifyrra. 1 hinum lögum plöt- unnar sjá bassaleikarinn WILLIE WEEKS og trommu- leikarinn ANDY NEWMARK um trommu- og bassaleikinn að undanskildu laginu „MIDLAND MANIAC”, þvi þar sér WIN- WOOD sjálfur um allan flutn- inginn. Þá aðstoðar JIM CAPALDI með bakrödd og ásláttarhljóðfæraleik i kraft- mesta lagi plötunnar, „TIME IS RUNNING OUT”. Auk þess að- stoða REEBOP KWAKU BAAH og BROTHER JAMES með áslátt i nokkrum lögum. Að lokum má geta þess að um þessar mundir er von á plötu á markaðinn með JIM CAPALDI og félögum. Bestu lög: Midland Maniac Luck’s In Let Me Make Something In Your Life. —jens

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.