Þjóðviljinn - 04.12.1977, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. desember 1977
Málgagn sósialisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis.
Ctgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjdri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Clfar Þormóösson,
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Sföumúla 6, Sfmi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Samfylking um
pólitísk viðfangs
efni verkalýðs
hreyfingarinnar
Núverandi rikisstjórn lét það verða eitt
af sinum fyrstu verkum að framkvæma
stórfelldari kjaraskerðingu en dæmi voru
til um áður á jafnskömmum tima. Með
þessari afstöðu sinni og athöfnum kallaði
rikisstjórnin yfir sig andstöðu verkalýðs-
hreyfingarinnar og þeirra pólitisku afla
sem þar höfðu og hafa forystu. 1 fyrstu
reyndi verkalýðshreyfingin að sækja á
með almennum faglegum vamaraðgerð-
um, en það tókst þó ekki betur en svo að
kaupmáttur launanna hélt áfram að
skerðast þrátt fyrir nokkrar kauphækkan-
ir, ,,rauð strik” og fleiri samningsatriði
sem áttu að vega upp á móti kjaraskerð-
ingarstefnu rikisstjómarinnar. Frammi
fyrir þessari stefnu rikisstjórnarinnar
annars vegar og reynslunni af kjarasamn-
ingum undanfarinna missera og skerð-
ingu kaupmáttar stóð siðasta þing Al-
þýðusambands íslands, sem haldið var
fyrir réttu ári. Það þing lagði þess vegna
ekki einasta áherslu á hina faglegu sam-
stöðu og kjörin i þrengstu merkingu, held-
ur einnig sérstaklega á ýmis pólitisk mál.
Þannig samþykkti ASÍ-þingið ályktun þar
sem skorað var á rikisstjórnina að segja
af sér. Jafnframt lagði þingið áherslu á
nýjar baráttuaðferðir: í fyrsta lagi var
lögð áhersla á eina aðalkröfu um 100.000
króna lágmarkslaun. í öðm lagi var lögð
áhersla á nýjar baráttuaðferðir til þess að
fylgja þeirri kröfu eftir. í þriðja lagi var
lögð áhersla á launajöfnunarstefnu. Allt
þetta gekk eftir. Verkalýðshreyfingin
sneri vörn i sókn: haldist sá kaupmáttur
sem samningarnir gera ráð fyrir þegar
kemur fram á næsta ár hefur verkalýðs-
hreyfingin náð myndarlegum og eftir-
minnilegum árangri. Megninástæðan er
sú að verkalýðshreyfingin bar gæfu til
þess að tvinna saman hina pólitisku og
hina faglegu baráttu.
Þessi reynsla sýnir að verkalýðshreyf-
ingin getur knúið fram kauphækkanir,
betri kaupmátt, gegn fjandsamlegri rikis-
stjórn. Hins vegar sýnir reynslan einnig
að til þess að verja þessar kauphækkanir
þarf styrkur verkalýðshreyfingarinnar
pólitiskt að verða enn meiri en hann er nú.
Atvinnurekenda flokkar, pólitiskir fulltrú-
ar Vinnuveitendasambands íslands og
Vinnumálasambands samvinnufélaganna
— hafa yfirgnæfandi meirihluta á alþingi.
Það er þess vegna ljóst að það þarf bæði
sterka pólitiska og faglega samstöðu til
þess að verja þau kjör sem unnist hafa
með verkföllum og hörðum stéttaátökum i
siðustu kjarasamningum ASÍ og BSRB.
Kosningabaráttan að vori mun standa
um það að verja kjörin, hún mun snúast
um það hvor aðilinn verður sterkari, sá
sem styður hagsmuni verkalýðsins eða sá
sem stendur með atvinnurekendum. 1
þeim efnum liggja staðreyndirnar ljósar
fyrir: Annars vegar er Alþýðubandalagið,
hins vegar Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn. Alþýðuflokkur-
inn hefur kosið að róa á mið Glistrupis-
mans eftir fylgi að vori þannig að megin-
andstæðurnar eru óumdeilanlega þær sem
nefndar voru. Komi Alþýðubandalagið
enn sterkara út úr kosningunum að vori en
það er nú mun styrkur þess ráði úrslitum i
sókn og vörn verkalýðshreyfingarinnar.
Komi rikisstjórnarflokkarnir sterkir út
verður staða verkalýðsins veikari en áður.
Þess vegna verða kosningarnar að vori
kosningar um kjörin, kosningar stétta-
baráttunnar og hinnar nýju sjálfstæðis-
baráttu. Verkafólk og launamenn á
íslandi sýndu það i kjaraátökum ASí og
BSRB á þessu ári að samstaðan tryggir
árangur, sigur, jafnvel þótt i landinu sitji
fjandsamleg rikisstjórn. Sama samstaðan
þarf að einkenna hina pólitisku baráttu
verkalýðshreyfingarinnar — allra is-
lenskra launamanna — á næsta vori.
Kosningar eru samfylking um pólitisk
viðfangsefni — kjarabarátta er sam-
fylking um faglegar kröfur.
Hundrað sólarorkustöðvar
Fyrir skömmu
samþykktu visindamenn
CMEA-landanna ýtarlega
áætlun um sameiginlegar
rannsóknir á sviði nýtingar
sólarorku. Er þetta verk
mjög mikilvægt f yrir orku-
iðnað framtíðarinnar.
/
Glitrandi skál safnglersins
snýst hægt eftir sólarganginum til
þess aö safna heitum straumi
sólargeislanna. Hinn stóri spegill
safnar geislunum beint og veitir
þeim inn í röð sólarrafhlaða. Raf-
orkan sem sólargeislarnir
framleiða er notuö til þess að
knýja hreyfil litillar dælu sem
dælir dýrmætu vatni upp af 20
metra dýpi þessa sólbakaða
lands, 1.5 rúmmétra á klukku-
stund. Þannig starfa sovéskar
sólarorkustöðvar á gresjum Kara
Kum-eyðimerkurinnar.
t mörgum lýðveldum Mið-Asiu
er stunduö kvikfjárrækt. Búféð er
rekið á graslendi. ósjaldan þarf
að flytja þangað vatn á bilum
jafnvel með þyrlum eða flugvél-
um. Rúmmetri af vatni getur
kostað 27—29 rúblur. Ekki alls
fyrir löngu fundu visindamenn
ferskt neðanjarðarvatn i Kara
Kum-eyðimörkinni. Liggur það á
200, 600 og sums staðar 1000
metra dýpi. Það krefst mikillar
orku að ná vatninu upp á yfir-
borðið. Óhagkvæmt er aö nota
diselvélar til þess, þvi það kostar
bæði vélamenn og eldsneyti.
Þarna kom sólarorkudælan til
sögunnar, handhæg og auðveld i
notkun.
Þegar sól skín ekki?
Þetta er svo sem gott og blessað
segja efasemdamennirnir, en
hvað gerist þegar ekki er
sólskin? Sólin er óáreiðanleg
orkulind; það getur verið skýjað
og þá stöðvast vélarnar. Gætum
að hvað reynslan sýnir. 1
Túrkmeniu eru t.d. að meðaltali
320—350 sólskinsdagar, eða nánar
sagt 2700—3275 sólskinsstundir á
ári. Þetta er alveg nóg til þess að
tryggja rafmagn og vatn, ekki
aöeins á gresjunum, heldur og á
I austri
og vestri
er leitað
að
hagstæðum
orkugjöfum
afskekktari bólstöðum. Og svo er
einnig hægt að safna vatninu i
geyma og raforkunni i rafhlöður.
Sólarorkustöðvar eru þó ekki
enn orðnar aðalorkugjafinn i
eyðimörkinni. Stærsti galli þeirra
er hve raforkuframleiðslan er
dýr. Raforka framleidd i sólar-
orkustöð er nálega 500 sinnum
dýrari heldur en sú sem vatns-
orkustöðvar framleiða. Þess
vegna er notkun þeirra enn tak-
mörkuð.
Margbreytileg notkun
Nú eru um 100 litlar sólarorku-
stöðvar starfræktar i Sovétrikj-
unum. Þær eru notaðar nyrst á
norðurslóðum, lengst i suðri, i
Kaliningrad-héraði i vestri og á
austurströndinni. Sólarorku-
stöðvarnar eru notaðar i hinum
ólikustu greinum atvinnulifsins,
t.d. koma þær sjómönnum að
gagni. A afskekktum stað i
Barentshafi er raforka framleidd
handa vita með sólarorkustöð. A
sumrin yfir siglingatimann er
þarna nægilegt sólskin. Sams
konar vitar eru starfræktir við
Eystrasalt (i Kaliningrad) og viö
Logavatn. Við BAM-járnbraut-
ina i Tsjitahéraði eru sóiarorku-
stöðvar notaðar til raforkufram-
leiöslu fyrir veðurstöðvar. Aj
gaslindasvæðum Mið-Asiu fram-
leiða þær orku fyrir endurvarps-
stöðvar.
Sólargeisla má nota til að kæla '
ibúöir. Sólarorkuloftkæling hefur
verið sett i tilraunahús i
Turkmeniu. Hefur hún starfað i '
tvö ár, án þess að bregðast. Unnið
er nú að þvi að hanna samskonar
hitakerfi.
Á það ber að leggja áherslu, að
sólarorkustöðvar hafa verið
starfræktar i a.m.k. 10 ár án þess
að bregðast. Endast þær betur en
margar þær vélar sem iðnaður
nútimans framleiðir.
Framtíðin
Hvaða framtið eiga sólarorku-
stöðvar fyrir sér? Verður notkun
þeirra útbreidd? Við lögðum
þessar spurningar fyrir N.S.
Lidorenko, kunnan sovéskan sér-
fræðing i orkumálum.
Ég er þess fullviss, sagði hann,
að sólarorkustöðvarnar eiga
mikla framtið fyrir sér. E.t.v.
verða þær aðalorkugjafinn á
næstu þúsund árum. Orkuforði
hnattarins fer smám saman
þverrandi. Sérfræðingar telja að
efnafræðilegt eldsneyti, s.s. kol,
olia og gas muni aðeins endast i
150 ár. Margir lita á kjarnorkuver
sem framtiðarlausnina. En þar er
við mörg alvarleg vandamál að
glima. Bæði kjarnorku- og efna-
fræðilegt eldsneyti mengar um-
hverfið með geislunum og
úrgangsefnum er myndast við
brennslu þeirra. Þetta þýðir það
að við þurfum að koma upp öflug-
um geislunarvörnum, hreinsi-
stöðvum og geymslum fyrir
geislavirk úrgangsefni, en það er
bæði kostnaðarsamt og veitir ekki
100% tryggingu.
Sólarorkan veldur ekki um-
hverfismengun og er i reynd
óþrjótandi næstu ára þúsund-
irnar. í þvi felast gifurlegir yfir-
burðir hennar.
Jólahangikjötið komið !
Hálfir skrokkar, læri, frampartar, hryggir,
Einnig fæst úrbeinað hangikjöt í
lofttæmdum umbúðum.
REYKIÐJAN HF.
SMIÐJUVEGI 36 © 7 63 40
vísindi og
samfélag
Framfarir i geimtækni urðu til
þess að sólarorkustöðvarnar voru
fullkomnaðar. Sólarorkurafhlöð-
ur voru i fyrsta sinn notaðar i
þviðja sovéska gervihnöttinn árið
1958. Siðan hefur rannsóknum á
þessu sviði fleygt fram. Sovétrik-
in gegna nú forustuhlutverki á þvi
sviði að breyta sólarorku i
raforku. Visindamenn CMEA-
landanna hafa tekið saman hönd-
um um fullkomnun sólarorku-
stöðva. Rannsóknirnar verða
framkvæmdar samkvæmt einni
samræmdri áætlun. Þetta starf
hefur mikið bæði hagnýtt og
fræðilegt gildi. Rannsóknir á
grundvallarlögmálum eðlisfræði
færa okkur nær þvi marki að
þekkja eðli rafmagnsins i efninu.
Ráðstafanir til þess að draga úr
kostnaði við sólarorkustöðvarnar
skipta afarmiklu máli i sambandi
við hagkvæmni þeirra. Margir
sérfræðingar telja að verð sili-
contrasistora muni á næstu 10—15
árum lækka niður i aðeins brot af
þvi sem það er nú. Þegar allt
kemur til alls kostar kiló af efni
sem notað er við gerð sólarorku-
rafhlaðna aðeins um rúblu. Það
er hreinsun efnisins sem er dýr.
En aðferðirnar fara stöðugt batn-
andi.
Sólarorkustöðvarnar 100 eru
þannig aðeins byrjunin. Og litlar
tilraunastöðvar eru undirstaða að
háorkustöðvum framtiðarinnar
sem munu vinna hreina, ókeypis
orku úr sólinni. — APN