Þjóðviljinn - 10.12.1977, Page 2
2 StPA — ÞJ6ÐVILJINN Laugardagur 10. desember 1977
AF KÓLESTRÓL
Það hefur mjög farið í vöxt á undanförnum
árum að stofnaðsétil einhverrar úlfúðar milli
bænda annars vegar og fólks í þéttbýlinu hins
vegar. Slik misklíð á sér upphaf í þeirri stað-
reynd að annar aðilinn f ramleiðir neysluvöru,
en hinn neytir hennar. Hinir fyrrnefndu fá of
litið fyrir sinn snúð, en hinir síðarnefndu
þurfa að borga of mikið fyrir framleiðslu
bænda. Sannleikurinn er vist sá, að mestur
hluti bændaá fslsndi lepur dauðann úr kúskel,
landbúnaðarafurðir eru allt of dýrar, en
peningarnir lenda einhvers staðar ,,annars
staðar" eins og sagt er. Haft er fyrir satt að
bændur fái ekki nema helminginn eða tæplega
það af því verði, sem neytendur þurfa að
greiða, og er að sögn fróðra manna kominn
tími til að fara að kíkja á það hvort ,,Sam-
bandið" á einhverra meira en lítilla hagsmuna
að gæta, til dæmis varðandi óhóflegan og
niðurgreiddan útflutning á búvörum. En nóg
um það. Svo margir sérfræðingar hafa að
undanförnu gripið til stílvopnsins til að benda
á lausn landbúnaðarvandans að ástæðulaust
er að ég fávís maðurinn bætist i þann marglita
hóp. Hins vegar finnst mér leitt, þegar bænd-
ur, sem eru alls góðs maklegir, gerast bros-
legir úr hófi fram eða réttara sagt þeir menn
sem sigla undir flaggi bændastéttarinnar, en
eru í raun og veru harðir fulltrúar þeirra
milliliða, sem að margra dómi eru öðru frem-
ur valdir að því öngþveiti sem skapast hef ur í
markaðsmálum bænda.
Slíkt hef ur óneitaniega gerst að undanförnu.
Markaðsmál landbúnaðarins hafa öðrum
málum fremur verið í brennidepli, og virðast
forsvarsmenn bænda, Framleiðsluráðs og
Sambands á einu máli um það að neytendur
séu hættir að éta mat úr sveit, af því að þeir
hafi verið dáleiddir af áróðri illmenna, sem
vilji landbúnað feigan á (slandi.
Versti andskoti landbúnaðar á íslandi er að
þeirra dómi Jónas Kristjánsson, sem er þeirr-
ar skoðunar að búsmali bænda sé ekki „heil-
agar kýr" fremur en bændur sjálfir,og hefur
verið talsvert ómyrkur í máli um þessi efni að
undanförnu. Gegnustu bændur, menn sem
jafnvel hafa verið orðaðir við mannvit, hafa
geystst framá ritvöllinn eða í útvarp og sjón-
varp og haldið því fram að áróðursherferð
óvina bænda sé orsök offramleiðslu á búvör-
um. Áróðursmeistararnir eru svo — að Jónasi
undanskildum — vísindamenn, læknar, mann-
eldisfræðingar og aðrir vísindamenn, sem
komist h'afa að þeirri niðurstöðu að kyrrsetu-
mönnum sé dýrafita lífshættuleg. Læknar
segja hjarta- og æðasjúklingum umbúðalaust,
aðef þeir vilji f restaþvísvolítið að drepast, þá
beri þeim að draga úr, og helst leggja niður,
neysluá nýmjólk, rjóma, smjöri, feiti, mjólk-
urosti, tólg og f eitu kjöti, en auka af tur á móti
neyslu grænmetis, ávaxta kartaflna, undan-
rennu, fisks og kornmetis.
Þessu hafa svo bændasamtökin svarað með
því að herða á auglýsingum á þeirri fæðu,sem
sérfræðingar telja bráðdrepandi, og halda
henni í skaplegu verði. (Mjólk , smér, rjómi,
hnakkaspik, bringukollar og síðubitar), en
hækka þær afurðir, sem drepa mann hægar
(nautakjöt 100% undanrenna 68%) svo úr hóf i
að Ijóst er, að landslýð er ekki ætlaður hægur
dauðdagi.
Þá hefur verið bent á, að sennilega væri
hægt að auka neyslu á búvörum með því að
auka niðurgreiðslur, fella niður söluskatt á
landbúnaðarafurðum, banna fisk og græn-
meti.
Hjartaslög og önnur viðmóta tískufyrir-
brigði vaða nú uppi í öllum velferðarþjóð-
f élögum, og fólk er að reyna að f reista þess að
halda i líftóruna og fresta þvi að geispa gol-
unni. Sumir halda að ráðið sé að fara eftir því
sem læknar segja, borða magarín, sakkarín,
kornmat, grænmeti, svart kaff i og sykurlaust,
nautakjöt og f ugla. Svona hugsunarháttur ber
ekki vott um mikla þjóðhollustu, og ættu
landsmenn að vera þess minnugir að eitt sinn
skal hver, hvort sem er, deyja, en bændur í
landinu, framleiðsluráð þeirra og Samband
íslenskra Samvinnufélaga verða að lifa
áfram.
Lausnin á vanda dreifbýlisins er sú, að þétt-
býlingar hefii rjóma-, smér- og fitusvall þar
til yfir lýkur, og ostafjöll, smérfjöll,
ketfjöll og aðrir kólestrólfjallgarðar munu
hverfa eins og dögg fyrir sólu. Upplagt er að
nota fæðingarhátíð frelsarans, jólin, til fram-
angreinds svalls. Og þá fer vel á þvi að syngja
gamla jólalagið:
Nú skal halda heilög jól,
háma i sig kostinn,
kræsingar og kólestról,
þótt kransæðin sé brostin.
Flosi.
Guðmundur
Framhald af 20 síöu.
meistari unglinga um siöustu
áramót. Skákin varö hvorki fugl
né fiskur, þvi eftir aöeins tólf
leiki bauö Diesen jafntefli sem
ég þáöi.
Snemma dags þriöju umferö-
arinnar fékk Guömundur aö
vita aö andstæöingur hans,
undrabarniö Shóel Benjamin,
væri veikur og gæti ekki teflt.
Benjamin, sem er aöeins 13 ára
gamall, hefur svo sannarlega
komið skemmtilega á tívart i
þessu móti þvi i fyrstu og ann-
arri umferö vann hann tvo
reynda og þekkta skákmeistara
þá Soltes og Valvo.
Guömundur tefldi siöan þessa
skák viö Benjamin i gærkvöldi.
Skákjn varð mjög flókin og
spennandi. Guðmundi sem
hafði svart, tókst meö ná-
kvæmri taflmennsku aö ná
frumkvæðinu, en heldur ekki
mikið meira. Benjamln varöist
öilum vinningstiiraunum af
mikilli nákvæmni. Eftir 48 leiki
var siðan samiö um jafntefli.
En ég varö sem sagt að ganga
óstuddur til leiks f 3. umferö
gegnPeterBisias, hafði hvittog
komst litið áleiöis gegn
slavneskri vörn. 1 miötaflinu
varö gamla manninum fóta-
skortur og kom upp drottning-
arendataflþar sem ég haföi peöi
meira. En meö góðri vörn tókst
honum þó að halda sinu.og skák-
inni lauk með jafntefii.
Fjóröa umferðin gekk ekki
átakalaust fyrir sig. Guðmund-
ur var aftur i sviðsljósinu, nU
gegn litt þekktum skákmanni
Watson að nafni. Þeir tefldu
franska vörn og varö skákin
snemma geysiflókin og
skemmtileg. Watson tefldi af
mikilli dirfsku og hugmynda-
flugi og þar kom að Guömundur
varð að sætta sig viö jafntefli.
EnWatson vildimeira,og þegar
hann hugöist skáka drottningu
Guömundar á e4 af meö riddara
á f2 sást honum yfir biskup sem
stóð á a7 og gat einfaldlega hirt
þennan vigreifa riddara.
Annað eins orðbragö og for-
mælingar hefur maöur sjaldan
heyrt eins og þegar Watson upp-
götvaði mistök sin. En Guö-
mundur sat eftir rólegur sem
endranær, en ánægjuglottið
leyndi sér þó ekki. Viö skulum
virða fyrir okkur hvað gerðist:
Hvitt: Guömundur Sigurjtíns-
son.
(Kgl, De3, Ba7, Rd2, Hal,
Hbl, h2, g3, a5, c2, d5.)
Svart: Watson.
(Ka8, Dc6, Hh8, Hf6, Rf4, b7,
e5, g7)
Watson lék hér i 28. leik
....Dxd5? Hann hélt sig vera aö
vinna skákina, en hefði hann
leikið ...28. Rh3+ 29. Khl - Rf2
heföi hann t.d. tryggt sér öruggt
jafntefli. Framhaldiö heföi orö-
ið 30. Dxf2 Hxf2. 31.dxc6Hhxh2
og þráskákar.
Ég tefldi viö Henly og átti
slæman dag. Eftir örfáa leiki
var ég kominn i mjög erfiöa
stööu sem vart gat annaö en
hriðversnað. Henly vann svo
skákina i 54. leik.
Viö vorum ansi þaulsetnir viö
borðiö I 5. umferöinni. Ég haföi
hvitt gegn Larry Evans og fékk
nákvæmlega ekkert út Ur byrj-
uninni. Afram hélt þó tafliö, og
aðþvikomaömértókstaö plata
hann i mjög flóknu endatafli. 1
61. leik, eftir sex klukkustunda
baráttu, gafst hann svo upp.
Guðmundur hafði svart gegn
Brasker. Skákin fór I biö eftir 60
leiki og er staöan mjög jafntefl-
isleg. Þeir héldu svo áfram i
morgun, og endaöi skákin meö
jafntefli.
Staöa efstu manna er þessi:
1. Lein Sovétrikjunum 4.5 v.
2. -4. Disen USA, Fedrowic USA
og Guömundur Sigurjónsson
3.5v.
5.-6. Rohde USA og Soltis USA 3
v.