Þjóðviljinn - 10.12.1977, Síða 4

Þjóðviljinn - 10.12.1977, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJóÐVIfcJINN Laugardagur 10, desember 1977 Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis. Otgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Óiafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Úlfar Þormóösson. Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Sföumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaöaprent hf. Hákarlarnir, eða bara sardínurnar? Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, sendi Þjóðviljanum bréf i fyrradag. Hann segist þar ekki ætla að veita syndurum neina af- lausn: aðeins verði tekið við þvi fé inn á opnu gjaldeyrisreikningana sem aflað hefur verið með lögmætum hætti. Fróð- legt verður að sjá hvernig Ólafur Jóhannesson ætlar að koma þessu i fram- kvæmd en hann lætur ekkert uppskátt um framkvæmdina i nefndu bréfi. I bréfinu til Þjóðviljans minnist ráðherrann heldur ekki á hvernig hann ætlar að snúa sér gagnvart þeim aðilum sem eiga stórfelld- al innistæður erlendis — oft með ólög- legum hætti: Bréf hans bendir þvert á móti til þess að viðskiptaráðherrann og formaður Framsóknarflokkins sé með hugann við það eitt að ná inn fé þeirra sem eiga smærri gjaldeyrisupphæðir i erlend- un bönkum. Þó er vitað að fáeinir stór- laxar eiga verulegar fjárfúlgur i er- lendum bönkum. í útvarpinu i fyrrakvöld neitaði Albert Guðmundsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik, að hann ætti gjaldeyrisinnistæður i Banda- rikjunum eða Danmörku. Hins vegar neit- aði hann að svara þeirri spurningu hvort hánn ætti gjaldeyrisinnistæður i frönskum bönkum. Hann benti þó á til áréttingar að hann hefði verið i Frakklandi i 14 ár. Þessi neitun Alberts Guðmundssonar á þvi að svara mikilvægum spurningum er ákaflega fróðleg. Hún ætti einnig að verða viðskiptaráðherra landsins ihugunarefni. Vill viðskiptaráðherrann beita sér fyrir þvi að kannaðar verði innistæður hákarl- anna erlendis, eða á að láta nægja eins og fyrri daginn að elta uppi sardinurnar? Vill Albert Guðmundsson ekki samþykkja það að fram fari opinber athugun á fjárreiðum heildsala erlendis? óliklegt er að hann hafi á móti þvi, maðurinn, sem lýsti sig reiðubúinn til þess að fela opinberum aðilum rannsókn mála vegna prófkjörs- kostnaðar einstakra frambjóðenda. Varla ætti slikur riddari réttlætisins að geta sett sig upp á móti rannsókn á gjaldeyrisinni- Margir flokkar undir sama nafninu í grein hér i Þjóðviljanum á fimmtu- daginn var minnt á að Sjálfstæðisflokkur- inn hefði i raun skipst uþp i marga stjórn- málaflokka sem störfuðu undir sama nafninu. Albert Guðmundsson staðfesti þessar athugasemdir Þjóðviljagreinar- innar i úvarpsþætti i fyrrakvöld. Hann sagði að innan flokkseigendafélagsins, sem er einn valdahópurinn i Sjálfstæðis- flokknum, starfaði sérstakur sértrúar- flokkur með Geir Hallgrimsson i broddi fylkingar. Þetta eru athyglisverðar upp- lýsingar frá Albert Guðmundssyni! For- sætisráðherra landsins er samkvæmt þessum upplýsingum eins konar æðsti- stæðum íslendinga erlendis hvar sem þær innistæður kunna að vera geymdar. Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra, er einnig yfirmaður gjaldeyrismálanna og bankamála. Honum ber þvi skylda til þess fyrstum manna að ganga ákveðið fram i þvi að forsendur spillingarinnar verði upprættar og það tafarlaust. Það verður fylgst með athöfnum sem athafnaleysi viðskiptaráðherrans á þessu sviði. Frétt- irnar um inneignir íslendinga i einum dönskum banka eru alvarleg krafa um at- hafnir. Kannski að ólafur gæti leitað ráða hjá Albert Guðmundssyni efsta manni á lista Sjálfstæðisflokkisns i Reykjavik? — s. prestur i sértrúarsöfnuði og Styrmir Gunn arsson ritsjóri væntanlega kapellán. — Þannig er Sjálfstæðisflokkurinn kominn eftir forystu Geirs Hallgrimssonar i nokkur ár5 kjósendur, sem greiða Sjálf- stæðisflokknum atkvæði vita ekki hvað þeir eru að kjósa: Flokkurinn er orðinn ■ haugur, hrúgald glundroða alls konar gjörólikra sjónarmiða. Sjálfur er Geir aðeins æðsti prestur i sértrúarsöfnuði — innan flokkseigendafélagsins x. Hann er formaður i broti af broti af Sjálfstæðis- flokknum. Undir forystu hans er Sjálf- stæðisflokkurinn, sem fyrrum var sterk- asta stjórnmálaaflið i landinu að liðast i sundur, forysta Sjálfstæðisflokksins er einna likust ráðherrum i samsteypustjórn margra flokka. Geir Hallgrimssyni hefur ekki einu sinni tekist að halda „flokkseig- endafélaginu” saman, hann er i besta falli formaður i fámennri sértrúarkliku. Völd hans byggjast á þvi að formaður annars flokks, ólafur Jóhannesson afhenti honum lykilinn að stjórnarráðinu. s. Ad beygja sannleikann undir stílbrögdin Andrew Gilchrist sem eitt sinn var sendiherra Breta á Is- landi hefur gefið út nokkurs konar endurminningar sinar frá Islandsárunum. Þau voru all- söguleg, þroskastriöiö vegna 12 milna landhelginnar og póiitisk átök hér innan lands. Andrew Gilchrist hefur þann kost aö vera skemmtilegur, og iðulega lætur hann staðreyndirnar, sannleikann, lönd og leið, ef það þjónar betur stilbrögðunum. En i bókinni eru samt sem áður býsna fróðlegar upplýsingar um utanrikisþjónustu Bretaveldis og um afstöðu sendiherrans til einstakra stjórnmálaafla á Is- landi á sinum tima. Þekkti kommún- isma og silungsveiði Hann segir I upphafi bókar- innar „Þorskastrið og hvernig á að tapa þeim” frá þvi hvers vegna hann varð fyrir valinu sem sendiherra á Islandi: Tveir eða þrir menn höföu neitaö að fara til íslands. Þá vildi svo til að vinur hans i stöðunefndinni mundi allt i einu eftir Gilchrist. Hafði Gilchrist minnt á tilveru sina með þvi að senda vininum kort frá silungsveiði i Taupo- vatni á Nýja-Sjálandi. Vinurinn dró óðara þá ályktun að Gilchrist hlyti að hafa vit á fisk- veiðum og spuröi: „En Andrew Gilchrist? Ég held að hann viti þó nokkuö um fiskveiðar.” Stöðunefndin greip „hálmstrið fegins hendi”, segir I bókinni og „ekki spillti þaö fyrir að annar gamall vinur minn sagði að kommúnismi væri meginvand- inn á tslandi og spurði hvort Andrew hefði ekki verið sér- fræðingur I kommúnisma I Þýskalandi. Það var reyndar heldur ekki satt,en kannski vissi ég meira um kommúnismann en um þorskveiðar.” Gilchrist heldur áfram um ógnir kommúnismans: „A fundi sem haldinn var i utanrikis- ráðuneytinu einum eöa tveim dögum siðar til að setja mig inn i starfið var mér dyggilega bent á ógnunina sem stafaði af kommúnisma á Islandi og að öll vandræði okkar af fiskveiði- mörkunum stöfuðu af ráða- bruggi islenska kommúnista- flokksins til að þjóna hagsmun- um Rússa. Formenn flokkanna spila bridge Ég minnist þess að þegar ég hafði dvalið eitt ár á Islandi sagði ég vini minum að stjórn- málamenn á tslandi væru fyrst og fremst Islendingar og siðan stjórnmálamenn og aö formað- ur ihaldsflokksins og formaður kommúnistaflokksins spiluðu saman bridge á hverju Iaugar- dagskvöldi og hefðu náið sam- starf um allt sem lyti að fisk- veiðideilunni. Þó að þetta væri engan veginn nákvæm lýsing I einstökum atriðum var þessi einföldun mála sannari en þær hugmyndir sem ráðamenn i London virtust hafa. Samt tók ég eftir þvi að meðan þriðja þorskastriðið stóð virtist utan- rikiáráðuneytiö enn fræða bresk blöð um illvilja kpmmúnista.” Kom ráöherra í rúmid Andrew Gilchrist segir i bók- inni einnig frá skemmtilegum þáttum úr daglegu lifi. Til dæm- is: „Islenskir stjórnmálamenn drekka jafnmikið og aðrir og njóta einnig umburðarlyndis þjóðarinnar gagnvart þeim sem drekka of mikiö við hátiöleg tækifæri. Oftar en einu sinni hefi ég borið islenskan ráðherra út i bilinn sinn og einu sinni kom ég nokkuð stórvöxnum ráðherra I rúmið og fannst engum neitt til um það.” Hákarlaverkun r Islendinga Og annað dæmi um hákarlsát íslendinga: „Við og við rekur dauöan há- karl i fjörur á Islandi. Sá sem finnur rekinn hákarl, flýtir sér að grafa hann og merkir stað- inn. Oítast nær sópar næsta flóð merki hans burt. Ef það gerist ekki kemur hann aftur að nokkrum mánuðum liönum og grefur hræið upp.” helstu einkenni Islendinga: „al- úð, gestrisni, tryggö, bráölyndi, virðing fyrir bókmenntum og listum, töluvert skopskyn og nokkur undirhyggja i umræðum og deilum.” Margir málarar á hvern ferkílómetra Og hann veitir ýmsu athygli á Islandi: „Þaö er bæði furðulegt og hyglisvert hversu mikiö er i listmálara á tslandi. Frá ] fyrir um það bil 80 árum he áhugi á listum aukist svo m að nú eru fleiri listmálarar hvern ferkilómetra á tslandi i nær nokkru öðru landi.” Margt fleira mætti rekja fr< legt og skemmtilegt úr b Andrews Gilchrist. Það verð gert siðar. _

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.