Þjóðviljinn - 10.12.1977, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 10.12.1977, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. desember 1977 Námsmenn mótmæla: Óhagstæðustu lánin — námslán eru að fullu vísitölutryggð Siöast liöinn fimmtudag söfn- uöust námsmenn fyrir utan Al- þingishúsiö til aö mótmæla skertu framlagi til Lánasjóös islenskra námsmanna á fjárlögum næsta árs. Aðeins er gert ráð fyrir aö unnt veröi að veita námslán sem nema 85% af umframfjárþörf hvers og eins. A þinginu 1970-’71 var þvi lofað aö áriö 1975 myndu námsmenn fá lán er næmi 100% af umframfjárþörf þeirra, sam- kvæmt mati Lánasjóðsins, en efndirnar hafa heldur betur látiö á sér standa. Lánasjóöur hefur metiö fjárþörf námsmanns sem býr utan foreldrahúsa á 82.300 krónur á mánuði, en að óbreyttu ástandi verður ekki unnt aö lána nema 85% af þeirri upphæö eöa 69.995 krónur. Við leituðum til Guðmundar Magnússonar ritstjóra Stúdenta- blaðsins, til að fá frekari upplýs- ingar um aðgerðirnar á Austur- velli. Einn liöur i þessum aögerðum var að afhenda fjárveitingar- nefnd áskorunarbréf frá náms- mönnum, sagði Guðmundur. bessi bréf voru undirrituð af nemendum allra þeirra skóla sem eiga aðild að Lánasjóðnum og fólu i sér áskorun til fjárveit- inganefndar um að hækka fram- lagið til Lánasjóðsins upp i 100%. Fyrir hönd fjárveitinganefndar tók Steinþór Gestsson við bréfun- um. En við vorum ekki einungis að mótmæla þessari 15% skerðingu, sagði Guömundur. Við vorum um leið aðmótmæla nýjum úthiutun- arreglum um námslán sem gengu i gildi nú i haust og enn fremur lögunum um námslán frá 1976. baö er oröiö þannig aö námslán eru óhagstæöustu lán sem fyrir- finnast i öllu heila lánakerfinu, og athuga ber að þetta eru fram- færslulán en ekki fjárfestingar- lán. Lánin eru að fullu visitölu- tryggð og afborganir af þeim hefjast ári eftir að námi lýkur. Margendurtekin svik Viö spurðum Guðmund hvernig námsmönnum hefði þótt til takast meö mótmælin. Hann sagði að i raun réttri bæri ekki að lita á þessar aðgerðir sem venjulegan mótmælafund; það hefði ekki ver- ið boðað til þessa sem fjölmenns mótmælafundar, heldur væru námsmenn fyrst og fremst að leggja áherslu á kröfur sínar um mannsæmandi kjör. „Við erum alveg sæmilega ánægð með þátt- tökuna þó við séum ekkert himin- lifandi”. bað virðist vera talsverð deyfð meðal námsmanna og áhugaleysi varðandi brýnustu hagsmunamál þeirra. bað á reyndar sinar eðlilegu skýringar sem er ekki sist margendurtekin svik rikisvaldsins við námsmenn. Fólk er sennilega bara hætt að trúa þvi,að eitthvað gerist i þess- um málum. Eru einhverjar frekari aðgeröir á döfinni hjá ykkur? Af ramhaldandi upplýs- ingastarf — Við vitum að SINE (Sam- band islenskra námsmanna er- lendis) hefur i hyggju að halda fund á næstunni til þess að ræöa hvað þeir geti gert. Einnig er fyr- irhugað framhald á þvi upplýs- ingastarfi til almennings, sem Frá mótmælastööu stúdenta viö Alþingishúsiö. hófst með afhendingu dreifibréfs á fimmtudaginn. Eru ekki einhverjir velvilj- aöir þingmenn? Við væntum þess að þessar að- gerðir okkar við Alþingishúsið beri árangur. 1 næstu viku verða umræöur um fjárlagafrumvarpið á þingi og við vonumst til þess aö einhver velviljaður þingmaður taki þetta mál upp og leggi til að upphæðin til Lánasjóðs islenskra námsmanna verði hækkuð á f jár- lögunum. „Baráttan heldur áfram þar til fullur sigur vinnst”, sagði Guðmundur að lokum. — IGG Formaður stúdentaráðs: Viö viljum kynna starfsemi deildanna í Háskólanum — fjöldinn veit ekki hvað þar fer fram Sólrún Gisladóttir, formaður Stúdentaráös, sagöi i stuttu spjalli viö bjóðviljann. aö jafn- framt þvi aö kynna almenningi sjónarmið námsmanna i sam- bandi viö iánamálin væri nauö- synlegt aö kynna nemendum sjálfum betur lánareglurnar. betta er oröiö svo flókiö mál aö þaö tekur heilmikinn tima aö komast igegnum þaö. Viö höfum I huga aö efna til slikrar kynningar og enn fremur viljum viö fá geröa könnun á námsálagi i hinum ýmsu deildum Háskólans. bað er vitað mál að vinnuálag er orðið alveg gifurlegt i mörgum deildum, allt upp i 70 vinnustund- ir á viku. Og má vel hugsa sér að það sé ein ástæðan fyrir þeirri deyfð sem orðið hefur vart hjá námsfólki I sambandi við félags- málastarfsemi. Margir hafa hreinlega ekki tima til slikra starfa meðfram náminu, sagði Sólriín. bað helsta sem viö erum með í bigerð er, eins og ég minntist á áöan, að kynna námsmönnum Sólrún Gisladóttir. lánareglurnar og einnig höfum við i hyggju að fá deildafélögin i Háskólanum til aö kynna almenn- ingi, i blöðunum, hvað fari fram innan veggja skólans og hvaða kröfur séu gerðar til námsins. IGG Tillaga tveggja Sjálfsstæðismanna: 10% fækk- un starfs- fólks Tveir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, þeir Eyjólfur K. Jóns- son og Pétur Sigurösson hafa lagt fram á Alþingi tillögu þess efnis að rikisstjórninni verði falið að beita sér fyrir sparnaði i fjármálakerfinu. Skuli rikis- stjórnin, að loknu jólaleyfi al- þingismanna, leggja fram til- lögur um fækkun starfsmanna rikisbanka, Framkvæmda- stofnunar rikisins og opinberra sjóða um ailt að tiunda hluta og samræmdar aðgeröir til sparn- aðar og hagkvæmari rekstrar, þ.á m. um sameiningu lána- stofnana, skorður við óhóflegum byggingum og fækkun af- greiðslustöðva. Tryggvi Þór Aðalsteinsson: Einungis ver- iö að hindra að FSV eflist Samband veitinga- og gistihúsaeigenda: r Agreiningur um túlkun kjarasamnings Ot af bréfi SVG hafði bjóövilj- inn samband við Tryggva bór Aðalsteinsson hjá Menningar- og fræöslusam bandi alþýöu sem stýrt hefur trúnaöarmannanám- skeiöunum. Hann sagði aö ljóst væri aö uppi væri ágreiningur, en túlkun veitinga- og gistihúsa- eigenda væri ekki i samræmi viö túlkun annarra atvinnurekenda þar sem reynt heföi á hana. Tryggvi ságði að hver trún- aðarmaður hefði þennan rétt til að sækja námskeið, þó aö aðeins einn gæti farið frá hverju fyrir- tæki á ári eins og stæði i samning- um. Námskeiðin væru siðan sam- komulagsatriði milli félaga og i þessu tilfelli hefðu önnur félög gefið grænt ljós á það að Félag starfsfólks i veitingahúsum héldi þetta námskeið i ár. Um hvort kosning trúnaðar- manna væri ólögmæt sagðist Tryggvi bór ekki geta svarað, en skv. lögum þarf hún ekki að vera leynileg og ef henni verður ekki við komið má tilnefna trúnaðar- mann af viökomandi féiagi. bá hefði það veriðhaft eftir veitinga- manninum iAskiað samtök væru milli atvinnurekenda um að koma Iveg fyriraö trúnaöarmenn gætu sótt námskeiðið, öfugt við það sem SVG heldur fram. Ég er þeirrar skounar, sagði Tryggvi bór, að viðbrögö at- vinnurekenda við þessari tilraun Félags starfsfólks i veitingahús- um að koma upp trúnaöarmanna- kerfi sé einungis til að hindra að félagið eflist svo,aö það geti stað- iö vörð um rétt félagsmanna sinna. —GFr bjóöviljanum hefur borist greinargerö frá Sambandi veit- inga- og gistihúsaeigenda vegna forsiðufréttar um aö þaö brjóti samninga meö þvi aö hindra trúnaöarmenn i aö sækja nám- skeið. t henni segir aö hér sé um ágreining um túlkun á kjara- samningum aö ræöa. Segir aö SVG efi ekki rétt hvers stéttarfélags til þess aö kjósa sér trúnaðarmann, en I samningum standi að aöeins 1 trúnaðarmaður i fyrirtæki hafi rétt til aö sækja námskeið á launum og skv. túlk- un Vinnuveitendasambandsins beri þvi starfsfólkinu að kjósa sérstakan trúnaðarmann til að fara á námskeið, en ef túlkun Félags starfsfólks á veitingahús- um yrði tekin gild táknaði þaö að allt að sex trúnaöarmenn hinna mismunandi verkalýösfélaga á hverjum vinnustað gætu krafist þess að fara árlega á námskeið á fullum launum I staö eins. Kostnaður fyrirtækisins yröi þess vegna annar og meiri en til var ætlast er um var samið. bá segir i greinargerð SVG, að FSV hafi hafnað umræðum um þetta ágreiningsatriði, og enn- fremur er þvi visaö frá aö veit- ingamenn hafibundist samtökum i að hindra fólk til að sækja nám- skeiðið. beir hafi einungis verið settir inn i málin. bá segir að hvergi hafi farið fram almennar kosningar meðal starfsfólks til trúnaöarmanns. A stöku stað hafi verið atkvæða- greiðsla i einhverju formi, ein- ungis þó meöal félaga FSV, en viðast hvar hafi trúnaöarmenn veriö skipaðir án undanfarandi kosningar. __GFr.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.