Þjóðviljinn - 10.12.1977, Síða 8

Þjóðviljinn - 10.12.1977, Síða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. desember 1977 Umsjón: Dagný Kristjánsdóttir Elísabet Gunnarsdóttir Helga ólafsdóttir Helga Sigurjónsdóttir Silja Aðalsteinsdóttir rikjandi þjóöfélagsgerð. Þær lýsa yfir andstööu sinni við kerfið sem byggir á og styður með öllum ráðum „hana- hyggjuna” (karlhyggju) sem allsstaðar blasir við og jafnvel sósialiskir karlar falla fyrir. Rót- tækar konur vilja ekki veröa eins og karlar. Þær vilja ekki enda- laust láta troða á og fyrirlita þá eiginleika sem kallaðir eru „kvenlegir” en upphefja hina sem nefndir eru „karllegir”, oft á tiðum þá eiginleika sem hæfa vel grimmu samkeppnis- og auðvaldsþjóðfélagi Viö viljum heldur ekki lengur reka baráttu okkar upp á skilmála karlasam- félagsins. Við viljum ekki lengur vera þrælar sem vinna, tvö- og þrefaldan vinnudag. Við krefj- umst þess að allir sósial- istar styðji róttækar konur i þeirri baráttu að þær forsehdur verði skapaðar aö við getum bæði barist fyrir betra þjóðfélagi og unnið fyrir okkur og börnum okkar án þess að þurfa að vinna á næsta ómennskan hátt. Breytt gildismat Við þurfum miklu meira fólk bæði konur og karla til að vinna af heilum hug að framgangi sósial- ismans. Við þurfum fleiri rót- tækar konur og karla sem eru reiðubiíin að risa upp og krefjast breytts gildismats á mannlegum eiginleikum og manneskjulegri samskiptahátta en borgaralegt þjóðfélag leyfir. Og við þurfum fleiri róttæka karla sem eru þess reiöubúnir að varpa fyrir róöa gamalgrónum uppeldisvenjum og siöum og treysta konum I starfi og félagsmálum, líta á þær sem jafningja, uppörva þær og treysta þeim fyrir rekstri þjóðfélagsins til jafns við sig. réttisbaráttu kvenna lið, þó ekki ætið eins kröftuglega og skyldi. Karlmenn i hópi sósialista þurfa að lita i eigin barm. Vilji þeir framfylgja jafnrétti kynja i reynd verða þeir að taka heimilin með I reikninginn. Oft þrifst misréttið i skjóli þeirrar friðhelgi sem einkalifiö nýtur og þess vegna er e.t.v. misréttið hvað mest einmitt á heimilunum. Borgaraleg kvennabarátta er ólik sósialiskri kvennabaráttu. Borgarakonur vilja óbreytt þjóðskipulag og þeirra mark og mið er aðeins að ná sömu réttindum og karlar. Ekki upp á skilmála karlasamfélagsins Róttæk kvennabarátta setur markið miklu hærra. Róttæk- ar konum vilja hafna ista og þvi var það að á landsfundi Alþýöubandalags i siðasta mánuöi tóku konur á fundinum sig saman og sömdu áskorðun til karlkyns félaga sinna um aö lita smávegis i eigin barm og aðgæta hvort ekki væri þörf á þvi að horfast hreinskilningslega i augu viö sjálfan sig. Askorunin er svona: Róttæk kvenfrelsisbarátta Eins og kunnugt er, er langt frá þvi að raunverulegt jafnrétti sé á tslandi enda ekki við öðru að búast i auövaldsþjóðfélagi. Auk þess misréttis sem stafar af lögmálum þeim sem þetta þjóð- félag lýtur, þ.e. andstæðunnar milli vinnu og fjármagns, rikir hér misrétti sem sérstaklega bitnar á konum. Kvenfrelsisbar- átta hefur verið háð hér á landi um 100 ára skeið og með henni hafa náðst flest lagaleg réttindi konum til handa. En einsog dæm- in sanna er það alls ekki nóg. Hefðir og siöir láta ekki að sér hæöa. Lengi var það baráttumál kvenna að „fá” að vinna úti eins og kallað var þótt flestar gerðu þaö af nauðsyn. Nú er svo komið að langflestar mæður taka þátt i atvinnulifinu um lengri eða skemmri tima, enda staðreynd að þjóöfélagið getur ekki án þess veriö. Þetta gera þær án þess að þær forsendur sem nauðsynlegar eru, séu fyrir hendi, þ.e. dag- vistarstofnanir, samfelldur skóli og önnur en „hefðbundin” verka- skipting á heimilum. Vitað er, aö meginþungi vinnu og ábyrgðar á heimilisrekstri og barnauppeldi hviiir enn á konum. Afleiðingin er sú aö þessar konur eru sennilega vinnuþrælkaðasta fólkið á öllu landinu og er þá mikið sagt þar sem 8 stunda vinnudagur er langt frá að vera raunveruleiki, hvort heldur er fyrir karla eða konur. Karlar, lítið í eigin barm Sósialistar hafa alltaf lagt jafn- Formáli að ávarpinu 1 sögunni Lifandi vatnið. eftir Jakobinu Sigurðardóttur verður manni mjög minnisstæður bylt- ingamaðurinn Hörður, föður- bróðir aðalpersónu bókarinnar, Péturs Péturssonar. Hörður er bláfátækur, býr I skúrræksni af þvi að ekkert almennilegt fólk vill leigja svona bolsa og niðurrifs- segg viðunandi húsnæði. Hörður talar af eldmóði um komandi byltingu og á hann hlusta margir og alltaf er þröng i óhrálega kofanum hans á kvöldin. Fátækir verkamenn koma og hlusta á for- ingja sinn og hann hrífur alla við- stadda með eldmóði sfnum. Þeim eldmóði sem aðeins hugsjóna- menn geta miðlað öðrum. En það er einn, eða réttara sagt ein Sem ekki hlustar og það er konan hans hún Asta. Hún hefur engan tima eða orku til þess. Hún verður að hafa sig alla við til að haida börnunum þeirra frá hús- bóndanum svo að þau trufli hann ekki i spekiræðum Sinum. Börnin eru fyrir honum aðeins eitthvaö sem veldur honum óþægindum og fyrirhöfn. Hvers vegna erum við að minn- ast á þetta hér? Hvers vegna erum við að benda á að Höröur svoágætursósialistisem hann er, gleymir að taka tillit til fjölskyldu sinnar og raunar vanrækir börn sin á næsta grófan hátt? Það er vegna þess að við viljum taka undir þær kröfur róttæks fólks i kvenfrelsisbaráttum um að ekki sé nóg að vera byltingarsinnaður út á við, dagleg breytni manna viö fjölskyldu sina og annað sam- starfsfólk verður að taka með i myndina. Það er ekki nóg að prédika nauðsyn sósialisma en haga sér í einkalifi sinu nákvæm- lega eins og þeir borgaralega hugsandi menn sem við erum að gagnrýna. Róttæk kvenfrelsis- barátta getur ekki sætt sig við þannig afstöðu karlkyns sósial- Varpið Hanahyggjunni Áskorun frá konum á landsfundi Alþýðubandalagsins til karlfélaga Jón og tippið 1 Dagblaðið 2. des. skrifar Jón úr Vör Ilflegan pistil um rauðsokka undir fyrirsögninni „Kynlegur sértrúarsöfnuður”. Virðist sem ýmisiegt af þvl sem birst hefur hér á siðunni og i Forvitinni rauðri, málgangi Rauðsokka- hreyfingarinnar, hafi farið heldur betur fyrir brjóstið (eða eitthvert annað llffæri) á Jóni. Hann gerir m.a. aö umræðuefni lýsingu fimmtugrar danskrar konu sem birtist hér á síðunni 12. nóv. Þar segir hún frá þvi að I uppvextisinum hafi kynferöismál veriö bannsvæði sem ekki mátti fara inn á^og siöan lýsir hún fyrstu kynferðisreynslu sinni. Þetta var ófögur reynsla og hafði yfirþyrmandi áhrif á stúlkuna, sem von var, þvl hún varö vitni að þvi að sadisti fróaði sér með þvi aö berja bekkjarbræður hennar. Jón grípur þennan kafla á lofti og spyr hvað þessi „öfuguggalýs- ing” komi við baráttumálum kvenna. öllum ætti aö vera ljóst hve þekking á kynferðismálum er mikilvæg, en þó er það nú svo að þaö hafa einkum verið konur sem barist hafa fyrir aukinni fræðslu á þessu sviði. Liklega vegna þess að vanþekkingin bitnar oft hvað harðast á þeim. Jón úr Vör segist hafa heimildir fyrir þvi að ástandið I þessum málum sé mun betra hér á landi nú en var I Dan- mörku fyrir hálfri öld. Þetta er vafalaust rétt, en hitt er jafnvíst að enn er mikil vanþekking hér á kynferðismálum, og þá ekki sist meðal unglinga. Fræöslu I skólum þarf aö auka, þvi henni er víöast ábótavant og er sumsstaðar svo til sleppt. Fyrir þa sem ekki eru i skóla er i fá hús aö venda, t.d. er Kynfræðsludeild Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur ekki opin nema 1 l/2klst á viku (mánudaga kl. 17-18.30, simi 22406), en hún er eina slíka deildin á landinu. Margt mætti nefna til að sýna fram á nauðsyn aukinnar kyn- fræöslu hér á landi, jafnvel spán- nýjar, islenskar llfsreynslusögur. Ég held þvi aö þessi gamla, danska saga hafi verið þarft víti til varnaðar, þótt ekki hafi þetta verið geðsleg reynsla. Ýmislegt fleira nefnir Jón úr Vör I grein sinni, en ég sé ekki ástæöu til að ræða það hér, nema hvað mér kom spánskt fyrir sjón- ir að honum geöjast ekki að orð- inu tippi. Kallar notkun þess pempiuhátt og spyr hvort það eigi „lika að vera gagnlegur liður i kvenréttindabaráttu að nefna kynfæri karlmanns jafnbarna- legu heiti og tippi”. Ég verð að játa aö aldrei hef ég lagt baráttu- eða herfræöilega merkingu i þetta orð, heldur þótt þaö ljúft og fallegt. En forðast skyldi aö að nota orö óvarlega eða gera litið úr tippum I grandaleysi (sbr. barna- Iegt heiti á kynfæri fulloröins karlmanns)^. Jón úr Vör er líka skáld, sérfræðingur 1 orösins list, og þess vegna ekki úr vegi að Jón úr Vör staldra við áminningu hans. Mér (og liklega fleirum) er þvl for- vitni á að vita hvað karlmenn, bæði skáld og aörir, telja viöeig- andi nafn á kynfærum sinum. Og þá lika hvað sé frambærilegt að segja um konur i þessu sam- bandi. EG

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.