Þjóðviljinn - 10.12.1977, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 10.12.1977, Qupperneq 9
Laugardagur 10. desember 1977 . ÞJOÐVILJINN — SIÐA 9 Atvinnuleysi á Stokkseyri Hraðf rystihús Stokkseyrar er lokað og starf sf ólki þess hefur verið sagt upp störfum. Bátarnir liggja bundnir við brygg ju og sjómennirnir ganga atvinnulausir. Togar- inn Bjarni Herjólfsson, sem Stokkseyringar eiga að ein- um þriðja á móti Eyrbekkingum og Selfyssingum, land- aði i gær 130—140 tonnum í Haf narf irði,og þar er af linn unninn. Stokkseyri byggir afkomu sína einvörðungu á útgerðinni og f rystihúsinu. Þar eru engin önnur atvinnu- fyrirtæki svo heitið geti. Blaðamaður og Ijósmyndari Þjóðviljans fóru til Stokkseyrar í gær. 88 manns voru komnir þar á atvinnu- leysisskrá um hádegisbilið í gær, 72 karlar og 16 konur. Miklu fleiri konur eru að vísu atvinnulausar, en þeim finnst ekki taka því að láta skrá sig. Þær fá nefnilega engar atvinnuleysisbætur, ef makar þeirra hafa yfir 1700 þús. króna árstekjur. Á skrifstof u Verkalýðs- og sjómannafélagsins Bjarma á Stokkseyri hittum við formann félagsins, Björgvin Sig- urðsson, og varaformann, Grétar Zóphaníasson. Tómiegt var aö lita yfir pökkunarsalinn i frystihúsinu á Stokkseyri. Hér vinnur enginn I dag, og liklega ekki næstu vikurnar. (Myndirnar tók —eik) Höfuðatvinnu- vegirnir sveltir — Hraðfrystihús Stokkseyrar er hlutafélag, sagði Grétar. — Hreppurinn á 86% hlutabréfa, en afganginn eiga einstaklingar hér. Það má þvi segja, að hver fjöl- skylda á staðnum eigi i frystihús- inu. Fyrirtækið á sex báta, sem allir hafa stöðvast. Þrir þeir minnstu hafa legið við bryggju siðan i september. Einn veiddi i net og hætti veiðum 26. nóvember vegna aflaleysis. Tveir voru á sildveiðum, annar með reknet og hinn með hringnót. Hér er lika netaverkstæði og þar hefur vinna að sjálfsögðu stöðvast h'ka. Tog- arinn Bjarni Herjólfsson kom til landsins i mars i fyrra. Miklar vonir voru við hann bundnar, þvi hann átti að brúa bilið og halda hér uppi nægri atvinnu á þeim timum, sem gæftir væru lélegar fyrir bátana. En það bregst nú eins og annað. Frystihiísið fær ekki lánsfé til áframhaldandi rekstrar. Peningar lánastofnana virðast fara til ýmissa aðila, meðan höfuðatvinnuvegirnir eru sveltir. — Er það rétt,Björgvin, eins og ýmsir fjölmiðlar hafa haldið fram, að lokun frystihússins stafi eingöngu af aflatregðu bátanna? — Það er að sjálfsögöu alvar- legt mál að fiskur i sjónum virðist mjög vera að þrjóta. En forráða- menn hraðfrystihússins á Stokks- eyri og eigendur báta hér hafa sýnt mikinn dugnað og árvekni i að afla hráefnis. Bátarnir hafa verið sendir á fjarlæg mið, oft við erfiðar aðstæður, og hvert tæki- færi hefur verib nýtt i þeim efn- um. Það er þvi sannarlega heldur kaldranalegt af stjórnvöldum og lánastofnunum að loka á alla fyr- irgreiðslu, vitandi það, að þetta er eina atvinnufyrirtækið á staðn- um og stöðvun þess jafngildir allsherjaratvinnuleysi i þorpinu. Framhald á bls. 18. Dagbjört Sigurðardóttir (t.v.) og Sigurbjört Kristjánsdóttir: Það þarf kraftaverk eða gerbreytta stjórnarstefnu, ef þetta á að iagast I janúar. Björgvin Sigurösson (t.v.) og Garðar Zophoniasson: Kaldranalegt af stjórnvöidum og lánastofnunum að loka á alla fyrirgreiðslu, vitandi það, að þetta er eina atvinnufyrirtækið á staðnum... Fær starfsfólk frystihússins vinnu í bönkunum? Rætt viö Dagbjörtu Siguröardóttur og Sigurbjörtu Kristjánsdóttur verkakonur á Stokkseyri Dagbjört Sigurðardóttir og Sig- urbjört Kristjánsdóttir eru meðal þeirra verkakvenna, sem misst hafa atvinnuna vegna iokunar frystihússins. Sigurbjört segist vara búin að vinna i frystihúsinu I 15 eða 16 ár og hún man ekki eftir svo algeru atvinnuleysi og stöðvun eins og nú er. — Að visu hefur afli dregist saman undanfarin ár og þá hefur stundum komið örlitið hlé i desember, en oft hefur lika verið unnið alveg fram að jólum. En nú hefur öllu starfsfólki frystihúss- ins verið sagt upp nema verk- stjórum, einum vélstjóra og skrifstofufólki. Það hefur aldrei gerst áður. — Hvað hafa margar konur unnið i frystihúsinu? — Nú i haust unnu 30-40 konur þar, segir Dagbjört. — Nokkrar vinná i saltfiski. 1 sumar voru hins vegar 60-70 konur i vinnu i frystihúsinu og mikið er um að skólafólk frá Selfossi vinni i frystihúsinu hér á sumrin. Vinnan i frystihúsinu byggist mjög á starfi húsmæðra og 24 húsmæður eru nú fastráðnar þar, en sára- fáir karlmenn eru á fastráðning- arsamningi. Samt hallast alltaf á okkur þegar litil vinna er. Þá er okkur sagt upp, en karlmennirnir halda áfram að vinna. — Hvað finnst ykkur um þessa lokun frystihússins nú? — Það virðist hreinlega verið að leggja þetta allt niður. Svo er reynt að telja okkur trú um að kaupið okkar séof hátt. Já, það er enginn vafi á þvi að okkur er kennt um þetta. — Maður hlakk- aði til að fá togarann hingað, seg- ir Sigurbjört, — og við héldum að þá yrði alltaf næg vinna. En það er sárgrætilegt að láta togarann selja aflann i öðrum landshlutum meðan við erum atvinnulaus. — Frystihúsið vantar rekstrar- fé, segir Dagbjört. — Og það er einkennilegt að ekki skuli litið til þessara þorpa sem eru hreinlega að leggjast i auðn. A þinginu þrefa þeir um setuna, meðan hér og á Eyrarbakka rikir atvinnu- leysi og reyndar viðar um land, t.d. á Þórshöfn og Bildudal. 1 haust var lengi lokað i Þorláks- höfn og Stokkseyri er þvi þriðja þorpið á Suðurlandi, þar sem svona fer. Samt dettur engum i hug að minnast á þetta á Alþingi. Við þurfum að gera þær kröfur til okkar þingmanna, að þeir geri átak i þessum málum. — Er ekki hugsanlegt, að menn taki til bragðs að flytja burt úr þorpinu, ef svona heldur áfram? — Það segir sig náttúrlega sjálft, að menn sem eru búnir að koma sér upp húsi hér og hafa bú- ið hér lengi flýja ekki i burtu fyrr en i fulla hnefana. En margir myndu jafnvel flytja burt ef þeir gætu. Agætu starfsfólki hefur verið sagt upp, og eflaust fara t.d. þeir sjómenn, sem það geta, á aðra staði. — Hvað má búast við að þetta ástand vari lengi? — Héðan eru nú gerðir út 8 bát- ar, en einn var seldur héðan i haust. Eins og málið horfir nú við, er ekkert hægt að segja um hvort þeir fara út eftir áramót. Það er ekki fyrirsjáanlegt eins og er. Og það bendir ekki til að skjót við- brögð séu i vændum, þegar ekki fæst fjármagn til viðgerða eða viðhalds þeirra. Jafnvel þótt fjár- magn fengist strax um áramót, þarf allan janúarmánuð til að undirbúa bátana, þvi flestir þeirra þurfa að fara i slipp. Við erum ekki bjartsýn á að vinna hefjist hér aftur fyrr en i fyrsta lagi i febrúar. Það þarf krafta- verk eða gerbreytta stjórnar- stefnu, ef þetta á að lagast i janú- ar. — Hvað er til ráða? — Það þarf að skipta um stjórnvöld i þessu landi. Það er verið að reisa hvern bankann af öðrum hér i byggðarlögunum á Suðurlandi. Við höfum nú fjóra banka til að segja nei við okkur. Bankarnir eru orðnir óhugnan- legt risaveldi i þjóðfélaginu. En ef til vill getur frystihúsafólkið hér fengið vinnu i bönkunum! — eös

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.