Þjóðviljinn - 17.12.1977, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.12.1977, Blaðsíða 5
Laugardagurinn 17. desember 1977 MöÐVILJINN — SIÐA S HAPPY Kosninga- víxillinn 1 ræöu sinni viö fyrstu umræöu um fjarhagsáætlun Reykjavikur- borgar fyrir áriö 1978 sagði borg- arstjóri að strax i sumar heföi veriö séö að greiöslustaða borgai sjóös yrði erfiö á haustmánuðum. Þá voru gerðar ráðstafanir til þess að afla lánsfjár, sagði borg- arstjóri, og var i nóvember tekið lán að fjárhæð 300 miljónir króna og er gert ráð fyrir að það greiðist að fullu i mars á næsta ári. Siðan sagði borgarstjóri: ,,Að öðri leyti er i framlagi til afborg- ana einungis gert ráð fyrir greiðslum á umsömjdum afborg- unum og vegur þar þyngst af- borgun Landsbankaláns frá árinu 1974 en hún verður um 214 miljón- ir króna. -AI UTSVÖR hækka mest Heildartekjur borgarsjóös munu á næsta ári nema 14 miljörðum og 414 miljónum króna, samkvæmt fjárhagsáætl- un, sem lögð var fram á fundi borgarstjórnar á fimmtudag og var þar til fyrstu umræðu. Hækkun frá fjárhagsáætlun þessa árs, eins og’hún var sam- þykkt á fundi borgarstjórnar 9. ágúst i sumar nemur þvi tæpum 4 miljörðum eða 38,2% Ctsvörin sem eru stærsti tekju- liðurborgarsjóðs hækka þó meira eða um 41,4% á milli ára og munu þau samkvæmtþessu nema 7 mil- jörðum 438 miljónum króna á ár- inu 1978. Útsvörin eiga nú að standa und- ir 51,6% af útgjöldum borgar- sjóðs, sem er hærra hlutfall en á áætlun yfirstandandi árs, þegar útsvörin áttu að standa undir 50,4% af útgjöldum borgarsjóðs. Reiknað er með, að heimild i lögum um tekjustofna sveitarfé- laga til 10% álags á útsvör, verði notuð eins og gert var á þessu ári. Fasteignagjöldin hækka minna en nemur meðaltalshækkun á tekjum borgarinnar eða um 34.9%, og er áætlað að þau nemi á næsta ári 1.812 miljónum króna. Er þá miðað við að heildar- hækkun vegna endurmats og framreiknings fasteignamats nemi 33% frá núgildandi fast- eignamati. Aðstöðugjöld hækka lika minna en nemur meðaltalshækk- un eða um 36,3%, og munu þau ánæsta ári nema 2 miljörðum 42,4 miljónum króna. -AI Borgarsjódur: JEIIA8I HANN AIOBEI Afi K>AONA HABI- IKHAIIINN! Þessi bók spannar 60 — 70 ár af ævi Magnúsar Storms, hins ritsnjalla og giaðbeitta gleðimanns, sem allir er kynnst hafa dá fyrir hrein- skilni og hvassan penna. Á fyrri hluta þessa tímabils lifði hann „hinu Ijúfa lífi" við drykkju og spil, naut samvista við fagrar konur og átti 10-12 gangandi víxla í bönkum. Nú hefur hann söðlað um og breytt um lífs- stíl. Heimslistarmaðurinn er orðinn lystarlaus á vín og konur, safnar fé á vaxta- aukabók og hugleiðir ráð Sigurðar Nordals um undir- búning undir ferðina miklu. Friðþæging hans við almættið er fólgin i þessari bók, en í hana hefur hann valið til birtingar sitthvað af því bezta, sem hann hefur ritað, — og víst er að bókin svikur engan, sem ann íslenzku máli eða snjöllum og tæpitungulausum texta. Góð og nytsöm jolagjof STAR HAPPY húsgögn og STAR hillur og stereo bekkir fyrir unga fólkið Kynnið ykkur verð og greiðsluskilmála Rekstrar- útgjöldin hækka um 37,8% Aætlaö er að rekstrarútgjöld borgarsjóðs á árinu 1978 nemi 10 miljörðum 834,4 miljónum króna og hækki þvi um tæpa 3 miljaröa eða sem nemur 37,6% á milli ára. Kostnáður við stjórn borgar- innar áætlast 222,5 miljónir og nemur sú hækkun 38,9%. Til fræðslumála verður varið 2,2 miljörðum króna og er það hækkun um 36,9%. Fjárveitingar til lista, iþrótta og útiveru hækka um 41,6% og munu á næsta ári nema 2,1 miljarði króna. Til félagsmála er áætlað að verja 2 miljörðum 947,3 miljónum króna og er það hækkun um 32,4%. Til gatna og holræsamála er áætlað að verja 2 miljörðum 252,2 miljónum króna og nemur sú hækkun 36,9%. A eignabreytingareikning borgarsjóðs verður færðar tæp- lega 3.580 miljónir króna og nem- ur hækkunin 39,5%. Framlög til eignabreytinga nema 24,8% heildarútgjalda en á yfirstand- andi ári nema þau 24,8%, skv. fjárhagsáætlun. AI Ódýrt en vandað Húsgagnaverzlun Reykjavíkur hf. Brautarholti 2 — Símar 11940 -12691

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.