Þjóðviljinn - 17.12.1977, Side 11
10 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagurinn 17. desember 1977
Grímur, hestar, sparibaukar
öftsr s
Hausarnir þurrir og tilbúnir til málunar. Viö þá má gera
allt mögulegt. Arna ætlar t.d. að gera grlmu úr sinum. Þá
sker hún helminginn aftan af, tæmir, og styrkir brúnirnar
með limi. Hún ætlar að hafa húfu á grímunni og mótaði
derið úr pappamassa og klæðir það og kollinn siðan með
efni, þegar búið er að mála grimuna. Eyrún vildi gera
grimubúning þar sem hausinn er settur ofan á hennar höf-
uð. Þá er skorið neðan af pokanum, hann tæmdur og
skurðurinn hafður þannig að hann sitji vel ofan á höfði
hennar. (Vissara að binda undir kverkina). Kanturinn er
siðan styrktur með limi og búningurinn festur við hann
allan hringinn. Hún ætlar að lima hár úr grófu garni á
hausinn, en til þess þarf sterkt lim.
—
’ 'Y
Halldór, Ingi og Arna troða dagblöðum i pappirspoka og binda fyrir. — Best er að taka eina
opnu ieinu, böggla hana vel saman og troða þétt I pokann, þannig að hann gefi ekki eftir
þegar limt er yfir. i stað pappirs má nota sag eða sand.
i staðinn fyrir mannshausa má
lika búa til dýrahausa eins og sést
á þessari mynd þar sem
hestshausar eru mótaðir á skaft
og þá eru komnir fyrirtaks reið-
hestar.
f....
sJS#*
Næst er að lima dagblaðapappir yfir með veggfóðraralimi. Dagblaðapappirinn er mjúkur
og sýgur vel i sig vætu og lím. Þvi fleiri lög, þeim mun þykkari og sterkari verður hlutur-
inn. — i stað úttroðinna poka má einnig nota uppblásnar blöðrur.
Vala Hmdi pappir utan um uppblásna blöðru og bjó til
mús. Fætur og eyru gerði hún úr þykkum pappa og limdi
vel i kring. (Pappamassa til styrktar I samskeytin).
Veiðihár og skott úr garni.
3
Eyrún og Arna móta andlit með
pappamassanum á pokana. Lima
siðan pappir á sama hátt og áður
yfir pappamassann til styrktar.
Laugardagurinn 17. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
zw"
í/ A
Platan tilbúin I ofninn. A henni má
sjá kisu, sem Ingi mótaði, stjörnu
og hjarta til að hengja á jólatré, og
tvo platta. Á öðrum er andlit og á
ninum stendur: Hér búa Einar,
Steinunn og Arna. Gleymið ekki að
gera gat ef hengja á hlutinn upp!
Vala býr til jólasvein i kökuna.
Jóla-
skraut
og
myndir
Jólaföndur
Þegar jólin nálgast er tilvalið
fyrir krakka á öllum aldri að búa
til jólagjafir og jólaskraut úr þvi
efni sem til fellur. Hér á siðunni
má sjá káta krakka sem við
heimsóttum i Bólstaðahliðinni á
fimmtudagskvöld leika sér með
lim og lit, pappir trölladeig og
pappamassa.
Krakkarnir heita Arna, 9 ára,
Eyrún 9 ára, Margrét 3ja ára,
Halldór 5 ára, Ingi Ragnar 5 ára
og Valgerður 10 ára.
Þegar kvöldið var liðið, var eft-
ir að mála og fullgera ýmsa hluti
enda þurftu sumir hlutirnir að
þorna yfir nótt og litlir kollar að
fá svefn.
Þvi sést ekki mikið af fullgerð-
um hlutum á þessum myndum,
enda eru útfærslurnar eins marg-
ar og börnin, — og ekki má
gleyma þvi að fullorðna fólkið
hefur lika gaman af að föndra,
þegar jólin nálgast.
—AI/—VB
Trölladeig
Trölladeig:
1 hluti salt, 1 hluti hveiti, vatn.
Hnoðað saman, mótað i rúllur
eða myndir, flatt út.
Bakað við hægan hita, þar tii
það er orðið gullinbrúnt. A trölla-
deig má mála með þekjulitum
eða láta það vera ómálað.
Pappamassi
Pappamassa má nota eins og
leir og móta úr honum litla hluti,
t.d. fingurhausa eða dýr.
Dagblöð bleytt i heitu vatni, lát-
in liggja smástund eða þar til
blöðin eru vel gegnsósa. Allt vatn
undið úr og pappirinn tættur niður
i smáa bita. Þvl smærri bitar,
þeim mun fingerðari og betri
verður pappamassinn.
Út i rifrildið er hellt uppleystu
veggfóðraralimi og hnoðað sam-
an.
Arna fletur út trölladeig á
bökunarplötu.
Margrét hnoöaði trölladeigið i
stóra kúlu.
Dúkkuhúsgögn og bílar
t)r tómum elsspýtustokkum má með auöveldum hætti búa til skemmti-
leg dúkkuhúsgögn, bila með pappahjólum og jafnvel heilu húsin.
Stokkarnir eru limdir saman með sterku limi, þaktir með dagblaða-
pappir vættum með veggfóðraralimi, látnir þornaog málaðir. Þvi fleiri
pappirslög, sem sett eru á stokkana, þeim mun sterkari verða hlutirn-
ir. 1 þynnri fleti, borðplötur, húsgögn o.þ.h. má nota kartonpappir.
Eyrún Umir pappir utanum
kommóðuna. Til þess að geta
dregið skúffurnar út setti hún
klemmusplitti i þær, en þau má
lika nota til að festa pappahjól á
bíla.
.>■• í. ••
Vala, Ingi og Halldór mála stóla og sófa með þekjulitum. Dúkkuhúsgögnin má lika þekja með efnisaf-
göngum en yngri krakkar ráða vart við að klippa þá nákvæmlega I hornin.
TAFLMENN
Taflmenn má gera úr öllu mögu-
legu. Þessir eru gerðir úr skrúf-
um, boltum og róm, sem fást i
mörgum gerðum. Skrúfurnar eru
limdar saman með UHU-PLUS
limi, sem harðnar á stuttum tima
i heitum bökunarofni.
Einnig má móta mennina úr jarð-
leir eða Dasleir, sem harðnar
sjálfur.Þá má einnig skera þá út
úr korki. Gott er að líma filt neð-
an á mennina svo þeir skriði bet-
ur.
Taflborð má búa til með þvi að
klippa út þykkan pappir i fern-
inga og lima ofan á annan lit.
Einnig má nota efni eða mála
borðið.