Þjóðviljinn - 07.01.1978, Side 1

Þjóðviljinn - 07.01.1978, Side 1
UOWIUINN Laugardagur 7. janúar 1978 — 43. árg. — 5. tbl. Laun járnblendiforstjórans vel yfir miljón á mánuði: jih ~ ■' — ..... 1 iii-—-.i „M argur ágírnist meira en þarf’ Fastar launagreiðslur 860 þús. á mánuði, auk jjölmargra hlunninda sem hann nýtur „Margur ágirnist meira en þarf”. Þessi setning varö fræg I sumar leiö, þegar Jón Sigurðsson fyrrum ráöuneytisstjóri i fjár- málaráðuneytinui en núverandi járnbiendiforstjóri, var aö pre- dika hófsemi i launakröfum yfir opinberum starfsmönnum, sem þá áttu i kjarabaráttu. Um sama leyti og Jón skrifaði þetta var hann sjálfur að semja við tsienska járnblendifélagið um laun sjálfum sér til handa, sem I dag nema um 860 þúsund krónum i útborguð laun á mánuði, auk þess sem Jón fær frjáls afnot af bifreið i eigu félagsins, frlan sima, risnu og fr-ftt ibúðarhús- Nær allir þeir islending- ar, sem eiga gjaldeyrisinn- stæður í Finansbanken í Kaupmannahöfn, og upp- lýsingar bárust um í fyrstu næði á Akrancsi. Ef þessi hlunn- indi eru metin, eru launagreiðslur til Jóns eitthvað á aðra miljón krónur á mánuði. Þær 8 60. þúsund krónur sem Jón fær útborgað á mánuði skipt- ast þannig, að hann samdi um föst laun 325.000 kr. á mánuði og 227.500 kr. i fasta yfirvinnu- greiðslu á mánuði, samkvæmt kjarasamningi BHM, hæstu launaflokka eins og þeir voru i mai sl. og myndu hækkanir sem kynnu að verða á þeim flokkum hækka laun Jóns. Siðan i mai hafa efstu launaflokkar BHM hækkað um 56,27% og þá eru laun Jóns sendingunni til íslenskra skattayfirvalda, hafa nú svarað beiðni skattrann- sóknarstjóraembættisins um skýringar. Sigurðssonar komin i rúmlega 860 þúsund krónur á mánuði. Einu sinni fyrir mörgum árum kallaði ölkær Skagfirðingur að Steingrimi heitnum Steinþórssyni ráðherra, þar sem hann var á ferð á Sauðárkróki: „Steini ráð- herra, gefðu mér miljón af mánaðarkaupinu þinu”. Að þessu var brosað, enda laun ráðherra þá langt frá þvi að vera miljón á mánuði.og sennilega hefði engum dottið i hug þá, að menn ættu eftir að hafa slik laun. En nú gætu menn með rökum sagt við Jón Sigurðsson-.„Gefðu mér miljón af mánaðarkaupinu þinu, Jón for- stjóri". —S.dór Upplýsingar bárust á sinum tíma um innstæður á um 80 reikningum, en eig- endur þessara reikninga reyndust vera 61 fjöl- Framhald á 18. siðu Hreinn og verðlaunagripurinn (Ljósm. eik) Hreinn kjörinn íþrótta- maður ársins Hreinn Halldórsson kúluvarp- ari úr KR var i gær kjörinn iþróttamaður ársins 1977. Kom það val engum á óvart. Hreinn varð sem kunnugt er Evrópu- meistari i kúluvarpi snemma á siðasta ári. Hreini voru afhent verðlaunin i hófi sem samtök iþróttafrétta- ritara efndu til i gær. 1 öðru sæti hafnaði knatt- spyrnukappinn frægi Asgeir Sigurvinsson. SK. Sjá slðu 14 30 skip með slatta t gær tilkynntu 10 skip um afla til loðnunefndar, samtals 2200 tonn, en skipin höfðu fengiö slatta hvert, þegar veðrið versnaöi á miðunum ogþau notuðu tækifærið og sigidu inn með aflann, en önn- ur sem ekkert höfðu fengið biðu betra veðurs. 1 gær var heldur slæmt veður á loðnumiöunum, en það er ekki nema á nóttunni, sem loðnan veiðist, þannig að kannski ein- hver skip hafi fengið veiði i nótt sem leið ef veður gengur niður. — — S.dór Ryðvarnarstöð Eimskips lokað Óheimilt að ryðverja ótollaf- greiddar bifreiðar — segir tollstjóri i gær var sett tollvakt fyrir utan ryövarnarstöð Eimskipafélags islaiuls, til að koma i veg fyrir það lagabrot, scm Eimskip hefur stundað, að ryðverja ótollaf- greiddar bifreiðar. Samkvæmt lögum er óheimilt að hreyfa við ó- tollafgreiddri vöru, og þá sama hvort um er að ræða bifreiðar eða annað. Að sögn Björns Hermannssonar tollstjóra hafði Eimskip stundað það að ryðverja ótollafgreiddar bifreiðar, þrátt fyrir það, að tolla- yfirvöld teldu slikt ólöglegt, og i gær sagðist tollstjóri hafa sett tollvakt fyrir utan ryðvarnarstöð- ina, til að koma i veg fyrir að þetta héldi áfram. Að sjálfsögðu mátti ryðverja þar hvaða bifreið sem tollaf- greidd hafði veriö, en það vekur furðu manna, að ekki skuli vera nóg að yfirvöld banni þetta athæfi Eimskips, heldur verði að setja vakt, til að koma i veg fyrir verknaðinn. — S.dór Gjaldeyrisinnistæðan í Danmörku: Aðeins einn taldi fram til skatts Hæsta innistæðan 14,5 miljónir Tvöfalt bókhald Jónas: „Við afgreiðslu slikra ábyrgöa er notað ákveðið form. Það þarf mjög mikla nákvæmni til að fylgjast með þessari afgreiðslu þvi það geta komið upp margs konar Iciðindamál við crlenda banka ef ekki er rétt gengið frá ábyrgðunum þannig að einhver ágreiningur veröi um áby:rgðina siðar. Við höfum talið, og höfum ekki breytt okkar skoðun á þvi, að þetta verk hafi verið vel af hendi leyst i ábyrgðadeildinni. og Haukur Heiðar, satt að segja, var mjög vel að sér i þessum mál- um.” Helgi: „Hvernig þetta gerðist, sjáum við i stórum dráttum, en með smáatriðin er enn ýmislegt óljóst. Við höfum vclt því fyrir okkur hvort við ættum að hvetja rann- sóknardómarann til þess að hann Blaðamaður Þjóðviljans,úþ,ræðir við bankastjórana Helga Bergs og Jónas Haralz. gefi upplýsingar um þetta. Við teljum okkur ekki geta skýrt frá þvi hvernig þetta gerðist, þvi með þvi værum við að gera okkur að dómurum yfir rannsóknardómar- anuin, þar sem þeir telja ekki timabært að skýra frá málsatvik- um. Við værum i raun og veru með þvi að scgja: Nú ert þú búinn að rannsaka málið. Nú getum við sagt frá öllu”. Þessar tvær tilvitnanir eru úr viötali við þá Heiga Bergs ög Jónas Iiaralz, bankastjóra viö Landsbankann, en það viötal var I i tekið i gær og i tilefni svikamáls þess, sem þar hefur verið komið J upp um og er i lögreglurannsókn. | Viðtalið birtist á opnu i blaðinu i ■ dag.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.