Þjóðviljinn - 20.01.1978, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. janúar 1978
Föstudagur 20. janúar 1978 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 9
f
Gamli og nýi timinn. Hér má greinilega sjá þær miklu breytingar sem, oröiö hafa á skföaútbúnaöinum gegnum tiöina. Eldri myndin er tekin á
tsafiröi sennilega i kringum 1936,en sú nýrri er tekin f fyrra.
SKÍÐAFERÐIR —
Allir þeir sem hafa fengiö skíðadelluna/ eins og oft er
komist aö orði, vita hvaö þaö getur veriö hressandi og
endurnærandi, aö maður tali nú ekki um skemmtilegt, að
bregða sér á skíði í góðu veðri. Margir verða svo gagn-
teknir af þessari skemmtan að þeir nota hverja stund
sem gefst til þess að njóta hennar. Fjallalcftið hreint og
tært er á við margar vítaminsprautur, og hæfileg
áreynsla í heilnæmu lofti hlýtur að vera ákaflega heilsu-
samleg, ekki síst fyrir kyrrsetufólk. Á siðustu 10 árum,
eða svo, má segja að hafi oröið alger bylting hvað snertir
aðstöðu til skíðaiðkunar á íslandi. Víða um landið hefur
veriö komið upp mjög góðri aðstöðu fyrir skíðafólk,og
skiöaíþróttin er nú orðin almenningsiþrótt til heilsubótar
fyrir fjölmarga, og sífellt fjölgar þeim sem nota frí-
stundir sínar á veturna til þess að fara á skíði.
Nú þegar sól er farin að hækka á lofti og daginn tekur
að lengja er einmitt kominn tími fyrir skíðaferðirnar.-
Þar sem snjór er nægur eru margir eflaust búnir að
dusta rykið af „græjunum" og fara á skiði.
Eins og áöur segir er viöa um
landiö búiö aö koma upp hinni
ágætustu aöstööu fyrir skiöa-
menn. Einn stærsti þátturinn i
þeirri uppbyggingu eru lyfturnar.
Þaö hefur einhvern veginn veriö
svo aö mun fleiri viröast hafa haft
áhuga á að reyna sig á svigskið-
um en I göngu, og fyrir þá hefur
orðiö alger bylting meö tilkomu
skiöalyftna. Nú þarf ekki lengur
aö verja svo og svo löngum tima i
aö ganga upp brekkurnar til aö
renna sér niöur. Þaö tekur ekki
nokkrastundaðkomastupp ihin-
ar ágætustu brekkur meö lyftun-
um. Þjálfunarmöguleikar i aö
skiöa hafa margfaldast, þar sem
hægt er að fara miklu fleiri feröir
yfir daginn, ogorkan fer ekki i aö
ganga upp. Og auövitaö koma
lyfturnar göngufólkinu lika aö
gagni, t.d. meö þvi aö auövelda
mönnum að komast fyrirhafnar-
litiö á hin fjölbreyttustu göngu-
svæöi, og nú virðist gangan eiga
stööugt vaxandi vinsældum aö
fagna.
Sumirviljameina.aöþvier oft
haldið fram, aö meö tilkomu
skiöalyftnanna sé búið aö vera
meö alla áreynslu og likams-
þjálfun viö skiöaiðkun. Fólk þurfi
ekki lengur aö hafa neitt fyrir
þessu, þaö láti draga sig upp eöa
fer ja á annan máta og svo sé bara
aö renna sér tiltölulega átakalitiö
niöur. En þaö vita allir sem reynt
hafa aö þaö er ekkert bara aö
renna sér niöur. Slikt getur kost-
aö heilmikil átök og haft i för meö
sér alveg ljómandi þjálfun fyrir
skrokkinn. Það er i raun hverjum
og einum i sjálfsvald sett hversu
mikið hannreynir á sig viö þaö aö
skiöa. En hvaö um þaö, údveran
er öllum holl.
Við leituðum til nokkurra for-
svarsmanna skiöaiþróttarinnar
og skiöaiökunar almennt og röbb-
uöum við þá um aöstööuna og
áhuga almennings á þessari heill-
andi og skemmtilegu iþrótt og fri-
stundaiökun.
Það hefur orðið bylting
Hákon Ölafsson er formaöur
Skiöasambands tslands, og viö
spuröum hann hvernig honum
fyndist aöstaöan til skiöaiökunar
almennings vera.
— Hún hefur fariö stórum batn-
andisiðustuárin ,ogþaö hefur átt
sér stað mikil uppbygging f þeim
efnum, sagöi hann. Þaö'má raun-
ar segja að aðstaðan sé viöa aö
miklu leyti oröin góö og hún fer
ört batnandi.
Enhvaö um áhuga almennings
á þvi aö stunda skiöi, fer hann
stöðugt vaxandi?
— Þaö er óhætt aö segja aö á
siðustu 5-10 árum hafi orðið alger
bylting bæöi hvaö snertir áhuga
og aöstööu. Ahugi fólksins er
alveg i samræmi viö aöstööuna.
Viltu þá meina aö hin bætta að-
staða sé beinlinis orsök aukins
áhuga?
Fyrir alla fjölskylduna
— Ætli þaö sé ekki bara öfugt,
aö almennur áhugi á skiöaiþrótt-
inni hafi orðið til þess aö þrýsta á
um bætta aðstööu. Fólki hefur á
undanförnum árum oröiö æ betur
ljóst að kyrrseta er ekki holl, og
aö einhver hreyfing er hverjum
manni nauðsynleg. Og þaö er i
sjálfu sér ekkert skrýtiö þó skiöa-
feröir veröi fyrir valinu hjá
fjölmörgum, þegar þeir fara aö
hugsa sér til hreyfings. Þetta er
svo heillandi „sport” og tilvalib
fyrir alla fjölskylduna.
Er þetta dýrt „sport”?
— Góöur útbúnaður er mjög
dýr, sérstaklega i sambandi viö
alpagreinarnar t.d. svig.
Gönguútbúnaöurinn er mun ódýr-
ari og áhugi fyrir skiöagöngu er
vaxandi. Það hefur allt of lengi
verið látið sitja á hakanum aö
koma upp góöri aöstööu fyrir
gönguna, og hyggst Skiöasam-
bandiö leggja meiri áherslu á þaö
I náinni framtið.
Er eitthvaö sem þér finnst
vanta varöandi aöstööuna hér
sunnanlands?
Fleiri lyftur og göngu-
brautir
— Já, I Bláfjöllum er t.d. geta
lyftnanna.eins og er, of litil. Þeg-
ar margt er um manninn þar upp-
frá verður oft æöi iöng biö eftir aö
komast aö I lyftunum, og þaö leiö-
ist fólki skiljanlega. Þetta stend-
ur reyndar til bóta og er fyrirhug-
að, fyrir næsta vetur, aö setja upp
stólalyftu sem kemur til meö aö
ná frá botni og þvi sem næst upp á
topp. Meö þvi veröur unnt að
tengja saman þrjú skiðasvæði i
Bláfjöllunum og dreifa fólkinu
meira en nú er unnt.
Hvaö gönguna snertir vantar
tilfinnanlega merktar og upplýst-
ar göngubrautir og mun
Bláfjalianefnd hafa á áætlun sinni
aö bæta þar um.
En svona aö lokum, hvaö er aö
frétta af skiöalandsliöinu okkar?
Frá Akureyri. Haldiö þiö aö þaö sé ekki notalegt aö láta flytja sig svona
upp? i Hliöarfjalli er hiö ákjósanlegasta skiöaland, brekkur og göngu-
land viö allra hæfi.
Þaö er um aö gera aö byrja nógu snemma, ef maöur ætlar aö veröa
góöur skiöamaöur. (Ljósm.: ÍEJ)
Skiðalandsliðið æfir i
Mið-Evrópu
— Þaö eru fjórir skiöamenn
héöan I þjálfun niðri I
Mið-Evrópu, fyrir heimsmeistar-
amótiö I alpagreinum, sem verö-
ur haldið f Þýskalandi dagana
20. janúar — 6. febrúar. Steinunn
Sæmundsdóttir er eina konan i
hópnum og æfir hún meö norska
landsliöinu. Þeir Siguröur Jóns-
son og Hafþór Júliusson frá Isa-
firöi ásamt Hauki Jóhannssyni
frá Akureyri æfa hins vegar meö
sænska landsliðinu. Þaö er keppt i
hverri viku og nýlega varð Hauk-
ur i 24. sæti af 120 keppendum
sem tóku þátt i þvi móti.
Heimsmeistaramótiö i göngu
verður i Finnlandi dagana 16. —
27. febrúar og var ætlunin aö við
sendum tvo menn þangað, þá
Magnús Eiriksson Siglufiröi og
Halldór Matthiasson Reykjavik.
En Magnús varö fyrir þvi óláni aö
fótbrotna svo aö Halldor verður
einn, en hann er nú einnig viö æf-
ingar i Miö-Evrópu.
Akureyri: Þeir fara i
„Fjallið”
Akureyri hefur löngum veriö
tengd skiðaiþróttinni og þaöan
hafa komið margir góöir skiöa-
menn. Þareins og annars staðar,
þar sem möguleiki er á þvi aö
stundaskiði, er áhugi almennings
á Iþróttinni mjög mikill. Þeir eru
ófáir sem skreppa I „Fjallið” i
fristundum sinum, en „Fjalliö”
er aö sjálfsögðu Hliöarfjall, þar
sem Akureyringar hafa sitt
skiöaland.
I Fjallinu er ein stólalyfta, ein
svoköllum T-lyfta og tvær tog-
brautir. Stólalyftan var sett upp
haustiö 1967 og var fyrsta meiri
háttar skiöalyftan hérlendis.
Sklðabrekkur eru þarna við allra
hæfi, allar upplýstar þannig að
fara má á skiöi jafnt aö kvöldi til
’sem degi.
Nægur snjór siðan i
desember
Hörður Sverrisson, starfsmað-
ur i' Fjallinu, sagöi aö hjá þeim
væri nógur snjór og aö svo væri
búiö aö vera i tvo mánuöi. Viö
opnuðum lyfturnar fyrst i
desember og höföum þá aöeins
opiöum helgar, sagöi hann. Eftir
áramótin hefur veriö opið dag-
lega frá kl. 1-7, ep toglyfturnar
hafa verið opnar til kl. 10 á kvöld-
in.
Margir koma aftur og
aftur
Um næstu mánaðamót verður
svo væntanlega allt komiö I fullan
gang hjá okkur og þá veröa lyft-
urnar opnar frá kl. 10 á morgnana
tilkl. 10 á kvöldin á hverjum degi.
Þá förum viö llka aö taka á móti
dvalargestum, en þaö færist stöö-
ugt i vöxt aö f jölskyidur, hópar og
einstaklingar utan af landi komi
hingaö til að vera á skiöum. Og
sumir koma aftur og aftur, ár eft-
ir ár.
Skólaferðalög, skíða-
leiga og kennsla
1 hótelinu eru 11 2ja manna
herbergi og svefnpokapláss fyrir
70 — 80 manns. Töluvert er lika
um að hingaö sé komiö 1 skóla-
feröalög, og hérna geta menn
fengiö leigð skibi og annaö sem til
þarf. Viö erum meö útbúnaö til
leigu fyrir 20 — 30 manns, og
kennslu á hverjum degi.
Troðarinn fækkar slys-
um
1 ein fjögur ár erum viö búnir
að vera meö snjótroöara hér til
mikilla þæginda og bóta. Slikt
tæki gefur manni möguleika á aö
gera gott skiðafæri úr flestri færð
og einnig er greinilega merkjan-
leg fækkun á slysum siöan troðar-
inn kom i gagnið. Þaö er allt ann-
að 13 að hafa hann, sagöi Hörður.
Akureyringarnir eru nú farnir
aö undirbúa sig fyrir skiðalands-
mótiö i ár, af fullum krafti, og til
liös við sig hafa þeir fengiö
Magnús Guðmundsson, sem bú-
settur er i Bandarikjunum og er
mörgum sklöamanninum kunnur,
til þess að þjálfa alla keppendur i
öllum aldursflokkum.
ísafjörður: „Paradís
skíðamanna”
A Isafiröi hefur lengi veriö tölu-
verður áhugi á skiöaiþróttinni
enda skíðaland Isfiröinga, Selja-
landsdalurinn, oft nefnt „Paradis
siúöamanna”. Þar eru brekkur
og gönguland viö allra hæfi i
fögru umhverfi. Ariö 1968 var
byggö skiðalyfta á Dalnum, eins
og Isfiröingar kalla Seljalands-
dalinn dags daglega, og upp frá
þvi hefur áhugi almennings á
skiöaiökun fariö ört vaxandi á
Isafiröi og 1 nágrenni hans. Þar
eru nú tvær sklöalyftur sem geta
flutt þá sem þaö vilja svo gott
sem upp á topp.
Vantar snjó
„Þaö er nú varla kominn nógur
snjór hjá okkur ennþá”, sagöi
Guömundur Sveinsson á ísafiröi,
þegar undirrituö spuröi hann
skiðafrétta. Onnur lyftan er
reyndar komin i gang og hin aö
verða tilbúin, en á henni var verið
að gera breytingar og koma fyrir
sjálfvirkum ræsara. Hún veröur
væntanlega opnuð núum helgina,
þ.e.a.s. ef snjórinn verður nógur.
Viö fengum troöara I fyrra og
er þaö mikill munur i alla staði.
Bæði hefur slysum fækkað og svo
er þaö llka mikið atriöi fyrir
göngufólk aö fá alltaf troöna
skiöaslóö, en á troðaranum er
sérstakur troöari til þess aö troöa
slikar brautir.
Kennsla seinna
i vetur
Seinna i vetur veröur skiða-
kennsla á Dalnum og einnig verö-
ur skólunum gert kledt aö fara i
skiðaferðir meö nemendur og
dvelja i Skiðaskálanum. Ekki
hefur verib um neinar skipulagð-
ar skiöaferðir til Isafjarðar aö
ræöa þar sem aðstaðan til aö taka
á móti dvalargestum er ekki nógu
góð enn þá.
Reykjavík og nágrenni:
Bláfjaliafólkvangur
Eitt vinsælasta sklöasvæöiö i
nágrenni Reykjavikur nú er
Bláfjallasvæöiö, en þar er bæöi
fyrirtaks skiöaland og skemmti-
legt umhverfi. Þaö var um pásk-
ana 1973 sem vegurinn upp i
Bláfjöll var fyrst opnaöur. Þá var
búiö aö koma þar upp einhverjum
skiöalyftum og var strax mikill
straumur af fóiki þangaö. Arib
eftir var svo lagt rafmagn á staö-
inn og þá voru settar upp fastar
lyftur.
Þaö eru Reykjavik og sveitar-
félögin i kringum Reykjavik
ásamt Keflavik og Selvogi sem
hafa sameiningu um aö mynda
þarna svonefndan Bláfjallafólk-
vang. Þessir aðilar sjá um rdcst-
urinn þar auk þess sem skiöa-
deildir iþróttafélaganna Fram,
Armanns og Breiöabliks hafa aö-
stöðu á svæðinu.
Opið daglega
Um Helgina 7. — 8. janúar var
opnað i Bláfjöllunum og er það
töluvert mikiö fyrr en sl. vetur.
Þá var ekki kominn nægur snjór
fyrr en eftir miöjan febrúar. Alla
virka daga er opið i Bláfjöilum
frá kl. 1-7. Auk þess er opiö á
þriöjudögum og miövikudögum
frákl. 1-10 ákvöldin, ogum helg-
ar er opiö frá kl. 10-6.
Skálafell, Hamragil,
Hveradalir
En það eru fleiri skiöasvæði i
nágrenni Reykjavikur en
Bláfjöll. Til dæmis er mjög vin-
sælt aö fara i Skálafell, en þar er
Skiðadeild KR meö aöstöðu. Svo
eru IR-ingar búnir aö koma upp
ágætis aðstööu i Hamragili, sem
er neðan viö Hengilinn. Þar eru
komnar lyftur upp á hæstu toppa
en snjórinn er þar heldur óstöö-
ugur, og svo er lika hægt aö fara i
Hveradali.
Kristján Pétursson, deildarstjóri, var aö skoöa skiöaútbúnaö I útilífi
þegar okkur bar þar aö. Hann sagöist fara oft á sklöi og nú væri hann aö
hugsa um aö endurnýja útbúnaöinn eitthvaö.
Er skiðamennskan dýrt
,,sport”?
Hvaöætliþaökostisvoaökoma
sér upp góöum skiðaútbúnaði?
Viö leituöum til nokkurra versl-
ana i Reykjavik, sem hafa skiöa-
vörur til sölu, til þessaö afla upp-
lýsinga um kostnaöinn viö þokka-
legan útbúnab. Verslanirnar sem
viö leituöum til voru Skátabúöin,
Vesturröst, Domus, Sportval og
Ctilif.
Börn
Niðurstaöa okkar var sú aö fyr-
ir börn kostaöi þaö allra nauösyn-
iegasta varðandi svigútbúnaö,
skiöi, bindingar skór og stafir allt
frá 15 — 16 þúsund krónum upp i
40 — 50 þúsund. Hafa ber \ huga
ab allra dýrasti útbúnaöurinn i
öllum fiokkum má segja ab sé
keppnisútbúnaöur. Góöan útbún-
aö fyrir börn má sennilega fá fyr-
ir svona 25 — 35 þúsund krónur.
Þá má reikna meö aö skíöin kosti
15 — 20 þúsund, skórnir 6 — 9 þús-
und, bindingar6— lOogstafir um
2 þúsund krónur.
Unglingar
Fyrir unglinga má reikna meö
aöfá góöan útbúnaö fyrir 45 — 60
þúsund krónur, og allt upp i 90
þúsund. Skiðin kosta svona 20 —
30 þúsund, skórnir 10 — 15 þús-
und, bindingar 6—10 þúsund og
stafir 1300 til 3000 krónur.
Fullorðnir
Fyrir fulioröna kosta góö skiöi
25 — 40 þúsund krónur, skór 10 —
25 þúsund, bindingar 9—25 þús-
und og stafir 3.500 — 5.000 krónur.
Sem sagt allt heila klabbið kostar
50 — 100 þúsund. Þaö má meö
nokkurri vissu áætla að unnt sé aö
fá mjög góöan útbúnaö fyrir full-
oröna fyrir 60 — 70 þúsund.
Fyrir göngufólk
Þá er þaö gönguútbúnaöurinn.
Hann er mun ódýrari en svig-
skiðin og tilheyrandi og er hægt
aö fá ágætis göngubúnað fyrir 26
— 35-40 þúsund krónur. Skiðin
kosta allt frá 13 þúsundum upp i
35 þúsund, og eru ágætis skiöi i
veröflokknum 20 — 25 þúsund
krónur. Skórnir kosta 5—10 þús-
und, bindingar frá rúmum tveim
þús. I 4.000 og stafir u.þ.b. 2—4
þúsund.
Litlu börnin lika
Fyrir smábörn má fá ansi
skemmtileg piastskiöi meö riffl-
um neöan á þannig aö þau renna
ekki aftur á bak. Þessi skibi eru
venjulega ásamt bindingum og
stöfum ipakkningu og kosta 11 —
13 þúsund krónur. En auðvitað
málika fá ódýrariskiði fyrir þau.
Ýmislegt fleira má tina til i
sambandi viö skiöaútbúnaö en
þetta mun þó vera hiö allra nauð-
synlegasta. Til dæmisgetur veriö
afskaplegagottaö eiga skiöagler-
augu, bæði i slæmu skyggni og
mikilli birtu. Þau fást bæöi á börn
og fulloröna. Barnagleraugun
kosta rúmar 500 krónur en full-
oröinsgleraugun kosta 2 — 3 þús-
und krónur.
Dæmi svo hver fyrir sig hvort
honum finnst skiöasportiö dýrt.
Anægjan sem fæst út Ur þvi verö-
ur aldrei mæld I peningum og ein-
hvern vegin n vill þa ö veröa svo aö
þeir sem á annað borö fara aö
stunda skiöin veröa alveg gagn-
teknir af þessari tómstundaibju.
—IGG.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna