Þjóðviljinn - 21.01.1978, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. janúar 1978
Laugardagur 21. janúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Nýlega er út komin Framkvæmda- og
byggöaáætlun Vestmannaeyja 1977-1986.
Áætlun þessa hef ur Gylf i Isaksson samið
með aðstoð bæjarstjóra og annarra
starfsmanna Vestmannaeyjakaupstað-
ar, framkvæmdastjóra Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga og starfsmanna
byggðadeildar Framkvæmdastof nunar
rikisins. i fyrri hluta þessarar áætlunar
er f jallað um byggðamál, þar með talin
íbúa- og atvinnuþróun, auk þess sem
fjallað er um rekstur Vestmannaeyja-
kaupstaðar. í síðari hluta áætlunarinnar
er fjallað um hina einstöku fram-
kvæmdaþætti og gerð tilraun til að meta
nauðsynlegar framkvæmdir i Ijósi áætl-
unarforsendna i fyrri hluta skýrslunnar.
Flér fer á eftir útdráttur úr örfáum at-
hyglisverðum atriðum þessarar víða-
miklu og vönduðu áætlunar. Er þar f ja11-
að um íbúaþróun og atvinnuþróun í Vest-
mannaeyjum, eflingu nýrra atvinnu-
greina og hraunhitaveituna.
t]ölbre>tni
í iðnaði og
þjónustu
— verður að koma til, ef fyrri íbúa-
fjöldi í eyjum á að nást 1981
íbúaþróun 1900-1976
Lengst af munu hafa búið
200—500 manns i Vestmannaeyj-
um, en árið 1900 eru ibúar um 500,
þar af 273 i kauptúninu. Samfara
uppbyggingu vélbátaflotans á
fyrstu þremur áratugum aldar-
innar fjölgaði ibúum i
Vestmannaeyjum mjög og árið
1926 voru þar um 3.300 ibúar. Til
Vestmannaeyja streymdi fölk úr
Rangárvallasýslu, enda var á
þessum tima mikil uppbygging og
f j ölbrey tilegt atvinnulif i
Vestmannaeyjum. Eftir 1926 dró
mjög úr hinni öru fólksfjölgun i
Vestmannaeyjum. sennilega
vegna kreppunnar, þannig að 1948
voru þar aðeins um 3.500 ibúar.
Vélbátum fækkaöi nokkuð á
þessum tíma, en bátarnir urðu
stærri. Eftir striðslok færðist mik
ill vöxtur i kaupstaðinn, en bátum
fjölgaði þáánýuppium lOObáta.
Var ibúafjölgunin talsvert yfir
landsmeðaltali 1950—1960, en
heldur dró úr fjölguninni á árun-
um 1966—1970 m.a. Vegna erfið-
leika i sjávarútvegi. í árslok 1972
voru 5.303 ibúar i Vestmannaeyj-
um. Ljóst er, að ibúaþróun i
Vestmannaeyjum helst i hendur
við þróun bátaflotans og afla-
magn. Atvinnuástandið annars
staðar, einkum á Suðurlandi,
skiptir einnig máli.
Við upphaf eldsumbrotanna,
aðfaranótt 23. janúar 1973, neydd-
ust rúmlega 5.000 manns til að
yfirgefa Vestmannaeyjar og leita
samastaðar á meginlandinu.
Þegar eldgosinu lauk (3. júli 1973
skv. opinberri yfirlýsingu) hófst
hreinsunar- og endurreisnar-
starfið og Vestmannaeyingar
tóku að streyma aftur til Heima-
eyjar. Flestir héldu lögheimili i
Vestmannaeyjum a.m.k. meðan
óvissa rikti hjá fólki um búsetu.
Ibúafjöldi i Vestmannaeyjum
hefur þróast sem hér segir:
Hlutfail af
ibúafj. Suðurl.
1. des. 1972 28,7%
2. des. 1973 26,6%
l.des. 1974 23.7%
1. des. 1975 23,5%
1. des. 1976 23,9%
íbúar með lögheimili i Vest-
mannaeyjum voru i árslok 1976
um 750 færri en var i árslok 1972.
Um 1.700 manns, sem bjuggu þá i
Vestmannaeyjum hafa ekki snúið
aftur, en 900—1000 komið i þeirra
stað.
Það eru hagsmunir
Vestmannaeyjakaupstaðar og
Suðurlands, að eðlileg ibúafjölg-
un verði i Vestmannaeyjum, en
um fjórðungur ibúa Suðurlands-
kjördæmis býr nú i Vestmanna-
eyjum.
Fyrri íbúafjölda
náö 1981
Allmikil vinna hefur verið lögð i
spá um þróun ibúafjölda i Vest-
mannaeyjum. Hún byggist ekki
nema að litlu leyti á fræðilegum
útreikningum, heldur annars
vegar á mati á möguleikum
kaupstaðarins og hinsvegar
markmiðum. Annars vegar var
höfð hliðsjón af ibúafjölgun i öðr-
um kaupstöðum og i landinu i
heild. Hins vegar var tekið mið af
þeirri stefnu bæjaryfirvalda, að
Vestmannaeyjar næðu aftur fyrri
ibúafjölda sem fyrst. 1 aðalskipu-.
lagi Vestmannaeyja 1975—1995
eru tvær spár. Báðar gera ráð
fyrir, að ibúafjöldinn verði orðinn
5.300 manns i árslok 1977. Sú
fyrri, sem hér er kölluð spá I.
reiknar siðan með 2% árlegri
fjölgun, en hin 1.2%.
1 þessari áætlun er hins vegar
reiknað með, að ibúafjöldinn
verði 5.300 manns ekki fyrr en i
árslok 1981, en 1,2% fjölgun frá
þvi, spá II. (lágmarksspá). 1.
desember 1976 voru ibúar 4.568 i
Vestmannaeyjum eða um 130
manns undir spá II.
Hugsaniegt er þvi að þróun
ibúafjölda verði eitthvað hægari,
auk þess sem ibúaf jölgun i land-
inu i heild hefur minnkað. Þegar
metin eru likindi til að spá um
A lögheim-
ilisskrá Með búsetu
5.303 um 5.200
4.906 um 2.500
4.396 um 3.700
4.421 um 4.150
4.568 um 4.400
ibúafjölda rætist þarf að taka
ýmis atriði til athugunar.
Ný starfstækifæri
1. Náttúruleg fjölgun skiptir
miklu máli, en fjölgað hefur
hiutfallslega i árgöngum 20—35
ára frá þvi fyrir gos og má þvi
búast við að fæðingar verði
hlutfallslega margar fyrst
um sinn,ensiðan dregur eitt-
hvað úr þeim.
2. Aflamagn. Eins og ætið áður
mun aflamagn ráða nokkru um
fbúafjölda i Vestmannaeyjum
að svo miklu leyti, sem at-
vinnulifið byggist á sjávarút-
vegi. I góðum vertiðum flyst
fólk til Eyja, en margir flytja
aftur burt ef aflamagn og
tekjumöguleikar minnka.
3. íbúðarhúsnæði. Nægilegt
framboð af ibúðarhúsnæði eða
aöstöða til að byggja skiptir
miklu máli.
4. Vmis þjónusta bæjarfélagsins i
félags- og menningarmáium,
t.d. góðir skólar, iþrótta- og
æskulýðsaðstaða, dagvistun
barna o.s.frv. á einnig sinn þátt
i að laða fólk til búsetu.
5. Starfstækifæri. Atvinnulifið i
Vestmannaeyjum hefur verið
nokkuð einhæft, þe. byggst að
verulegu leyti á sjávarútvegi
og er aukin fjölbreytni i at-
vinnugreinum mjög brýn. Hér
verður minnst á aðalatriðin:
Til þess aö ibúar i Vestmanna-
eyjum verði 5.300 árið 1981,
þarf að skapa 300—350 starfs-
tækifæri fyrir 1981. 1 fisk-
veiðum mun starfstækifærum
ekki fjölga nema með stórauk-
inni sókn og vaxandi fiskistofn-
um. I fiskiðnaði (saltfiskverk-
un og harðfrystingu) mun
starfstækifærum tæplega fjölga
mikið, nema með aukinni
úrvinnslu afla, betri nýtingu
allra vinnslumöguleika hrá-
efnisins eða veiðum á nýjum
fisktegundum. Að mestu leyti
verður þvi nýtt atvinnufram-
boð að koma i iðnaði og þjón-
ustu annarri en opinberri þjón-
ustu.
Breyting á
aldursskiptingu
Auk þeirrar breytingar, sem
orðið hefur á ibtíafjölda í Vest
mannaeyjum, hefur orðið mjög
mikil breyting á aldursskiptingu
Framhald á 18. siðu
Þróun hitaveitu i Vestmanna-
eyjum byrjaði árið 1974, þegar
annars vegar hófst undirbúningur
að hitun nýja hverfisins i vestur-
bænum og hins vegar var farið að
kanna möguleika á nýtingu
hraunhitans. Upphaflega var gert
ráð fyrir þvi, að aðalafl fyrir fjar-
hitun i nýja vesturbænum kæmi
frá rafskautskötlum, en vara- og
toppafl frá svartoliukötlum.
Kannanir og tilraunir með nýt-
ingu hraunhitans leiddu hins veg-
ar til tilraunavirkjunar i hraun-
inu og var ákveðið aö tengja hana
við sjúkrahúsið og 20-30 hús i
austanverðum bænum. Hraun-
hitaveitan hefur gefið það góða
raun, að ákveöið hefur verið að
nota hraunvirkjun sem aðalafl-
gjafa hitaveitu i Vestmannaeyj-
um i stað rafskautskatla. Kyndi-
stöð verður aðeins reist fyrir
vara- og toppafl,auk dælustöðvar
fyrir allan bæinn.
Alitið er, að aðalafliö frá hraun-
virkjuninni þurfi ekki að vera
tryggt nema i tiu ár til þess að
þessi breyting eigi rétt á sér. Hins
vegar er engum möguleikum
kastað á glæ, heldur er hvenær
sem er hægt að setja upp nýja
tegund aflgjafa, ef hraunvirkjun-
in uppfyllir ekki þær vonir, sem
bundnar eru við hana.
Áætlanirnar tvær, um fjarhitun
i nýja vesturbænum og hraun-
hitaveitu, hafa þvi verið samein-
aðar i hitaveitu fyrir allan bæinn,
þar sem hraunvirkjunin veitir
aflið. Gert er ráð fyrir að tengja
hraunvirkjun við dreifikerfið i
vesturbænum og kyndistöð meö
tvöfaldri lögn, en hér er um að
ræða tvöfalt hitaveitukerfi.
Arðsemi hitaveitunnar er að
sjálfsögðu mjög eftir nýtingu og
endingartima hraunhitans auk
kostnaðar við að afla hans.
Reiknað er með þvi, að hitaveitu-
framkvæmdum verði lokið 1980
og unnið verði aö orkuöflun i
hrauninu í samræmí við þörf.
Akveðið hefur verið að nota hraunvirkjun sem aðalaflgjafa
hitaveitu i Vestmannaeyjum.
Möguleikar
á nýjum
atvinnu-
greinum
Til að fá hugmyndir um nýjar
atvinnugreinar i Vestamnnaeyj-
um var gerð athugun á atvinnu-
skiptingu skv. slysatryggðum
vinnuvikum i 5 bæjarfélögum,
Akranesi, Isafirði, Neskaupstað,
Vestmannaeyjum og Akureyri
fyrir árið 1975. I þessum saman-
burði má m.a. sjá eftirfarandi
tölur:
mannaeyjum. Eins og kunnugt er
hafa verið uppi áform um að reisa
skipalyftu i Vestmannaeyjum
siðan 1972, þegar hafnarsjóður
Vestmannaeyja festi kaup á
henni.
Nú er að störfum nefnd til að
gera áætlun um skipaviðgerðir og
skipasmiðar á öllu landinu. Vest-
mannaeyingar leggja á það mikla
Vest- Kefla- isa- Akra- Nes-
manna- eyjar vík fjörður nes kaup- staður
% %' % % %
Fiskveiðar 17.7 12.5 12.8 13.1 14.0
ÍJrvinnsla samt (Fiskiðnaður, annar iðnaður, byggingar, raf- veitur o.fl.) 59.7 55.6 56.5 61.7 59.9
Samgöngur 6.1 8.6 3.7 5.4 5.0
Þjónusta samt 22.6 32.0 30.7 25.2 26.1
Samkvæmt þessum samanburði
er i Vestmannaeyjum mikil
frumvinnsla og úrvinnsla án þess
að hlutfall þjónustu hafi aukist.
Þjónustuhlutfallið ætti i raun að
vera a.m.k. jafnhátt og i Kefla-
vik.
Nýir atvinnumöguleikar
í skýrslunni eru nefndir all-
margir möguleikar á nýjum
atvinnugreinum i Vestamnnaeyj-
um. Teknir voru til sérstakrar
athugunar fjórir flokkar atvinnu-
greina, þar sem talið er að mestir
möguleikar séu á aukinni eftir-
spurn eftir vinnuafli.
Sjávarútvegsiðnaður.
Töluverðir framleiöslumögu-
leikar virðast vera i aukinni nýt-
ingu þess sjávarafla, sem á land
berst i Vestmannaeyjum. Má þar
nefna niðurlagningu sildar, niö-
ursuðu á lifur, framleiðslu úr
þorskhrognum og loönuhrognum,
slógmjölsframleiöslu o.fl.
Helsti þröskuldur i vegi fyrir
þvi að þetta geti orðið að- raun-
veruleika virðast vera sölu- og
markaðsmál. Bættar samgöngur
til Evrópu (með skipum, sem ekið
er úr og i) og tollalækkanir kunna
þó að breyta hér nokkru um.
í langri framtiö virðast veru-
legir möguleikar i ýmsum efna-
iðnaði tengdum sjávarútvegi.
Æskilegt virðist að frumkvæði
til eflingar þessum atvinnugrein-
um komi frá fiskiðnaðinum sjálf-
um i tengslum við rannsóknar- og
sölustofnanir. Stuðningur við út-
vegun fjármagns er þó að sjálf-
sögðu nauðsynlegur.
Steinef na iðnaður
Allt frá þvi gosinu lauk hafa
menn velt fyrir sér möguleikum á
að nýta gosefni til framleiðslu á
byggingarefnum. Vestmanna-
eyjakaupstaður hefur gerst hlut-
hafi i fyrirtækinu Jarðefnaiðnað-
ur h.f. Nú er unnið að rannsókn-
um á vegum félagsins og munu
Vestmannaeyingar móta áform
sin á grundvelli þeirra.
1 þessu sambandi er rétt að
benda á, að ný flutningatækni
opnar möguleika á mörkuðum á
Norðurlöndum, Bretlandi og
meginlandi Evrópu, þvi að vlða i
Evrópu er hörgull á byggingar-
efnum.
Málm- og skipasmiði.
Milli 80-100 manns hafa atvinnu
i þessum atvinnugreinum i Vest-
áherslu að skipaviðgerðariðnaður
i Vestmannaeyjum sémjög öflug-
ur. Telja þeir að skipalyfta sé
forsenda þess að hann verði það.
Telja verður eðlilegt að afstaða
til uppbyggingar þessarar grein-
ar verði ekki tekin fyrr en tillögur
nefndarinnar leggja fyrir.
Framleiðsla á vélum til fisk-
veiða og fiskiðnaðar hefur verið
stunduð i Vestmannaeyjum, þótt
aðstaða til þess sé ekki alls kost-
ar. Að minnsta kosti eitt fyrirtæki
hefur hug á að efla þessa starf-
semi.
Þjónusta og þjónustu-
iðnaður.
Af tölum um atvinnuskiptingu
sést að þjónustustig i Vestmanna-
eyjum er mjög lágt miðað viö
mannfjölda, enda er uppland að
sjálfsögðu ekkert. Sé tekið dæmi
viröast bílaviðgerðir mjög ófull-
komnar i Vestmannaeyjum. Gera
þarf sérstakt átak til. Verslun og
viðskipti eru einnig hlutfallslega
litlar atvinnugreinar i Vest-
amnnaeyjum og er mikiö sótt til
fastalandsins um þá þjónustu. Nú
er unnið aö gerð skipulags fyrir
miðbæinn þar sem stefnt er að
aukinni verslun.
Ferðamannaþjónustaá töluverða
framtiðarmöguleika i Vest-
mannaeyjum. Ber að efla alla
viðleitni i þá veru. Má nefna
Náttúrugripasafn og hugmynd
um gosminjasafn sem atriði sem
gætu eflt ferðamannaiðnaö.
5000
1000
--•--
’65
’60
’70
’75
’80
i Med lögheimili •
i Vestmannaeyjum
Med adsetur c
i Vestmannaeyjum
Spör I og 11
VESTMPNNREYJOR:
ÍBÚOFJÖLDOSPR TIL 1986
OG ÞRÓUN FRR 1945.
6000
3000
7000
iÚRR
PLDURSSKIPTING IBÚO VESTMONNOEYJO 1970 OG 1975
BEINOR TÖLUR
OLDURSSKIPTING ÍBÚO VESTMONNOEYJO 1970 OG 1975
HLUTFOLLSTÖLUR