Þjóðviljinn - 21.01.1978, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 21.01.1978, Blaðsíða 17
Laugardagur 21. janúar 1978 ÞJÓÐVILJJNN — SÍÐA 17 útvarp Nýtt framhaldsleikrit barna og unglinga Antilópusöngvarinn eftir norskan höfund, sem stundadi nám á íslandi á striös- árunum í dag kl. 17.30 byrjar flutning- ur á nýju framhaldsleikriti fyrir börn og ungiinga. Nefnist þaö „Antilópusöngvarinn” og er eftir norska höfundinn Ingebrikt Davik, en byggt á sögu eftir Ruth Underhill. Leikritiö er i 6 þáttum. Þýöinguna geröi Sig- uröur Gunnarsson, en leikstjóri er Þórhallur Sigurösson. Meö stærstuhlutverkin fara Steindór Hjörleifsson, Kristbjörg Kjeld, Hákon Waage, Jónina H. Jóns- dóttir, Stefán Jónsson, Arni Benediktsson og Þóra Guörún Þórsdóttir. Leikurinn gerist um miöja siöustu öld. Landnemafjöl- skyldan Hunt er á leiöinni til Kaliforniu, þvert yfir Bandarik- in, til að finna sér nýjan sama- stað. I fyrsta þætti kynnumst viö Hunthjónunum, börnum þeirra tveimur og frænku. Þau hafa slegið tjöldum i Nev- ada-eyðimörkinni, áður en þau leggja á fjallgarðinn mikla, sem skilur þau frá Gósenlandinu. Eins og aðrir landnemar óttast þau mjög indiána, en þau órar auðvitað ekki fyrir, hvað fram- tfðin ber i skauti sinu. Ingebrikt Davik er um fimm- tugt og orðinn kunnur höfundur barnabóka. A striðsárunum dvaldist hann á tslandi ásamt fleiri löndum sinum og stundaði m.a. nám f Menntaskólanum á Akureyri, en fór heim að strið- inu loknu. Frá 1959 hefur hann verið fastur starfsmaður hjá norska útvarpinu og séð þar um dagskrár fyrir börn, einnig i sjónvarpi. Tvær bóka hans hafa verið þýddar á islensku: ,,Ævin- týri i Mararþaraborg” og „Mummi og jólin” og hafa báð- ar veriðfluttar hér i Utvarpinu i leikritsformi. Davik hefur auk þess ort mikiö af ljóðum fyrir börn og gefið út hljómplötur, þar sem hann spilar bæði og syngur. Höfundur segir sjálfur, að „Antilópusöngvarinn” sé eitt skemmtilegasta viðfangsefni, sem hannhafi gifmt viö. Þó að hugmyndin sé komi úrbókeftir kanadiska konu, hafði hann frjálsar hendur um efnismeð- ferð og bætti ýmsu nýju inn i, sem byggt var á eigin reynslu. Leikurinn gerist fyrir meira en öld i annarlegu umhverfi, en boðskapur hans er sigildur og á erindi til okkar enn i dag. Höfundurinn, Ingebrikt Davik. 7.00 Morgunútvarp Veöur- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Tilkynningar kl. 9.00. Létt lög milli atriða. óskalög sjúklinga kl. 9.15: Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. Barnatímikl. 11.10: Stjórn- andi: Jónina H. Jónsdóttir. Heimsótt verður f jölskyldan aö Sörlaskjóli 60, Troels Bendtsen, Björg Siguröar- dóttir og tveir synir þeirra. — Jóhann Karl Þórisson (11 ára) les úr klippusafni sem helgað er Charles Chaplin I þetta skipti. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Vikan framundan Hjalti Jón Sveinsson sér um kynn- ingu á dagskrá útvarps og sjónvarps. 15.00 Miðdegistónleikar . Pianósónata nr. 24 i Fis-dúr op. 78 eftir Beethoven. Dezsö Ránki leikur. b. „Ast- ir skáldsins” (Dichter- liebe), lagaflokkur op. 48 eftir Schumann. Tom Krause syngur: Irwin Gage leikur á pianó. (Hljóðritun frá finnska útvarpinu). 15.40 tslenzkt mál Jón Aöal- steinn Jónsson cand. mag. talar. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Vinsælustu popplögin Vignir Sveinsson kynnir. 17.00 Enskukennsla (On We Go) Leiöbeinandi: Bjarni Gunnarsson. 17.30 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Antilópu- söngvarinn” Ingebrigt Da- vik samdi eftir sögu Rutar Underhill. Þýöandi: Sigurö- ur Gunnarsson. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Fyrsti þáttur: Hver var Nummi? Persónur og leik- endur: Ebeneser Hunt: Steindór Hjörleifsson, Sara: Kristbjörg Kjeld, Toddi: Stefán Jónsson, Malla: Þóra Guörún Þórsdóttir, Emma: Jónina H. Jónsdótt- ir, Jói: Hákon Waage, Nummi: Arni Benediktsson, Marta: Anna Einarsdóttir. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttauki. Til- kynningar. 19.35 Börn I samfélaginu Ingi Karl Jóhannesson ræöir við dr. Matthias Jónasson. 20.00 A óperukvöldi: „I Vespri Siciliani” eftir Giu- seppe Verdi Guömundur Jónsson kynnir. Flytjendur: Martina Arroyo, Placido Domingo, Sherrill Milnes, Ruggero Raimondi, John Alldis-kórinn og hljómsveit- in Nýja Philharmonia. Stjórnandi: James Levine. 21.25 TeboöSigmar B. Hauks- sonræöirviöséra HalldórS. Gröndal, Ölaf Jóhannesson dómsmálaráðherra o.fl. um félagsleg og siðferðileg áhrif veröbólgunnar. 22.10 Ur dagbók Högna Jón- mundar Knútur R. Magnús- son les úr bókinni „Holdiö er veikt” eftir Harald A. Sig- urösson. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.45 Danslög 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. 16.30 íþróttirUmsjónarmaöur Bjarni Felixson. 18.15 On We GoEnskukennsla. Tólfti þáttur endursýndur. 18.30 Saltkrákan (L) Sænskur sjónvarpsmyndaflokkur. 3. þáttur. Þýöandi Hinrik Bjarnason. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 19.00 Enska knattspyrnan Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Gestaleikur (L) Spurn- ingaleikur. Stjórnandi Ólaf- ur Stephensen. Stjórn upptöku Rúnar Gunnarsson. 21.10 Dave AUen lætur móðan . mása (L) Breskur gamanþáttur. Þýöandi Jóh Thor Haraldsson. 21.55 Dagbók stofustúlku (Diary of a Chambermaid) Bandarisk biómynd i léttum dúr frá árinu 1943, byggö á skáldsögu eftir Octave Mirabeau. Leikstjóri Jean Renoir. Aðalhlutverk Paulette Goddard. Her- bergisþernan Célestine ræð- ur sig I vist hjá sérstæðri aöalsfjölskyldu uppi I sveit. Hún er metnaöargjörn og ætlar sér að komast áfram i lifinu. Þýðandi Ragna Ragnars. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður HEILSUHÆLIÐ í KRISTNESI Staða HJÚKRUNARFRAM- KVÆMDASTJÓRA er laus til um- sóknar. Umsóknir er tilgreini fyrri störf sendist skrifstofu rikisspitalanna fyrir 1. mars n.k. íbúð fylgir á staðnum Upplýsingar veitir starfsmanna- stjóri i sima 29000. LANDSPÍTALINN HJÚKRUNARFRÆÐINGAR OG SJÚKRALIÐAR óskast nú þegar á Barnaspitala Hringsins, vökudeild, deild 7 A-B og deild 7 C-D. Upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri i sima 29000. Reykjavik, 20. janúar 1978. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SIMI 29000 ----1-------------------------------- Málf relsiss j óður minnir á heimsenda giróseðla sem greiða má i hverri bankastofnun og pósthúsi. Póstgirónúmer Málfrelsissjóðs er 31800. Málfrelsissjóður Laugavegi 31, simi 29490 I ■ I •• . \p Gotun Starfsmaður óskast til starfa við götun á . tölvudeild Borgarspitalans. Umsóknir skulu sendar til forstöðumanns tölvudeildar, sem gefur frekari upplýsing- ar. Reykjavik, 20. janúar 1978. Borgarspitalinn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.