Þjóðviljinn - 21.01.1978, Blaðsíða 18
18 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. janúar 1978
Fundur i miðstjórn Alþýðubandalagsins
Fundur verður haldinn í mið-
stjórn Alþýðubandalagsins dag-
ana 27. og 28. janúar og hefst kl.
20.30 þann 27. janúar að Grettis-
götu 3 Reykjavfk.
Dagskrá:
1. Nefndakjör
2. Hvernig á aö ráöast gegn verö-
bólgunni?
(Framsögumaöur: Lúövik
Jósepsson)
3. Kosni
(Framsögum aöur: ólafur
Ragnar Grimsson)
4. önnur mái
Alþýðubandalagið 1 Kjósarsýslu
Fimmtudaginn 26. janúar
heldur Alþýðubandalagið i
Kjósarsýslu umræðufund að Hlé-
garði i Mosfellssveit um stöðuna i
efnahagsmálum og verkefni
sósíalista.
Fundurinn hefst klukkan 20:30.
Framsögumenn á fundinum
verða Kjartan ólafsson, ritstjóri
og Ásgeir Danielsson, hag-
fræðingur.
Fundurinn er Öllum opinn.
Stjórn Alþýöubandalagsins i
Kjósarsýslu.
Alþýðubandalagið á Suðurlandi
Skemmtikvöld.
Alþýðubandalagið á Suðurlandi heldur skemmti-
kvöld i Selfossbiói laugardagskvöldið 21. Bestu
fáanleg skemmtiatriði og öndvegis dansmúsik
Fjölmennum og tökum með okkur gesti.
Skemmtinefndin
Herstöðvaandstæðingar—Vesturbæjarhópur
Fundur veröur haldinn i Tryggvagötu 10, kl. 20.30 mánudaginn 23.
janúar. Félagar eru hvattir til að mæta.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn i Lindarbæ n.k.
fimmtudag 26. janúar kl. 20.30. Lúövik Jóseps-
sonfjallar um þau málefni sem barist verður um
á næstunni. Nánar auglýst siðar. — Stjórnin. Lúðvík.
Af erlendum
Framhald af bls :s
rafmagnslaus. Sæmilega virkt
flutningakerfi er takmarkaö og
útlokar mjög fátæk héruð frá
mörkuöum. Tæknileg aðstoð er
aðallega veitt stórbændum og
rannsóknastarf tekur aöeins mið
af þörfum þeirra.
Hér við bætist, að meirihlutinn
af þeirri fjárfestingu sem er á
vegum einstaklinga fer til borga,
enda þótt 70-80% ibúanna búi i
landbúnaðarhéruðum.
Mælt með byltingu?
Skýrslu ILO lýkur á staðhæf-
ingu i þá veru, aö með þvi að ör-
birgð er fyrst og fremst tengd
stéttum eins og landlausu land-
búnaðarverkafólki, og hand-
verksmönnum i bæjum, þá hljóti
menn að skoða þessa örbirgð
sem afleiöingu samfélagskerfis,
sem byggir á misjöfnum aðgangi
að auðæfum og félagslegum úr-
ræðum hvers lands. Þetta er
mjög skriffinnskulegt orðalag:
meö öðrum orðum mætti segja
sem svo: efnahagslegt misrétti
einkaeignaréttar eykur bilið
milli ríkra og fátækra.
Skýrslan oröar einnig hug-
myndir sinar um lausn vandans á
mjög skriffinnskulegan hátt. Þar
segir sem svo: „Það þarf að
breyta skiptingu jarðnæöis og
auka möguleika hinna fátæku á
að taka þátt i ákvöröunum.” Ef
aö þetta ætti aö taka alvarlega,
þá jafngildir þetti formúla meö-
mælum með meiriháttar bylt-
ingu.
Tæknin ein orkar tvimælis.
Skýrsla ILO hlýtur að vekja
athygli vegna þess að hún er ólik
öðrum skýrslum frá aiþjóölegum
stofnunum. Þær eru venjulega
samdar á „hlutlausu” sérfræöi-
máli, sem helst má engan móöga,
Og oftast fjalla þær um útreikn-
inga á matvælaskorti. Skýrsla
ILO leggur aftur á móti sérstaka
áherslu á það, að ekki sé um
beinan matvælaskort i Asiu að
ræða — hann er I sjálfu sér ekki
ástæða örbirgðar. Skýrsla ILO er
og óbein gagnrýni á þær hug-
myndir sem fram komu i áætlun-
um um svokallaöa „Græna bylt-
ingu”. Græna byltingin lagði á
ráð um aukna framleiöni fyrir til-
stilli búvisinda og tækni. Skýrsla
Alþjóða vinnumálastofnunarinn-
ar lætur að þvi liggja að „Græna
byltingin” sé að þvi leyti blind-
gata, aö hún komi að mjög tak-
mörkuöum notum ef að ekki fara
á undan henni mjög róttækar
þjóðfélagslegar breytingar.
(áb byggði á Information)
Meiri
Framhald af bls. 10
frá þvi fyrir-'eldsumbrotin 1973.
Þaðfólk, sem flutt hefur til Eyja,
er á öðrum aldri en það fólk sem
áður bjó þar. Fækkað hefur i
flestöllum aldursflokkum beggja
kynja milli 35 ára og sextugs.
Sömuleiðis hefur fækkað i aldurs-
flokkunum 5—19 ára. Þetta eru
börn foreldra i eldri aldursflokk-
um. Fólk milli 20—34 ára er nú
u.þ.b. jafnmargt og það var fyrir
gosið. Sömu sögu er að segja um
flokk 0—4 ára. Þessi þróunsést
enn skýrar á linuriti um hlutfalls-
lega aldursskiptingu ibúanna.
Svo virðist þvi sem veruleg
fólksskipti hafi átt sér stað og
mun yngra fjölskyldufólk sest að i
i staðeldra, semflutt hefur alfarið i
land.
Þessar breytingar hafa haft i
för með sér hlutfallslega aukn-
ingu mannafla og ennfremur hef-
ur börnum á forskólaaldri fjölg-
að.
—eös.
Garðar
Framhald af bls. 9.
bryddaö á sliku á þessu fimm ára
timabili, en yfirgnæfandi meiri-
hluta Vestmannaeyinga var það
ljóst aðViölagasjóöur hafði tekjur
sinar af erlendu gjafafé, aðallega
annarsstaðar frá af Norðurlönd-
um og svo af skatti sem lagður
var á alla landsmenn. Okkur bar
þvi siðferðileg skylda til þess að
ráðstafa þessu fé með ýtrustu
hagkvæmni i huga, en það var
eins og ég sagöi áður óþarfi af
Seölabankanum að hafa starf-
semi Viðlagasjóðs að féþúfu.
Hvað varðar lærdómana sem af
þessu má draga er augljóst að
setja veröur einhverskonar verð-
tryggingarákvæði bóta I sam-
bandi viö viðlagatryggingu eins
og hún er nú ákveðin I lögum.
Enda þótt endurreisnarstarfið I
Neskaupstaö tæki mun skemmri
tima en i Vestmannaeyjum komu
þó upp svipuö vandamál þar
vegna þess að verðbólgan er fljót
að éta upp bæturnar.
Hinn mannlegi
þáttur
Hér hefur veriö dvaiiö nokkuö
viö hina peningalegu hliö
málanna, en aö lokum vlkur
Garöar Sigurösson aö atriöum
sem þegar öllu er á botninn hvolft
skipta meiru máli.
— Það má lengi þæfa þessi
peningamál en i umræðum um
þau sleppa menn gjarnan þvi sem
kalla mætti hinum mannlega
þætti. Austurhluti Vestmanna-
eyjabæjar verður ekki
grafinn upp og heimili þeirra sem
þar bjuggu, ungra sem aldinna,
verða aldrei endurreist. Þar er nú
eldfjall og hraun. Margt af þessu
fólki treystir sér ekki til þess aö
snúa heim á ný. Þykir eins og þvi
hafi veriö kippt upp meö rótum.
Og manni finnst það skritiö að
mæta ekki lengur á bryggjunum
eða á göngum um bæinn gömlum
formönnum og sjósóknurum og
öðru fólki — persónuleikum —
sem settu svip á bæjarlifið en eru
nú horfnir úr Eyjum.
Það er lika vert að minnast
þess aö fjölskyldur leystust upp
og tvistruðust I þvl umróti,
slæmum félagslegum aðstæöum
og húsnæðisskorti sem fylgdi I
kjölfar flutningsins til landsins
áriö 1973. Það er engin ástæða til
að vanmeta þau vandamál sem
þarna komu upp og áhrif þeirra.
Vestmannaeyjar verða aldrei
nákvæmlega það sem þær voru
fyrir gos. Mannlifið þar ekki
heldur. En það er öruggt að þar
er og veröur þróttmikiö bæjar-
félag, sem vonandi hefur til að
bera nægilega mikið af eðlis kost-
um og sérkennum Eyjalifsins
fyrir gos aö Vestmannaeyingar —
innfæddir og aðfluttir — geti þar
unað við sitt. — Einar Karl.
Götur
Framhald af bls. 1
langan tima vegna frosts og
snjóa.
Aö sögn Inga ti Magnússonar
gatnamálastjóra veröur nú þegar
hafist handa um viðgeröir, en
notað er sérstakt malbik til
bráðabirgðaviðgerða fyrir vetur-
inn. Það er svo ekki fyrr en i vor
aðhægt er að framkvæma varan-
Jega viðgerð.
Ingi sagði aö i sjálfu sér væru
göturnar ekki verr farnar nú en
oft áður, heldur bæri meira á
skemmdunum nú vegna þess
að engar viðgerðir hefði verið
hægt að framkvæma frá þvi i
haust vegna veðurs.
Gatnamálastjóri sagði að talið
væriaðum 70% bifreiða IReykja-
vik í dag væru á nagladekkjum og
hefði notkun nagladekkja aukist
frá þvi' sem var fyrst I vetur
vegna hálkunnar undanfarnar-
vikur, en þó væru færri bifreiöar
á negldum hjólbörðum nú en var I
hitteð fyrra. Sem kunnugt er hef-
ur gatnamálastjóri haldið þvi
fram að nagladekk væru helsta
orsökin fyrir þvi hve illa malbik-
uðu göturnar fara yfir veturinn.
Telur hann að naglarnir sliti svo
slitlagi malbiksins aö vatn eigi
greiðari leið undir malbikið og
sprengi þaö siðan þegar frystir.
Ljóst er að starfsmenn Gatna-
máladeildar borgarinnar eiga
mikiö verk fyrir höndum næstu
daga ef viðrar til viðgerða á
götunum —Sdór.
Almenn
Framhald af bls. li
verið um almenna „viöskipta-
reglu” að ræða. íslensk gjald-
eyrisyfirvöld hafa sent tvö þess-
ara mála til saksóknara, og i báð-
um tilfellum var um að ræða að
gerðir höfðu verið tvennir samn-
ingar um skipakaupin, annar upp
á raunvirð^en hinn upp á allmikið
hærri upphæð. Sá siðarnefndi sem
sýndur var islenskum yfirvöldum
varsamkvæmt islenskum reglum
brot gegn lögum um gjaldeyris-
yfirfærslur.
Skattrannsóknastjóri upplýsti
einnig I viðtali við útvarpið i gær
að i athugun væri á vegum hans
embættis hvort þessir fjármunir
hefðu raunverulega verið notaðir
til viðbótarútbúnaðar á skipin eða
i einkaþágu þeirra Islensku aðila
sem skipin keyptu.
Ljóst er af þessum fréttum aö
#ÞJÓÐLEIKHÚStfl
STALÍN ER EKKI HÉR
i kvöld kl. 20. — Uppselt
miðvikudag kl. 20
HNOTUBRJÓTURINN
sunnudag kl. 15 (kl. 3)
Slðasta sinn.
TÝNDA TESKEIÐIN
sunnudag kl. 20. Uppselt
ÖSKUBUSKA
frumsýning þriðjudag kl. 18.
Litla sviöið:
FRÖKEN MARGRÉT
sunnudag kl. 20.30
þriðjudag kl. 20.30
Miöasala 13.15-20. simi 1-1200
rannsaka þarf þessa „almennu
viðskiptahætti i skipakaupum” i
heild sinni, og hafa skattrann-
sóknastjóri og gjaldeyriseftirlitið
sent starfsmenn til Noregs i þvi
skyni,að sögn útvarpsins.
—ekh
Mikil
þensla
í vopna-
sölu
WASHINGTON Reuter —
Bandariska varnarmálaráðu-
neytið áætlar að á þessu ári muni
Bandarikin flytja út vopn fyrir
13.2 miljarða dollara, eða hærri
fjárhæð en nokkru sinni fyrr, og
hefur Carter forseti þó kunngert
að hann vilji draga úr vopnaút-
flutningi. Hér er um aö ræða
tveggja miljaröa hækkun frá sið-
astliðnu ári. Að auki spáir Penta-
gon þvi, að vopnaútflutningurinn
muni halda áfram að aukast 1979
og verði þá seld úr landi vopn fyr-
ir 13.6 miljarða dollara.
leikfElag 22
REYKJAVlKUR “ ^
SKJALDHAMRAR
I kvöld . Uppselt.
Fimmtudag kl. 20.30.
SKALD-RÓSA
Sunnudag. Uppselt.
Miövikudag. Uppselt.
Föstudag kl. 20.30.
SAUMASTOFAN
Þriðjudag. Uppselt.
Miðasala I Iðnó kl. 14—20.30.
Sfmi: 16620.
BLESSAÐ BARNALAN
Miðnætursýning
i Austurbæjarbiói
i kvöld kl. 23.30.
Miðasala I Austurbæjarbiói kl.
16—23.30. Slmi 1-13-84.
Kópavogs-
leikhúsið
Barnaleikritiö
Snæ-
drottningin
Sýning i Félagsheimili Kópa-
vogs á morgun kl. 15.00
Fáar sýningar eftir. Aðgöngu-.
miðar I Skiptistöö SVK við
Digranesbrú s. 44115 og i Félh.
Kóp. sýningardaga kl. 13.00-
15.00 S. 41985.
Bóndinn og smiðurinn í Bóhúsléni
Syngur þjóðlög
í Norræna húsinu
Sænski bóndinn, smiðurinn og
þjóðlagasöngvarinn Martin
Martinsson (f. 1913) syngur i
samkomusal Norræna hússins
sunnudaginn 22. jan. 1978 kl. 16.00.
Martin Martinsson er, svo sem
forfeður hans, smiður og bóndi i
Bóhúsléni, og er mest af þvi efni
er hann flytur, þaðan. Martin
Martinsson lumar á ógrynni
gamalla og nýrra þjóðlegra ljóða
og laga, og hefur margt af þvi nú
verið fest á segulbönd og hljóm-
plötur. Sjálfur leikur hann ekki á
fiðlu, en trallar _dansana, sem
hann heyrði spilamennina i
heimabyggð sinni leika á upp-
vaxtarárum sinum.
Metaðsókn
Aðsókn hefur veriö meö ein-
dæmum góð að Þjóöleikhúsinu I
vetur og oftast sýnt fyrir fullu
húsi. NIu verk hafa veriö á fjölun-
um, ýmist á stóra sviðinu, litla
sviðinu, I skólum eða i leikför og
nú um helgina bætist hiö tíunda
við, barnaleikritiö öskubuska.
AIls eru sýningar orðnar 125 það
sem af er leikárinu og tala
sýningagesta orðin um 45 þús-
undir.
Þjóöleikhúsiðfrumsýndi i haust
þrjú ný islensk verk og hefur það
aldrei gerst áður í sögu þess á
einu og sama hausti. öll þessi
leikrit hafa fengið hinar bestu
viðtökur og eru sýnd nánast fyrir
fullu húsi. Týnda teskeiðin eftir
Kjartan Ragnarsson var frum-
sýnd I september og hefur til
þessa verið sýnd 26 sinnum:
Grænjaxlar, hópvinnuverk
Péturs Gunnarssonar og Spil-
verks þjóðanna hafa veriö sýndir
29 sinnum aðaliega i skólum og
liggur annað eins fyrir af pöntun-
um. Þá er leikritið Stalln er ekki
hér eftir Véstein Lúðviksson, sem
frumsýntvar siöarihluta nóvem-
ber: tiu sýningar eru komnar á
Stalin og alltaf uppselt.
Auk þessara nýju leikrita voru
nokkrarsýningar á Gullna hliðinu
ihaustoghafðiþaöþá veriösýnti
eitt ár samfellt, yfir 50 sinnum.
Samtals hafa tæpl. 30 þúsund
leikhúsgestir séö þessi islensku
verk i haust eða nánar tiltekið
29.933.
Uppselt hefur verið á allar
sýningar á Fröken Margréti, sem
sýnd hefur verið á litla sviðinu
siðan i haust. Þá var Nótt ást-
meyjanna sýnd 13 sinnum i leik-
för, Dýrin i Hálsaskógi 9 sinnum á
stóra sviðinu. Sýningum á Hnotu-
brjótnum lýkur nú um helgina
vegna brottfarar gesta-dansar-
anna af landinu: sýningar verða
þá orðnar samtals 14 og tala
sýningargesta trúlega oröin hærri
en aðnokkurri listdanssýningu til
þessa.
Eins og áður segir verður
barnaleikritið öskubuska frum-
sýnt nú á þriðjudagskvöld. Æfing-
ar standa yfir á einu af stórverk-
um heimsbókmenntanna, Odipús
konungieftir Sófokles i islenskum
búningi Helga Hálfdanarsonar og
gamanleiknum A sama tima að
ári eftir Bernard Slade, sem
frumsýndur verður utan Reykja-
vikur. Frumsýningin átti aö vera
fyrir hátiðir en frestaðaðist vegna
verkfalls BSRB. Og svo eru að
hefjast æfingar á Kátu ekkjunni
eftir Léhar. Frumsýning er fyrir-
huguð 22. mars.