Þjóðviljinn - 21.01.1978, Síða 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. janftar 1978
--- ----- " " 1 --------- II-------
Atvinnusjúkdómar
og umhverfisvernd
á vinnustöðum
Svo nefnist allmerkileg-
ur greinaf lokkur í nýút-
komnu hefti Vinnunnar,
timariti ASI og MFA. Hér
er um að ræða 3.-4.hefti árg.
1977 í einu blaði. I þessum
greinaflokki er viðtal við
tvo starfsmenn Heilbrigð-
iseftirlits ríkisins, þá
Hrafn Friðriksson, for-
stöðumann, og Eyjólf Sæ-
mundsson, efnaverkfræð-
ing. Einnig eru viðtöl við
tvo unga menn sem hafa
orðið að láta af vinnu
vegna atvinnusjúkdóms,
og sagt frá heimsókn í
Aburðarverksmiðjuna í
Gufunesi og f Álverið í
Straumsvik.
Samkvæmt þvi sem kemur
fram i þessum greinum virðist
eftirliti meö vinnustöðum og
heilsufari starfsmanna yfirleitt
vera mjög ábótavant. Til dæmis
eru læknisskoðanir starfsmanna
hinna ýmsu fyrirtækja bæöi
sjaldgæfar og skipulagslausar, og
hafa ekki verið markvisst notað-
ar til þess að koma á skipulögöu
eftirliti með heilsufari þeirra.
Þannig eru heldur ekki til neinar
upplýsingar, svo nokkru nemi,
um þau tilfelli þegar menn veröa
aö láta af störfum vegna þess aö
þeir þola ekki vinnuna af heilsu-
farsástæðum, og slikt er ekkert
einsdæmi.
Hér á eftir fara nokkur atriöi
sem tekin eru úr viðtali Vinnunn-
ar við þá Hrafn og Eyjólf.
Það eru einkum tvær opinberar
stofnanir sem ætlað er að hafa
eftirlit meö þessum málum, Heil-
brigðiseftirlit rikisins og öryggis-
eftirlit rikisins.
Heilbrigðis-
eftirlitið
Heilbrigöiseftirlitið var sett á
stofn samkvæmt lögum nr. 12 frá
1969 og tók til starfa i ársbyrjun
1970. Það á að hafa yfirumsjón
með heilbrigðiseftirliti á landinu
öllu, undir stjórn landlæknis.
Viöfangsefnum Heilbrigðiseft-
irlits rikisins má siöan skipta i
fjóra flokka:
1. Mengunarmál, umhverfis-
mengun.
2. Hefðbundið eftirlit með holl-
ustu matvæla.
3. Eftirlit með gisti- og veitinga-
stöðum um land allt.
4. Atvinnusjúkdómar.
Skipulagi heilbrigðiseftirlitsins
um landiö er þannig háttaö, að
eftir hverjar sveitarstjórnar-
m
Myndirnar hér fyrir ofan sýna rykiö sem liggur eins og nýfallin mjöll
yfir öllu I blöndunarverksmiðjunni.
Úr ammoniakverksmiðju.
kosningar ber hverju sveitarfé-
lagi að kjósa sér heilbrigðisnefnd,
sem siðan ber ábyrgð á heilbrigð-
iseftirlitinu i héraðinu. Auk þess
skal vera sérlegur heilbrigðisfull-
trúi i þéttbýli með 800 — 10.000
ibúa, og sérmenntaður heiibrigö-
isfulltrúi I þéttbýli meö yfir 10.000
ibúa.
Nokkur misbrestur hefur oröiö
á þvi,að sveitarfélög kysu þessar
heilbrigðisnefndir. Samkvæmt
könnun sem nýlega var gerð hjá
Heilbrigðiseftirlitinu voru 83
sveitartélög af 224 ekki enn búin
að kjósa sér nefnd.
öryggiseftirlitið
öryggiseftirlit rfkisins á, sam-
kvæmt lögum frá 1952 um örygg-
isráðstafanir á vinnustöðum, að
hafa eftirlit með vinnustöðum,
aðbúnaði og öryggi. Þessi lög ná
þó ekki nema til tiltölulega litils
hluta hinnar vinnandi þjóðar.
Undanþegnar lögunum eru sigl-
ingar, fiskveiðar og aðrar veiöar.
Einnig loftferðir, vinna i einka-
ibúö atvinnurekanda, svo og al-
mennur búrekstur og almenn
skrifstofuvinna. Af þessu má ljóst
vera að aðeins litill hluti vinnandi
manna er undir öryggiseftirliti
rikisins.
Atvinnusjúkdómar
Árið 1956 var gefin út reglugerð
um skráningu og tilkynningu at-
vinnusjúkdóma, þar sem kveðið
er á um að tilkynna skuli slika
sjúkdóma til viðkomandi héraðs-
læknis, sem siðan á að tilkynna þá
öryggiseftirliti rikisins. 1 þessari
reglugerð eru atvinnusjúkdómar
skilgreindir á eftirfarandi hátt,
en um skilgreiningu á þeim hefur
töluvert verið deilt, að sögn
þeirra Hrafns og Eyjólfs:
„Atvinnusjúkdómar eru sjúk-
dómar sem eiga beint eða óbeint
rætur að rekja til óhollustu i sam-
bandi við atvinnu manna, hvort
heldur er vegna eðlis atvinnunn-
ar, tilhögun vinnu eöa aðbúnaðar
á vinnustað. Einkum koma hér til
greina bæklunar-, bilunar-, eitr-
unar- og ofnæmiskvillar. Meö at-
vinnusjúkdómum skal telja
Framhald á næstu siðu
Ráðinn ritstjóri Vinnunnar
Nýlega var Haukur
Már Haraldsson ráðinn
ritstjóri Vinnunnar, í
hálfu starfi. Haukur er
ekki með öllu ókunnur
þessum störfum, því
hann hefur haft umsjón
með útgáfu blaðsins allt
síðasta ár.
Meiningin er að reyna að gera
Vinnuna aö vettvangi fyrir
lifandi umræðu og skoðana-
skipti, i stað þess skýrsluforms
sem hún hefur allt of mikið ver-
iö I, sagði Haukur þegar viö
spuröum hann um fyrirhugaðar
framkvæmdir við útgáfuna. Út-
gáfan hefur hingað til verið of
gloppótt, þannig að stundum
hefur liöiö allt of langur timi á
milli útkomu blaðanna. En slikt
má að sjálfsögðu ekki gerast ef
blaöið á að geta verið virkur
miðill og umræðuvettvangur.
Þó segja megi að bæði
Þjóöviljinn og Alþýðublaðiö geri
flestum málum, sem snerta
hagsmuni verkalýðsins, yfirleitt
ágæt skil, þá geta þau aldrei
komiö I staö fagtimarits, eins og
Vinnunni er ætlað að vera. I
sliku riti gefst kostur á að kryfja
málin betur til mergjar og gera
þeim ýtarlegri skil en dagblöð-
in sem slik hafa möguleika á aö
gera.
En forsendan fyrir þv^að unnt
sé að gefa út gott blað er að
sjálfsögðu álitlegur hópur kaup-
enda. Það nær ekki nokkurri átt
og er reyndar rammasta
hneyksli að timarit svo
fjölmennra samtaka sem
Alþýðusambands Islands skuli
ekki vera útbreiddara en raun
ber vitni. Hingað til hefur Vinn-
an aöeins verið gefin út- i 3000
eintaka upplagi en félagatala
ASI er um 50 þúsund.
Flest verkalýðsfélögin kaupa
blaðið fyrir stjórn og trúnaðar-
mannaráð.en aöeins tvö félög á
landinu hafa keypt það fyrir alla
félagana, það eru félögin I
Borgarnesi og á Raufarhöfn.
Þetta stendur vonandi til bóta
með útbreiðsluna, þvi við höfum
nú I sambandi við þessa ráön-
ingu mlna hafist handa um
útbreiðsluherferð. Þegar er bú-
ið að senda öllum verkalýðs-
félögunum út um landið bréf i
þessu augnamiði og viö verðum
bara að vona að undirtektir
verði góðar. Það veltur allt á
félögunum og hinum almenna
félagsmanni hvernig til tekst.
Auk þessara bréfaskrifta höf-
um við ráðist i útgáfu upplýs-
ingabæklings eða pésa, sem
veröur látinn liggja frammi á
vinnustöðum og I bóksölum, en
Vinnan mun nú I fyrsta sinn
verða sett I lausasölu i bóka-
verslunum.
Á þessu ári munu svo koma út
sex hefti af blaðinu i stað
fjögurra áður. Þau munu koma
út á 2ja mánaða fresti. Hvert
hefti verður a.m.k. 24 siður og
er almennt áskriftargjald
aðeins 2000 krónur á ári. Félög
sem kaupa 100 eintök eða fleiri
geta fengið árganginn á 1200
krónur. Einnig er hægt að fá
siðustu tvo árganga, 7 hefti.fyrir
1500 krónur og 1200 krónur ef
keypt eru 100 eða fleiri eintök. 1
lausasölu veröur hvert hefti selt
á 450 krónur.
I næstu blöðum hef ég hugsaö
mér að halda áfram meö þá út-
tekt á vinnuskilyröum sem
byrjað var á í siðasta blaði, og
mun þá hugsanlega verða fjall-
að um Sementsverksmiðjuna á
Akranesi og Kisiliöjuna við
Mývatn. Auk þess veröur fjallað
um ýmis fleiri raunhæf málefni.
Ég vil endilega itreka beiðni
mina til lesenda um ábendingar
og vitneskju um atvinnusjúk-
dóma og vinnuvernd. Það er
töluvert um það að menn hætta
störfum án þess að gefa upp þá
staöreynd að þeir hafa ekki þol-
Haukur Már Haraldason.
að starfið. 011 vitneskja þar að J
lútandi væri vel þegin, sagði |
Haukur að lokum. ■
—IGG. |