Þjóðviljinn - 21.01.1978, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 21.01.1978, Qupperneq 20
DWÐVIUINN Laugardagur 21. janúar 1978 Dr. Svanur Kristjánsson Dr. Þórólfur Þórlindsson. Tveir nýir doktorar í félagsfræði og stjórnmálafræði í frétt frá Félagsvís- indadeild Háskóla (slands er greint frá því, að tveir kennarar í þjóðfélags- fræðum við deildina hafi nýlega lokið doktorsprófi frá háskólum í Bandaríkj- unum. — Dr. Svanur Kristjánsson, lektor, lauk doktorsprófi í stjórnmála- fræði frá lllinois-'háskóla og dr. Þórólfur Þorlinds- son, lektor, lauk doktors- prófi í félagsfræði frá lowa-háskóla. DoktorsritgerB Svans fjallar um þróun stjórnmála á Islandi frá þvi aö stóttaátök fóru aö hafa veruleg áhrif á stjórnmálabarátt- una,þar til lýftveldið var stofnaö. Hluti af rannsóknum Svans vegna ritgeröarinnar hefur áöur komiö út i ritröðinni Islensk þjóöfélags- fræöi sem Félagsvisindadeild gefur út I samvinnu við Bókaút- gáfuna Orn og örlyg. Nefndist ritiö: „tslensk verkalýöshreyfing 1920—1930”, A vegum sömu aðila mun innan tlöar veröa gefiö út annaö rit sem fjallar um Sjálf- stæöisflokkinn 1929—1944 og byggir þaö einnig á doktorsrit- gerö Svans. Doktorsritgerö Þórólfs Þórlindssonar fjallar um áhrif búsetu, stéttar og fjölskyldu á skilning 15 ára barna á félagsleg- um samskiptum, á málnotkun þeirra og siöferöismat. Jafnframt er fjallaö um innbyröis tengsl þessara þátta á grundvelli ýmissa kenninga um þau efni. 1 niöurstöðum ritgeröarinnar kemur meöal annars fram aö áhrif búsetu og stéttar hefur ekki mikil áhrif i þessu sambandi, en áhrif fjölskyldugeröarinnar er ótviræð á málnotkun, siöferöis- mat og skilning barna á félags- legum samskiptum. Dr. Þórólfur hefur siöustu tvö ár gegnt lektorsstarfi i félags- fræöi viö Háskóla Islands. — ekh. Aöalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins I þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. L 81333 Einnig skal bent á heima- slma starfsmanna undir nafni Þjóöviljans I slma- skrá. SAMTÖK TIL VERNDAR HVALASTOFNINUM Ætla að trufla hvalveiðar íslendinga Samtökin eru búin að kaupa skip sem þau ætla að nota í þessu skyni í timaritinu „Commercial fishing” er skýrt frá þvi að samtökin „Green Peace” sem eru alþjóð- leg samtök er berjast gegn sela- og hvaladrápi og hafa gert mikið af þvi að trufla hvalveiðar Sovétmanna og Japana i Kyrrahafinu, hafi keypt gamlan rannsóknartogara frá Aberdeen og hyggist nota hann til að trufla hvalveiðar Islend- inga næsta sumar. Rannsóknartogari þessi heitir „Sir William Hardy” og er orð- inn nokkuð gamall siðutogari, sem notaður hefur verið til fiskirannsókna. En nú er nýr og stærri togari kominn I staö hans og friðarhreyfingin hefur keypt þann gamla. „Green Peace” heldur þvi fram að hvalastofninn sé of- veiddur, bæði hér við land og annarsstaðar. Flestir eru á öðru máli um hvalastofninn hér við land og telja fráleitt að hann sé ofveiddur. „Green Peace” menn halda þvi hinsvegar fram að við íslendingar séum aö ganga af skiðishvalnum dauö- um og munu þau einkum beita sér gegn veiðum á honum hér við land. Aðferð þeirra skipa sem „Green Peace” gerir út til aö trufla hvalaveiðar, er sú, aö vera alltaf eins nærri hvalföng- urunum og kostur er, sigla fyrir framan þá, styggja hvalina o.sv. frv. Það gæti þvi auð- sjáanlega dregið til tiöinda á hvalveiðimiðunum hér viö land næsta sumar. —S.dór „Sir Wiiliam Hardy” fyrrum rannsóknatogari frá Aberdeen, sem samtökin „Green Peace” hafa keypt og ætla aðnota næsta sumar til aö trufla hvalveiöar hér við land. ... og hér er svo islenskur hvalfangari á leið til lands með tvo hvali á siðunni. ■ I ■ I ■ I ■ 1 2 ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i ■ i i ■ i ■ i i ■ i ■ i ■ ■ SMJÖRÚTSALAN Enginn fylgist með birgðasöfnun verslana sem geta selt útsölusmjörið á hærra verði þegar útsölunni lýkur Það er svo sem ekkert nýtt fyrirbrigði hér á landi, þegar ihaldsstjórn er við völd, að versluninni séu færðar krónurnar á siifurfati. Þó munu sjaldan hafa verið opnaðir aðrir eins möguleikar fyrir ný- lenduvöruverslunina til að ná sér i auka-krónur, eins með þeirri furðulegu aðferð sem notuð er til að selja smjör þessa dagana. Nær allar nýlenduvöruverslanir hafa núorðiö stóra og góða kæli- klefa. Allt I einu er smjör lækkaö um 30 til 50% hjá Osta- og smjör- sölunni. Sú verðlækkun áaðgilda i stuttan tima, annaö hvort ákveöinn dagafjölda, eða meðan selt er ákveðið magn af smjöri. Þar meö er kaupmönnum gert kleift aö fylla kæliklefa sina af smjöri keyptu á þessu ódýra veröi, geyma það þar til veröið hækkar aftur að útsölunni lokinni og selja þaö þá á 30 til 50% hærra verði. Samkvæmt upplýsingum sem við fengum hjá verölagseftirlit- inu, er enginn aðili sem fylgist meö þvi að kaupmenn leiki þetta ekki og aö sögn útilokað að fram- kvæma slikt eftirlit. Það verður bara að treysta á heiðarleika kaupmanna. Hjá Osta-og smjörsölunni feng- um viö þær upplýsingar, aö ekki væri mögulegt að merkja útsölu- smjörið neitt sérstaklega, þegar svo skyndilega er gripið til útsöl- unnar. öskar Gunnarsson for- stjóri Osta- og smjörsölunnar sagði, að þeir hefðu reynt að finna allar hugsanlegar leiðir til aö merkja smjörið, sem nú er selt svona ódýrt, en ekki fundið neitt efni til að merkja meö, sem ekki væri auöveldlega hægt að þurrka af. Óskar sagöi aö sl. fimmtudags- kvöld hefði verið búið að selja nærri 50 tonn af smjöri frá þvi aö útsalan hófst. —S.dór Sundlaug við Grensúsdeildina: Alger ómsa um framkvæmdir Ríki og borg setja hvort öðru skilyrði Eftir afgreiðslu fjárhagsáætlunar Reykjavikur- borgar fyrir árið 1978 rikir enn jafnmikil óvissa um byggingu sundlaugar við Grensásdeildina, en eins og kunnugt er veitti rikisstjórnin 20 miljónum til þeirrar byggingar á fjárlögum 1978 EF framlag jafnhátt kæmi annars staðar frá. Fyrir afgreiöslu fjárhagsáætl- unar borgarinnar lágu tillögur um 20 miljóna króna fjárveitingu I þessu skyni frá borgarfulltrúum Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks, sem fulltrúar Sjálfstæðis- flokks vildu ekki gera aö sinum. ÁÖur en til atkvæðagreiðslu kom, flutti borgarstjóri breytingartillögu þess efnis, að borgin veitti 20 miljónirnar EF samningar tækjust við ríkiö um að það greiddi sinn hlut (lögbund- in 85% af stofnkostnaði) jafnhratt og byggt yrði. Var þessi tillaga borgarstjóra siðan samþykkt. Mikil eftirvænting var rikjandi um afdrif þessarar tillögu og kom allmargt starfsfólk til að fylgjast með framvindu mála. Flestir urðu þó frá að hverfa, enda lauk fundinum ekki fyrr en á fimmta timanum um nóttina. -AI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.