Þjóðviljinn - 26.01.1978, Síða 1
UOBVIUINN
Fimmtudagur 26. janúar 1978 —43. árg. 21. tbl.
Nýtt
fiskverð
13% almenn
hækkun
Verð á einstökum verðflokkum ligg■
ur ekki fyrir fyrr en verðjöfnunar-
sjóður hefur fjallað um málið
Jón Sigurösson
Eftir erfiöar fæöingar-
hríðir hefur nýtt almennt
fiskverð séð dagsins Ijós,
það fæddist rétt eftir há-
degið i gær og er þar um að
ræða 13% hækkun. Sem
kunnugt er hafa fiskkaup-
endur talið sig vanmegn-
uga að taka á sig nokkra
fiskverðshækkun og hafa
vísað til ríkisstjórnarinnar
um lausn vandans. Form-
lega heitir það að vísa
lausn málsins til Verðjöfn-
unarsjóðs, en hann er gal-
tómur og þvi er það ríkis-
stjórnin sem leysa á vand-
ann. Og það er ekki fyrr en
ráðstafanir ríkisstjórnar-
innar liggja fyrir að fisk-
verð hinna einstöku verð-
flokka, liggur fyrir.
Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar og oddamaður i
yfirnefndinni, sem ákvað fisk-
verðið, sagði i gær að nefndar-
menn hefðu orðið sammála um að
birta ekki verðið i hinum ýmsu
verðflokkum, fyrr en niðurstaða
Verðjöfnunarsjóðs lægi fyrir. En
hér fer á eftir fréttatilkynning
sú, sem Þjóðviljanum barst í gær
frá yfirnefndinni.
,,A fundi yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins i dag var
ákveðiö nýtt, almennt fiskverö
frá X. janúar 1978 til 31. mai 1978.
Akvörðunin felur i sér 13% al-
menna hækkun fiskverðs. Jafn-
framt var aukinn verðmunur á
slægöri ýsu og óslægöri og slægö-
um ufsa og óslægðum. Þá var
ákveöiö aö greiða skuli sérstakan
verðauka i stórufsa i 1. gæöa-
flokki timabilið 1. janúar tii 28.
febrúar. Nefndarmenn voru sam-
mála um að auka verömun á
slægöum fiski og óslægðum fyrir
framangreindar fisktegundir og
samþykkt var mótaatkvæöalaust
að greiöa skuli veröauka á stór-
ufsa i 1. flokki fyrstu tvo mánuöi
ársins. Verðið i heiid var hins
vegar ákveöiö meö atkvæðum
seljenda, þ.e. sjómanna og út-
vegsmanna, og oddamanns gegn
atkvæðum kaupenda.”
—S.dór
KRISTJÁN RAGNARSSON FORMAÐUR LÍU;
unað við þetta
Getum
„Þegar maður hefur greitt at-
kvæöi meö einhverju, veröur
maöur vist aö segja aö maöur sé
ánægöur, sæmilega ánægöur aö
minnsta kosti” sagöi Kristján
Ragnarsson, formaöur Lands-
sambands islenskra útvegs-
manna er viö ræddum viö hann I
gær eftir að nýtt fiskverö haföi
veriö ákveðiö, en Kristján átti
sæti I yfirnefndinni fyrir hönd
fiskseljenda, ásamt Ingólfi
Ingólfssyni, forseta Farmanna-
og Fiskimannasambands tslands.
Kristján sagði, að eins og
málum hefði verið komið, teldi
hann að þetta væri það mesta sem
hægt hefði verið að fá fram, 13%
hækkunin. Hann sagði ennfremur
að fiskseljendur, þ.e. útgeröar-
menn og sjómenn, hefðu heldur
viljað ákveða veröið sjálfir,
heldur en neita þessu veröi og
láta einhverja aðra aðila ákveða
verðið og þá kannski mun lægra
en það er nú. Þetta hafi þvi verið
skársti kosturinn, þegar allt
kemur til alls.
Kristján benti á að þeim vanda
sem við væri að glima hjá fisk-
Skýlaust mat yfirvalda:
Þorbjörn
FjaUaðum
kosninga-
málin
Alþýöubandaiagið i
Reykjavik efnir til félags-
fundar I kvöld. Fundurinn
verður haldinn i Lindarbæ og
hefst hann klukkan 20.30,
hálfniu.
A fundinum veröpr fjallað
um helstu málefni kosninga-
baráttunnar sem í hönd fer.
Lúðvik Jósepsson formaður.
Alþýðubandalagsins og Þor-
björn Broddason borgarfull-
trúi hafa framsögu á fund-
inum.
Stjórn félagsins i
Reykjavik hefur beðiö
Þjóðviljann um að koma
þeirri áskorun á framfæri
við félagsmenn að fjölmenna
á fyrsta iélagsfundinn eftir
áramót. Fundurinn hefst
klukkan hálfniu annað kvöld.
Kristján Ragnarsson
kaupendum, væri velt yfir til
Verðjöfnunarsjóðs, sem Kristján
sagöi að væri tómur og ekki
kvaðst hann vita hvernig rikis-
stjórnin ætlaði að leysa þann
vanda.
—S.dór
Lokun
stúdenta-
garða
frestað
„Ég býst frekar við að
fyrirhugaðri lokun
stúdentagarðanna 1.
febrúar verði a.m.k. eitt-
hvað slegið á fest", sagði
Jóhann Scheving, fram-
kvæmdastjóri Félags-
stofnunar stúdenta
aðspurður um hvernig
þessi mál stæðu.
Nefndin sem skipuð var til að
gera úttekt á nauðsynlegum við-
gerðarkostnaði er búin að koma
saman og úttektin er i fullum
gangi. Það hefur verið rætt um
leiðir til að f jármagna þetta og ég
er bjartsýnn á að þar sé nokkur
alvara á ferðum, sagði Jóhann.
Eins og landið liggur núna virðist
þvi sem það verði beðið með að
loka um óákveðinn tima eða
hugsanlega aö önnur dagsetning
verði ákvörðuð. Annars verður
stjórnarfundur Félagsstofnunar
haldinn n.k. mánudag þar sem
þessi mál verða rædd frekar og
tekin endanleg ákvöröun um hvað
gera skuli, sagöi Jóhann. —IGG
HM í handbolta
Janus
stjórnar
ekki
Það er nú Ijóst að hinn
pólski landsliðsþjálfari
Janus Cherwinzky kom til
Danmerkur sem persónu-
legur vinur islensku lands-
liðspiltanna en ekki til að
stjórna liðinu eins og
áformað var. Verður að
telja þetta mikið áfall fyrir
landsliðið því menn bundu
miklar vonir við hæfileika
Janusar og koma hans til
Danmerkur myndi stappa
stálir.u i islenska landsliðs-
hópinn.
HM-fréttir frá
GSP á síöu 11
og 12
l
Ekki tryggt að umboðslaun skili sér
Samkvæmt upplýsingum gjald-
eyriseftirlits Seölabanka íslands
námu heildarskil umboöslauna af
innflutningi á árinu 1976 2. 517
milljónum króna frá milli 1 og 2
þúsund aöilum. Jafnframt lýsir
gjaldeyriseftirlitiö yfir þvl ský-
lausa mati slnu, aö þaö sé á engan
hátt tryggt aö umboöslaun skili
sér i islenska gjaldeyrisbanka.
Þessi atriði koma fram i
greinargerð með þingsálykt-
unartillögu sem Magnús
Kjartansson lagði fram á Alþingi
Magnús Kjartansson leggur til að umboðslaunakerfið
hjá ÁTVR verði lagt niður
i gær um innflutning á áfengi og
tóbaki en tillaga Magnúsar er
svohljóðand:.
„Alþingi ályktar að fela fjár-
málaráðherra að mæla svo fyrir
við Afengis- og tóbaksverslun
rikisins, að engum áfengis- og tó-
baksheildsölum verði heimilað aö
hafa islenska erindreka i þjón-
ustu sinni. Geri einhverjir
áfengis- og tóbakssalar það
aðskilyrði fyrir viðskiptum við
ATVR að fá að hafa slika erin-
dreka hérlendis, verði viðskiptum
við þá aðila hafnað.”
1 lok greinargerð sinnar segir
Magnús:
„Augljóst er að hér er þörf bæði
rannsóknar og nýs fyrirkomulags
sem komi i veg fyrir gjaldeyris-
þjófnaö. Að undanförnu hafa birst
staðreyndir sem sanna aö is-
lenskir aðilar eiga ólöglega feng-
inn gjaldeyri i bönkum á Norður-
löndum einum, svo aö nemur
milljörðum króna. Þennan gjald-
eyrisþjófnað þarf að rannsaka I
heild og til fullkominar hlitar og
setja löggjöf sem komi i veg fyrir
slikt athæfi. Með þessari tillögu
er gert ráð fyrir að komiö verði i
veg fyrir gjaldeyrisþjófnað i
sambandi viö innflutning á áfengi
og tóbaki, enda á þar að vera
hægast um vik þar sem um rikis-
einkasölu er að ræða.”
Nánari er sagt frá greinargerð-
inni á þingsiðu blaðsins.