Þjóðviljinn - 26.01.1978, Qupperneq 11
Fimmtudagur 26. janúar 1978. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Gunnar Steinn
skrifar frá HM
Einar Karlsson
Ijósm yndari
— En er mættur til Danmerkur sem ráðgjafi og
persónulegur vinur. Hann var ekki skráður á bekkinn
Nú er það orðið Ijóst að
Janus Chervinzky mun
ekki stjórna landsliðinu í
Heimsmeistarakeppninni í
Danmörku. Upplýsti Birgir
Björnsson það á blaða-
mannafundi hér i Árósum i
dag. Sagði Birgir að Janus
kæmi til Danmerkur
aðeins sem persónulegur
vinur landsliðsstrákanna
og einnig sem tæknilegur
ráðgjafi. Er Islendingar
tilkynntu fjóra menn á
bekkinn í gær var Janus
ekki þar á meðal. Er það
gert samkvæmt eindregn-
um óskum Janusar, sem
vildi undir engum kring-
umstæðum láta bendla sig
opinberlega við Islenska
landsliðið. Engar frekari
skýringar hef ur Janus gef-
ið en hver og einn verður
að spá í það sjálfur hvers
vegna hann hefur orðið að
fresta komu sinni til Is-
lands trekk í trekk.
Birgir Björnsson mun því
trúlega stjórna liðinu hér
eftir þessi tfðindi, en trú-
lega verður Janus ekki
langt frá bekknum þótt
hann hafi ekki verið til-
kynntur sem einn af fjór-
um forráðamönnum sem
sitja á varamannabekkj-
um.
Símamynd frá Noregi: Þessa mynd tók Einar Karlsson ljósmyndari Þjóöviljans i Noregi af æfingunni hjá landslióinu undir stjórn Janusar f
gærmorgun. Auk Janusar sjást þeir Arni, Janus og Þorbjörn. Ljósm. eik.
Heljarmenni í hverri
stöðu sovéska liðsins
— En íslendingarnir eru vel hvíldir og ætla að leika
til vinnings að venju
I dag hefst heimsmeistara-
keppnin i handknattleik og strax
að loknum leik Dana og Spán-
verja leika íslendingar gegn
Sovétmönnum sem margir spá
gullverðlaunum hér að þessu
sinni.
Óhætt er að segja að heljar-
menni séu i hverri stöðu sovéska
liðsins þvi á upptalningu leik-
manna má sjá að þeir eru ekki
aðeins háir heldur einnig þétt-
vaxnir. Margir kunnir handknatt-
leiksmenn eru þar á skrá eins og
t.d. Klimov og Maksinov sem get-
ið er annars staðar i opnunni.
Einnig leika þeir með tvo tveggja
metra menn á miðjunni i vörninni
og er hlutverk þeirra gegn tslandi
að taka stórskyttur okkar i karp-
húsið.
Mikið hafa islensku leik-
mennirnir séö markvert af
spólunum sem Janus Chervinzky
kom með til Danmerkur, með
upplýsingum um sovéska liðið.
Það sem kom einna skýrast
fram á þessum myndspólum var
það hversu gifurlega sterkan
varnarleik Sovétmenn leika. Það
eru ávallt tveir leikmenn sem
taka hornamenn okkar úr um-
ferð. Til fróðleiks má geta þess að
er Sovétmenn léku gegn Ungverj-
um fyrir nokkru tóku þeir lang-
skyttuna Kovác svo gersamlega
úr umferð að hann kom aðeins
einu skoti i gegnum varnarvegg
Sovétmanna og lenti það skot i
þverslá.
Það er greinilegt að um jafnan
og skemmtilegan leik verður að
ræða i kvöld og munu hinir fjöl-
mörgu islensku áhorfendur sem
komnir eru til keppninnar örugg-
lega hvetja landann duglega.
Einnig verða danskir áhorfendur
einnig á okkar bandi i kvöld þar
sem þeir telja Rússa helstu and-
stæðinga sina i riðlinum. En
Rússar eru vanir að leika undir
stanslausu ,,púi” og hafa undan-
farið æft undir slikri pressu.
Lið íslands var valið á hádegi i
dag og er liklegt talið að Þor-
bergur Aðalsteinsson og Þorlákur
Kjartansson hvili.
„Eins og Janus er búinn að
vera okkur til mikils gagns að þá
þykir mér þetta allt ákaflega
„Slæm
tíömdi”
leiðinlegt og reyndar i framhaldi
af öllu sem skeð hefur, er þetta
lika hætt að koma mér á óvart,”
sagði Sigurður Jónsson form.
HSI er við ræddum litillega við
hann i gærkvöldi.
,,Ég held að eftir siðustu frétt-
um að dæma að þá sé þess ekki
óskað af pólskum ráðamönnum
að hann stjórni islenska lands-
liðinu. Við sem höfum staöið að
undirbúningi landsliðsins hefðum
farið allt öðruvisi að heföum við
vitað að þetta myndi fara svona.
En það þýðir ekki annað en að
bfta ærlega á jaxlinn og gera sitt
besta” sagði Sigurður Jónsson að
leikum.
SK
lón H.
Karlsson
ekki
meö
Fyrirliði landsliðsins Jón
Karlsson mun ekki leika með is-
lenska landsliðinu gegn Sovét-
mönnum i kvöld. Hann er meidd-
ur i baki og enda þótt vel hafi tek-
ist til með lækningu úti i Noregi er
Jón ekki oröinn það góður að
hann geti leikið með i kvöld.
í fyrstu var talið að um tognun i
baki væri að ræða en við skoöun
sérfræðinga kom i ljós að um
misgengi brjóskliða var að ræða.
Þá var um tvennt aö ræða fyrir
Jón. Annars vegar að láta sér
versna til muna með þvi að spila
áfram og hins vegar að leggjast á
bekk og láta liöina smella saman.
Og kappinn tók áhættuna og eftir
mikil læti og hnjask heyröust
tveir myndarlegir smellir og
bang, bang og bakið var aftur
komið i rétta stöðu. Nú verður
hann hins vegar að fá góðan tima
til að jafna sig og var ekki talið
ráölegt að láta hann leika meö i
kvöld.
Nefndin
bjartsýn
tslenska landsliösnefndin spáöi
fyrir um það fyrir Þjóðviljann
hver árangur islenska liösins yröi
á HM-keppninni. Ekki verður
annað sagt en hún sé bjartsýn og
vongóð. Þegar mennirnir settu
sig i völvustellingu og spáöu varö
útkoman þessi:
Birgir Björnsson:
Við leikum við A-Þjóðverja um
fimmta sætið.
Gunnlaugur Hjálmarsson:
Við leikum um sjöunda sætið við
Ungverja.
Karl Benediktsson:
Við leikum um sjöunda sætið viö
Tékka. Og Karl bætti þvi við að
Sovétmenn myndu sigra I keppn-
inni, A-Þjóðverjar yrðu i ööru
sæti og Rúmenar i þvi þriðja.
Páll Björgvinsson hefur nú ver-
ið valinn til að taka við stöðu
Ólafs Einarssonar i islenska
landsliðinu og verður hann
kallaður til Danmerkur ef þurfa
þykir eins og það var orðaö á
blaðamannafundi i gær. Ólafur er
handarbrotinn og að lokinni
læknisskoöun i gær var hann sett-
ur I gips frá fingurgómi og upp
fyrir öxl og er hann þvi endanlega
úr dæminu.
Björgvin
/
og Arni
ekki
með?
Ekki er enn fullljóst hvort þeir
Björgvin Björgvinsson og Arni
Indriðason geta leikið meö á
morgun. Þeir hafa verið slæmir
af sinaskeiðabólgu en liklegt er þó
talið að þeir harki af sér og leiki
með I kvöld.
Páll farinn
Seint i gærkvöldi bárust okkur
þau tiðindi að Páll Björgvinsson
hefði verið beðinn um að koma til
Danmerkur. Er við höfðum sam-
band við Sigurð Jónsson seint I
gærkvöldi sagði hann okkur aö
hann væri á leiö til Danmerkur og
myndi Páll fara með sömu flug-
vél og hann.
Janus stjómar ekki
liðinu í Danmörku