Þjóðviljinn - 07.02.1978, Síða 4

Þjóðviljinn - 07.02.1978, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 7. febrúar 1978 Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Hitstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaði: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Sfðumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaðaprent hf. I stjórn sem stjómarandstööu Rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar setti sér það markmið að koma verðbólgunni niður i 15% á öðru valdaári sinu. Allir vita hvernig fór um sjóferð þá. Rikisstjórninni tókst ekki ætlunarverk sitt — þvert á móti magnaði hún verðbólguna með allskonar aðgerðum. Verðbólgan er lika tæki þeirr- ar stéttar sem núverandi rikisstjórn er i fyrirsvari fyrir, bæði varnartæki hennar og gróðameðal. Sú stétt verðbólgubrask- ara hefur hag af þvi að viðhalda verðbólg- unni og magna hana. Það þarf ekki að fletta löngum talnarun- um til þess að sjá i tölum hvernig óstjórn rikisstjórnar Geirs Hallgrimssonar hefur verið; vöruskiptajöfnuðurinn 1977 var ó- hagstæður um tuttugu miljarða. Skuld rikissjóðs við Seðlabankann nam á annan tug miljarða i lok siðastliðins árs. Sam- kvæmt spám sérfræðinga rikisstjórnar- innar verður hallinn á frystiiðnaðinum 12 miljarðar á þessu ári þrátt fyrir ein- munahátt verð afurða. Og þær eru margar kröflurnar og margur grundartanginn i kerfinu; það er margt viðishúsið á afreka- skrá rikisstjórnarinnar. Þegar upp er staðið eftir nærri fjögurra ára samstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar- flokksins kemur i ljós að rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar er einhver versta rikis- J stjórn sem hér hefur setið. Aðgerðir henn- ar eru i besta falli einsog plástrar, en yfir- leitt hafa efnahagsaðgerðir hennar þann ókost að þær skapa fleiri vandamál en þær leysa. Þegar efnahagsvandamálin eru skoðuð nú i ársbyrjun 1978 sést að rikis- stjórn Geirs Hallgrimssonar er miðpunkt- ur efnahagsvandans; rikisstjórnin er aðalvandamálið. Henni þarf að koma frá og það hið fyrsta. Frammistaða hennar siðustu dagana er i fullkomnu samræmi við það sem verið hefur og um leið staðfesting á nauðsyn þess að koma rikisstjórninni frá. Það er liðinn hálfur mánuður siðan rikisstjórnin ákvað að fella gengið. Fréttir um þessa ákvörðun rikisstjórnarinnar birtust i hennar eigin málgögnum fyrir viku til tiu dögum. Þessar fréttir voru einskonar að- vörun stjórnarblaðanna til heildsalanna — nú skyldu þeir flýta sér að safna að sér vörum til þess að geta selt með aukinni álagningu. Með þessari siðlausu fram- komu hefur rikisstjórnin fært milliliðun- um fleiri miljarða króna i aukatekjur. 1 rauninni væri nú nauðsynlegt að fram færi könnun og ýtarleg úttekt á þvi, hversu miklu hefur verið stolið,þó ekki væri nema til þess að verða einskonar viðvörun i framtiðinni. Þá væri auðvitað sjálfsagt að skattleggja sérstaklega gengisfellingar- gróðann sem auðstéttirnar hafa rakað saman og birta tölur um þá skattlagningu um leið og skattskráin verður gefin út i sumar. En við þvi er ekki að búast, að rikisstjórn sem hjálpar milliliðunum til þess að seilast eftir miljarðaaukagróða beiti sér fyrir slikum ráðstöfunum. Sið- laus framkoma rikisstjórnarinnar i tengslum við þá gengislækkun sem nú hefur verið ákveðin er þvi enn ein sönnun- in fyrir nauðsyn þess að koma rikisstjórn- inni frá. Það er sama hversu málin eru skoðuð; Rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar er upp- haf og endir þeirra vandamála sem við er að glima i efnahagskerfi landsmanna um þessar mundir. Það er þvi þýðingarmikið pólitiskt markmið að koma rikisstjórninni frá. Hér hafa verið nefnd nokkur dæmi þvi til sönnunar: Tölur úr þjóðarbúskapnum og gengislækkunin sem kemur til fram- kvæmda i dag. Einnig mætti nefna i þessu sambandi dæmi sem ekki verða rakin með tölum, það er sú viðtæka fjármálaspilling sem þróast hefur undir handarjaðri rikis- stjórnarinnar og hefur aldrei verið eins opinská, ósvifin og girug og einmitt um þessar mundir. Sú arfleifð þessarar rikis- stjórnar er sennilega sú alvarlegasta og hættulegasta, sú sem lengstan tima tekur að uppræta. Viðskiptakerfi auðstéttarinnar er jarð- vegur spillingarinnar og fjarmálasvik- anna, verðbólgunnar og braskaranna. Rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar er óska- barnið sem hin skuggalegu öfl i þjóðfélag- inu sameinast um. Henni þarf að koma frá. —s. Ríkisstjórnin er stœrsta vandamálið Vorið 1974 neitaði Sjálfstæðisflokkurinn að leggja fram nokkrar tillögur um lausn efnahagsvandans sem þá var við að etja og stafaði af 35% hækkunum á erlendu verði innfluttrar vöru. Geir Hallgrims- son lýsti þvi þá yfir, að það væri ekki hlut- verk stjórnarandstöðuflokka að gera til- lögur. 1978 leggur Alþýðubandalagið sem stjórnarandstöðuflokkur fram tillögur um skammtimalausn þess efnahagsvanda sem við er að etja og stafar af vitlausu stjórnarfari. Á afstöðu Alþýðubandalags- ins 1978 og afstöðu Sjálfstæðisflokksins 1974 kemur best fram munurinn á verka- lýðsflokki, sem ber hag heildarinnar fyrir brjósti, og á heildsalaflokki, sem ber hag verðbólgubraskaranna fyrir brjósti. Alþýðubandalagið telur það nefnilega skyldu verkalýðsflokks að bera jafnan \ fram tillögur um lausn aðsteðjandi vandamála — lika þegar flokkurinn er i stjórnarandstöðu. —s. Alþjóölegt rökþrotabú A þaö var bent í þessum þætti fyrir helgina aö nýlega heföi 2. Alþjóöasambandiö, alþjóöa- samband sósialdemókrata, haldiö þing þar sem samþykkt var aÖ berjast gegn svonefndum evrópukommúnisma fremur en öllum öðrum fyrirbærum stjórnmálalifsins. Fulltrúi Alþýðuflokksins var á þessum fundi. 1 samræmi viö niöurstöö- ur fundarins tók hann aö sér aö berjast gegn Alþýöubandalag- inu á Islandi. Hefur sú krossferð nú staöiö um nokkurt skeiö meö næsta ámáttlegum hætti. Telur Alþýöuflokkurinn þaö sér eink- um til gildis i baráttunni viö is- lenska sósialista aö hafa komið i veg fyrir vigbúnaö þeirra fyrir 40 árum. Þjóðviljinn benti á að Alþýöuflokkurinn væri oröinn einskonar söguleg málamiölun af sjálfum sér. bessi athuga- semd Þjóðviljans fer ákaflega i taugarnar á formanni Alþýöu- flokksins, sem birtir af og til forystugreinar i Alþýöublaöinu undir neitunarforskeytinu -ó. Geysisthann ófrýnilegur fram á ritvöllinn á laugardag og heldur sig enn viö fortiöina. Hann bendir þar á áviröingar is- lenskra sósialista, en öll er viö- leitni hans i skötuliki. Mun þýö- ing á þessari forystugrein Bene- dikts Gröndals I Alþýöublaöinu á laugardaginn var. skammt duga til þess aö kvitta fyrir pappírsstyrkinn sem 2. Alþjóöa- sambandiö veitir Alþýöublaöinu um þessar mundir. Forystu- greinin er hins vegar enn ein ábendingin um neyðarástand þess alþjóölega rökþrotabús, sem heildsalaarnir reka núorðið viö Blaöagötu Reykjavikur, Siöumúla. Kenningar Vilmundar í verki Barátta Benedikts Gröndals gegn Alþýöubandalaginu er háö meö stuöningi auöstéttarinnar á Islandi annars vegar og útlend- inga hins vegar. Sú barátta beinist i rauninni fyrst og fremst aö rótum Alþýöuflokks- ins sjálfs, rótum hans I íslenskri verkalýöshreyfingu. Bllaheild- salarnir hafa veitt Alþýöublaö- inu framhaldslif fyrir náö sina og fjármagn. En ætli ekki aö þaö þættu tiöindi i Noregi ef upp kæmist aö Norski jafnaöar- mannaflokkurinn gæfi út blaö á íslandi i félagi viö Volkswagen og Ford? Ætli ekki aö þau tiö- indi yröu efni i stórar fyrirsagn- ir I vestur-þyskum blööum ef upp kæmist aö Volkswagen og Caterpillar gæfu út blaö á Is- landi i félagi við sósialdemó- krataflokk? Ætli þaö þætti ekki Rekiö heim til réttar fréttarinnar viröi i dönsk blöö ef þar i landi rækju þeir I félagi út- gáfufyrirtæki Vestur-þýski krataflokkurinn og Kruppverk- smiöjurnan? Hafa forystumenn Alþýöuflokksins yfirleitt gert sér ljóst aö þeir hafa tekiö Alþýöublaöiö af lifi: aö þeir hafa I verki tekið undir þær kenningar sem Vilmundur Gylfason, óskabarn Alþýðu- flokksins, hefur látiö frá sér fara aö Alþýöublaöiö eigi alls ekki að gefa út? sí ISÍilfeMii \ Hœkjur fyrir íhaldið Vilmundur Gylfason heldur þvi sem kunnugt er fram, aö Alþýöublaöiö hafi haft tilgang og pólitiska þýðingu fyrir nokkrum áratugum. Þaö er vafalaust rétt. Hann heldur þvi fram aö Alþýöublaöiö hafi eng- an tilgang lengur frá pólitisku sjónarmiöi. Þaö er einnig rétt — þó einkum vegna þess aö tilvera þess er háö náöargjöfum bila- heildsala og útlendra stjórn- málaflokka. Slikt blaö hefur enga pólitiska þýöingu lengur. Og menn sem hafa gefist upp viö að gefa út blaö fyrir stjórn- málaflokk meö þeim hætti sem þeir Benedikt og Vilmundur, eiga heldur engin erindi lengur i stjórnmálastarfi — nema til þess aö vera einskonar hækjur fyrir ihaldiö. Eins og hrossakjötsátiö Forystumenn Sjálfstæöis- flokksins eru margir ákaflega hlynntir viöreisnarstjórn, þe. stjórn meö Alþýöuflokknum. Þeir vita sem er aö i vor eru likur til þess aö nokkrir fylgis- menn Sjálfstæöisflokksins úr siöustu kosningum kjósi nú Alþýöuflokkinn. Þaö er mein- laus synd 1 augum ihaldsforust- unnar, ef hún er drýgö á laun eins og hrossakjötsátiö á fyrstu áratugum eftir kristnitöku. Veröi vottum ekki viö komiö og engar sannanir fram dregnar opinberlega mega óánægöir ihaldskjósendur vel kjósa Alþýöuflokkinn. Þaö gildir einu — eftir kosningar tritla þau heim á kviaból kýrnar, féö og smalinn. -s.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.