Þjóðviljinn - 16.02.1978, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 16.02.1978, Qupperneq 5
Fimmtudagur 16. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 nokkuð nýstárlegu sniði MFA efnir nú til menningar- og fræösluferöa m.a. til undurfagurra staöa eins og Bled í Siúvenfu. athyglisvert að kynnast þvi hve mikil áhrif launafólks eru i iðnaði og mörgum öðrum atvinnurekstri. Auk Júgóslaviuferðanna hefur verið ákveðin ferð til Noregs. Það verður 8 daga ferð fyrir trúnaðarmenn vinnustaða og aðra, sem áhuga hafa. Fyrir- hugað er að sú ferð verði farin fyrri hluta júnimánaðar. 1 skóla Norsku verkalýðssamtakanna verður hlýtt á fyrirlestra um Norsku verkalýðshreyfinguna, og siðan verða heimsóttir vinnustaðir, af mismunandi tagi, i nágrenni Osló. Enn fremur verða verkalýðsfélög heimsótt, rætt við forystumenn þeirra, trúnaðarmenn vinnu- staða og skiptist á skoðunum um ýmis mál. Ýmislegt fleira er á döfinni i sambandi við svona ferðalög og óhætt er að fullyrða að verði verður mjög i hóf stillt. Nánari upplýsingar um þessi mál er að fá hjá Menningar- og fræðslusambandi alþýðu i sima 8 42 33, Alþýðuorlofi i sima 2 81 80 og Ferðaskrifstofunni Landsýn h.f. i sima 2 88 99, en þessar ferðir eru allar skipu- lagðar i samráði við hana. —IGG Ad ferdast og fræðast Menningar- og fræöslu- samband alþýðu og Alþýðuorlof hafa nú tekið upp samstarf um að ef na til sérstakra kynnis eða námsferða fyrir félags- menn i stéttarfélögum innan Alþýusambands íslands og öðrum aðildar- félögum Alþýðuorlofs undir kjörorðinu ,,Að fræðast og ferðast". Hafa fyrstu ferðir þegar verið ákveðnar og verða þær farnar til Jugóslavíu og Noregs. Á undanförnum árum hefur sá hópur launafólks sem notar fritima sinn til ferðalaga erlendis stöðugt farið vaxandi. Yfirleitt er þar um að ræða ferðir til sólarlanda þar sem fá tækifæri gefast til þess að kynn- ast fólkinu sem byggir viðkom- andi lönd, kjörum þess og menningu, og oft skilja þessar ferðir næsta litið eftir sig i hugum fólks. Með samstarfi MFA og ALO er ætlunin að reyna að bæta eitthvað úr þessu og gera launafólki kleift annars vegar að ferðast beinlínis og eingöngu i fræðsluskyni og hins vegar að njóta hvors tveggja i senn, hvildar i þægilegu lofts- lagi og fræðslu um land og þjóð. Akveðnar hafa verið tvær ferðir til Júgóslaviu fyrir þá sem sérstaklega hafa áhuga á að kynnast landi og þjóð, eða réttara sagt þjóðum. Fyrri ferðin hefst 16. mai og stendur i þrjár vikur en sú siðari hefst 18. júli og verður tveggja vikna ferð. í báðum tilvikum verður dvalartimanum skipt sem næst að jöfnu milli skoðunarferða um landið og dvalar i Portoroz — baðstrandarbænum vinsæla — á strönd Adriahafsins. t skoðunarferðunum gefst kostur á þvi annars vegar, að kynnast einstakri náttúrufegurð og sögustöðum, og hins vegar, að sjá i reynd hvernig 20 milj- ónir ibúa Júgóslaviu, af 6 ólikum þjóðernum, búa saman i þjóðfélagi sem einkennist af sterku rikisvaldi en jafnframt af mikilli valdadreifingu, t.d. að þvi er snertir stjórn atvinnu- lifsins. Þá er ekki siður LEIKFÉLAG AKUREYRAR: Sýnir Alfa Beta annað kvöld Leikfélag Akureyrar mun frum- sýna leikritið Aifa Beta eftir bretann E.A. Whitehead, föstudaginn 17. febrúar n.k. (á morgun). Þýðinguna gerði Kristrún Eymundsdóttir, leik- mynd er eftir Þráin Karisson en leik- stjóri er Brynja Benediktsdóttir. Leikritið gerist i Liverpool, á 9 ára timabili i lifi hjóna. Hjónin leika þau Erlingur Gislason og Sigurveig Jóns- dóttir. Verkið er i þremur þáttum og er þeim skipt með sýningu skyggni- mynda úr ýmsum fjölskyldualbúm- um, en Asgrimur Agústsson, ljós- myndari, sá um þann þátt sýningar- innar. Sérstök athygli skal á þvi vakin, að verkið verður aðeins sýnt á Akureyri nú um þessa helgi og næstu þar sem það flytst til Þjóðleikhússins i lok febrúar og vérður sýnt þar i byrjun mars á litla sviðir.u i boði Þjóðleik- hússins, sem gestaleikur. -mhg Erlingur Gislason og Sigurveig Jónsdóttir i hlutverkum sinum Ljósm.: Norðurmynd Ný gullsmiðaverslun var nýlega opnuð i nýju verslunar- og skrif- stofuhúsnæði að I.augavegi 71 i Reykjavik. Eigandi versiunarinnar er Ulrich Falkner gullmsiður sem áður var með guilsmiðaverslun við Lækjartort. 1 hinni nýju verslun verður veitt aihiiða þjónusta á sviði gullsmiða. A þessari mynd er eigandi verslunarinnar, Ulrich Falkner, ásamt eiginkonu sinni og tveimur starfsstúlkum. Byggingarnefnd flugstöðvar Samgönguráðuneytið hefur skipaö bygginganefnd flug- stöðvar á Reykjavikurflugvelli. 1 byggingarnefndinni eru Birgir Guðjónsson, deildarstjóri i sam- gönguráöuneytinu, sem er for- maður nefndarinnar, Gunnar Sigurðsson, flugvallarst jóri Reykjavikurflugvallar, og Jón E. Böðvarsson, deildarstjóri i fjármálaráðuneytinu, fjárlaga- og hagsýslustofnun. Ávarp frá Kvennadeild Slysavarna- félagsins Eins og Reykvikingum er nú orðið kunnugt eru kvennadeild- irnar út um allt land sterkur þáttur i starfsemi SVFI. Þær hafa aðallega unniðað fjáröflun til uppbyggingar björgunar- starfinu i landinu. Hefur þeim orðið vel ágengt I þeim efnum, þvi að likum lætur að þær leggi fram árlega rúmlega 90% af þvi fé, sem fer til björgunarstarfs- ins ogbjörgunarsveitanna, enda sýna þær i verki fádæma dugn- að og áhuga fyrir málefninu. Kvennadeildarkonur hér i Reykjavik eru mjög þakklátar Reykvikingum fyrir skilning þeirra á þessu starfi, alveg frá þvi þær hófu að safna fé til slysavarna fyrir tæpum 48 ár- um. Gaman væri á 50 ára af- mælisári SVFt, aö allir leggöust á eitt um að gera starf þess sem ölúgast, með þvi að styrkja það og styðja i þessu liknarmáli þjóðarinnar. Slysavarnirnar eru ekkert einkamál slysa- varnafélaganna sjálfra heldur er þetta hagsmunamál allrar þjóðarinnar. Stuölum öll að þvi, að byggja svo vel upp björg- unarsveitirnar, að þær séu vel undir það búnar að takast á við erfið verkefni. Hætturnar liggja allsstaðar i leyni. Slysin eru alltof mörg i okkan htla þjóð- féiagi. Tökum höndum saman og reynum að fækka þeim. Það er ósk slysavarnakvennanna að borgarbúar taka þeim vel, sem bjóða þeim merki á föstudag og laugardag næstkomandi. Merk- in verða tvennskonar, plast- merki og siaufumerki og kosta 200 kr. stykkið. Reykvikingar góðir. Um leið og þiðkaupið merki, þáeruðþið að leggja ykkar skerf til varnar slysum i landinu. Foreldrar eru beðnir um að leyfa börnum sinum að selja merkin. Verða þau afhent i barnaskólum borgarinnar. Munu 20 söluhæstu börnin fá sérstök verðlaun. Verndið Bernhöftstoifuna Félag islenskra myndlistar- manna samþykkti i byrjun mánaðarins áskorun á rikis- stjórnina um að taka nú þegar ákvörðun um varðveislu og endurreisnBernhöftstorfunnar i Reykjavik og lýsti félagið sig samþykkt ályktun aðalfundar Torfusamtakanna frá 4. desem- ber 1977 um þetta mál. Akureyrar- togarar með 1745 tonn frá áramótum — Aflabrögð hjá okkur hafa verið heldur slök það sem af er þessu ári, sagði Vilhelm Þor- steinsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfelags Akureyrar I viö- tali við blaðið i gær. — En I janúarmánúði, eða frá 9. jan. til mánaðamóta lönduð- um við 1235tonnum og það, sem af er febrúar, höfum við landað 510 tonnum. I janúar voru veiðiferðirnar 9 hjá þessum 5 togurum okkar en i febrúar eru veiðiferðirnar orðnar 5. Frá áramótum eða réttar sagt frá 9. janúar eru þetta þannig 1745 tonn i 14 veiðiferðum. Það hefur mjög hamlað veið- um að fádæma ótið hefur verið á djúpmiöum i allan vetur, sagði Vilhelm Þorsteinsson. —mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.