Þjóðviljinn - 08.03.1978, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.03.1978, Blaðsíða 1
„Antikmálið”: Rannsókn „Ég stefni að þvi að ljúka rannsókn málsins fyrir mánaðamót,” sagði Þórir Oddsson fulltrúi hjá Sakadómi Reykjavikur, er Þjóðv. innti hann frétta af „Antikmálinu” svonefnda i gær. Að rannsókn lokinni verður málið sent til rikissaksóknara. á lokastigi Rannsókn málsins hófst hjá Sakadómi i október 1976. Þórir Oddsson hefur séð um rann- sókn málsins. Hann hefur verið i leyfi frá Sakadómi siðan 31. mars 1977, en var falið að vinna áfram að rann- sókn þessa máls. —eös Boóið til netndar- starfa um 2. gr. kaupránslaganna: Nú er komið á daginn, sem fuiltrúar launþega hafa ailtaf haldið fram siðan kaupránslögin voru sett, að 2. grein þeirra er gersam- Icga óframkvæmanleg, það er þátturinn um láglauna- bæturnar. Og rikisstjórnin hefur gripið til þess örvænt- ingarráðs að biðja nokkra fulltrúa frá launþega- saintökunum um að taka sæti i nefnd til að seja greinargerð um 2. grein kaupránslaganna, en allir fuiltrúarnir hafa neitað að taka sæti f ncfndinni. Þessir menneru, Haraldur Steinþórsson frá BSRB, Asmundur Stefánsson hag- fræðingur ASI, Þórir Danielsson, framkv.stj. Verkamannasambands Islands, Bjarni Jakobsson formaður Iðju og Magnús L. Sveinsson frá VR. Við höfðum i gær samband við þrjá af þessum mönnum og spurðum þá hversvegna þeir hefðu neitað að taka sæti i nefndinni. Haraldur Steinþórsson sagðist ekki hafa séð neinn tilgangmeö þessu.enda væri óframkvæmanlegt að fram- fylgja þvi sem segir i 2. gr. laganna. Haraldur sagðist hafa borið málið undir forystumenn BSRB og allir hefðu veriö sammála um að hann ætti að hafna þvi að taka sæti i nefndinni. Magnús L. Svinsson sagði að það kæmi tvennt til að hann neitaði að taka sæti i nefndinni, i fyrsta lagi hefði hann það mikið að gera að ekki væriá bætandi.og i öðru lagi sagðist hann ekki taka aö sér að semja reglugerð fyrirlög, sem hann væri and- vigur. Hvort óframkvæman- legtværiaðfaraeftir þessari 2. grein sagðist Magnús ekki þora að fullyrða neitt um, en það væri þó alveg ljóst að málið væri afar flókið. Þórir Danielsson sagðist hafa neitað að taka sæti i nefndinni vegna þess að þar ætti að fjalla um mál sem nánast væri óhugsandi að framkvæma, þótt hann teldi vist að einhverskonar reglu- gerð yrði gefin út. ,,En þaö merkilega við þessa lagasmið er það, aö einmitt þessi 2. grein lag- anna var þaö atriði sem rikisstjórnin fékkst ekki til að hagga bókstaf um, þótt henni væri bent á gallana og hve greinin væri van- hugsuð", sagði Þórir. Ljóst er að rikisstjórnin er i geysilegum vanda stödd i þessu máli og alls óljóst hvernig hún hyggst leysa hann. Þó má benda á að hún á eina alveg örugga leið til lausnarvandanum.en það er að afnema kaupranslögin og láta samningana frá 22. júni sl. koma aftur til fram- kvæmda. —S.dór Svívirðileg kaupskerðing aldraðra og öryrkja: Ellilífeyrir einstaklings lækkaður um 2000 kr. BARÁTTUDAGUR VERKAKVENNA á mánuði frá því sem verið hefði miðað við gildandi kjarasamninga 1. og 2. mars fóru 30 þúsund launamenn í alls- herjarverkfall til þess aö mótmæla kjaraskerðingu rikisstjórnarinnar. Hins vegar hefur því miður lít- ið heyrst frá þeim 25.000 manna sem hafa orðið fyrir sérstakri skerðingu launa sinna, þ.e. öldruð- um og öryrkjum. Launa- skerðing ríkisvaldsins kemur einnig harkalega niður á þessum lægst- launuðu hópum þjóð- félagsins og auðvitað þeim mun hastarlegar sem laun þeirra eru lægri fyrir. I lögum um efnahagsráð- stafanir rikisstjórnarinnar sem tóku gildi frá 1. mars segir að 1. mars, 1. júli og 1. september á þessu ári skulu bætur almanna- trygginga aðeins fá helming þeirra verðhækkana sem oröið hafa á næstliðnu þriggja mán- aða timabili bættar. Þetta þýðir að öldruðum og öryrkjum er ætlað að bera helming verð- hækkana óbættan með öllu á þessu timabili. Þessi svivirði- lega aðför aö öldruðum og öryrkjum var samþykkt á al- þingi með 42 atkvæðum þing- manna stjórnarflokkanna. Þó skal þess getið að tekjutrygging og heimilisuppbót á að hækka aukalega um 1% 1. mars 1978, en skerðinguna skulu aldraöir og öryrkjar bera að öðru leyti að fullu og engum tveimur pró- sentum veröur til að dreifa 1. júni og 1. september. Ellilifeyrir er nú á mánuði kr. 38.609, en var fyrir hækkun Framhald á 14. siðu í dag er 8. mars, alþjóölegur baráttudagur verkakvenna. Rauösokkahreyfingin, MFIK og Kvenfélag sósialista gangast I tilefni þess fyrir baráttufundi i Féiagsstofnun stúdenta viö Hringbraut i kvöld kl. 20.30. Þar veröur flutt dagskrá I tali og tónum og nefnist hún „Kjör verkakvenna fyrr og nú — baráttuleiðir”. A myndinni má sjá hluta undirbúningsnefndar fundarins, en hún var tekin i Sokkholti á mánudagskvöld. Sjá 2. siðu 2. grein kaupránslaganna setur allt á annan endann: 1 . - .... .9" .. “ ' ..... Enginn veit hvernig á að tramkvæma hana Eins og annarsstaðar er sagt frá i Þjóöviljanum i dag, hafa allir fulltrúar launþega, sem leitaö hefur verið til um aö taka sæti i nefnd til aö semja reglugerö um framkvæmd 2. greinar kaupránslaganna neitaö þvi og telja allir aö slikt sé ekki hægt. Og nú hefur rikiö sent frá sér nýjan launataxta fyrir BSRB þar sem veröbótaviöauki sá, sem sagt er til um aö greiöa skuli i 2. gr. kaupránslaganna er ekki tekinn meö. Við höfðum i gær samband við Þorstein Geirsson skrifstofu- stjóra fjármálaráðuneytisins og spurðum hann um þetta mál. Þorsteinn sagði að þegar hefðu verið samin drög að reglugerö og Framhald á 14. siðu Haukur Heiðar neitar pemngunum ^ m komið tn Svíss? að gefa upplýsuigar t gær staöfesti Hæstiréttur framlengingu á gæsluvarðhaldi Hauks Heiöars, en úrskuröur um 2ja vikna framlengingu var kærð- ur til Hæstaréttar fyrir skömmu. í úrskuröi Hæstaréttar i gær seg- ir: Af hálfu rikissaksóknara er þess krafist aöallega, að gæslu- varfiiald varnaraðila verði fram- lengt til 22. mars n.k. en til vara, að hinn kærði úrskurður verði staðfestur. Héraösdómari hefur sent Hæstarétti athugasemdir sinar, ;sbr. 2. mgr. 174. gr. laga nr '74/1974. Aðalkrafa rikissaksóknara um lengingu gæsluvarðhaldstima kemur ekki til álita samkvæmt 2. mgr. 174. gr. laga nr. 74/1974, þar sem krafa hans komi eigi fram fyrr en 6. mars, en hann fékk vit- neskju um hinn kærða úrskurö 3. mars. Fyrir Hæstarétt hafa verið lögð nokkur sköl, uem eigi lágu fýrir héraðsdómi m.a. skýrslur frá starfsmanni Landsbanka tslands og réttargæslumanni varnaraðila um för þeirra til Sviss, er um get- ur i hinum kærða úrskurði. Kem- ur fram i skýrslum þessum, að varnaraðili átti verulega fjár- muni geymda i banka i Sviss, og er gerð nánari grein fyrir þvi i skýrslunum. Þar kemur fram, að fjármunum þessum verður nú eigi ráðstafað nema með sam- þykki Landsbankans og réttar- gæslumanns varnaraðila. Ekki eru fyrir hendi neinar upplýsing- ar um hvenær eða með hverjum hætti fjármunir þessir hafi verið fluttir til Sviss. Meö þessari at- hugasemd og meö visan til 1. tl. 67. gr. laga nr. 74/1974 ber að staðfesta hinn kæröa úrskurð. Engir þeir annmarkar eru á hinum kærða úrskurði eða máls- meðferð fyrir dómi að vitum varði, en eigi verður fjallað um kröfu varnaraðila um vitur að öðru leyti i kærumáli þessu. Dómsorö: Hinn kærði úrskurður á aö vera óraskaður.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.