Þjóðviljinn - 08.03.1978, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 08.03.1978, Blaðsíða 13
Mibvikudagur 8. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 sjonvarp Erfidir tímar Viö lifum á erfiöum tfmum, sagöi skáldið. Og kannski er þaö ætlun- in að fá menn til aö gleyma þeim erfiðu timurn sem við lifum á meö þvi að sýna aðra Erfiða tfma i sjónvarpinu? Hvaðum það, þetta er breskur myndaflokkur f fjór- um þáttum, byggður á sögu eftir Charles Dickens, sem hefur göngu sina i kvöld kl. hálftiu. A myndinni eru Jacqueline Tong i hlutverki Lovisu og Michelie Dibnah, sem leikur Sissy. Jón R. Hjálmarsson flytur erindi: í árdaga flugsins utvarp t kvöld kl. 21.30 flytur Jón R. Hjálmarsson fræöslustjóri erindi sem hann nefnir ,,t árdaga flugs- ins.” Það voru tveir bandariskir bræður, reiðhjólasmiðirnir Wil- bur og Orville Wright, sem fyrstir unnu það afrek að fljúga „lofti þyngra” flugtæki, sem knúið var vélarkrafti. Þeir höfðu tengi haft brennandi áhuga á svifflugi og til- raunum til vélflugs. t október 1900 vörðu þeir sumarleyfi sinu á vindasamri ströndinni við Kitty Hawk á Atlantshafsströnd Norð- ur-Karólinu. Þar reyndu þeir fyrstusvifflugu sina ifullristærð. Óg árangurinn var svo uppörv- andi, að næsta ár héldu þeir á enn vindasamari stað, Kill Devil Hills um 6 km frá Kitty Hawk og settu þar saman svifflugur, sem voru nógu stórar til að bera mann. Þessar tilraunir gengu ver og varð Wilbur svo vonsvikinn eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir, að hann æpti: „Það flýgur enginn næstu þúsund árin!” Þó þeir heföu orðið fyrir von- brigðum, gáfust þeir samt ekki upp. Þvert á móti lögðu þeir helmingi harðara að sér. Þeir gerðu tilraunir með litil módel i frumstæöum vindgöngum og drógu af þeim lærdóma um væng- lag, skildu að leysa mátti ýmis vandamál lyftiorku og stöðug- leika með þvi að hafa vængina ibjúga og litið eitt niöursveigða á jöðrum. Samtimis fóru þeir að vinna að smiði litillar, léttrar bensinvélar. t sept. 1903 héldu þeir enn út til Kill Devil Hills og höfðu með sér flug-vél, sem þeir kölluðu Flyer eftir reiðhjólateg- undinni, sem þeir framleiddu. Hún var gerö úr viöargrindum, strengd virum og vængfletir klæddir striga. Hún hafði örsmá- an hreyfil, sem var tengdur með venjulegum reiðhjólakeðjum við tvær loftskrúfur aftan á. Samsetning vélarinnar og ann- ar undirbúningur tók langan tima og það leið að jólum. Loksins 17. desember varallttilbúið. Það var kl. 10.35 um morguninn. Auk Wright-bræðranna voru aðeins viðstaddir 5 harðgerir menn, sem buðu byrginn hvössum náköldum strekkingi utan af hafi. Þeir settu hreyfilinn i gang, vélin titraði undanýtikrafti loftskrúfunnar, en aðstoðarmennirnir héldu henni fastri á timburflekanum. Svovar hrópað „nú” og vélin rann af stað,jók ferðina.hrististog hóf að risa eins og luralegur fúgl með griðarstóra hvita vængi. Hún flyksaðist um 40 m spöl i loftinu. Það hafði tekist. Svo reyndu þeir aftur, einu sinni, tvisvar, þrisvar ... og i siðustu tilrauninni hóf Fly- er sig nokkur fet upp af jörðinni og f laug um 230 m vegalengd á 59 sekúndum. Kraftaverkið hafði gerst: flugvél, lofti þyngri, knúin eigin vélarkrafti, hafði lyft sér og flugmanni sinum frá jörðu og flogið! Wiibur og Orville fögnuðu sigri, engleöi þeirra var mætt meö van- trú. Heimsblöðin sögöu aðeins með efasemdum og tortryggni frá þessum atburði. Maðurinn hafði flogið i fyrsta skipti, en mannkyn- ið fékkst ekki til að trúa þvi! 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimikl. 7.15. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.05. Morgunbæn kl. 7.55. Tilkynningar 9.00. Samræmd próf i erlendum málum 9. bekkjar grunn- skóla :Próf idönsku kl. 9.15: próf I ensku kl. 9.45. Létt lög milli atr. Minnst Grafar- kirkju á Höfðaströnd kl. 10,25: Séra Ragnar Fjalar Lárusson segir frá þessari gömlu torfkirkju, endur- reisn hennar fyrir aldar- fjórðungi og les hluta ræðu sinnar frá þeim tima. Passiusálmalög kl. 10,45: Sigurveig Hjaltested og Guðmundur Jónsson syngja Páll Isólfsson leikur á orgel Dómkirkjunnar i Reykja- vik. Morguntónleikar ki. 11.00: Hugo Ruf leikur ásamt kammersveit Liru- konsert nr. 3 i G-dúr eftir Haydn/Elly Ameling, Janet Baker, Peter Schreier og Dietrich Fischer-Dieskau syngja söngkvartetta eftir Schubert: Gerald Moore leikur með á pianó,/Maria Littauer og Sinfóniuhljóm- sveitin i Hamborg leika Pianókonsert nr. 1 i C-dúr • op. 11 eftir Weber: Siegfried Köhler stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna. 14.30 Miðdegissagan: „Reynt að gleyma” eftir Alene Cor- liss Axel Thorsteinsson les þýöingu sina (4). 15.00 M iðdegistónleikar: György Sandor leikur á pianó „Tuttugu svipmynd- ir” op. 22 eftir Serge Prokofjeff. André Navarra og Eric Parkin leika Sónötu fyrir selló og pianó eftir John Ireland. Borodin-kvartettinn leikur Strengjakvartett nr. 11 i f-moll op 122 eftir Dmitri Sjostakovitsj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn Halldór Gunn- arsson kynnir. 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Dora” eftir Ragnheiði Jónsdóttur Sigrún Guðjóns- dóttir les (13). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir, Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Samleiku? i útvarpssal: Arto Noras og Gisli Magnússon leika sónötu i A-dúr fyrir selló og pianó eftir Boccherini og Svitu eftir Kilpinen. 20.00 Af ungu fólki. Anders Hansen sér um átt fyrir unglinga. 20.40 Dómsmál Björn Helga- son hæstaréttarritari segir frá. 21.00 Stjörnusöngvarar fyrr og núGuðmundur Gilsson rek- ur söngferil frægra þýskra söngvara. Sjöundi þáttur: Lauritz Melchior. 21.30 t árdaga flugsins Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri flytur erindi. 21.55 Kvöldsagan: „1 Hófa- dynssal” eftir Heinrich Böll Franz Gislason islenskaði. Hugrún Gunnarsdóttir les (1). 22.20 Lestur Passiusálma Þór- hildur Olafs guðfræðinemi les 37. sálm. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Djassþátturi umsjá Jóns Múla Arnasonar. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. 18.00 Daglegt lif i dýragarði (L) Tékkneskur mynda- flokkur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.10 Bréf frá Júliu (L) Hollenskur myndaflokkur um börn, sem eiga i erfið- leikum. Júlia er ellefu ára gömul stúlka, sem á heima á Norður-ttaliu. Arið 1976 urðu miklir jarðskjálftar i heimabyggð hennar. Þús- und manns fórust og um 70 þúsund misstu heimili sin, þar á meðal Júlia og fjöl- skylda hennar. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. 18.35 Hér erstuð(L) Rokktón- list. Gerðir hafa verið átta þættir sem verða á dagskrá vikulega á næstunni. t fyrsta þætti skemmtir hljómsveitin Geimsteinn. Stjórn upptöku Egill Eð- varðsson. 19.00 On We GoEnskukennsla. 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Skiðaæfingar(L) Þýskur myndaflokkur. 2. þáttur. Þýðandi Eirikur Haraldsson 21.00 Nýjasta tækni og visindi (L) U m s jó na r m aðu r örnólfur Thorlacius. 21.30 Erfiðir timar (L) Bresk- ur myndaflokkur i fjórum þáttum, byggður á sögu eft- ir Charles Dickens. Aðal- hlutverk Patrick Allen, Timothy West, Alan Dobie og Jacquline Tong. 1. þátt- ur. Fjölleikaflokkur kemur til borgarinnar Coketown. Stúlka úr flokknum, Sissy Jupe hefur nám i skóla hr. Gradgrinds. Hún byr á heimili hans og henni og Lovisu dóttur Gradgrinds verður brátt vel til vina. Þýðandi Jón O. Edwald. 22.20 Dagskráriok Pétur og vélmennið eftir Kjartan Arnórsson Tveír -if roöonom minuéó 3 f lóvtð onjári löyreylunr)! 5ÍU vélmenniJ f1rir ui/3n skoldnn þeir n el dv p yrst 3$ £3^ Mðsn krdkki r doni/19 en pöLt-öd'u se/noa- svo cxaf. f?kKi vcrid.. peir feoqu pullóa SÓr\i)Ur' kcttz vðr el'ta \ié\r°enni bóvaánT teii^Jur hoF^ f'e/r St>rax saóibanJ v/3" ' ■ Oc^ et>) 5efíji Wl rdFneít' 0<$ öá'rv/ö öc.boðái'l.. o<$ þei'p n$éu ykkvr ndkkr^r spumin^r?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.