Þjóðviljinn - 15.03.1978, Blaðsíða 3
Mi&vikudagur 15. mars 1978'ÞJÓÐVILJINN — StÐÁ 3
Erlendar
fréttir
í stuttu
máli:
Verkbann
og verkfall
í Vestur-
Þýskalandi
14/3 — Því nær allir
Vestur-Þjóöverjar veröa að
vera án dagbiaöanna sinna á
morgun vegna verkbanns
biaðaútgefenda, sem útgef-
endur fyrirskipuðu til þess
aö knýja prentara i nokkrum
heistu borgum landsins til aö
láta af verkföllum, sem staö-
ið hafa yfir i tvær vikur.
Verkföllin stafa af þvi, aö
útgefendur eru aö fara af
stað meö tölvusetningu, og
krefjast prentarar bæöi
launaliækkunar og atvinnu-
tryggingar fyrir þá prent-
ara, sem missa vinnu sina
vegna hinnar nýju tækni.
1 Stuttgart og nágrenni
hefja 65.000 málmiönaðar-
menn verkfall á morgun til
þess að reka á eftir kröfum
um hærri laun. Búist er viö
að má lmiðnðarmenn
annarsstaðar i
Baden-Wiirttemberg —
Stuttgart er höfuðborg þess
— og i Nordrhein-Westfalen,
fólksflesta sambandsfylki
landsins, muni einnig hefja
verkfall fljótlega ef nauðsyn
þykir. Um helmingur allra
málmiðnaðarverkamanna
Vestur-Þýskalands, sem eru
3.6 miljónir, eru i þessum
tveimur fylkjum. Er þetta
mesta ókyrrð á vinnumark-
aði Vestur-Þýskalands i
mörg ár.
Sama ástandið
með dollarann
14/3 — Bandaríkjadollarinn
seig niöur i 233,20 jen i
kauphöllinni i Tókió i dag og
hefur aldrei komist lægra
gagnvart japanska gjald-
miðlinum. Dollarinn hækk-
aði þó litillega siðar um dag-
inn.Svipaða sögu er að segja
af dollaranum í kauphöllum
Vestur-Evrópu. Þetta er tal-
ið stafa af vonbrigðum
fjármálamanna með sam-
eiginlegar ráðstafanir til
stuðnings dollaranum, sem
Bandarikin og
Vestur-Þýskaland tilkynntu i
gær.
Gíslarnir í
Assen frelsaðir
14/3 — tJrvalssveit úr hol-
lenska landgöngu liöinu
réöist i dag inn i stjórnar-
byggingu þá i Assen i
Norður-Hollandi, sem þrir
vopnaöir Suöur-Mólúkkar
höföu tekiö á sitt vald, tóku
Mólúkkana til fanga og frels-
uöu gísla þeirra, sem voru
rúmlega 70 talsins.
Einn gislanna fannst lát-
inn, og beiö hann að sögn
bana er Mólúkkarnir hentu
honum út um glugga er þeir
tóku bygginguna i gær-
morgun. Hann var skipu-
lagsstjóri héraðsins.
Mólúkkarnir kröföust þess
að landar þeirra, sem sitja i
fangelsi, yrðu látnir lausir,
og einnig flugvélar til ferðar
úr landi. Hótuðu þeir að
I skjóta gislana smámsaman,
I fyrstu t.yo gisíana er land- |
| gönguliðarnir geröu áhlaup- |
Frábœr samstaða bandarískra kolanámamanna:
Tæplega 100 af 160.000
hófu yinnu
13/3 — Mjög mikill einhugur ríkir meðal handarískra
kolanámumanna/ sem hafa verið í verkfalli í því nær
hundrað daga, um að hafa að engu forsetatilskipan og
réttarúrskurð um að snúa aftur til vinnu samkvæmt
Taft-Hartley-lögunum svokölluðu, sem bandarískir
verkamenn og námumenn sérstaklega líta á sem alger ó-
lög.
Carter forseti ákvað fyrir
nokkru að beita lögum þessum til
að stöðva verkfallið, en tókst ekki
betur til en svo, að i dag, þegar
númumenn áttu að hefja vinnu
samkvæmt réttarúrskurði i fram-
háldi af tilskipun forsetans, voru
það innan viö hundrað námu-
menn, sem beygðu sig fyrir for-
setanum og dómstólnum og létu
sjá sig á vinnustað, en alls eru
verkfallsmenn um 160.000.
Um 1800 námur eru nú lamaðar
af völdum verkfallsins. Þessi al-
gerá samstaða námumanna þyk-
ir verulegt áfall fyrir Carter for-
seta, sem látið hefur sér mjög
annt um að stöðva verkfallið.
Upplýsingarnar um þetta eru frá
sambandi atvinnurekenda þeirra,
er reka kolanámurnar. Samn-
ingaumleitanir eru aö hefjast enn
á ný milli námumanna og at-
vinnurekenda.
Kolanámumenn kynna kröfur sinar. A einu spjaldinu stendur að
Jimmy Carter og John D. Rockefeller séu leikbrúöur auöjöfra þeirra er
reka kolanámurnar.
halfa milljón-eða meira ?
Með IB-lánum Iðnaðarbankans opnast
nýir möguleikar á að tryggja sér lán þegar
á þarf að halda. Ef þú vilt spara um lengri
eða skemmri tíma skuldbindur bankinn sig
til að lána jafnháa upphæð og þú hefur
lagt inn að tímabilinu loknu. Sama upphæð
er lögð til hliðar mánaðarlega. Sé tíma-
bilið 2 - 4 ár og stefnt að háu láni gefst
kostur á IB-veðláni. Sé hins vegar stefnt
að láni eftir 6 eða 12 mánuði er um IB-lán að
ræða. Athugum nánar þá möguleika sem í
því felast.
Ákveðin upphæð er lögð inn á IB-reikning í
Iðnaðarbankanum í 6 eða 12 mánuði. Sé
um 6 mánaða sparnaðartímabil að ræða er
hámarksupphæð mánaðargreiðslu 20.000
kr.; annars 30.000 kr.
Hverjir eru möguleikarnir séu t.d. lagðar
inn 20.000 kr. í 12 mánuði? Við lok tíma-
bilsins er búið að spara 240.000 kr. Bankinn
lánar jafnháa upphæð. Með vöxtum af
innstæðunni verða þá til ráðstöfunar
500.580 kr. Lánið er endurgreitt með jöfnum
greiðslum afborgana og vaxta á jafn-
löngum tíma og sparað var, þ.e. 12 mán-
uðum.
Enmöguleikarnir eru fieiri eins og sést á töfl-
unni hér fyrir neðan. Vert er að athuga að
upphæðirnar eru teknar sem dæmi, og velja
má aðrar.
Allar frekari upplýsingar
veita IB- ráðgjafar Iðnaðarbankans.
SPARNAÐAR TÍMABIl, mánaoarleg INNBORGUN SPARNAÐURf I.OK TÍMABU.S IttNADARBANKINN I.ÁNAR RÁttSTÖKUN ARKf'. MÁNAHARLKG ENDURGRKIttSLA MKt) VÖXTUM KNDUR GRKIttSLU TÍMABIL
6 10.000 60.000 60.000 122.295 10.772
15.000 90.000 90.000 183.450 16.558
mán 20.000 120.000 120.000 244.590 21.543 mán
12 10.000 120.000 120.000 250.290 11.464 12
W 20.000 240.000 240.000 500.580 22.927
man 30.000 360.000 360.000 750.860 34.391 mán
Bankiþeirra sem hyggja að framtíöinni
Pl r'W',- m . Wi ii
K-vy; y fel.A, dgjjé TOaJpi 'k::y ffM. í'--; «c |W
Lækjargötu 12, Sími 20580