Þjóðviljinn - 22.03.1978, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 22. mars 1978
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis
Otgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn
Pálsson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Sföumúla 6, Simi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
Viöurkenning
Ólafs
Jóhannessonar
1 sunnudagsblaði Þjóðviljans var sýnt
fram á það siðastliðinn sunnudag, með
súluriti, hvernig verðhækkanir
innflutnings i erlendri mynt hafa haft
áhrif á verðþróunina undanfarin 12 ár.
Þar komu fram eftirfarandi meginatriði:
Á valdaárum viðreisnarstjórnar Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokksins náði
verðbólgan upp i 21% á ári samkvæmt
, visitölu framfærslukostnaðar. Á þeim ár-
um varð þó engin hækkun að marki á
innflutningi, og sum árin varð um hreina
lækkun að ræða. Á valdaárum
vinstristjórnarinnar varð hlutfallsleg
hækkun verðbólgunnar minni en hlutfalls-
leg hækkun á verðlagi innflutnings i
erlendri mynt. Á valdaárum Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokksins hefur
verðbólgan innanlands verið margfalt
meiri en verðhækkanir innflutningsins.
Þær tölur lita svona út:
1975 varð verðhækkun innflutnings i
erlendri mynt 5%, en verðbólgan
samkvæmt visitölu framfærslukostnað-
ar 10 sinnum meiri eða 49%.
1976 varð verðhækkun innflutnings í
erlendri mynt 5%, en verðbólgan hins
vegar rúmlega sex sinnum meiri eða
32%.
1977 varð verðhækkun innflutnings 6%
en verðbólgan alls rösklega fimm sinn-
um meiri eða 33%.
1978 er gert ráð fyrir þvi, að verð-
bólgan verði 40% eða um sex sinnum
meiri en verðhækkun innfiutnings i
erlendri mynt.
Þessar staðreyndir sýna svo ekki verður
um villst að verðbólgan undanfarin ár
hægristjórnarinnar á — eins og á við-
reisnarárunum — rætur sinar að rekja til
stjórnarstefnunnar, þvi að verðbólgan er
notuð til þess að klekkja á launafólki, til
þess að ná þvi aftur sem vinnst i kjara-
samningum á hverjum tima.
Þjóðviljinn hefur margoft áður bent á
þessar efnahagslegu staðreyndir. Einnig
hefur blaðið bent á hagsmunatengsl
islensku braskaranna við þessa þróun
efnahagslifsins. Stjórnarflokkarnir hafa
sem kunnugt er ekki viljað viðurkenna
þessar augljósu skýringar islenskra
sósialista og verkalýðshreyfingarinnar; i
staðinn er þvi haldið fram að rikisstjórnin
sé einlægt að berjast gegn verðbólgunni.
Geir Hallgrimsson forsætisráðherra kem-
ur fram i sjónvarpi einu sinni i viku eða
svo og segist ævinlega vera að ná árangri i
baráttunni gegn verðbólgunni. Sem-kunn-
ugt er lofaði hann þvi er hann tók við
stjórnartaumunum að koma verðbólgunni
niður i 15% 1975. Efndirnar urðu þær sem
að ofan greinir: 32-40% verðbólga þrátt
fyrir litlar og óverulegar erlendar verð-
hækkanir á innflutningi landsmanna.
Þegar Framsóknarflokkurinn fór i
rikisstjórn með Sjálfstæðisflokknum lýsti
hann þvi yfir, að forsenda stjórnarsam-
starfsins væri að kveða verðbólgudraug-
inn niður. Reynslan sýnir hvernig þetta
hefur tekist og nú er svo komið að Ólafur
Jóhannesson viðurkennir á flokksþingi
Framsóknarflokksins sem haldið var i
Reykjavik á dögunum, að meginástæður
verðbólgunnar séu af innlendum toga.
Hann sagði orðrétt i setningarræðu sinni á
flokksþingi Framsóknar:
„Skuggarnir eru þeir að við höfum
ekki þrátt fyrir að ýmsu leyti hagstæðar
ytri aðstæður náð þeim tökum á efna-
hagsmálum sem þurft hefði.”
Staðreyndirnar eru semsé viðurkenndar
af formanni Framsóknarflokksins. Sjald-
an hefur einn flokksformaður viðurkennt
á aumingjalegri hátt gjaldþrot fjögurra
ára stjórnarsamstarfs. Forsenda sam-
starfsins, sem var baráttan gegn verð-
bólgunni, er brostin, ,,þrátt fyrir að ýmsu
leyti hagstæðar ytri aðstæður”, þ.e.
hækkandi verðlag á afurðum landsmanna
erlendis og óverulegar hækkanir á
innflutningi okkar erlendis frá.
Allir stjórnmálamenn aðrir en
forystumenn Framsóknarflokksins hefðu
dregið þá rökréttu ályktun af þessu gjald-
þroti stjórnarsamstarfsins að slita sam-
starfinu eða þá að minnsta kosti að lýsa
þvi yfir, að það yrði ekki aftur upp tekið
eftir kosningar. Þetta gerir Framsóknar-
flokkurinn hins vegar ekki. Hann ætlar að
halda áfram stjórnarsamstarfinu með
ihaldinu eftir kosningar. Það kemur
einnig fram i flokksþingsræðu Ólafs
Jóhannessonar. Ólafur ætlar með öðrum
orðum að aðstoða Geir Hallgrimsson
áfram við að ,,ná árangri” i glimunni við
verðbólguna, „árangri” sem birtist i
margfalt meiri hækkunum en ástæður eru
til. Það er hins vegar hætt við,að kjósend-
ur hjálpi Framsóknarflokknum að gera
sér grein fyrir staðreyndunum i vor. Þeim
fjölgar áreiðanlega ekki atkvæðum ólafs
Jóhannessonar i hlutfalli við verðþensluna
á stjórnartimabilinu með Geir Hallgrims-
syni. Þvert á móti benda likur allar til
þess, að hlutfallið verði þveröfugt. —s.
Áhrif kjarn-
orkusprengju
á Keflavik
Annað tölublaö Dagfara, mál-
gagns Samtaka herstöövaand-
stæðinga, 1978, er nýkomiö út.
Meðal efnis er kafli úr erindi
sem Guömundur Georgsson
flutti í Menntaskólanum við
Sund 15. mars s.l.
„Skotmark hérlendis i kjarn-
orkustyrjöld yrði fyrst og
fremst Keflavikurflugvöllur.
Beinum athyglinni að afleið-
ingum kjarnorkuárásar á
Keflavikurflugvöll. Manntjón,
sem af þvi hlytist, er háð ýms-
um skilyrðum, svo sem
sprengjustærð, i hvaöa hæð
sprengjan spryngi, vindátt og
hversu margir væru i vari fyrir
sprengjuáhrifum. Ahrifunum
má skipta i tvennt, annars veg-
ar bein áhrif, sem kæmu fram
strax i næsta nágrenni og hins
vegar áhrif geislavirks úrfellis,
sem byrjaði að gæta á fyrsta
sólarhring. Vindátt og vindhraöi
hafa einkum áhrif á manntjón
vegna þessa þáttar, þ.e. geisla-
virks úrfellis.
Ef beitt yröi eins megatonns
kjarnorkusprengju, sem
sprengdyrði niöur viö jörð, sem
telja verður mjög liklegt form
árásar, myndaöist á miljónasta
hluta úr sekúndu afar skær eld-
kúla. Þrýstingur inni i kúlunni
nemur miljónum loftþyngda, og
hitinn tugmiljónum gráða. Eftir
lOsekúndur yrði eldhnötturinn 6
sinnum stærri en sólin að sjá úr
Reykjavik,og 270 sinnum bjart-
ari. Allir i Reykjavik eða ná-
grenni, sem litu til sprengju-
staðarins, blinduöust.
Staðbundin bein áhrif uröu
fyrstogfremst vegna geislunar,
þrýstings og hita. Fyrsta mynd
sýnir , hversu langt þessi mis-
munandi áhrif næðu frá
sprengjustað. Búast má viö, aö
allir innan innsta hringsins,
sem er 5 km i þvérmál, færust
oglangflestir, ef ekki allir innan
næststærsta hringsins, sem er
16 km i þvermál. Kæmi þar til
bein geislun, þrýstingur og hita-
áhrif. Eins og sést á myndinni,
eru Keflavik, Njarðvikur og
Hafnir innan þessa geira, og þar
búa, skv. siðasta manntali frá
1977, um 10.000 manns.
Þrýstingsáhrifa gætti raunar
allt að jöðrum ysta hringsins og
jafnvel lengra, þ.e. i 16 km f jar-
lægð frá sprengjustað, en yllu á
þvi svæði sennilega óverulegu
manntjóni. Hins vegar gæti fólk
á þessusvæðihlotiöannarsstigs
bruna vegna hitaáhrifa, ei það
getur leitt til dauða, ef læknis-
hjálp verður ekki við komið.
Reikna má meö, að allt að 40%
af fólki á þessu svæði væri ann-
að hvort úti við eöa hefði ófull-
nægjandi skjól. Hinir, sem eftir
lifðu á þessu svæöi, yröu siðan
geislavirku úrfelli að bráö. Alls
má þvíætla, að hinir tæplega 11
þús. ibúar á þessu svæði færust
allir.
94-100 þúsund
fœrust
En þá kemur aö öðrum þætti
áhrifa sprengingarinnar, en það
er áhrif geislavirks Urfellis, sem
á upptök sin i geislavirkum efn-
um, sem myndast viö spreng-
inguna og þúsundum tonna af
jarðvegi og öðru efni, sem
bráðnaöi og gufaöi upp viö hit-
ann af sprengingunni og bærist
með eldhnettinum upp i allt aö
18 km hæð, þar sem eldhnöttur-
inn kólnar og stigi ekki hærra.
Háloftavinda.- bæru siðan
mökýinn og ráöa þeir mestu um
stefnu og stærö geirans, sem Ur-
fellis yrði vart, en einnig hefðu
vindáttir og vindhraði i neöri
loftlögum áhrif á breidd hans.
Fyrsta mynd sýnir stærö geir-
ans, ef reiknað er meö vest-suð-
vestan átt, sem mun vera rikj-
andi háloftavindátt og 60 km
hraða á klst. Innan minni geir-
ans yrði hámarksskammtur að
jafnaði 1350 Röntgen, sem er
mælieining á geislun, á þá, sem
væru utanhúss, og 450 Röntgen á
þá, serr. væru innanhúss. Allir,
sem væru utanhúss, dæju úr
geislaveikioghelmingur þeirra,
sem væru innannúss, ef miðaö
er viö venjulegar byggingar
Alls færust um 83.000 manns af
119.000 ibúum á þessu svæöi úr
geislaveiki. Heildarmanntjóniö
yröi þvi um 94.500 manns af alls
ca. 130.000 ibúum á þessu svæði.
Við þetta bættist sennilega um
það bil helmingur þeirra, sem
búa innan geirans þar sem
geislun yröi 450 Röntgen utan-
húss og hefðu ekkert eða litið
skjól. Sá geiri sneiddi sennilega
hjá þéttbýium stööum svo sem
Akranesi og Hveragerði en tæki
yfir Hvalfjörð og einnig upp-
sveitir Arnessýslu.
Ógnvekjandi
staðreyndir
Orfellisgeirinn, þar sem
geislun yröi 150 Röntgen, en það
er á mörkum þess að valda
manntjóni, teygist alla leiö
austur á Hérað. Eflaust má
reikna með nokkrum þúsunda
dauðsfalla á þessu svæöi til við-
bótar, þannig að manntjónið af
völdum eins megatonns kjarn-
orkuspengju á Keflavfkurflug-
völl yrði nær 100.000 manns. En
þar meö er ekki öll sagan sögö.
Hér er um aö ræða áhrif, sem
koma fram vegna geislunar á
fyrstu stundum eða dögum eftir
sprengingu, en geislavirkni
héldist mun lengur, þótt hún
færiört lækkandi. Þeir, sem eft-
ir lifðu, gætu fengið viðbótar-
geislun um alllanga hrið og
veröur að ætla að þeir yrðuað
vera i vari í allt aö mánuð. Þvi
má ætla, að verulegur hluti af
þeim 35.000 manns, sem ekki
færust vegna geislunar fyrstu
dagana á Reykjanesskaganum
og Stór-Reykjavikursvæöinu
gætu orðið fyrir það mikilli við-
bótargeislun, aðþað drægi þá til
dauða. Og enn er öll sagan ekki
sögö, þvi að áhrifa geislunar
héldi áfram að gæta á næstu
áratugum m.a. sem aukin tiöni
erfðagalla og illkynja æxlis-
vaxtar. Sú saga skal ekki rakin
hér, þvi að sá heimur, sem
blasti við þeim sem eftir lifðu,
yröi litt aðlaöandi vistarvera.
Þetta eru ógnvekjandi stað-
reyndir, en ég held, aö það sé
full þörf á þvi, aö fólk sem aö-
hyllist Aronskuna, leiði hugann
að þvi, hvert gjaldið kynni að
verða, sem þaö yrði sjálft aö
greiða fyrir þá þóknun, sem það
vill krefja Bandarikin fyrir
hernaöaraöstööu”. —e.k.h.,
T
■
I
■
I
■
I
n
I
■
I
■
I
■
I
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I