Þjóðviljinn - 22.03.1978, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN M iðvikudagur 22. mars 1978
Undanúrslit í bikarkeppni K.K.Í.:
UMFN-menn
burstaðir af
stúdentum
íS leikur til úrslita í bikarn
um eftir að hafa sigrað
UMFN 90:80 (48:31)
„Þetta er það sem við í
iS erum búnir að biða eftir
lengi. Liðið small vel sam-
an í leiknum á móti KR
fyrir stuttu. Dunbar hefur
notið sín mjög vel í síðustu
leikjum og nýtst okkur
mjög vel. Einnig hefur
Helgi Jensson staðið sig vel
en hann tók við lykilstöðu í
liðinu vegna meiðsla ann-
arra leikmanna," sagði
Birgir örn Birgis þjálfari
IS eftir að lið hans hafði
tryggt sér rétt til úrslita-
leiks gegn annað hvort Val
eða KR.
„Ég held að það hafi
einnig skipt miklu Ti7?li að
IS-liðið hefur ekki unnið til
margra verðlauna í gegn-
um árin og að leikmennirn-
ir eru þess vegna orðnir
mjög „hungraðir" i verð-
laun og sigur á móti.
Við vonumst eftir Val í
úrslitum. Ég held aö það
fari vel á því að keppnis-
tímabilið endi með þessum
fjórum liðum sem skarað
hafa fram úr i vetur í úr-
slitum í sitthvoru mótinu,"
sagöi Birgir að lokum.
Stúdentar léku vel i gærkvöldi.
Fyrri hálfleikurinn var einhver
sá besti hjá liðinu lengi. Allt gekk
upp hjá 1S á meðan að Njarðvik-
ingar máttu sin einskis.
Annars gekk leikurinn þannig
fyrir sig að 1S tók forustuna
snemma i leiknum og þegar
leiknar höfðu verið 13 minútur af
fyrri hálfleik var staðan 34:22 ÍS i
vil. Þeir voru greinilega ekkert á
þvi að gefa nokkuð eftir og staðan
i leikhléi var 48:31 1S i vil eftir að
stúdentar höfðu náð 19 stiga for-
skot fyrr i hálfleiknum.
I siðari hálfleik snérist dæmið
við og það svo um munaði. Njarð-
vikingar skoruðu hverja körfuna
á fætur annari og þegar 9 minútur
höfðu lifað i seinni hálfleik mun-
aði aðeins einu stigi 58:57.
En stúdentarnir voru harðir á
lokakaflanum og gáfu ekkert eft-
ir. Fljótlega náðu þeir 12 stiga
forskoti á ný og leiknum var lok-
ið. Honum lauk eins og áður sagði
með sigri ÍS 90:80.
Það er þvi ljóst að stúdentar
leika til úrslita i bikarkeppninni
að þessu sinni. Segja verður eins
og er að i úrslitaleiknum, hvort
sem hann verður gegn Val eða
KR, eru þeir ákaflega sigur-
stranglegir.
Þeir endurheimtu nú i þessum
leik tvo af betri leikmönnum sin-
um þá Jón Héðinsson og Kolbein
Kristinsson.
Þeir léku ekki með liðinu gegn
KR á dögunum.
Dunbar var bestur stúdenta að
þessu sinni sem oftar og var einn-
ig stigahæstur með 33 stig. Einnig
átti Bjarni Gunnar (22 stig) ágæt-
an leik svo og Steinn Sveinsson,
(10)
Umsjón: Stefán Kristjánsson
Steinn Sveinsson átti góðan leik að venju gegn UMFN. Barátta hans i vörn er einstök. Hann skoraði 10
stig.
Njarðvikingar voru allir nokk-
uð slappir i leik þessum og er
greinilegt að þeir setja stefnuna á
sigur gegn KR i tslands-
meistaraslagnum sem háður
verður 28. þessa mánaðar.
Brynjar Sigmundsson var
bestur, en einnig átti Jónas Jó-
hannesson góöan leik, Brynjar
varstigahæstur með 24 stig. Leik-
inn dæmdu þeir Erlendur Ey-
steinsson og Þráinn Skúlason og
gerðu það mjög vel.
SK.
lón Otti beðlnn afsökunar
Fyrir stuttu birtist grein i
Þjóðviljanum eða öllu heldur
umsögn um leik KR og 1S i 1.
deildinni i körfuboltanum. Þar
var i fyrirsögn haft eftir einum
leikmanni ÍS ummæli um Jón
Otta dómara sem undirritaður
vill nota tækifærið til að biðjast
afsökunar á.
Það var ekki meiningin með
skrifunum að særa neinn. Það
virðist það nú samt hafa gert
þvi eftir þvi sem frést hefur er
Jón Otti hættur að dæma
körfuknattleik.
Er Þjóðviljinn hafði samband
við Jón Otta sagði hann að þetta
væri ein af mörgum öðrum
ástæðum fyrri þvi að hann hefði
ákveðiö að hætta að dæma.
Eigi Þjóðviljinn þar sök á er
Jón Otti beðinn afsökunar, og
vonar jafnframt að unnendur
körfuknattleiksins eigi eftir að
sjá hann i starfi dómara sem
fyrst.
SK
Íslandsmótið í handknattleik í kvöld:
Hart verður barist
í firðinum í kvöld
Þeir verða, cf að likum lætur,
margir svitadroparnir sem falla i
kvöld er tveir úrsiitaleikir í 1.
deildinni i handboltanum verða
leiknir.
Fyrst leika Haukar og FH og
hefst sá leikur kl. 19.00 en leikið
verður i M.fl. kvenna. Siöan leika
strax á eftir Haukar og Valur i 1.
deild karla verður þar örugglega
um hörkuleik að ræða. Vinni
Haukar halda þeir forskoti sinu i
deildinni en vinni Valur, sem þeir
verða bókstaflega að gera ef þeir
ætla sér að vera meö i toppbarátt-
unni, aukast möguleikar liðsins
mikið.
Strax á eftir leika svo toppliðin
FH og Vikingur og er það eins og
fyrri leikurinn einn af úrslita-
leikjum þessa móts. Engin leið er
að spá um úrslit, en eitt er vist að
það verður ekkert gefið eftir i
Firðinum i kvöld. Skýrt verður
frá leikjunum i blaðinu á morgun.
SK
Undanúrslit Bikarkeppni KKÍ í kvöld:
KR-ingar berjast í
kvöld gegn Völsurum
Það verður á fleiri stöðum en i
Hafnarfirði sem svitadropar falla
i kvöld.
Siðari leikurinn i undanúrslit-
unum i Bikarkeppni KKl fer
nefnilega fram i kvöld i Haga-
skóla og hefst hann kl. 20.00. Þá
leika KR og Valur.
Siðast er liðin léku, sigraði KR
meðaðeinseinsstigs mun eftir að
leikurinn haföi verið jafn og
spennandi frá byrjun. Þannig
hafa leikir liðanna ætið verið og
eitt er vist að engin breyting
verður þar á i kvöld. Valsmenn
voru að vonum mjög óánægðir
eftir tapið i deildinni enda áttu
þeir þar sigur skilið,svo i kvöld i
Hagaskóla er tækifærið að hefna
harma sinna.
SK
Haukur þjálfar
fijá Völsungum
Völsungur frá HÚsavik hefur ráðið til sin þjálfara fyrir næsta
keppnistimabil.
Haukur Hafsteinsson heitir maðurinn og er hann sonur hins þekkta
keflvikings Hafsteins Guðmundssonar sem lengi hefur starfað að
iþróttamálum I Keflavik.
Haukur Hafsteinsson þjálfaði i fyrra lið Grindavikur og náöi allgóð-
um árangri með liðið. Haukur er þegar byrjaður að þjálfa á Húsavik og
vænta Húsvikingar mikils af starfi hans þar. SK
Símastaurarnir
vöktu hræðslu
Fyrir stuttu fór 20 manna hópur úr l.F.R. i helgarferð til Akureyrar.
Aðal tilgangur ferðarinnar var að keppa við félaga úr I.F.A. og ekki
siður aðkynna, ásamt Akureyringum, iþróttir fyrir fatlaða. Að ferðinni
stóðu I.S.I., I.B.A., t.F.A. og I.F.R. Fararstjóri var Július Arnarsson.
A laugardeginum var kynning óg keppni i hinum ýmsu greinum
iþrótta sem fatlaðir stunda, svo sem borðtennis, curling, boccia, bog-
fimi og lyftingum, en i lyftingum voru sett 3 ný islandsmet, Arnór
Pétursson (i 60 kg. fl.) lyfti 85 kg., Jón Eiriksson (i 52 kg.fl.) lyfti 50 kg.
og Sigmar Ö. Mariasson (i 75 kg.fl.) lyfti 100 kg. Þeir eru allir úr I.F.R.
Þá sýndu þau Elsa Stefánsdóttir og Guðni Þór Arnórsson, bæöi úr
I.F.R., dans, en Elsa dansar i hjólastól.
A sunnudaginum var þegiö matarboð bæjarstjórnar Akureyrar og
kaffiboð I.B.A.
Það sem er einna eftirminnilegast við þessa ferð, er án efa ferð upp i
Hliðarfjall, en siðasta spölinn aö skiðalyftunum var farið i snjóbil sem
hjálparsveit skáta lagði til. öfugt við flesta aöra sem fara upp fjallið
með skiðalyftunni, fóru all margir úr hópnum niður fjallið með skiða-
lyftunni og var ekki laust við að færi um suma þegar „dólað” var fram-
hjá rafmagnsstaurunum.
1 heild var feröin mjög ánægjuleg og væri mjög æskilegt ef hægt væri
að koma á árlegum heimsóknum milli félaganna i Reykjavik og á
Akureyri.