Þjóðviljinn - 05.04.1978, Síða 1

Þjóðviljinn - 05.04.1978, Síða 1
PJOOVUHNN Miðvikudagur 5. april 1978 — 43. árg. 68. tbl. Ófremdarástand i sölu þorskhrogna Svíar einráöir 1 verðlagningunni með þvi að notfæra sér máttlaustbankakerfi hér á landi — verd Frumvarp Ragnars Arnalds um endurnýjun i stödum forstöðumanna rikisstofnana: RÁÐNIR TIL 6 ÁRA 1 SENN Ragnar Arnalds „Forstöðumenn rfkisstofnana skulu þrátt fyrir ákvæði annarra laga skipaðir, settir eða ráðnir til 6 ára i senn. Að þeim tima liðnum skulu stöður þeirra auglýstar að nýju. Heimilt er að endurráða þá til starfa, en stuðla ber að hæfi- legri endurnýjun i þessum stöð- um, einkum þegar sami maður hefur verið i starfinu 12 ár eða lengur”. Þannig hljóðar 2. greinin i frumvarpi sem Ragnar Arnalds hefúr lagt fram á Alþingi um endurnýjun i stöðum forstöðu- manna rikisstofnana. I 1. gr. frumvarpsins segir að tilgangur laga þessara sé að tryggja eðlileg umskipti og endurnýjun i em- bættum forstöðumanna rikis- stofnana. Samkvæmt frumvarpinu eiga lögin að taka til ráðuneytisstjóra, bankastjóra, sendiherra, rektora og skólastjóra, sýslumanna, bæj- arfógeta og annarra yfirmanna dómsmálaembætta, forstjóra at- vinnufyrirtækja i eigu rikisins og aiinarra forstöðumanna rikis- stofnana, Lögin taki þó ekki til starfa sem skipað er i að undan- Framhald á 14. siðu á sykursöltuðum hrognum lækkar Sviar hafa ákveðið að lækka kaupverð sitt á sykursöltuðum hrognum frá lslandi úr 780 kr. sænskum tunnuna, en það var verðið I fyrra, niður i 750 kr. s. tunnuna i ár og ofan á þetta bætist svo að gengisfelling hefur verið á sænsku krónunni frá því i fyrra. Og það sem verra er, islendingar geta ekkert sagt, verða að taka þessu eins og hverju öðru hunds- biti, þar sem þeir láta Svia alger- lega ráða ferðinni. Framleiðendur sykursaltaðra hrogna fá engin afurðarlán frá is- lensku bönkunum og eru þvi i fjárþörf meðan á verkun stendur. Þetta vita Sviar i gegnum um- boðsmenn sina hér á landi. Þess vegna leika Sviar þann leik að greiða stórar fúlgur fyrirfram uppi væntanleg kaup. Þegar svo kemur að kaupunum og þvi að semja um verðið segjast Sviar ekki kaupa nema á þvi verði sem þeim þóknast. Neiti íslendingar, verða þeir að greiða alla fyrir- framgreiðsluna til baka, auk þess sem Sviar einir kaupa næstum öll þau hrogn sem hér eru framleidd. Þeir keyptui fyrra af okkur 1634 tonn af sykursöltuðum hrognum en Grikkir 312 tonn; aðrir kaup- Miöstjórn- arfundur föstudag og laugardag Fundur verður haldinn i miö- stjórn Alþýðubandalagsins föstu- daginn 7. april og laugardaginn 8. april næstkomandi að Grettisgötu 3. Fundurinn hefst klukkan 20.30 á föstudagskvöld og klukkan 10 ár- degis á laugardagsmorgun. Dag- skrá: 1. Tillögur Alþýðubandalagsins i efnahags- og atvinnumálum. Framsögumaður Ragnar Arn- alds. 2. Staðan i '^aramálunum. Framsögumaður Benedikt Daviðsson. 3. önnur mál. Þau sögðust vera aft æfa sig aft sUnda i skfftunum, áftur en þau fengju aft fara upp á Dal.f Paradls sklfta- manna á lsafirði.cins og þaft er oft nefnt, bæfti af gestum og gangandi. Þaft eru ekki allir svo lánsamir aft geta bara farift út i garft ef mann langar á skffti, en myndina tók IGG á Isafirfti fyrir stuttu. Verksmidjueigenduin færöar hundrudir miljóna aö gjöf! Verksmiftjueigendum hafa ver- ið gefnar hundruðir miljón króna á siftustu loðnuvertift einni saman með ákvörðun yfirnefndar þess efnis aft verð á loðnu skuli ákvarðast miðað við meðaltals mjölnýtingu 16,3%, þvi allar nýrri verksmiðjur hafa náð mun betri hráefnisnýtingu við loðnubræðsl- una. Samkvæmt upplýsingum frá Gamaliel Sveinssyni hjá Fram- kvæmdastofnun rikisins má reikna með að miðað við 7 dollara verð á próteineiningu verði út- flutningsverð tæplega einni krónu hærra fyrir hvert kiló hráefnis sem nær þvi að nýtast 1% betur en meðaltalið, sem ákvarðað var 16,3%. Nokkrar islenskar loðnubræðsl- ur hafa fengið sér ný tæki til sinna verka, þótt aðrar kaupi gömul og úrelt tæki og aflögð frá Færeyj- um. 1 Færeyjum getur nýtingar- prósentan komist i 20% i nýjustu og fullkomnustu verksmiðjunum. Hérlendis mun nýtingin hafa orð- iðhæst i Þorlákshöfn, eða 18,6%. Þorlákshafnarverksmiðjan tók á móti 11.633 tonnum af loðnu á nýliðinni vertið. Nýtingarhlutfall- ið er 2,3% yfir meðaltalinu, svo fyrir vikið fékk sú verksmiðja 267 miljónir króna að gjöf við verð- lagsákvörðun á loðnunni nú sið- ast. Verksmiðjan i Vestmannaeyj- um, sem fyrir hagnað siðustu loðnuvertiðar keypti tvo skuttog- ara fékk heldur veglegri gjöf. t Vestmannaeyjum var landað 58.054 lestum. Þar varð nýtingar- prósentan 1,3% yfir meðaltalinu og hefur eigendum hennar þvi verið fært að gjöf frá sjómönnum af aflahlut þeirra, nokkuð sem ekki þurfti að borga krónu fyrir, um 754 milljónir króna. —úþ. Verkamannasamband íslands: Kynnir aögeröir sínar í dag 1 dag heíur verkamannasam- band Islands boðað til blaða- mannafundar, þar sem aðgerðir sambandsins á næstunni verða kynntar. Eins og komið hefur fram i fréttum hafa einstök félög innan þess verið að taka ákvarðanir um aðgerðir undanfarna daga og hef- ur Verkamannafélagið Fram á, Seyðisfirði þegar boðað útflutn- ingsbann og má vænta þess að fleirifélögfari einsaðá næstunni. Allavega er ljóst að til tiðinda dregur á næstunni hjá verkalýðs- hreyfingunni og er það yfirlýst stefna hennarað halda áfram að- gerðum þar til Vinnuveitenda- samband Islandsfæsttilað ræða i alvöru við ASl um kjarabætur til aðvega upp það sem tekið var af launafólki með kaupránslögunum i vetur. —S.dór endur voru ekki nema Norðmenn, sem keyptu fáeinar tunnur. Og þvi sætu Islendingar uppi með öll hrognin ef þeir neita verði Svi- anna. Sviarnir eru nýbúnir að semja um þessa verðlækkun við Islend- inga og segjast ekki vilja greiða hærra verð fyrir hrognin vegna þess að þeir geti fengið nóg af hrognum i Noregi, þar sem vetr- arvertið hafi gengið einstaklega vel og nóg framboð sé af hrogn- um, Og eins og áður segir, íslend- ingar geta ekkert gert nema segja já og amen við öllu saman, vilji þeir á annað borð losna við hrognin. Hér á landi eru heldur engin sölusamtök fyrir hrognafram- leiðendur. Það er þvi viðskipta- ráðuneytið og fulltrúi frá SIF, sem semja um verðið við Sviana, án þess að geta beitt sér nokkurn hlut. Framhald á 14. siðu tJtgerð m Miljaröa hagnaöur á taprekstri Fyrir fimm árum kom tog- arinn Bjarni Benediktsson til landsins. Samkvæmt upplýs- ingum annars tramkvæmda- stjóra Bæjarútgerðarimiar, Einars Sveinssonar, kostaði hann um 200 miijónir króna fuilbúinn á veiöar. Ekki vildi forstjórinn segja neitt um það hve mikið væri hugsan- ‘lega hægt að fá fyrir togar- ann nú, en láta mun nærri að þaö sé hátt i tvo miljaröa, — tvöþúsundmiljónir króna —. Þegar samið var um kaup á Bjarna Benediktssyni og Snorra Sturlusyni, en þeir komubáðir til landsins 1973, hljóðaði samningsupphæðin upp á 150 miljónir. Þegar þeir voru komnir á veiðar hafði verið til þeirra kostað um 200 miljónum aö sögn Einars Sveinssonar. Þriðji BOR-togarinn, sem einnig er Spánartogari, Ingólfur Arn- arson, kom tii landsins i febrúar 1974 og var aðeins dýrari en hinir tveir. Togarar af minni gerðinni, um 500 tonn, munu kosta um þúsund miljónir nú. Þannig erekkiúr vegiaðimynda sér að söluverðmæti togaranna þriggja sé nú nálægt 6 miljörðum, en kaupverð fjögurra minni togara um 4 miljarðar. Eftir að hafa átt þessa þr já togara i fimm ár, sem i inn- kaupi kostuðu um 600 miljón- ir, gæti þvi BÚR selt þá, eftir að vera búið að afskrifa þá i fimm ár, fyrir nær 6 þúsund miljónir, eða um það bil fyrir fimm þúsund miljónum krónum hærra verð en þeir voru keyptir á. Tap, sem svo er nefnt, á rekstri BÚR-togaranna þriggja árið 1976, varð 209 miljónir króna með afskrift- um, en afskriftirnar eru mið- aöar við upphaflega kaup- verðið að viðbættu margfeldi vegna gengisbreytinga. Ef reiknað er með að „tapið” hafi verið svipað á rekstri togaranna frá ári til árs, hef- ur BÚR samt hagnast um á að giska 4 þúsund miljónir króna á „taprekstrinum” þessifimnt ár, sein er álitleg fúiga, jafnvel þótt tekiö sé tillit til veröbólguunar. —úþ

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.