Þjóðviljinn - 05.04.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 05.04.1978, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN Miðvikudagur 5. aprfl 1978 Aðalsinji Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná I blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. C 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i sima-' skrá. 343 miljónir risnukostnaður Ríkissjóöur varð af 181 miljón króna Útgjöld skattskyldra fé- laga vegna risnu nam á siðasta ári 343 miljónum króna samkvæmt áætlun ríkisskattst jóra. Þessi risnukostnaður kom til frádráttar hjá fyrir- tækjunum við álagningu skatta árið 1977, sem þýðir að áætla má að ríkissjóður hafi orðið af tekjum sem nema 181 miljón króna. Þessar upplýsingar komu fram á Alþingi i gær er fjármálaráð- herrasvaraðifyrirspurn Ragnars Arnalds um risnu fyrirtækja. Jafnframt kom fram hjá ráð- herra að engar skýrar reglur eru fyrir hendi um frádrátt frá skatti vegna risnu. Það er lagt i hendur skattstjóra að leggja mat sitt á það hversu mikið tillit skuli tekið til risnu við álagningu skatta. Ragnar Arnalds lagði á það á- herslu að settar yrðu strangar og skýrar reglur um þetta mál, til að fyrirbyggja hættu á misnotkun á þessu sviði. Ragnar benti einnig á að til viðbótar ofangreindum risnuútgjöldum kæmu svo risnu- útgjöld fyrirtækja sem rekin eru á ábyrgð einstaklinga. Skattskyld félög eru aðeins hluti fyrirtækja þ.e.a.s. þau sem eru i félags- formi. Niðurstaða rikisskattstjóra byggöist á úrtaki sem var þannig, að valið var 19. hvert framtal skattskyldra félaga i þremur stærstu skattumdæmum lands- ins, þ.e. Reykjavik, Reykjanes- umdæmi og Norðurlandsum- dæmi eystra. Risnukostnaður i umdæmum utan ofangreindra umdæma var áætlaður með sama hlutfalli milli risnukostnaðar og hreinna tekna og fram kom i tveimur nefndum umdæmum. Tídar sjónvarps* truflanir á Höt'n tbúar Hafnarhrepps 1 llornafirði hafa orðið mjög fyrir barðinu á sjónvarps- truflunum og eru bilanir þar tiðar á dreifikerfi sjónvarps- ins. Af þeim sökum sam- þykkti hreppsnefnd Hafnar- hrepps svofellda ályktun á fundi sinum 22. mars s.l.: „Hreppsnefnd Hafnar- hrepps i Austur-Skaftafelis- sýslu átelur harölega léleg skilyrði til sjónvarpsafnota og tiðar bilanir á dreifikerfi sjónvarpsins til endurvarps- stöðvarinnar á Höfn. Skorar hreppsnefndin á forráða- menn Rikisútvarpsins/Sjón- varpsins og Póst- og sima- málastofnunina að gera nú þegar grein fyrir hvernig verði úr bætt og hvenær”. Fréttaritari Þjóðviljans, Þorsteinn L. Þorsteinsson, lét svo ummælt, aö i þessari samþykkt væri ekkert of- sagt. Sjónvarpsskilyröin væru með þeim eindæmum að viö yröi ekki unað. Ibúar þar eystra hefðu nú tekiö saman höndum um að greiða ekki afnotagjöld nema úr þessu ófremdarástandi yröi bætt. Blaðamaður bar framan- ritaöa fundarsamþykkt und- ir Harald Sigurðsson, verk- fræðing hjá Pósti og sima. Hann sagöi, að eftir að þessi fundarsamþykkt var gerð heföi menntamálaráðherra tilkynnt um áætlaðar fram- kvæmdir varðandi þessi mái nú i ár og þær ættu að fela i sér úrbót á þessum vandræð- um þeirra Hafnarhreppsbúa. Verður i lengstu lög að vona, aö þær áætlanir reynist ekki orðin tóm. —mhg Leitin aö Moro enn árangurs- laus 4/4 — Giulio Andreotti, forsætis- ráðherra italiu, staðfesti i dag að stjórninni hefði 'borist bréf, að sögn frá þeim sem rændu Aido Moro, fyrrum forsætisráðherra, en tók jafnfram fram að stjórnin myndi hvergi hvika fyrir hótun- um mannræningjanna. itölsk blöð telja að i bréfinu hafi verið lögö fram ákveöin skilyrði fyrir þvi , að Moro yrði látinn laus. Bréf þaö semhér um ræðir var sent til aðstoðarmanns Moros, og vildi Andreotti ekkert gefa upp um innihald þess. Nærri þrjár vikur eru nú siðan Moro var rænt, og játaði Andreotti að ennþá væru yfirvöld engu nær um það hverjir mannræningjarnir væru eða hvar þeirra væri aö leita. Sunnukórinn á Isafiröi. 40 ára afmæli L.B.K. 20 kórar med 1000 söngmönnum syngja í Rvík 14. og 15. þ.m. Það verður mikil söngvadýrð i Reykjavik nú um miðjan þennan mánuð. Þá munu koma þar sam- an a.m.k. 20 kórar viðsvegar aö af landinu, með um 1000 söngmönn- uin, körium og konum, og halda tvenna tónleika. Tilefniö er 40 ára afmæli L a n d s s a m b a n d s blandaðra kóra. Haldnir verða tvennir tónleik- ar. Þeir fyrri verða i Háskóiabiói föstudaginn 14. april, kl. 21, en þeir seinni i Laugardalshöll, laugardaginn 15. april, kl. 14.00. Fimmtán kórar flytja sjálfstæða söngskrá. Samsöngvunum lýkur með söng 900 manna samkórs L.B.K.. Sinfóniuhljómsveit Is- lands, ásamt hljóðfæraleikurum úr Hljómsveit Tónlistarskólans og Sinfóníuhljómsveitinni i Reykjavik, samtals um 100 manns, mun standa að flutningi tveggja tónverka á þessari sam- eiginlegu söngskrá. Liklegt er að blandaður kór frá Þrándheimi i Noregi, ásamt hljómsveit, samtals um 100 manns, taki þátt i söngleikunum. 1 þeim mun einnig taka þátt sænskur kór, sem hér verður staddur i boði Háskólakórsins. Söngleikum L.B.K. lýkur siðan i Laugardalshöll að kvöldi laug- ardags, með afmælisfagnaði, þar sem verður sameiginlegt borð- hald og fjölbreytt skemmtun fram eftir nóttu með þeim brag, sem söngfólki einu er lagið, þvi „Hvar sem söngvar hljóma hér hefuröu samfylgd góða...”. —mhg Notuöu tækin hjá Lýsi og mjöl ht’.: Fáum ekki lánad til kaupa á nýjum tækjum, segir Árni Gislason forstjóri — 100 milj. kr. mengunarvarnartæki sett upp næsta sumar „Það er rétt sem þið seg- ið frá i Þjóðviljanum í dag að við höfum eða erum að setja upp tæki í verksmiðj- una sem við keyptum notuð frá Færeyjum og Noregi. Hinsvegar kemur það ekki fram hjá ykkur að við vor- um neyddir til þess að kaupa notuð tæki, þar sem við fáum alls enga lána- fyrirgreiðslu að kaupa ný tæki, sem myndu kosta um 100 miljónir króna. Og manni finnst það hart að geta ekki endurnýjað tæki verksmiðjunnar á eðlileg- an hátt á sama tíma og verksmiðjur útá landi virð- ast hafa ótakmarkaðan að- gang að lánsf jármagni til endurnýjunar hjá sér, þar sem byggðasjóður er", sagði Árni Gíslason for- stjóri Lýsis og mjölsh.f. í Hafnarf irði, er hann hafði samband við okkur í gær. Hann benti ennfremur á að verksmiðjan væri nú aö fá ný mengunarvarnartæki, sem Jón Þórðarson á Reykjalundi hefur smiðað. Kostnaðurinn við smiöi og uppsetningu tækjanna er um 100 milj. króna og hefur verk- smiöjan fengið sérstakt lán, uppá 50 milj. kr. sem heilbrigðisráð- herra hefur útvegað henni, annað og meiri lán eru ófáanleg, að sögn Arna. Hann benti á varðandi kaupin á þessum gömlu tækjum frá Færeyjum og Noregi aö vissulega væri hann sammála,þvi að óæski- Soökjarnatækin og skilvindan færeyska. legt væri að þurfa að kaupa notuð tæki til endurnýjunar, en þó liti hann svo á að það væri ill-skárra en að þurfa að loka verksmiðj- unni, en ekki hafi verið um að ræða nema þessa tvo kosti þegar eðlileg lánafyrirgreiðsla var ekki fyrir hendi.—S.dór A hefur skort að fslensku skipasmiðastöðvarnar heföu næg verkefni. Myndin er tek- in af nýsmiði i Stálvik. 85% lánað til nýsmíði fiski* skipa innanlands Til nýsmiða fiskiskipa inn- anlands lánar Fiskveiða- sjóöur 75% kostnaöar og Byggöasjóður 10%. Fisk- veiðasjóðslánin munu vera til 18 ára, en Byggðasjóös- iánin til 12 ára. 1 tilefni af þvi að Bæjarút- gerð Reykjavikur hefur hug á að seija Spánartogara sina þrjá og kaupa fjóra 500 tonna togara þeirra i stað, sneri blaðið sér til Svcrris Július- sonar, framkvstj. Fiskveiða- sjóðs, og spurði hann hver væri munur á lánum til ný- smiði innanlands og til smiða erlendis eða til kaupa á not- uöum fiskiskipum frá út- löndum. Sverrir sagði að þar til á siöasta ári heföi sjóðurinn lánað 2/3 hluta af verði fiski- skipa sem smiðuð væru er- lendis. 1977 var þessu breytt, þó þannig að það verkaði ekki á samninga sem þegar höföu verið gerðir um smiði skipa erlendis. Eftir þá breytingu væri lánað 50% af kostnaðarverðinu til 18 ára, að frádregnum aldri skip- anna, væru þau notuð. Þá sagði Sverrir að Byggðasjóð- ur mundi i framtiðinni ekk- ert lána til kaupa á skipum erlendis frá. Lánin til smiða skipanna innanlands eru greidd úr Fiskveiðasjóði tii skipa- smiöjanna eftir aö smiða- samningur hefur verið yfir- farinn af sjóðnum og eftir þvi sem verkinu miðar. Úm lánakjör vildi Sverrir sem minnst segja á þessu stigi, en Fiskveiðasjóður sendi álit stjórnar sjóðsins um lána- kjör til rikisstjórnarinnar sl. föstudag, en rikisstjórnin tekur svo endaniega ákvörð- un um hver þau verða. Það hefur þó sifellt færst i vöxt að þessi lán séu visitölutryggð. Þau 15% sem á vantar veröa útgerðarmenn sér úti um með ýmsum hætti; lán- um úr bæjarsjóðum, lifeyris- sjóðum sjómanna, bönkum og með einum og öðrum hætti og mun ekki óalgengt að kaupverð nýrra fiskiskipa sé allt lánsfé, en viðskipta- bankar útgerðarinnar votta þaö til Fiskveiðasjóða aö 15% kaupverðsins sé til reiöu hjá viðkomandi. —úþ. Minnkandi traust á ríkisskulda- bréftim Tiltrú manna á rikisskulda- bréfum hefur greinilega farið minnkandi. 1 febrúarmánuði sl. voru gefin út ríkisskuldabréf fyrir eittþúsund og fimmhundr- uð milljónir króna, og er enn nokkur hluti þeirra óseldur. Greiðlega gekk að selja bréfin i fyrstu, en eftir þvi sem lengra leið dró úr sölunni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.