Þjóðviljinn - 15.04.1978, Side 3

Þjóðviljinn - 15.04.1978, Side 3
Laugardagur 15. aprll 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Eþíópar hóta árásum á Sómalíland Otti vid nýtt borgarastríð 14/4 — Ambassador Eþiópiu i Nairobi, höfuöborg Keniu, lýsti þvi yfir i dag aö ef Sómalir hættu ekki skæruhernaöi i suö-austur- fyikjum Eþiópiu myndu Eþiópar svara fyrir sig meö árásum inn fyrir landamæri Sómalilands. Þrátt fyrir ósigur sinn i Ogaden-striöinu halda Sómalir áfram skæruárásum á hersveitir Kúbana og Eþiópa i fylkjunum Ogaden og Bale. Sómalska stjórnin heldur þvi fram að þar herji aðeins skæruliöar sómalska þjóöernisminnihlutans i Eþiópiu, en Eþiópar segja árásarmennina vera úr her Sómaliiands. Ambassadorinnsagöistekki sjá neina ástæðu til þess að Eþiópar virtu landamæri Sómalllands fyrst Sómalir heföu landamæri Eþiópiu að engu. Hann fór hörð- um orðum um sómölsku stjórn- ina, sem hann kvað hegða sér eins og pólitiska vændiskonu. Mun þar visað til þess, að eftir hrakfarirn- ar i Ogaden-striðinu hefg) sómalska stjórnin leitað fyrir sér vltt og breitt um efnahagslega og hernaðarlega aðstoð, þar á meðal frá Bandarikjunum og Kina. Barre forseti Sómalílands er nú i opinberri heimsókn i siöarnefnda landinu. i Siad Barre, forseti Sómalflands — I Eþlópar hóta honum hörðu. Sómalska stjórnin hefur lýst þyi yfir að hún styðji skæruliða sómalska þjóðernisminnihlutans i Eþiópiu áfram, enda þótt hún neiti þvi,að nokkrir menn úr her Sómalilands séu lengur innan eþiópskra landamæra. 14/4— Kyrrtvarí Breirút, höfuð- borg Libanons, i dag eftir fimm daga bardaga i suöausturhluta borgarinnar milli kristinna hægrisinna og múhameöskra vinstrimanna. Palestinumenn, libanskir hermenn og sýrlenskt gæsluliö tókeinnig þátt i bardög- unum. Samkvæmt einni frétt voru aö minnst kosti 50 menn drepnir i bardögunum og urti 250 særöir. Haft var eftir starfsliði sjúkra- húsa að manndauðinn af völdum vigaferla þessara yrði að llkind- um meiri, þvi aö stöðugt væri verið að koma með á sjúkrahúsin fólk, illa sært af sprengjubrotum. Hermenn úr her Libanons börðust aö sögn með hægrimönnum, en skæruliðar úr palestinsku sam- tökunum Saika, sem eru á bandi Sýrlendinga, meö vinstrimönn- um. Bardögunum lauk i nótt er sýrlenskir og súdanskir herflokk- ar i gæsluliði Arababandalagsins, sem á að gæta þess að borgara- strið blossi ekki upp i landinu aö nýju, tóku sér stöðu milli hverfa kristinna og Múhameöstrúar- manna. Aður höföu Sýrlendingar skotið úr stórum faílbyssum á óeirðahverfin til þess að þagga niöur i bardagamönnunum, og að sögn beindu þeir skeytum sinum fremur að hægrimönnum. Sýrland hefur um 30.000 manna her i Libanon, og er þaö liö obbinn af gæsluliöi Arababandalagsins. Margir óttast nú að borgara- strið kunni að nýju aö br jótast út i Líbanon. t borgarastriöinu 1975—76 voru um 60.000 manns drepnir, auk þess sem striðið skildi við stjómkerfi og efnahag landsins I upplausn. Mengast Ganges af plútón- geislun? 13/4 — Indverska stjórnin hefur nú miklar áhyggjur af plútón-knúnu mæiitæki, sem bandariska leyniþjónustan CIA kom að sögn fyrir i Himalajafjöil- um árið 1965 i þeim tilgangi aö fylgjast með kjarnorkuvopnatil- raunura Kinverja. Fréttin af úyllitæki þessu er höfö eftir bandariskum heimildum. Svo slysalega vildi til aö tæki þetta grófst undir skriöu og mun nú ill- finnanlegt. Indverska stjórnin óttast nú að vera kunni að fljótið Ganges mengist af geislavirkni frá mæli- tæki þessu, sem gæti haft I för með sér hættu fyrir míljónir Ind- verja. Þetta er Indverjum þeim mun meira tilfinningamál vegna þess, að Ganges er eitt þeirra helgasta fljót. Talið er að CIA hafi fengið samþykki indverskra stjórnarvalda tii þess aö koma tækinu fyrir I fjöllunum, en hins- vegar mun leyniþjónústan hafa farið á bak við Indverja um hugsanlegar hættur af völdum þess. Alvarlegur ágreiningur Brzezinskis og Vance? 13/4 — Bandariska blaðið New Y ork Tim es h élt þvi fr am i dag aö alvariegur ágreiningur væri milli Cyrus Vance, utanrlkisráöherra Bandarikjanna, og Zbigniews Brzezmski, ráögjafa Carters for- seta um öryggismál, um af- stööuna til Sovétrikjanna. Aö sögn blaösins er Brzezinski harö- linumaöur i þeim málum, en Vance vill fara vægar i sakirnar. Brzezinski er sa-gður saka Vance um að leggja alltof mikla áherslu á samkomulag við Sovét- rikin um herbúnað, eftirlit meö honum og afvopnun, auk þess sem sá fyrmefndi kvaðst vilja að Sovétmenn séu beittir meiri hörku I þvi skyni að knýja þá til að draga saman seglin á austurhorni Afriku. Utanrikis- ráðuneyti Bandarikjanna gaf út óvenju langa tilkynningu af þessu tilefni og neitaði þvi, að um alvar- legan ágreining sé að ræða, en þeirri fullyrðingu mun tekið með nokkurritortryggni. Við byggóum 150m2 einbýlishús í Reykjavik á fjórum dögum! mánudagui—| EKIÐ TIL REYKJAVÍKUR l o..!. ;i i I;J IHUSÉININGARHFl IMAilt þriójudagui— AFHENDING EININGA rfimmtudaguri Húsið var af hent uppsett og frágengið til innréttingar, á 4 dögum rmiðvikudagur UPPSETNING ..‘"“'.."í tilbúió til innréttingar Gjörið svo vel.... skoðið kosti húseininga með eigin augum Einbýlishúsið að Steinaseli 1 Breiðholti LAUGARDAG 15.4: KL.14-22 SUNNUDAG 16.4: KL.14-22 SIGLUFIRÐI

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.